Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 49

Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 49 | AÐSENDAR GREINAR Ekkí hugsa þeir stórt! Sigurður Jónsson NEYTENDASAMTÖKIN hafa ný- lega gert harða hríð að Samkeppnis- stofnun og Umhverfissjóði verslunar- innar vegna söluverðs innkaupapoka í verslunum. Ekki er ljóst hvað veldur þessu skyndilega upp- hlaupi ákveðinna for- ystumanna Neytenda- samtakanna annað en athyglisþörf, en þó kem- ur fram í viðtali við einn þeirra í dagblaði, að sjóðinn ætti fremur að kenna við neytendur en verslunina. Þama er að sjálfsögðu um að ræða hugsunarvillu því það er verslunin sem kaupir pokana, ákveður sölu- verð þeirra og að hluti þess söluverðs skuli renna til sjóðs, sem verslunin hefur stofnað til að styrkja um- hverfismálefni, leig- ir húsnæði, rekur þar sjóðinn og ann- ast úthlutun styrkja. Neytendur gera ekkert af þessu. Þeir ákveða hinsveg- ar að kaupa pokana á því verði sem upp er sett og e.t.v. spillir ekki fyrir þeirri ákvörðun að á pokunum sést að hluti andvirðisins rennur til um- hverfismála. Varlaþjónarþetta, seg- ir Sigurður Jónsson, hagsmunum neytenda. Því er þetta nefnt hér, að málflutn- ingurinn þjónar trauðla hagsmunum nejdenda þegar til lengri tíma er lit- ið, og er einnig í hrópandi mótsögn við fyrri áherslur sömu aðila. Ef far- ið verður að nota söluverð innkaupa- poka sem samkeppnisráð, má ætla að fljótlega leggist af sérstakt endur- gjald fyrir þá og sá kostnaður sem verslunin nær nú til baka af þeim sem nota pokana með sölu þeirra leggist við annan rekstrarkostnað og verði fyrr eða síðar til þess að hækka vöruverð. Varla þjónar þetta hags- munum neytenda og auk þess hafa þessir forystumenn lagt áherslu á það t.d. varðandi greiðslukortin, að notendur korta eigi að greiða kostn- að þeirra vegna í stað þess að hann leggist á alla neytendur. Það sama hlýtur að eiga við um innkaupapoka. Ásakanir umræddra forystumanna Neytendasamtakanna lúta að óheim- ilu samráði verslana um söluverð inn- kaupapoka sem bera merki Umhverf- issjóðs verslunarinnar. Einkum virðist líka fara fyrir bijóstið á þeim dæma- laus ósvífni ÁTVR, að leggja lag sitt við verslunina í landinu og hefja sölu á umræddum pokum á kr. 10 eins og aðrar verslanir. Eins og frámkvæmdastjóri Um- hverfissjóðs verslunarinnar hefur bent á í sjónvarpsviðtali, þá er hér um að ræða ódýrustu vöru sem til sölu er í verslunum og því hljómar ásökunin um verðsamráð nánast eins og brandari. En hér er ekki síður vert að staldra við þá staðreynd, að umræddir pokar eru söluvara, eins og hver önnur vara sem verslanir bjóða viðskiptavinum sínum. Versl- unin kaupir þessa vöru, ákveður sölu- verðið og falbýður hana síðan við- skiptavinum. Rétt er og að vekja athygli á því, að versluninni ber eng- in skylda til að bjóða umbúðir til sölu, en flestar ef ekki allar matvöru- verslanir bjóða viðskiptavinum jafn- framt þunna sk. skrjáfpoka án end- urgjalds. Umhverfíssinnað fólk reyn- ir að draga úr plastpokanotkun og kemur því með poka með sér í versl- anir þegar innkaup eru gerð eða kaupir sér endingarbetri innkaupa- poka og töskur. Af þessu sést, að allt tal um að söluverð innkaupapoka séu álögur eða skattar sem verslunin leggi á neytendur er út í hött. Það er enginn neyddur til að kaupa þessa poka, fjarri því. Verslunin fagnar fyrst og mest allri minnkun í notkun umbúða og í þessu sambandi er hægt að rilja upp, að eftir árið 1988 þegar fyrst var farið að selja innkaupapoka og safna fé til landgræðslustarfa, þá var talið að notkun plastpoka hefði minnkað um 25% miðað við þann tíma þegar ekki var krafist endurgjalds fyrir pokana sérstaklega heldur reiknað með þeim í vöruverði á sama hátt og öllum öðrum kostnaði verslananna. Á fyrstu sex árum frá upp- töku sölukerfísins á pok- unum greiddi verslunin um 100 milljónirtil land- græðslu og fól land- verndarsamtökunum Landvemd að úthluta þessu fé. í október á sl. ári var svo stofnaður Umhverfissjðður versl- unarinnar og úthlutaði hann um 22 milljónum á sl. sumri til hinna ýmsu frarnfaraverkefna í um- hverfismálum. Uthlutunin fór fram á Eyrarbakka að viðstöddum umhverf- isráðherra og flestu starfsfólki ráðu- neytisins. Vitað er að umræddir forystumenn Neytendasamtakanna eru greindari en orð þeirra bera vitni um þegar þeir tala annars vegar um álögur verslunarinnar á neytendur og hins vegar um samráð og að beita eigi verslanir viðurlögum. Ástæðan fyrir 10 króna gjaldinu er eflaust sú, að þetta verð var ákveðið áður en sér- stök samráðsheimild Samkeppnis- stofnunar var felld niður og verð á pokunum hefur líklega ekki breyst síðan og þannig gefið tilefni til end- urskoðunar. Einnig hefur verslunin verið treg til að hefja samkeppni á grundvelli mismunandi eða niður- fellds pokaverðs, því það er talið leiða til aukinnar umbúðanotkunar, hækk- unar vöruverðs til neytenda og auk þess stendur ekki til að leggja niður umbótastarf verslunarinnar að um- hverfismálum. Vonandi snúa Neyt- endasamtökin og Samkeppnisstofn- un sér að brýnni málefnum en sölu- verði innkaupapoka sem enginn dregur í efa að er algjörlega versl- unarinnar að ákveða. Næg verkefni bíða úrlausnar þessara aðila og eru sum beinlínis frá versluninni. Höfundur er frnmkvænuhistjóri Kaupmannasamtaka Islan^s. Háck 2 blómapottur m/skál 20 sm 2.700 Háck 7 vasi 70 sm 14.900 Háck 11 skál 70 sm 500 Háck 1 vasi 46 sm 7.850 Háck 7 vasi 20 sm Tilboðsblom Ficus 60 sm 1.695- *lndónesar kalla land sitt „tanah air“ en það þýðir „land og vatn“. Við vorum einmitt að fá fullan gám af spennandi blómapottum og vösum frá Indónesíu. Einnig vorum við að fá nýjar sendingar af blómum. Komdu I IKEA og kynntu þér mynstur og form framandi þjóða. fyr^r alla snjalla Holtagöröum viö Holtaveg / Póstkröfusími 800 6850 Blað allra landsmanna! -kjarnimálsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.