Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1992 17 Það má með sanni segja að Volvo 740 státi af öllum þessum kostum. Enginn efast um hve mikið er lagt upp úr öryggi þeirra sem aka Volvo. 700 línan frá Volvo er framúrskarandi dæmi um það. Volvo 740 er vönduð og glæsileg bifreið hvernig sem á hana er litið. Sem dæmi um þægindi og ríkulegan búnað má nefna: Læst drif sem gerir bifreiðina ákaflega hæfa til aksturs í hálku og slæmu færi, sjálfskiptingu, vökvastýri, pluss sæti, samlæsingu, hljómflutningstæki, litað gler, upphituð framsæti, 2.0 lítra vél með beinni innspýtingu og 121 hestafl. 10 ára frábær reynsla, þetta er bifreið sem endist og endist. Nú bjóðast nokkrir bílar á einstöku verði: 1.999.000. kr. stgr. á götuna. votvo Bifreið sem þú getur treyst! BRIMBORG FAXAFENIS • SlMI 91 - U 58 70 nemendum nú sómasamleg kjör. Með aðgerðum af þessum toga mun tekjuhali ríkissjóðs snúast í tekjuafgang, sem nota má til at- vinnuaukningar og uppbyggingar í byggðurn landsins. Afnám lánskjaravísitölu Loks skal á það minnt, að ég hefi ítrekað lagt fram frumvarp á Alþingi um að leggja niður láns- kjaravísitölu. Hún hefir tvo megin- galla. Annar er sa, að byggingar- kostnaður sem í henni reiknast, er venjulega háður mestum sveiflum í hagkerfinu, þannig að fjárskuld- bindingar hækka meira af völdum vísitölunnar en nemur verðrýrnun þeirra. Hinn ágallinn er sá, að kaup- gjaldsþátturinn í vísitölunni refsar launþegum fyrir sérhveija kjarabót sem þeir fá með aukinni skulda- byrði. Hvort tveggja er verðbólgu- hvetjandi. Fögur orð eru höfð úm það að minnka vægi verðtryggingar og gera hana að samningsatriði. Ef verðtrygging fjárskuldbindinga heldur áfram, þarf tvennt bráð- nauðsynlegt að koma til: 1. Haft sé mið af vísitölu vöru og þjónustu, sem bezt mælir kaup- mátt peninga, eins og raunar tíðk- ast í löndum, sem hafa verðtrygg- ingu í einhveiju formi. 2. Verðtrygging lægstu launa- flokka verði tekin upp samhliða. Það táknar engan veginn, að laun þurfi að hækka upp allan launastig- ann. Annar valkostur er að sjálf- sögðu að lögbjóða og hækka lægstu laun, sem víða hefir gefizt vel. Höfundur er alþingismaður. -------» » ♦------- ■ HEILBRIGÐISHÓPUR BSRB vísar á bug fullyrðingum heilbrigð- isráðherra, Sighvats Björgvins- sonar, sem fram komu í fréttum laugardaginn 8. febrúar sl., þess efnis að gjaldskrárbreytingar ráðu- neytis hans beri vott um sérstaka umhyggju fyrir öldruðum og öryrkj- um. Ráðherra fullyrðir að gjöld lækki fyrir elli- og örorkulífeyris- þega. Samkvæmt gjaldskrá Trygg- ingastofnunar er greitt fynr sjö liði. Gjöldin lækka aðeins í þremur til- vikum af sjö, en hækka í hinum fjórum. Mergurinn málsins er sá að leitað er ofan í vasa aldraðra, öryrkja og sjúklinga til þess að afla ríkissjóði tekna; með aukinni gjald- töku á að spara 550 milljónir í aukn- um sértekjum og lækkun á útgjöld- um Tryggingastofnunar ríkisins. Enda hækkuðu allir gjaldskrárliðir fyrir almenning og fjórir af sjö fyr- ir elli- og örorkulífeyrisþega. (Frcttatilkynning) út í erfitt endatafl. - Dxe6 31. fxe6 - Bf6 32. Hel - Bg6 33. Hcl - Kf8 34. b4 - Be4 35. Hc8+ - Ke7 36. Hc7+ - Kxe6 37. Ha7 - Bc2 38. Hxa6+ - Kd5 39. Ha7 - Be5 40. Ha8 - Bc3 41. Hc8 - Kd4 42. Hc7 - Kd3 43. h4 — Ba4 44. g4 — Bf6 45. h5 — Ke4 og Bareev gafst upp. Afmælismót Taflfélags Kópavogs Taflfélag Kópavogs varð um dag- inn 25 ára og var m.a. haldið upp á afmælið með sveitakeppni. Jafn- framt var verið að halda upp á formlega opnun húsnæðis félags- ins í Hamraborg 5, 3. hæð. Úrslit sveitakeppninnar urðu þessi: 1. Skákfélag Hafnarfjarðar 47 '/2 v. af 60 mögulegum. 2. Taflfélagið Hellir 44 v. 3. Taflfélag Kópavogs, A sveit 29'/2 v. 4. Taflfélag Garðabæjar 28 v. 5. TK, B sveit 17‘/2 v. 6. TK, C sveit 13V2 v. í hafnfirsku sigursveitinni voru þeir Ágúst Sindri Karlsson, Björn Freyr Björnsson, Sigurður Herluf- sen, Sverrir Örn Björnsson, Sigur- bjöm Björnsson og Heimir Ás- geirsson. Fyrir Helli tefldu Ingvar Ás- mundsson, Gunnar Gunnarsson, Þorvaldur Logason, Gunnar Björnsson, Gunnar Freyr Rúna- rsson og Sigurður Áss Grétarsson. Það var ekki að furða þótt gestg- jöfunum gengi illa að ráða við þessa harðsnúnu andstæðinga, en í A-sveit TK tefldu þeir Haraídur Baldursson, Jónas Jónasson, Árni Bjöm Jónasson, Siguijón Haralds- son, Gunnar Örn Haraldsson og Páll Árnason. Taflfélag Kópavogs gaf út veg- legt afmælisblað á þessum tíma- mótum. Formaður þess er Harald- ur Baldursson, varaformaður Gunnar Örn Haraldsson, ritari Gunnar B. Sigurðsson, gjaldkeri Bjarni R. Jónsson og meðstjórn- endur Sigurður Kristjánsson, Hiíð- ar Þór Hreinsson og Siguijón Har- aldsson. Öll starfsemi félagsins fer fram í nýja húsnæðinu í Hamraborg 5, 3. hæð. Hraðskákmót eru tvisvar í viku, á miðvikudögum kl. 20 og sunnudögum kl. 14. Á meðan Skákþing Kópavogs stendur yfir færast hraðskákmótin yfir á laug- ardaga. Unglingaæfingar og kennsla eru á þriðjudögum kl. 17.30 og laugardögum kl. 14. BBC/Ríkisútvarpið - leiðrétting eftir Hörð Vilhjálmsson Síðastliðinn sunnudag birtist við- tal blaðamanns Morgunblaðsins, Ólafs Þ. Stephensens, við Bretann mr. Stephen Milligan, einn af rit- stjórum tímaritsins Economist. Eftur að mr. Milligan hefur fært fram rök fyrir því hvers vegna ekki eigi að einkavæða breska ríkisút- varpið, BBC, ber blaðamaðurinn upp spurningar og eftirfarandi full- yrðingar sem ekki eru réttar: Hann segir að Ríkisútvarpið geti greitt verð auglýsinga niður með því að hækka afnotagjald og keppt þannig óheiðarlega við einkastöðv- ar. Iiann segir ennfremur að Ríkis- útvarpið geti gengið í vasa skatt- greiðenda með því að ríkissjóður greiði rekstrarhallann. Þetta segir hann skekkja myndina og færa Rík- isútvarpinu yfirburðastöðu í sam- keppninni. Hvort tveggja er rangt. Blaðamaðurinn þefur sýnilega ekki lesið upphaf íslendingabókar Ara fróða Þorgilssonar. Það er hon- um bent á að gera. Eftirfarandi upplýsingar óskast birtar, ef menn vilja hafa það frek- ar er sannara reynist. 1. Ríkisútvarpið hefur leitt verð- myndun auglýsinga svonefndra ljósvakamiðla á líkan hátt og Morg- unblaðið hefur verið viðmiðun ann- arra dagblaða um verðtaxta auglýs- inga. Engin rök eru fyrir því, að Ríkis- útvarpið geti greitt auglýsingaverð niður með afnotagjöldunum. Þvert á móti hefur Ríkisútvarpið alltaf haft hæst auglýsingaverð ljósvakamiðla. Heimild til hækkunar afnota- gjalda hefur aldrei verið í höndum Ríkisútvarpsins heldur Alþingis og menntamálaráðherra. í upphafi árs 1986 var afnota- gjaldið 508,33 kr. á mánuði, þar af var hlutur Sjónvarpsins 381,66 kr. en Útvarpsins kr. 126,67 á mánuði. Áskriftargjald Stöðvar 2 mun þá hafa verið 1.000 krónur eða 162% hærra en Sjónvarpsins. Afnotagjaldið var ekkert hækkað frá upphafi árs 1986 til 1. júlí 1987 eða í 1V2 ár, þótt verðbólga milli áranna 1985-1986 hafí verið 21,3% og milli áranna 1986-1987 18,8%. Tvær höfuðástæður voru fyrir hækkun afnotagjaldsins sem ákveð- in var á miðju ári 1987. Útsending- ar Sjónvarpsins á fimmtudögum liófust og innlend dagskrárgerð „Það er skoðun mín að þjóðin öll vilji áfram eiga þessa menningar- stofnun sína eins o g Bretar vilja eiga sitt góða ríkisútvarp.“ þess var stórefld. í þriðja lagi lengd- ust útsendingar Útvarps og Sjón- varps stórlega á þessum árum og í framhaldi af hækkun afnota- gjaldsins. 2. Ríkisútvarpið hefur aldrei „gengið í vasa skattgreiðenda með því að ríkissjóður -greiði rekstrar- halla þess“. Ríkissjóður hefur aldrei greitt rekstrarhalla Ríkisútvarpsins. Hins vegar hefur stofnunin í áranna rás innheimt ótalin hundruð milljóna króna í formi söluskatts og síðar virðisaukaskatts og greitt ríkissjóði þau gjöld skilvíslega, eins og vera ber. Undirritaður hefur ekki heyrt viðskiptavini Ríkisútvarpsins kvarta yfir upphæð afnotagjalda og það er skoðun mín að þjóðin öll vilji áfram eiga þessa menningar- stofnun sína eins og Bretar vilja eiga sitt góða ríkisútvarp. Höfundur er fjármálastjóri Rikisútvarpsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.