Morgunblaðið - 10.12.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1996 35
J ólasveinaverkfall
Morgunblaöið/Árni Sæberg
ALDA Arnardóttir og Bjarni Ingvarsson. i hlutverkum Höllu og
Stekkjastaurs, sem þau fara bæði vel með og ná vel athygli barnanna.
LEIKUST
Mögulcikhúsið
„HVAR ER
STEKKJASTAUR?"
Eftir Pétur Eggerz. Leikendur: Alda
Arnardóttir og Bjami Ingvarsson.
Leikmynd og búningar eftir leikhóp-
inn. Leiksljóri: Pétur Eggerz.
NYJA barnaleikritið „Hvar er
Stekkjastaur?" eftir Pétur Eggerz
segir frá því þegar jólasveinarnir
ákveða að hætta að koma til byggða
og dvelja í hellum sínum uppi á fjöll-
um á jólunum. Þeir eru orðnir
þreyttir á öllum látunum í manna-
byggðum og treysta sér ekki lengur
til að taka þátt í ringulreiðinni
meðal manna. En mannabörnin
sætta sig ekki við jól án jólasveina
og fulltrúi þeirra, ■ stúlkan Halla,
heldur upp á fjöll í leit að Stekkja-
staur til að sannfæra hann um að
börnin geti ekki verið án hans og
bræðra hans á jólunum.
Þetta leikrit er vel skrifað hjá
Pétri Eggerz og hafa börnin af því
bæði gaman og nokkurn fróðleik.
Þetta er annað tveggja verka ætlað
börnum sem sýnd eru nú á aðvent-
unni þar sem reynt er að koma því
á framfæri að jólin snúist um annað
og meira en verslun og stress það
sem óhjákvæmilega vill fylgja öllum
jólaundirbúningnum. Tíu fingra
leikhúsið sýnir „Jólaleik" sem
byggður er á jólaguðspjallinu, en
„Hvar er Stekkjastaur?" sækir efni
í íslenska jólasveinahefð. Þessi verk
eru ólík en bæði skemmtileg á sinn
hátt og eiga bæði erindi til ís-
lenskra barna.
Þau Alda Arnardóttir og Bjarni
Ingvarsson leika Höllu og Stekkja-
staur og fara þau bæði vel með
hlutverk sín og náðu vel athygli
barnanna. Leikmyndin er sniðug-
lega útfærð og fjall breytist í helli
með fáeinum handtökum. Eins og
leikmyndin eru búningar hannaðir
af leikhópnum og er Stekkjastaur
klæddur í „íslenskan" jólasveina-
búning en útskýrir fyrir Höllu (og
börnunum) hvernig rauðu jóla-
sveinabúningarnir komu til sögu.
Þessi sýning er skemmtileg og
vel unnin og vonandi fá sem flest
íslensk börn að sjá hana. Möguleik-
húsið fer með sýninguna á milli
leikskóla og grunnskóla á höfuð-
borgarsvæðinu nú í desember.
Soffía Auður Birgisdóttir
TÓNLIST
III j ó m p I ö t u r
Ó, BJARTA NÓTT
Steinn Erlingsson baritón. Undirleik-
ur á píanó: Olafur Vignir Albertsson.
Hljóðritað i sal Tónlistarskóla Sel-
tjarnarness 1995 og 1996. Upptaka
og hljóðvinnsla: Halldór Víkingsson.
Framleiðandi: SONIC, London.
Dreifing: Pöntunarsími 421 1905.
Steinn Erlingsson 1996 SE 1.
STEINN Erlingsson hóf söng-
nám við Tónlistarskóla Keflavíkur,
einsöngvaranámi lauk hann frá
Tónlistarskóla Garðabæjar 1985.
Hann hefur komið fram sem ein-
söngvari, m.a. með Karla- og
Ovænt
ánægja
kirkjukór Keflayíkur og Skagfirsku
söngsveitinni. Árið 1990 hélt hann
til Tucson í Arizona til frekara
söngnáms.
A þessum hljómdiski höfum við
ellefu vinsæl og góð íslensk sönglög
(eftir Sigvalda Kaldalóns, Karl 0.
Runólfsson, Þórarin Guðmundsson,
Árna Thorsteinson, Sigfús Einars-
son, Jón Ásgeirsson og Magnús
Kjartansson), flest gullfalleg, og tíu
af erlendum uppruna, þ.á m. lög
eftir Giordani og Giulio Sarti, hol-
lenskt lag frá 1600, Faðir vor eftir
Michael Head og þijú lög (og ljóð)
eftir John Jacob Niles (The Ravin’
Gambler, Gambler, don’t you lose
your place og The Gambler’s Wife).
Þetta er með öðrum orðum ágæt
og aðgengileg söngskrá.
Steinn Erlingsson hefur margt
til brunns að bera sem góður söngv-
ari, hefur góða og allvel skólaða
„náttúrurödd" (háan bariton), sem
vex að hljómgæðum eftir því sem
henni er beitt af meiri þrótti. Yfir-
leitt fer hann vel með lög og texta
og nýtur aðstoðar mjög góðs undir-
leikara, Olafs Vignis Albertssonar.
Hljóðritun er einnig góð. Óvænt-
ur og ánægjulegur hljómdiskur.
Oddur Björnsson
Morgunblaðið/Gunnlaugur
ÞESSIR nemendur Tónlistarskóla Stykkishólms kynntu skólann
sinn og þann árangur sem þeir eru búnir að ná á sín hljóðfæri
á tónleikum í Stykkishólmskirkju.
Tónlistarskóli
Stykkishólms kynnir sig
Stykkishólmur. Morgunblaðið.
NEMENDUR Tónlistarskóla
Stykkishólms efndu til tónleika í
Stykkishólmskirkju undir heitinu
„Skólinn kynnir sig“ 29. nóvember
síðastliðinn. Fram komu 14 nem-
endur og léku þeir fjölbreytta tón-
list. Á undan hveiju atriði fór
fram kynning á viðkomandi verki,
höfundi þess og því hljóðfæri sem
leikið er á.
Fyrirhugaðir eru aðrir tónleik-
ar á vorönn með svipuðum hætti.
Elsti nemandinn sem lék á tónleik-
unum var 15 ára og sá yngsti 11
ára. Tónleikarnir tókust með
ágætum og voru gestir ánægðir
með framtak skólans.
Margir jólatónfundir verða á
vegum tónlstarskólans, þar sem
nemendur skólans eru 130 og allir
nemendur koma fram. Gítar, -
söng og þverflautunemendur
verða með sjálfstæða tónfundi, en
tvennir blandaðir jólatónfundir
verða í skólanum. Jólatónleikar
verða síðan í Stykkishólmskirkju
mánudaginn 16. desember kl.
20.30. Þar koma fram einleikarar,
blokkflautuhópar, ýmiss konar
samspil og svo lúðrasveitin.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
FIX ,
Teg.: 390
Teg.: 340
Litir: Svart 40-49,
d.brúnt 40-47
Verð kr. t
4.495,-
Litir: Svart 40-49, Bordo 40-45.
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur
K
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 551 8519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 568 9212
meBáÍil
KRINGLUNNI
S 553-1199
Cindy Crawford veit, hvernig hún sameinar
glæsileika og ímynd med stíl frá heimsins
stacrstu hönnudum. Hversdags og vid hátídleg
tækifæri velur hún Omega. “Trust your
judgement, trust Omega” - Cindy Crawford
NEW GxmUUohori
18k Guli og/eda stál.
Hert safirgler.