Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 5
B 5
T oni gamli
kom til mín eins
oghimnasending
TONA, gamlan bónda, sem er orðinn
óvinnufær og gengur við hækjur, leikur Jón
Sigurbjörnsson, en Toni gamli á sér aldeilis
stoð í raunveruleikanum eins og allar hinar
persónurnar í Bíódögum. Jón segist hafa
orðið sjötugur í nóvember sl. og kominn á
eftirlaun hjá Leikfélagi Reykjavíkur. „En
svo kom Toni eins og himnasending til mín
því nú fæ ég tækifæri til að halda mér við
í faginu. Ég þurfti lítið að hugsa mig um
áður en ég ákvað að slá til. Friðrik Þór kom
til mín með mynd af karlinum og leist mér
strax vel á hann,“ segir Jón.
- Hvað hefurðu annars fyrir stafni fyrir utan að
leika í kvikmynd?
„Ég bý með hestunum mínum á býli mínu, Helga-
stöðum I, sem er neðsti bær í Biskupstungum. Ég
hef átt þessa jörð í 24 ár, en aldrei búið þar árið
um kring fýrr en síðasta ár. Ég flutti alfarið austur
í sveit S fyrravor. Ég er samt enginn bóndi. Ég á
þessi hross, annað ekki, en mér lfður firna vel í sveit-
inni. Ég reiknaði aldrei með að ég færi að vera í
sveitinni árið um kring. Þetta kom einhvem veginn
af sjálfu sér. Ég fékk ekki það út úr leikhúsinu sem
ég alla tíð hafði gert. Þetta var farið að þoma svolít-
ið upp í kringum mig og verkefnin, sem buðust,
vom ekki þess eðlis að ég hefði áhuga á að dvelja
yfir þeim. Síðan ég flutti í sveitina hef ég ekki komið
í leikhús."
- Hvað ertu með marga hesta?
„Það má aldrei spyija hestamenn svona spum-
inga, en ég get sagt þér eitt, þeir eru of margir eins
og hestar em á landsvísu."
- Þekkirðu þá ekki orðið alla hestamenn í Skaga-
firði?
„Jú, það má segja það, svona meira og minna.
Ég hef hugsað mér að heimsækja vin minn, Svein
Guðmundsson hrossaræktanda, þegar ég fæ frídag
frá leiklistinni. Ég hef notið góðs af mörgum skag-
fírskum stóðhestinum."
- Hvemig skynjarðu Tona gamla?
„Þetta er notalegur sveitamaður, fyrmm bóndi á
Spái ekkert
í að verða frægur
það verður að koma í ljós
„ÉG HEF aldrei verið í sveit, eh líst bara
íjómandi vel á mig hér. Ég er líka alveg
íaus við kvíða enda þekktur fyrir það í skól-
anum mínum að vera ófeiminn,“ segir Orv-
ar Jens Arnarsson, sem leikur Tómas, aðal-
hutverkið í Bíódögum.
Örvar Jens er sonur hjónanna Rögnu Bjarkar Þor-
valdardóttur og Arnars Jenssonar og er hann næst-
yngstur fjögurra systkina. Örvar er í Öldutúnsskóla
og segist æfa fótbolta með FH. „Ég hef líka mikinn
áhuga á körfubolta og held bæði með Chicago Bulls
og Phoenix Suns. Á veturna er ég öllum stundum
uppi í fjalli á skíðum. Og svo fínnst mér rosalega
gaman að veiða.“
Hvemig strákur er Tómas?
„Ég veit nú ekki hvað skal segja. Hann er svona
venjulegur strákur, eins og flestir aðrir strákar í
Reykjavík."
- Ertu búinn að læra allt það sem þú átt að segja
í myndinni?
„Já, alla vega það sem ég á að segja í sveitinni.
Ég las handritið vel heima og svo vom haldnar æfíng-
ar fyrir sunnan áður en við lögðum af stað. Æfingarn-
ar voru teknar upp á litla myndavél og fannst mér
ég fá góða æfíngu út úr því.“
- Hvemig datt þér í hug að sækja um hlutverkið?
„Mömmu minni datt það í hug. Það kom maður
til okkar í skólann í vetur að leita að strák í hlutverk
í aðra mynd, Emil og Skunda. Hann pikkaði mig út
og þá vaknaði strax áhugi hjá mér, en það var ann-
ar sem fékk hlutverkið."
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
Félagarnir Toni og Tómas á leið til veiða í Höfðaá
Höfða. Síðan kemur strákur í sveitina og þeir tveir
verða mjög samrýndir. Mér líst mjög vel á Örvar.
Það eru ekki allir sem gætu skilað slíku hlutverki."
Jón nam leiklist í New York 1947-48 og segist
nú eiga 44 ára leikafmæli. Þó hann hafí lengst af
starfað í leikhúsi hefur hann komið nálægt nokkmm
kvikmyndum. „Mér fínnst kvikmyndaleikur að sumu
leyti skemmtilegri. Mér þykir feiknalega gaman að
vera úti við, mun skemmtilegra en vera lokaður inni
í gluggalausu leikhúsi."
- Attu þér uppáhaldshlutverk?
„Ég veit ekki hvað skal segja. Ef við tölum um
kvikmyndir, þá em þessir tveir karlar sem ég lék í
„Landi og sonum“ og „Magnúsi" dálítið spes kar-
akterar."
Fyrir utan hestamennskuna er Jón nú söngkenn-
ari við Tónlistarskóla Rangæinga. „Ég var plataður
út í söngkennslu í fýrrahaust. Ég hélt að ég fengi
ekkert út úr slíku starfí, en það kom fljótlega á
daginn að ég hef mikla ánægju af þessari aukavinnu
minni.“
- Heldurðu áfram að leika?
„Ég held áfram að leika á meðan mér bjóðast al-
mennileg verk. Ef ekki, þá er ég alfarið sestur að í
sveitinni." ■
Örvar Jens og Guðrún Ásmundsdóttir í gervum
sínum sem Tómas og Bríet fyrir utan gamla bæinn
á meðan Ari kvikmyndatökumaður gerir vélarnar
klárar
- Hvað fannst þér um þær fréttir að hafa fengið
hlutverkið í Bíódögum?
„Mér fannst það bara nokkuð gott.“
- Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór,
kannski leikari?
„Ég hef ekkert spáð í það. Það kemur bara í ljós.“
- Heldurðu að þú verðir frægur þegar farið verð-
ur að sýna myndina?
„Það er mjög erfítt að spá um það. Mér er alveg
sama hvort ég verð það eða ekki. Það er allt í lagi ef
ég verð frægur, en ég held að mér fínnist betra að
verða ekki frægur.“
- Af hveiju?
„Ég nenni ekki að fara í fleiri svona viðtöl.“ ■
Þurra húð má
bæta mikið með næringu
ÞURR HÚÐ getur verið tvenns
konar, raka þurr eða fitu þurr.
Ef húðin er fitu þurr, vantar
hana einnig raka, því að fitan
virkar sem einangrun og hindrar
þannig rakann frá því að komast
upp á yfirborðið.
Einstaklingar með þurra húð fá
oft á tilfinninguna að húðin sé
strekkt á andlitið og stundum ein-
kennist þurr húð af grófleiká. Hægt
er að gefa henni næringu með
kremum, möskum, nuddi ofl. Með
réttri meðhöndlun minnkum við lík-
ur á myndun hárfínna lína í húð-
inni og hjálpum húðinni að komast
í eðlilegra ástand.
Við meðhöndlun verður í fyrsta
lagi að byija á að nota hreinsimjólk
fyrir þurra húð. Henni er ekki nudd-
að á, þar sem hún á ekki að fara
djúpt inn í húðina, heldur er henni
strokið lauslega yfír andlitið með
hringlaga hreyfíngum upp í mót.
Því næst er það mesta hreinsað af
með rakri bómull. Að lokum er
andlitsvatni án alkohóls hellt í raka
bómull og mjólkin hreinsuð af.
Með því að hreinsa húðina dag-
lega á þennan hátt fjarlægjum við
dauðu húðfrumurnar af yfirborði
húðarinnar og hjálpum henni að
endumýja sig hraðar. Næst er gott
að þerra andlitið með þurrku áður
en djúphreinsikrem er borið á. Þeg-
ar það er borið á er lögð áhersla á
feitari svæði, enni, höku og nef, sé
einnig um að ræða viðkvæm svæði
þar sem grunnt er í háræðar, ber
að forðast þau. Með djúphreinsi-
kremi hreinsum við dauðu húðfrum-
urnar enn frekar í burtu, örvum
blóðrásina og mýkjum upp húðvegi.
Djúphreinsikrem fýrir þurra húð
er ágætt að nota í mánuð. Síðan
er gott að bera rakamaska á andlit-
ið. Hann er djúpvirkari og nærir
betur en krem. Nota skal raka-
maska fyrir þurra húð a.m.k einu
sinni í viku. Rakamaska má yfir-
leitt nota 2svar til 3svar í viku og
er hann látinn bíða á andlitinu í
10-15 mínútur í senn.
Önnur djúpvirk hjálparmeðöl fyr-
ir húðina eru lífræn úrefni. Ágætt
er að taka kúra með lífrænu úrefn-
unum á nokkurra mánaða fresti.
Þetta eru
dropar, sem
settir eru ann-
að hvort undir
maskann eða
dag- eða næt-
urkrem.
Ágætt er að
klappa líf-
rænu úrefnin
inn í húðina.
Að síðustu
er dag- eða
næturkremið
borið á. Nota
skal krem fyr-
ir þurra húð
til að mýkja
hana og hindra rakatap. Andlitsbað
á snyrtistofu er mjög gott á eins
til 2ja mánaða fresti, því að í and-
litsbaðinu fellst nudd í 20-30 mín-
útur og við það eykst fituframleiðsl-
an innan frá og hjálpar húðinni að
komast í eðlilegra ástand. ■
Halldóra M. Steingrímsdóttir.
Höfundur er snyrtifræðingur.
Meö því aö
hreinsa húðina
daglega f jar-
lægjum vió
dauóu húó-
frumurnar af
yfirborði húð-
arinnar og
hjúlpum henni
að endurnýja
sig hraðar
Eru nærsýnir
betur gefnir en aðrir?
FYRIR um einni öld fóru vísindamenn að velta fyrir sér hvort
samhengi væri milli nærsýni og gáfna. Hvort nærsýnir væru yfír-
leitt betur gefnir en þeir sem hafa arnarsjón, eru fjarsýnir eða
hafa sjónskekkju.
Rannsókn á sam-
henginu þarna á milli
var gerð á 150 þúsund
ísraelskum hermönn-
um og er greint frá
niðurstöðum í nýlegu
tölublaðiði læknarits-
ins Executive Health
report. Reyndust
niðurstöður í samræmi
við fyrri rannsékrj- á
þessu sviði.
Rúmlega þrisvar
sinnum fleiri menn
með greindarvísitöluna
128 vora nærsýnir en
menn með greindar-
vísitöluna 80 eða þar
fyrir neðan.
Þó sýnt hafi verið fram á samhengi milli nær-
sýni og góðrar greindar, eru ástæður þess ekki
ennkunnar.
Dr. Mordechai
Rosner og dr. Michael
Belkin sem gerðu
rannsóknina sögðu að
ástæðan fyrir því að
hermenn urðu fyrir valinu, væri
að í hernum væru menn úr öllum
stéttum og herinn væri því eins
og þverskurður þjóðfélagsins.
I rannsókn þeirra kom einnig í
ljós að tengsl eru milli skólagöngu
. og nærsýni. Meira en tvisvar sinn-
um fleiri langskólagengnir menn
eru nærsýnir en þeir sem hafa
stutta skólagöngu að baki. Miðað
var við að stutt skólaganga væri
8 ár eða minna en þeir sem höfðu
verið í skóla í 12 ár eða lengur
voru taldir í hópi langskólageng-
inna. ■
BT