Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ r LANDIÐ Skóli greiði bætur HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Þelamerkurskóla og sveitarsjóði nærliggjandi hreppa til að greiða ungum pilti tæplega 1.200 þúsund krónur með vöxt- um í skaðabætur vegna slyss sem hann varð fyrir við skólann fyrir nokkrum árum þegar hann féll í 80° C heitt vatn og skað- brenndist. Sýknaði rétturinn ís- lenska ríkið jafnframt af skaða- bótakröfum hans. Skólanefnd Þelamerkurskóla leigði húsnæðið út til hótelrekst- urs utan skólatíma og féll piltur- inn í brennandi heitt vatn á lóð-' inni, þá sex ára. í dómnum seg- ir að skólinn hafi borið ábyrgð á viðhaldi og frágangi á heita- vatnsleiðslum á lóðinni, en sjóð- heitt vatn hafði lekið úr þeim og myndað dý í grassverði. Þá segir að samkvæmt lögum um verkskiptingu ríkis og sveit- arfélaga beri ríkinu einvörðungu að sjá um hinn uppeldislega þátt skólastarfsins en að sveit- arfélögin standi straum af kostnaði við -umgjörð skóla- starfsins. Því beri ríkið ekki skaðabótaábyrgð á slysinu. ■ MS. FAGRANES verður með áætlunarferð á milli ísafjarðar og Arngerðareyrar á föstudag. Þá verða aukaferðir á miðvikudag, fimmtudag og laugardag ef næg þátttaka fæst. Föstudagskvöldið 24. maí kl. 20 fer skipið í skemmtisigl- ingu um ísafjarðardjúp. í boði verða ýmsir smáréttir og skemmtiatriði verða um borð. Öruggara er að panta í þessar ferðir. Á annan í hvítasunnu fer skipið í siglingar í Breiðafjörð fyrir ms. Baldur og verður þar til 5. júní. Þá hefst sumaráætlun Fagraness í ísa- fjarðardjúp og á Hornstrandir. Nýstárlegt námskeið haldið í Hveragerði i samstarfi við heilbrigðisráðuneytið Hætt að reykja á Heilsustofnun Hveragerði - Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði lauk nýverið viku námskeiði til hjálpar þeim sem vilja hætta að reykja. Nám- skeiðið var haldið að beiðni heil- brigðisráðuneytisins og er það einn þáttur í stærra verkefni á vegum ráðuneytisins til að minnka reykingar meðal lands- manna. Ýmis námskeið hafa áður verið haldin til aðstoðar fólki sem vill hætta að reykja, en á þessu nám- skeiði var bryddað upp á ýmsum nýjungum. Ein sú stærsta er sú að allir þátttakendur bjuggu á Héilsustofnunini á meðan á nám- skeiðinu stóð. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að breyta um lífs- stíl. Þátttakendur stunduðu lík- amsrækt í ýmsu formi, slökun, hlýddu á fyrirlestra, tóku þátt í umræðuhópum og ýmsu fleiru. Fastir fundir voru tvisvar á daga allan tímann. Gott að komast úr venjulegu umhverfi Þátttakendum, sem voru tólf talsins, bar saman um það að námskeiðið hefði fyllilega staðið fyrir sínu. „Það var mjög gott að komast úr sínu venjubundna umhverfi og reyna að breyta um venjur. Við sem öll vorum stórreykingafólk höfum hætt og varla langað í síg- arettu þennan tíma. Þetta er einn- ig stórskemmtilegur hópur og við höfum virkilega notið dvalarinnar hér,“ sagði einn þátttakenda. Umsjónarmenn námskeiðsins voru Gunnhildur Valdimarsdóttir, húkrunarforstjóri og Þorkell Guð- brandsson lyf- og hjartalæknir í HNLFÍ. Gunnhildur sagði að- spurð að stór hluti af námskeiðinu fælist í því að veita þátttakendum andlegan og félagslegan stuðning við það að hætta að reykja. Lík- amsrækt og fræðsla um breyttan lífsmáta væri mjög mikilvægur liður í dagskránni. „Þrátt fyrir að námskeiðinu sé nú lokið hér innan dyra þá heldur aðhaldið að þátttakendum samt sem áður áfram. Fylgst verður með fólkinu í ár og á þeim tíma verður hist tvisvar til þrisvar sinn- um og jafnframt boðið upp á sí- matíma þeim til stuðnings. Loka- mat á árangri þátttakenda fer síðan fram að þeim tíma liðnum,“ segir Gunnhildur. Hún sagði að nú yrði unnið úr þeirri reynslu sem fengist hefði af námskeiðinu og stefnt væri að því að halda fleiri slík námskeið sem allra fyrst. Marhnútar o g krabbar á bryggjumóti Ólafsvík - Stjóstangaveiðifélag Snæfellsness hélt sitt árlega bryggjumót í stangveiði fyrir börn í Krossavík við Hellissand á uppstigningardag. Metþátttaka var og um 200 börn og foreldrar voru saman komin til að taka þátt í þessari vinsælu keppni en veður var eins og best verður á kosið en veiði var fremur dræm en ekki spillti það fyrir gleði yngstu keppendanna. Þó veiddust nokkrir marhnútar og sá stærsti vó 396 grömm og einnig veiddust nokkrir krabbar, eitt sandsíli og einn keppendanna dró skósóla upp. Að keppni lokinni var boðið upp á kók og grillaðar pylsur í boði Fiskmarkaðar Breiðafjarð- ar sem einnig gaf öllum kepp- endum derhúfur. Morgunblaðið/Alfons ÞESSIR ungu hressu veiðimenn tóku hraustlega til matar síns að keppni lokinni og voru þeir greinilega ánægðir með að fá kók og pylsu enda erfiðri keppni lokið. Vorátak fyrir heilsuna og útlitið Jj j u ifjif iiiBijiy i jhií Sumar hjá jsb Nýtt í sumar! Aðhaldsflokkar 5 sinnum í viku, 4 vikur í senn. Lokaðir flokkar. Vigtun, mæling, mataræði. Sumarkort Frjáls mæting. 30% afsláttur af 4ra vikna kortum til 17. júlí. Aðhaldsnámskeið 29. maí Innritun hafin Barnapössun alla daga frá kl. 9-13. INNRITUN HAFIN í S(MA 581 3730. LÁGMÚLA 9 LÍKAMSRÆKT Vædderen í vináttuferð Seyðisfirði - Undanfarna daga hef- ur danska eftirlitsskipið Vædderen verið í vináttuheimsókn á Austur- landi og verið í höfn í Seyðisfirði. Á föstudaginn var almenningi boðið að koma um borð og skoða skipið og á laugardaginn var fólki úr ýmsum geirum þjóðlífsins sér- staklega boðið í siglingu. Farið var með fólkið í fjögurra tíma ferð til þess að kynna skipið og sýna notk- unarmöguleika þess. Þyrla Land- helgisgæslunnar tók einnig þátt í sýningunni. Boðið var upp á ýmislegt til skemmtunnar og fróðleiks á meðan skipstjórinn, Kai Rasch Larsen sigldi skipi sínu um Seyðisfjörð. Á leið út fjörðinn var sýnt hvernig farið er að því að taka við hraðskreiðum gúmmibáti og ná honum fullmönn- uðum um borð i skipið sem var þó á siglingu. Um borð í Vædderen er staðsett Lynx-þyrla og sýndu flug- menn hennar að hvaða gagni hún mætti koma við björgun á sjó. Núverandi Vædderen ber sama nafn og eldra skip sem nú hefur verið lagt og var íslendingum vel þekkt eftir að það kom með handrit- in á áttunda áratugnum. Vedderen er af „Thetis“ gerð, sem er það nýj- asta í flota Dana og smíðað hjá Svendborg í Danmörku. Skipið til- heyrir 1. flotadeild danska sjóhersins sem samanstendur af fimm svoköll- uðum eftirlitsskipum. Fjögur þeirra eru af „Thetis" gerð og hafa verið smíðuð á undanförnum sex árum, en eitt skipanna er eldra. Yfirmaður þessarar deildar er Axel Fiedler og var hann staddur um borð til þess að kynna gestum starfsemina. Höfuðverkefni þessara skipa eru ýmiss konar eftirlitsstörf og björgunarstörf, ekki ólík þeim störfum sem skip íslensku Landhelg- isgæslunnar sinna. Þau voru hönnuð sérstaklega til notkunar við fisk- veiðieftirlit, landhelgisgæslu, vernd- un fullveldis, sjó- og flugbjörgun, umhverfisvernd, ískönnun og til að aðstoða yfirvöld og íbúa hinna ýmsu byggðalaga. „Thetis" skipin eru sérstaklega hönnuð til notkunar á norðlægum úthöfum og hafa reynst í alla staði vel. Þau eru um 3.500'tonn að stærð, 120 metrar á lengd og 16 metra breið, og geta siglt 8.300 sjómílur án viðkomu. Um borð er 60 manna áhöfn og pláss fyrir 11 farþega. Að öllu jöfnu eru skipin úbúin með vist- ir til 4 mánaða úthalds. Þau eru búin kafbátarleitartækjum og geta sinnt olíuleitarverkefnum einnig. Vopnabúnaður er ein stór fallbyssa sem getur skotið 120 skotum á mín- útu og djúpsprengjur. Um borð er ein þyrla af Lynx-gerð. Hámarks- hraði skipanna er 20 hnútar. Þau eru sérstaklega útbúin til siglingar í ís og geta haldið allt að 12 hnúta hraða í ís sem er allt að 60-80 senti- metra þykkur. i l t i | L I I I t I I í t I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.