Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
Ljósmynd/Siguijón
Lúxuslíf á gððu verði
HÚN var smíðuð fyrir Svía í Þýskalandi fyrir um 20 árum,
ausin kampavíni og gefið nafnið Gustav Vasa. Skip með
svo göfugt og sögufrægt nafn er engin hallærisfieyta og
um borð eru veitingasalir, snyrtileg tería, barir, verslanir,
sóldekk o.fl.
Vinsældir ferjuflutninga hafa
farið vaxandi og þrátt fyrir að
Gustav Vasa væri 8.100 lestir að
Kínverjar að ná
sér á strik aftur
FERÐAMANNASTRAUM-
UR til Kina minnkaði all-
verulega í kjölfar stúdentaó-
eirðanna á Torgi hins him-
neska friðar árið 1989. Nú
‘virðast þeir vera að ná sér
aftur á strik og ferðamönn-
um fjölgar hægt og bítandi.
Milli áranna 1991 og 1992 fjölg-
aði ferðamönnum um 14% á síð-
asta ári. Langflestir koma frá
Hong Kong, Macau og Tævan, eða
86%.
Á sama tíma fer þeim Kínverjum
íjölgandi sem ferðast út fyrir Kína
og alls fóru tæplega 3 milljón Kín-
veijar til útlanda í fyrra. í frétt
tímaritsins Asiaweek er greint frá
því að áströlsk ferðayfirvöld geri
sér vonir um að fá aukinn ferða-
mannastraum frá Kína á næstu
árum og að uppi séu hugmyndir
um samstarf jnilli ferðayfirvalda í
Ástralíu annars vegar og Kína hins
vegar.
stærð var skipið innan fárra ára
orðið of lítið til að anna þeim flutn-
ingum sem því var ætlað. Það var
sett á sölulista og fyrir 8 árum
keypti Smyril line í Færeyjum skip-
ið og gaf því nafnið, Norröna.
Á hveiju sumri síðan hefur Nor-
ræna haldið uppi vikulegum ferð-
um og opnar leiðir fyrir okkur
eyjabúa til að aka á eigin bíl hvert
á land sem er.
Sumir spyija hvers vegna maður
skyldi eyða tíma og erfiði í að aka
alla leið til SeyðisQarðar og vera
um borð í skipi í tvo sólarhringa
áður en komið er til Danmerkur,
þegar unnt er að komast til Lúxem-
borgar með flugvél og upp í bfla-
leigubfl þar á örfáum klukkustund-
um? Kostimir eru ýmsir. Það er
ekki tímasóun að ferðast um ís-
land. Sá sem fer utan með Nor-
rænu með bílinn sinn getur ferðast
hringleið um ísland í leiðinni.
Þegar sólin skín er hægt að
liggja í letistól úti á sóldekki og
verða brúnn. Þegar sólin skín ekki
er hægt að fara í bíó, skoða versl-
anir milli þess sem maður nýtur
máltíða í veitingasal.
Ódýrasti pakki sem 4ra manna
fjölskyldu býðst kostar 75.200 kr.
og er þá gert ráð fyrir að bíll sé
með. Þegar reiknað er út hvað
flugfar til Danmerkur, á lægsta
verði, og 4 gistinætur í útlöndum
kosta ijölskylduna, kemur í ljós að
ferðin er ódýr og þá á enn eftir
að borga fyrir bflaleigubflinn. ■
Sigutjón Valdimarsson
Fjölgun teiðamanna í Nnregi
í FLUGBLAÐI SAS fiugfélags-
ins „Scanorama“ segir að útlit
sé fyrir að fieiri erlendir ferða-
menn komi til Noregs í ár en
nokkru sinni. Hver ferðamaður
í Noregi skilur eftir þar ígildi
um 97 þús. kr. Það er skv. út-
reikningum Ferðablaðs þó all-
miklu lægri upphæð en ferða-
maður til íslands færir inn í
efnahagslífið.
Norska ferðamálaráðið segir
þessa þróun hafa verið síðustu ár
og fjöldi ferðamanna hefur aukist
um 9-11% milli ára frá því 1991.
Þetta er trúlega mest aukning allra
Evrópulanda. Nú hafa um 90 þús-
und manns atvinnu af þjónustu við
‘ferðamenn. Árið 1992 voru tekjur
af ferðamönnum í Noregi um 30
milljarðar króna sem er næstum
því jafnmikið og þeir fá fyrir jarð-
gas og tekjur af sjávarafurðum
urðu aðeins þriðjungur af þeirri
upphæð sem Norðmenn höfðu af
ferðamönnum.
- Flestir ferðamenn eru frá
Þýskalandi og hinum Norðurlönd-
unum en Bandaríkjamenn sækja
þangað í vaxandi mæli. Norska
ferðamálaráðið segir að ástæðan
fyrir þessari miklu fjölgun ferða-
manna sé að Noregi hafi tekist að
koma þeirri ímynd sinni inn í huga
ferðamanna að þar sé gott vatn
að fá, náttúran óspillt, landslag
fagurt og loftmengun engin. ■
wmmm
J V FÖSTUDEGI
íslandsferðir eru allt að tvöfalt
dýrari en tll samkeppnislanda
í FRAMHALDI af skrifum mín-
um um samkeppnisstöðu ís-
lenskrar ferðaþjónustu með til-
liti til verðlags ætla ég að reyna
að sýna raunveruleg dæmi um
verð á okkar vöru í samanburði
við svipaða vöru á nokkrum okk-
ar markaðssvæðum. Það er
nokkrum erfiðleikum háð að
bera íslandsferð saman við ferð
til annars lands. Einhveijir
munu segja að það sé ekki hægt.
Víst er Islandsferð sérstök, en
eins og öll vara á varan í sam-
keppni.
Það má enginn trúa því að okk-
ar vara sé svo sérstæð að hún þoli
að vera miklu dýrari en hliðstæð
vara. Það kemur að „sársauka-
mörkum“ neytandans. Setjum okk-
ur í spor ferðakaupanda í Evrópu,
sem er að íhuga íslandsferð. Hann
leitar á ferðaskrifstofu og fær
bækling. Upplýsingar um íslands-
ferðir eru mjög oft í bæklingum
með upplýsingum um aðrar ferðir
til fleiri landa á norðlægum slóðum.
Ferðalangur fær því oftast upplýs-
ingar um ferðir til fleiri landa en
íslands þegar verð er kannað. Þetta
er eins og þegar við fáum bæklinga
um sólarlandaferð og veljum okkur
stað. Þó að við höfum sem næst
ákveðið áfangastað getur óhag-
stæður verðsamanburður breytt
áformunum. Á ferðamarkaði eins
og öðrum skipta verð og gæði vöru
neytanda höfuðmáli. En lítum á
hvað er í boði í nokkrum löndum.
Eingöngu er litið á skipulagðar
ferðir til íslands og ekki teknir ein-
staka þættir þjónustu, en alkunna
er að sumir þættir í ísl. ferðaþjón-
ustu hafa sérstöðu eins og kom
fram í ferðablaðinu sl. föstudag
um verð á bflaleigubílum.
íslandsferð 18-118% dýrarl
en Noregs eða Flnnlandsferð
í þýskum bæklingi einnar ferða-
skrifstofu er í boði ferð til íslands,
15 dagar, áætlunarflug, rútuferð
um ísland, hótelgisting, hálft fæði
og leiðsögn. Þar er einnig á ferð
til N-Noregs. 15 dagar, flug í áætl-
unarflugi til Tromsö, rútuferð um
N-Noreg, hótelgisting, hálft fæði
og leiðsögn. íslandsferð kostar kr.
230.000, en Noregsferðin kr.
195.000. Verðmunur er 18%. Ekki
verður séð að mikill munur sé á
keyptri þjónustu í þessum ferðum.
Lítum á bækling ítalskrar ferða-
skrifstofu. Þar er boðin 11 daga
ferð til íslands og 10 daga ferð til
Finnlands. í báðum er flogið með
áætlunarflugi. Rútuferð með hótel-
gistingu, fullu fæði og leiðsögn. í
Finnlandsferð er tekið fram að gist
sé á 1. flokks hótelum alla ferðina.
Flugtími í ferðinni til íslands er
alls um 8 klst. en 7,5 klst. í Finn-
landsferð. íslandsferð kostar
247.000 kr., en Finnlandsferðin
156.000 kr. Verðmunur er 58%.
Sama ferðaskrifstofa býður og 9
daga íslandsferð hliðstæða þeirra
sem hér var lýst. Verð 220.000 kr.
Verðmunur á 9 daga ferð til ís-
lands og 10 daga til Finnlands er
41%.
Skoðum svissneskan bækling.
Þar er m.a. eftirfarandi íslands-
ferð: Flug í leiguflugi um 7,5 klst.
2 nætur á hóteli í Reykjavík, rútu-
ferð um Suðurland, gisting 5 nætur
á gistihei.milum, hálft fæði og leið-
sögn. Þar er einnig ferð til Finn-
lands: Flug með áætlunarflugi um
6 klst., rútuferð um S-Finnland, 6
nátta gisting, öll herbergi með baði,
hálfu fæði og leiðsögn. Islandsferð:
129.000 kr., en Finnlandsferðin
82.500 kr. Verðmunur er 56%.
Þama er flug verðlagt sérstaklega
og má bera saman verð þessara
ferða án flugs til og frá áfanga-
stað. Þá kostar íslandsferð 94 þús.
kr. en Finnlandsferð 43.500 kr.
Verðmunurinn 116%. Að því frá-
töldu að í íslandsferðinni er um að
ræða einni gistinótt meira virðist
hliðstæð þjónusta boðin. Skv. því
má álykta að slík íslandsferð sé
allt að tvöfalt dýrari en ferð með
hliðstæðri þjónustu til Finnlands.
Þessar upplýsingar hljótá að vera
alvarlegt umhugsunarefni. Ekki
verða tekin fleiri dæmi nú, en af
nógu er að taka. Fróðlegt væri að
bæta ferðum til Svíþjóðar og ír-
lands í þennan samanburð sem
skv. könnunum eru meðal sam-
keppnislanda. Þar stöndum við illa
að vígi f verðsamanburði. Undir-
strikað er að ekki er reynt að verð-
leggja J)að aðdráttarafl sem ísland
er, né Island sjálft sem áfangastað.
Hér hefur eingöngu verið borið
saman verð á þjónustu, sem seld
er til ferðamanna, sem hyggja á
ferð á norðlægar slóðir. Og hér
hefur aðeins verið litið á einn sam-
keppnisþátt, verð þjónustu. Ekki
er hægt að skilja við málið án þess
að minnast á gæði. Eru gæði í
samræmi við verðið? Eru gæði ísl.
ferðaþjónustu samkeppnisfær við
gæði samkeppnislanda? Umfjöllun
um það bíður að sinni. Við þessa
skoðun á verði var ég enn minntur
á hve gífurlegt þrekvirki hefur ver-
ið unnið af starfsfólki íslenskrar
ferðaþjónustu að takast að halda ’í
horfinu við sölu á þessari dýru vöru
í samkeppni við miklu ódýrari vöru
samkeppnislandanna.
Við þessar samkeppnislegu að-
stæður standa fsl. ferðaþjónustu-
menn frammi fyrir því á næstunni
að verðleggja Islandsferðir næsta
árs. Sú vinna verður ekki auðveld.
Meta þarf áhrif gengisfellinga.
Tekjur hækka, en skuldir flestra
einnig. Þá hækka innlend aðföng
vegna gengisfellinganna, s.s. inn-
lend flugfargjöld, rútukostnaður
o.fl Þá hækkar kostnaður vegna
markaðssetningar erlendis og
þættir, sem greiddir eru beint í
erlendri mynt. Þegar tekist hefur
að meta áhrif gengisfellinganna þá
er næst að meta áhrif 14% virðis-
aukaskatts á alla gistingu, flug-
ferðir og rútuferðir innanlands frá
næstu áramótum og tengdar að-
gerðir.
Svíar stórlœkka vsk. á
ferðaþjónustu
Þegar þessir reikningar eru að
baki, eða ætti ég að segja áður,
verður að skoða samkeppnisstöðu
atvinnugreinarinnar. Til viðbótar
því skal nefnt að l.júlí lækkuðu
Svíar virðisaukaskatt á hótelgist-
ingu og fólksflutninga úr 21% í
12%. Isl. ferðaþjónustumenn eru
þessu sammála og dæmin hér stað-
festa nauðsyn þess. Fylgjum við
ekki lögmálum markaðarins um
verð' og gæði náum við ekki
árangri.
Þrátt fyrir allar þessar stað-
reyndir er ákveðið að leggja virð-
isaukaskatt á ferðaþjónustu til við-
bótar við alla sérskatta, s. s. flug-
vallargjald, vegaskatt, innritunar-
gjald, vopnaleitargjald o.fi. og nýj-
asta sérskattinn, veðurstofugjald!
Stjómvöld og ferðaþjónustuað-
ilar verða í sameiningu að finna
leiðir til lækkunar á verði íslenskr-
ar ferðaþjónustu. Samkeppnihæfni
í verði og gæðum mun skapa ríkis-
sjóði og okkur öllum auknar tekjur.
Þó ísland sé sérstakt ferða-
mannaland og engu líkt eram við
ekki með svo einstaka vöru að hún
sé óháð allri samkeppni og verð og
gæði skipti eng. Öðra nær. Sérstök
vara verður að vera samkeppnisfær
við aðra sérstaka vöra á markaðn-
um í verði og gæðum. ■
Magnús Oddsson
Höfundur er markaðsstjóri
Ferðamálaráðs