Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRIÐRIK GÍSLASON + Friðrik Gíslason fæddist i Hafn- arfirði 5. nóvember 1964. Hann lést af slysförum í Tælandi 26. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin sr. Gísli Friðriksson frá Akranesi, síðast prestur í Lundi í Svíþjóð (d. 23. júlí 1987) og Guðlaug Sigurðardóttir i Hafnarfirði. Hálf- bróðir Friðriks af móður er Sigurður Sigurðsson, búsettur í Keflavík. Hálfsystur af föður eru Jónína og Ragnheiður, báðar búsettar í Svíþjóð. Bróðir þeirra, Orri, varð bráðkvaddur 26. júní 1988. Öll jarðnesk reynsla jafnast senn. í Jesú nafni drekkum enn hinn nýja, beiska bikar. Því undirgefni og auðmjúk lund sé okkar mark á hverri stund, svo lengi lífsæð kvikar. (M. Joch.) Enn er okkur beiskur bikar bor- inn. Sonur minn, sonarsonur, dótt- ursonur og auk þess eiginmaður, allir kvaddir fyrirvaralaust til hinstu ferðar á aðeins sex ára tímabili. Og nú er elsti sonarsonurinn einnig horfinn sömu leið af slysförum í fjarlægu landi, aðeins 31 árs að aldri. Ég skil ekki öll þessi þungu högg, sem dauðinn greiðir fjölskyldu minni. En ég hef reynt og vil enn reyna að fylgja heilræði skáldsins og trúmannsins mikla, að mæta hverri mótlætishröm, sem yfir dyn- ur, „með undirgefni og auðmúkri lund“ og segja í anda frelsarans, Jesú Krists, með orðum annars skálds. En verði Guð þinn viiji þó veg þinn ei ég skilji ég fús hann fara vil. Það er bjart yfir minningunum, sem hugurinn geymir um hugljúfa drenginn minn, sem alltaf mundi eftir ömmu sinni á Akranesi og sýndi það svo oft, bæði í orði og verki, hvað honum þótt vænt um mig. Við áttum saman sárar sorgar- stundir, en gleðistundirnar, sem hann gaf mér, bæði á meðan hann var lítið barn og ekki síður eftir að hann varð fullorðinn, voru þó miklu fleiri. í hvert sinn sem hann heim- sótti mig, kom hann alltaf með sól- skin í bæinn. Mér fannst svo oft, ekki síst seinustu árin, hann vera Friðrik var ókvæntur og barn- laus. Friðrik ólst upp hjá móður sinni. Hann lauk stúd- entsprófi frá Flens- borgarskóla vorið 1984. Eftir það stundaði hann um skeið nám við Há- skóla Islands en hvarf svo frá námi og hóf störf á bæj- arskrifstofu Hafn- arfjarðar. Síðustu árin stundaði hann sölumennsku á eigin vegum. Útför Friðriks fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. einn bjartasti ljósgeislinn í lífi mínu. Þó að foreldrar hans bæru ekki gæfu til að eiga samleið nema fyrstu fimm æviárin hans, var sam- band hans við mig og fjölskyldu mína alltaf opið, órofið og traust. í nokkur ár dvaldi Friðrik erlend- is með móður sinni og stjúpföður. Þá voru bréfín hans sannkallaðar perlur á daganna festi. Fermingar- vorið sitt kom hann svo aftur heim. Þá áttum við ógleymanlega ham- ingjustund með honum. Hann stundaði nám í Flensborg- arskóla og lauk stúdentsprófí þaðan vorið 1984. Eftir það fór hann í Háskólann og leitaði þar fyrir sér á ýmsum sviðum, en fann þar ekki þann grundvöll, sem honum fannst fýsilegt að byggja framtíð sína á, þó að námshæfíleika skorti hann ekki. Hann hvarf því frá frekara námi og fór að vinna. Um skeið starfaði hann á bæjarskrifstofunni í Hafnarfirði og nú síðast fékkst hann við sölumennsku á eigin veg- um. Hann hafði eignast vini í Tæ- landi og á þeirra fund var förinni hinstu heitið. Hann dvaldi hjá mér síðustu dagana áður en hann fór. Hann var glaður og fullur tilhlökk- unar eins og barn. Það var bjart yfír kveðjustundinni, en bjartastir voru þó gleðigeislamir, sem ljóm- uðu í augum góða drengsins míns. Þeir geislar ljóma enn í sál minni, þó að ljósgjafínn sjálfur sé horfínn á æðri leiðir. Ég þakka honum allar stundirn- ar, sem við áttum saman, fyrir þá miklu umhyggju, hlýju og ástúð, sem hann alltaf sýndi mér. Svo fel ég hann góðum Guði og bið þess, að bjartir englar hans megi ávallt yfir honum vaka. t BJÖRGVIN MAGNÚSSON frá Geirastöðum í Hróarstungu, lést þann 17. maí sl. Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Jóhanna Ingólfsdóttir, Svali Hrannar Björgvinsson, Zóphónías Hróar Björgvinsson, Margrét Björgvinsdóttir. t Systir okkar, HALLFRÍÐUR ÓLÖF KRISTINSDÓTTIR APTIZ frá Patreksfirði, búsett i Bandaríkjunum, lést 17. maí 1996. Brynjólfur Kristinsson, Kristrún Kristinsdóttir, Valur Kristinsson, Pétur Þór Kristinsson, Gunnar Kristinsson. MINNINGAR Móður hans og systkinum sendi ég mínar dýpstu og einlægustu samúðarkveðjur. Öll erum við sam- einuð í söknuði og sorg vegna hins ótímabæra fráfalls ástvinar okkar. En verði Guðs vilji. Jónína amma á Akranesi. Mig langar með örfáum orðum að minnast elskulegs systursonar míns, Friðriks Gíslasonar. Friðrik lauk sinni barnaskóla- göngu í Hafnarfirði. Hann fluttist 13 ára gamall til Kanada og settist þar á skólabekk og þau þijú ár sem hann bjó þar fékk hann margar viðurkenningar og verðlaunapen- inga fyrir góðan námsárangur, enda greindur mjög og stærðfræð- ingur mikill. Árið 1981 hóf hann nám við Flensborgarskóla og útskrifaðist sem stúdent af náttúrufræðibraut þrem árum síðar. Friðrik var ekki opinn persónu- leiki og flíkaði ekki tilfínningum sínum, en hann var vinur vina sinna og ræktaði þá. Einn traustan vin átti hann öðrum fremur og var það móðir hans. Var samband þeirra ætíð mjög náið. Hann hafði einnig mjög gott samband vi móðurömmu sína meðan hennar naut við og föð- + Elín Jakobsdóttir fæddist í Grímsey 24. október 1932. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 9. maí síðastliðinn og fór útförin fram frá Kópavogs- kirkju 17. maí. Elín Jakobsdóttir, verkstjóri í Bakaríi Friðriks Haraldssonar, er látin. Ég var staddur erlendis er mér barst þessi harmafregn. Dauða hennar bar að með svo skjótum hætti og var svo ótímabær, að erf- itt reynist að sætta sig við. Elín, eða Élla, eins og hún var ávallt kölluð, var svo atorkusöm, svo ung bæði til sálar og líkama, svo lífs- glöð að ekki finnast margir líkar. Ella hóf störf við Bakarí Friðriks Haraldssonar fyrir 40 árum. í allan þann tíma vann hún fyrirtækinu af trúmennsku, alúð og ósérhlífni. Hún hóf störf rúmlega tvítug, þeg- ar bakaríið var í frumbernsku, í kjallara íbúðarhúss foreldra minna, fylgdi því er það sleit barnsskónum í viðbyggingu við bílskúrinn og tók þátt í þroskaferli og framgangi í nýrri byggingu þar sem bakaríið hefur starfað í rúmlega 20 ár, og þá sem verkstjóri. Þau eru ófá ungmennin í Kópa- vogi sem fengið hafa sína fyrstu tilsögn í vinnubrögðum hjá Ellu. Hún kenndi þeim til verka, sýndi þeim alúð, hlýju og nauðsynlegan aga. Hún var framúrskarandi skipulögð, vandvirk og vinnusöm og einstaklega bóngóð, sama hvað hún var beðin um, alltaf leysti hún verk sín jafnvel af hendi. Hún mót- aði starfíð og það góða orð sem fer LAUGARNES APÓTEK Kírkjuteigi 21 ÁRBÆJAR APÓTEK Hraunbæ 102 b eru opin til kl. 22 Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Laugarnesapótek urömmu sína á Akranesi og bar sterkar taugar þangað. Hann fór ekki varhluta af sorginni, missti föður sinn 1987 og bróður ári seinna. Friðrik var ætíð aufúsugestur á heimili mínu og mátu börnin mín það mikils við hann hvað hann var alltaf boðinn og búinn að aðstoða þau við námið. Mörg undanfarin ár hafa Friðrik og móðir hans dvalið á heimili und- irritaðrar á aðfangadagskvöld og víst er að hans verður sárt saknað á næstu jólum. Elsku systir, Jóna, Siggi og fjöl- skylda. Megi góður Guð styrkja ykkur á þessari sorgarstund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekká þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Móðursystir. af bakaríinu, ekki síst hvað varðar hreinlæti. Ella var líka hrókur alls fagnað- ar, söngelsk og léttlynd og var aðal- hvatamaður að árshátíðum starfs- manna. Þar mætti hún með gítarinn og ófá eru þau skiptin sem hún og stöllur hennar í bakaríinu hafa sungið okkur til ánægju og þá oft frumsamið efni um lífið og tilveruna innan veggja. En Ella hafði líka skoðanir á mönnum og málefnum, ekki síst bakarísins, og lét þær ós- part í ljós. í öllu hennar starfi sat heill fyrirtækisins fyrir. Ég vil þakka Elínu Jakobsdóttur fyrir allar stundir í blíðu og stríðu, þakka allar hugmyndir hennar, skipulagningu og vönduðu vinnu- brögð. Við munum sakna hennar sárt eftir gott samstarf í 40 ár. Starf hennar við fyrirtækið var ómetanlegt, við munum halda merki hennar á lofti, með því að starfa áfram eftir þeim línum sem hún lagði, með fagmennsku og vand- virkni að leiðarljósi. Við sendum Oddi, börnum og bambömum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Haraldur Friðriksson bakarameistari. Margar voru ferðirnar yfir Borg- arholtsbrautina til minna góðu vina og nágranna Odds og Elínar meðan ég og mín fjölskylda bjuggum í Kópavogi. Alltaf var tími til að spjalla og oft glatt á hjalla, sungið, spilað og hlegið dátt. Greiðviknari vinir voru vandfundnir. Alltaf var það ég sem var þiggjandinn. Elín var á margan hátt sérstök kona. Því betur sem ég kynntist henni þeim mun betur mat ég kosti hennar. Hún lá aldrei á skoðunum sínum, kom til dyranna eins og hún Líf kviknar, veröldin er yndisleg og móðirin brosir, fagnar sólargeisl- anum sínum. Lítil maður vex úr grasi, skóli lífsins tekur við og fer um hann höndum, blíðum og hijúf- um. Samverustundir sem aldrei gleymast í gleði og sorg. Tíminn líður hratt og fyrr en varir er lífið slokknað. Elsku Lulla, missir þinn er mik- ill, en eitt verður ekki frá þér tek- ið, minningin um góðan son. Hljótt er inni, úti kyrrð og friður, aðeins regnið dijýpur niður, yfir þurran, þyrstan svörð. Nóttin heyrir bænir alls, sem biður við bijóst þín, móðir jörð. Allir hlutu einn og sama dóminn. Alla þyrstir, líkt og blómin, hveija skepnu, hveija sál. Um allar byggðir blikar daggarljóminn, bláma slær á sund og ál. Öllum sorgum sínum hjartað gleymir. Svalinn ljúfi um það streymir, eins og regn um sviðinn svörð. Blómin sofna, bömin litlu dreymir við bijóst þín, móðir jörð. (Davíð Stefánsson) Hugur okkar er hjá þér á þessum erfíða tíma. Samúðarkveðjur. Hulda Karen og Steinhildur. var klædd, hafði ríka réttlætiskennd og var einarður málsvari lítilmagn- ans. Hún hafði stórt og viðkvæmt hjarta, var fórnfús og óeigingjörn og hugsaði fyrst og fremst um ann- arra hag. í gegnum allt atið og erilinn skein umhyggjan fyrir börn- unum og barnabörnunum - þeirra hamingja var hennar hamingja. Vinnusamari konu hef ég vart kynnst. Samviskusemi og einstök snyrtimennska einkenndu öll henn- ar störf og bar heimilið þess fagurt vitni, bæði utan húss og innan. Var samvinna þeirra hjóna mikil og góð. Vinnudagurinn var langur þar sem vinna Elínar utan heimilis hófst oft fyrir allar aldir. Undraðist ég oft þrek hennar. Gífurlegur gesta- gangur var á heimilinu og nætur- gestir tíðir, bæði til lengri og skemmri tíma. Sannaðist þar að: „Þar sem er hjartarúm þar er líka húsrúm.“ Elín sá gjarna spaugilegu hlið- arnar á hlutunum, hafði gaman af að segja frá og gat hlegið öðrum hjartanlegar. Stundum hringdum við hvor í aðra, ef við höfðum heyrt eða séð eitthvað skemmtilegt, til að geta hlegið saman. Hún var söngelsk, hafði gott tóneyra og kunni ótrúlegan fjölda ljóða og laga. Oft var tekið lagið hér áður fyrr á góðum kvöldum. Eftir að ég fluttist úr Kópavogi fækkaði okkar fundum, enda hafði hún þá bætt á sig nýju verkefni - og ekki litlu - þar sem þau hjónin höfðu tekið í fóstur litlu nöfnu henn- ar, sonardótturina Elínu. Það var mikil ábyrgð sem þau tókust á hendur, þetta fullorðið fólk sem þegar hafði komið upp fimm börn- um, að taka að sér lítið bam. Það hlutverk sem önnur var leyst af hendi með einstakri umhyggju og alúð og er missir litlu telpunnar mikill. Ég bið Guð að blessa minningu Elínar Jakobsdóttur og sendi Oddi og litlu Elínu og íjölskyldunni allri mínar innilegustu samúðarkveðjur. Vilhelmína Þorvaldsdóttir. Islenskur efniviður íslenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. Áralöng reynsla. S S. HELGAS0N HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 557 6677 Leitið upplýsinga. ifi ELÍN JAKOBSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.