Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ‘ Nauta- kjötsverð skráð á ný VERÐ á nautakjöti var skráð á ný á mörkuðum í London í gær í fyrsta sinn frá því í mars er sala á nautgripaafurð- um snarminnkaði í kjölfar til- gátna vísindamanna um að kúariða gæti borist í menn. Eftirspurn hefur smám saman aukist aftur en verð er enn nokkuð lægra. Embættismenn dýralækninga í Evrópusam- bandsríkjum hófu aftur fundi í gær til að ræða hvort aflétta ætti banni á sölu á bresku nautakjöti til annarra landa. BOSNÍSKIR hermenn á æfingu í Ankara. Tyrkir þjálfa Bosníuher TYRKNESKI herlið í Ankara hóf í gær að þjálfa um 200 múslima úr Bosníuher að frumkvæði Bandaríkjamanna sem leggja til hergögn og ann- an búnað. Telja þeir nauðsyn- legt að Bosníuher verði efldur til að verða jafnöflugur og liðs- afli Bosníu-Serba. Fulltrúar ýmissa Evrópuríkja eru and- vígir aðgerðunum, telja að þær geti skaðað samstarf múslima og Króata í sambandsríki þeirra í Bosníu. * Uransmygl í Litháen LÖGREGLA í Litháen hefur lagt hald á 13 kíló af geisla- virku úrani og handtekið sex manns sem reyndu að selja efnið. Efnið fannst í tveim gámum I hafnarborginni Kla- ipeda. Yfírvöld segja að ekkert sé vitað um uppruna úransins eða kaupendur þess. Herferð gegn Dalai Lama KÍNVERSK stjómvöld hafa hert á banni við því að Tíbetar megi eiga myndir af veraldleg- um og trúarlegum leiðtoga þjóðarinnar, Dalai Lama, sem er i útlegð. Komið hefur til átaka I klaustri þar sem munk- ar neituðu að fjarlægja mynd- imar sem hafa verið leyfðar frá 1979. Kommúnistar saka Dalai Lama um að grafa und- an ríkinu með því að heimta aukið sjálfræði fyrir Tíbeta. Breytt hval- veiðistefna? SUÐUR-AFRÍKUMENN íhuga að slaka á banni við hvalveiðum, hætta fullri þátt- töku í Alþjóðahvalveiðiráðinu og sporna við öfgafullum áróðri hvalfriðunarsinna, að sögn Reuters. Segist frétta- stofan hafa komist yfír trúnað- arskjal þar sem segir að frá næsta ári komi til greina að landið verði aðeins áheymar- aðili að ráðinu. Talsmaður S-Afríkustjómar segir að ekki sé búið að taka ákvörðun í málinu. Klofningur ! í Verka- Lýðræðislega kjörinn forseti settur inn í embætti á Tævan Lee býðst til að fara í heimsókn til Kína Taoyan, Peking. Reuter. TALSMENN Kínastjórnar tjáðu sig ekkert í gær um tilboð Lee Teng-huis, forseta Tævans, sem sagði í ávarpi er hann var settur inn í embætti í gærmorgun að hann væri reiðubúinn að fara í heimsókn til Kína til að bæta sam- skiptin. Sérfræðingur í málefnum Tævans við Peking-háskóla, Li Yihu, sagði að forsetinn hefði að vísu sagt að hann myndi ekki beij- ast fyrir fullu sjálfstæði Tævans en hann hefði ekki sagt með ótví- ræðum hætti að aðeins eitt ríki væri í Kína. Kínverskir embættismenn hafa áður sagt að Lee mætti gjaman koma í heimsókn sem formaður stjómarflokksins á Tævan en ekki sem forseti. Li taldi þó vafasamt að rétti tíminn væri runninn upp fyrir slíka heimsókn. Lee Teng-hui bauðst í ræðu sinni til að fara í „friðarferð" til Kína og auka bein tengsl við leiðtoga landsins en vísaði á bug kröfum kommúnistastjómarinnar í Peking um að hann drægi úr viðleitni sinni til að auka veg og virðingu Tævans á alþjóðavettvangi sem sjálfstæðs ríkis. Sameining enn takmarkið Lee sagði að enn sem fyrr væri það takmark sitt að sameina Tævan og Kína en lagði áherslu á að skil- yrðið væri að lýðræði ríkti á megin- landinu. Stjórnmálaskýrendur sögðu að ekki hefðu verið kynntar neinar markvissar aðgerðir til að bæta sambúðina við kommúnista Reuter LEE Teng-hui, forseti Tæ- vans (neðst fyrir miðju), og fleiri leiðtogar Þjóðarflokks- ins veifa til fólks sem hlýddi á innsetningarræðu Lees í Taoyuan, skammt frá höfuð- borginni Tæpei. sem reyndu árangurslaust að þvinga Tævana til að falla frá öllum sjálfstæðishugmyndum fyrir for- setakosningarnar nýverið með miklu orða- og vopnaskaki. Til þess var tekið að Lee minnt- ist ekki á að afnema bæri bann við beinum og milliliðalausum viðskipt- um og samgöngum við Kína. Tæ- vönsk fyrirtæki hafa fjárfest 20-30 milljarða Bandaríkjadollara, 1.300- 2.000 milljarða króna, á meginland- inu og nota þá fyrirtæki í öðrum löndum sem milliliði. „Ríki lýðræðis, hagsældar og framfara“ Tævanforseti uppskar fagnaðar- læti er hann hyllti lýðræði á Tævan en hann er fyrsti lýðræðislega kjömi þjóðarleiðtoginn í kínversku ríki sem um getur í sögunni. „Kín- veijar, sem Vesturlandabúar álitu fyrir einni öld að væru einræðissinn- aðir, byggju við lénsskipulag, væm blásnauðir og fmmstæðir, hafa á Tævan skapað nýtt ríki lýðræðis, hagsældar og framfara," sagði hann. Lee hvatti til þess að árangur- inn á Tævan yrði fyrirmynd að framtíðarþróun mála í öllu Kína. Forsetinn gerði gys að andstöðu Kína við sjálfstæðistilburði Tævans, sagði að landið væri nú þegar sjálf- stætt í reynd. Tævanar eru rúmlega 21 milljón og efnahagur þeirra stendur með miklum blóma, útflutningur þeirra er hinn tólfti mesti í heimi og gjald- eyrisvarasjóður næststærstur, að- eins Japanar eiga meira. Innsetning Lees í embætti staðfestir með ótví- ræðum hætti þróun Tævans til lýð- ræðis frá einræði Kuomintang- flokks þjóðernissinna sem hröktust til eyjarinnar 1949 er herir komm- únista sigruðu í borgarastríðinu á meginlandinu. A hinn bóginn var einangmn Tævana á alþjóðavettvangi einnig augljós. Þeir hafa aðeins stjórn- málasamband við 31 ríki, flest ríki heims hafa látið undan þeirri kröfu kommúnista að ijúfa bera sam- bandið við Tævan. manna- flokknum? London. Reuter. FULLYRT er að ágreiningur fari | vaxandi í breska Verkamanna- flokknum um ýmis mál og blaðið Sunday Telegraph sagði að hópur óánægðra vinstrisinna meðal þing- manna flokksins hygðist stofna nefnd sem starfa myndi án nokk- urra afskipta formanns flokksins, Tonys Blairs. George Brown, sem fer með fjármál í skuggaráðuneyti Verka- mannaflokksins, gerði lítið úr deil- unum í gær. Brown hefur vakið hörð viðbrögð margra flokks- manna með því að leggja til að sumar barnabætur verði lagðar af. Undir forystu Blairs hefur flokkurinn haslað sér völl á miðju stjómmálanna og fjarlægt gömul ákvæði um þjóðnýtingu úr stefnu- skránni. Undanfarna mánuði hef- ur Verkamannaflokkurinn verið með mun meira fylgi í könnunum en íhaldsflokkur Johns Majors for- sætisráðherra þar sem hart er tek- ist á um Evrópumál. Margir hafa á hinn bóginn gagnrýnt stefnu Blairs og ekki síður stjómstíl hans, segja hann ekkert tillit taka til sjóparmiða annarra. í könnun sem blaðið Sunday Times gerði kom fram að 38% kjósenda telja að pólitískur klofn- ingur sé jafn mikill í Verkamanna- flokknum og íhaldsflokknum. 60% fyrrverandi kjósenda Ihaldsflokks- ins, þeir em mikilvægur markhóp- ur fyrir Blair og hans menn, álíta að sundurlyndi sé mikið í Verka- mannaflokknum. Persson genr lítið úr Evrópuandstöðu París. Reuter. GÖRAN Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, gerði lítið úr Evrópuand- stöðu Svía í viðtali við franska dag- blaðið Le Monde i gær, en hann hefur í dag opinbera heimsókn til Frakklands. Persson sagðist sannfærður um að meirihluta Svía myndi samþykkja Evrópusambandsaðild á ný ef haldin yrði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um málið. „Við verðum að vara okkur á skoðanakönnunum þar sem óánægja út af hinu og þessu kemur fram,“ sagði Persson þegar hann var spurður um kannanir er bentu til að tveir af hveijum þremur Svíum sæu eftir því að hafa samþykkt aðild. Margir Svíar kenndu ESB um þann mikla niðurskurð er nauðsyn- legt hefði verið að gera á ríkisfjár- málum. Óvissa um EMU Persson sagðist hins vegar efast um að sænska þingið myndi sam- þykkja aðild að Myntbandalagi Evr- ópu eins og mál standa þessa stund- ina. Þingið mun taka afstöðu til EMU síðari hluta næsta árs og sagði Persson að þá kynni afstaða þing- manna vel að hafa breyst. Hann var einnig spurður um and- stöðu Svía við kjarnorkutilraunir Frakka og sagði að sá kafli í sam- skiptasögu ríkjanna væri nú á enda. Frakkar og Svíar væru samstíga í samningaviðræðum í Genf um að banna allar kjarnorkutilraunir. Jacques Chirac Frakklandsforseti aflýsti opinberri heimsókn Ingvars Carlssons, forvera Perssons, í sept- ember á síðasta ári vegna harðrar andstöðu hans við kjarnorkutilraun- ir. Túlkaskortur hjá ESB • STOFNUNUM Evrópusam- bandsins hefur enn ekki tekizt að fínna nógu marga hæfa túlka til þess að hægt sé að fylgja reglum um að túlkað sé af öllum opinberum tungumálum sambandsins á fund- um. Þetta kemur verst niður á nýju aðildarríkjunum, Finnlandi og Sví- þjóð. Að sögn European Voice eru hins vegar bæði Finnar og Svíar í Brussel miklir málamenn, þannig að þetta kemur ekki svo mjög að sök. Erkki Liikanen, framkvæmda- stjómarmaðurinn frá Finnlandi, læt- ur sig til dæmis ekki muna um að svara spumingum á blaðamanna- fundum jafnt á ensku og frönsku, þótt ýmsir aðrir framkvæmdastjóm- armenn vilji eingöngu tala eigið tungumál. Fyrir stuttu spurði finnsk blaðakona Liikanen hins vegar spumingar á sameiginlegu móður- máli þeirra. Tugir blaðamanna fálm- uðu eftir heymartólum sínum, en þar ríkti þögnin ein þar sem glerbúr fínnska túlksins var tómt. Danskir blaðamenn minntust þess að túlkun af dönsku var ekki tryggð fyrr en fimm árum eftir að Danmörk gekk í Evrópusambandið. Reuter JÓHANNES Páll II páfí blessar slóvensk börn. Páfi segir Evrópu í kreppu Maribor, Slóveníu. Reuter. JÓHANNES Páll II páfi segir að Evrópa sé heimsálfa í kreppu og íbúar hennar, báðum megin gamla járntjaldsins, séu rótlausir í andlegum málum og eigi á hættu að glata menningarlegri sjálfsvit- und sinni. „Þetta er stund sannleikans í Evrópu,“ sagði páfi í ræðu, sem hann hélt yfir mennta- og lista- mönnum í Slóveníu við lok þriggja daga heimsóknar sinnar til lands- ins. „Múrarnir eru hrundir, járn- tjöldin eru horfin en mennirnir eiga í huga sínum og samvizku erfiðara en nokkru sinni fyrr með að skilja tilgang lífsins og gildi frelsisins." Páfí sagði að Evrópa þyrfti á því að halda að kristin trú og lífs- gildi styrktust. Hann sagði and- rúmsloft angistar og „djúpstæða menningarlega kreppu“ ríkja í álf- unni. Hann sagði að endalok hug- myndafræðilegra átaka hefðu skil- ið eftir sig tómarúm, en jafnframt hefðu þau endurvakið minningar um forna frægð og menningarleg- ar rætur. Þjóðmenningin mikilvæg Boðskapur Jóhannesar Páls til Slóvena var þessi: „Eingöngu fijó- söm og lifandi þjóðmenning getur vemdað ykkur fyrir hættunni á ringulreið og að hverfa nánast í heimi, sem er'ógnað af grárri eins- leitni ... Hún mun líka hjálpa ykk- ur að ganga inn í nýja Evrópu og standa þar fullkomlega jafnfætis öðrum löndum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.