Morgunblaðið - 04.10.1996, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 04.10.1996, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 61 FRETTIR Fimmtíu ára afmæli Melaskóla MARGT verður gert til hátíðabrigða á 50 ára afmæli Melaskóla. FIMMTÍU ár eru liðin á morgun, laugardag, frá því að kennsla hófst í Melaskóla. Þessara tímamóta verður minnst á afmælisdaginn, með dag- skrá er verður þannig í stórum dráttum: Kl. 13 verður safnast saman við skólann og lagt af stað í skrúð- göngu um skólahverfið, Lúðrasveit barna í Vesturbænum leikur frá kl. 13. Kl. 14 verður ávarp skóla- stjóra. Að því loknu verður húsið opnað og gestum boðið að skoða myndasýningu, er speglar hluta af sögu skólans, skoða húsið sjálft og daglegt skólastarf. Kór skólans mun syngja og Foreldrafélagið sjá um kaffiveitingar. Myndasýningin verður opin á sunnudag frá kl. 14-16. Þá er öll- um velkomið að koma í skólann á skólatíma vikuna eftir, þ.e. 7.-11. október, og skoða sýninguna. Guðspekifélag íslands 7 5 ára ÍSLANDSDEILD Guðspekifélags- ins verður 75 ára á þessu ári, en hún var formlega stofnuð árið 1921. Fyrir þann tíma höfðu starfað hér greinar frá hinni dönsku deild fé- lagsins og var fyrsta greinin stofn- uð árið 1912 af nokkrum frammá- mönnum í Reykjavík er kynnst höfðu boðskap guðspekinnar er- lendis. í tilefni af afmæli íslandsdeildar- innar verður félögum og velunnur- um boðið í afmæliskaffí til styrktar starfsemi þess í húsi félagsins að Ingólfsstræti 22 laugardaginn 5. október klukkan 15 - 18. Þar verð- ur opið hús með dagskrá og veiting- um. Laugardaginn 12. október kl. 15 verður haldinn kynningarfundur um starf félagsins og viðfangsefni, en mikil starfsemi er í húsi félagsins yfir vetrarmánuðina. í fréttatilkynningu segir: „Guð- spekifélagið fæst við andleg mál á breiðum grundvelli. Algert skoð- ana- og trúfrelsi ríkir innan félags- ins og það leitast við að kynna helstu stefnur í trúmálum, heim- speki, sálfræði og náttúruvísindum, sem snúa að manninum sjálfum og stöðu hans í alheiminum. Þá hefur félagið kynnt helstu stefnur mann- ræktar, svo sem hugrækt, hugleið- ingu og æðri greinar yoga. Allt starf félagsins er unnið í sjálfboðavinnu og fræðsla boðin félögum og al- menningi endurgjaldslaust." Vetrarstarf Samhjálpar VETRARSTARF Samhjálpar í Þrí- búðum, Hverfisgötu 42, er hafið. „Hápunkturinn í vikulegu starfi Þríbúða eru almennar samkomur alla sunnudaga kl. 16. Þar er mikið um söng sem Samhjálparkórinn leiðir við undirleik hljómsveitar. Samhjálparvinir vitna um reynslu sína og trú og fiutt er Guðs orð. Á mánudögum eru Biblíu- fræðslukvöld. A þriðjudögum og miðvikudögum er hópstarf. Á fimmtudögum er tjáning og bæna- samkoma. Ráðgjafaviðtöl eru alla þriðjudaga og fimmtudaga. Einu sinni í mánuði koma Dorkas-konur saman. Sex sinnum á ári er Opið hús. Fyrsta Opna hús vetrarins verður næstkomandi laugardag, 5. októ- ber. Húsið opnar kl. 14. Þangað er öllum velkomið að líta inn, spjalla °g þiggja heitan kaffisopa. Gestur verður Maríanna Másdóttir. Hún mun syngja fáein lög við eigin und- irleik. Þá verður almennur söngur sem Gunnbjörg Óladóttir leiðir. Jafnframt mun hún kynna Taizé kóra. Allir eru velkomnir í Þríbúðir á laguardaginn," segir í fréttatil- kynningu Samhjálpar. 4 * Forseti Is- lands opnar sýningu í Hollandi FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, héldu áleiðis til Hollands í gærmorgun. Forsetinn mun opna sýningu um norræna landkönnuði, „The Nordic Explorers’ Exhibition" í Haag í dág, 4. október. Norræna ráðherranefndin efnir til sýningarinnar, sem er liður í norrænni menningarkynningu Evrópu. Sýningin kemur til Haag frá Eksperimentarium í Kaupmana- höfn, en Margrét II Danadrottn- ing opnaði sýninguna í maímán- uði sl. Fyrst var sýningin sett upp í Heureka, finnsku vísindamið- stöðinni í janúar sl. og opnaði Ahtisaari Finnlandsforseti sýn- inguna þar. Norski landkönnuðrinn Thor Heyerdahl mun einnig halda ræðu við opnun sýningarinnar. LÍFEYRISSJÓDUR VERZLUIMARMANNA 'ixárgjíf HEFUR ÞÚ FENGIÐ IÐGJALDAYFIRLITIÐ? Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur sent sjóðfélögum yfirlit yfir móttekin iðgjöld á tíma- bilinu 1. mars 1996 til 31. ágúst 1996. Ekki er óeðlilegt að greiðslur fyrir mánuðina júní 1996 til ágúst 1996 vanti á yfirlitið. Hafir þú ekki fengið yfirlit, en dregið hafi verið af launum þínum í Lífeyrissjóð verzlunar- manna, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, þá vinsamlegast hafið samband við innheimtudeild sjóðsins hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. nóvember nk. Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð geta dýrmæt réttindi glatast: ELLILÍFEYRIR - ÖRORKULÍFEYRIR - MAKALÍFEYRIR - BARNALÍFEYRIR GÆTTU RETTAR ÞINS! í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars: Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tíma- marka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna. SKRIFSTOFA SJÓÐSINS ER OPIN FRÁ KL. 9.00 - 17.00. HÚSI VERSLUNARINNAR, 4. HÆÐ, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 581 4033, FAX 568 5092. HEIMASÍÐA: HTTP://WWW.SKIMA.IS/LIFVER. ÍTfíLSKIR DfíGfíft föstudag og laugardag 20% staðgreiðsluafsláttur 1 5% afsláttur af kortum A €fþúvilt /7\> oóöon fc góöon fotnoö ab oeneiion Laugavegi 97, sími 552 2555
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.