Morgunblaðið - 14.03.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.03.1997, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Tvö slys í Skálafelli TF-LÍF, þyrla Landhelgis- gæslunnar, sótti slasaða stúlku á skíðasvæðið í Skála- felli í gær. Stúlkan slasaðist á höfði og baki þegar hún varð fyrir stólalyftu. Drengur fékk skurð á höfuðið og heilahrist- ing í Skálafelli í fyrradag í svipuðu slysi. Lögregla kom á staðinn í báðum tilfellum og rannsakaði málsatvik. Haukur Þorsteinsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins í Skálafelli, segir að einhver óhappafaraldur sé í gangi. Þarna hafi verið um að ræða skólabörn í skíðaferðalögum sem hafi orðið fyrir óhöppum. Drengurinn sem slasaðist var að fara úr stólalyftunni og hrasaði. Þegar hann stóð aftur upp fékk hann næsta stól í höfuðið. Hann var flutt- ur með sjúkrabíl á slysadeild. Hann er á góðum batavegi. Fékk stólinn yfir sig Stúlkan fór upp með stóla- lyftunni án þess að vera á skíðum. Hún hrasaði á pallin- um þar sem farið er úr lyft- unni. Hún fékk stólinn yfir sig en hann er í 30-40 cm hæð þegar hann fer yfír pall- inn. Haukur sagði að stúlkan hefði kvartað undan eymslum í baki og hefði verið ákveðið að kalla til þyrlu Landhelgis- gæslunnar. Haukur sagði að stúlkan hefði verið í gúmmí- stígvélum og köld á fótum. Morgunblaðið/Golli ARNEY KE og Sighvatur Bjarnason VE á veiðum skammt undan Reykjanesi síðdegis í gær. Loðnan veiðist á ný LOÐNUVEIÐI hófst af fullum krafti í gærmorgun en loðnu- skipin hafa lítið getað athafnað sig síðustu vikuna vegna brælu. Ágætisveiði var iqá loðnuskip- unum beggja vegna Reykja- nessins i gær. Brælan hefur þýtt nokkurn tekjumissi fyrir framleiðendur loðnuafurða, einkum bræðsl- urnar. Framleiðendur teþ'a þó að óveðurskaflinn hafi ekki mikil áhrif á vinnslu loðnu- hrogna, enda megi aðeins fram- leiða takmarkað magn fyrir Japansmarkað í ár. Þeir vonast til að framleiðendur loðnu- hrogna standi saman um að hætta vinnslu þegar framleitt hefur verið upp í gerða samn- inga. ■ Töluverður tekjumissir/19 Dómur í morðmáli staðfestur HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm héraðsdóms í máli ákæruvalds- ins gegn Gesti Eiríki Eggertssyni, bónda á Steinsstöðum í Oxnadals- hreppi. Gestur Eiríkur var dæmdur í 8 ára fangelsi í Héraðsdómi Norð- urlands eystra fyrir að verða systur sinni, Sigríði Eggertsdóttur, að bana á heimili hans 27. apríl sl. í dómi Hæstaréttar segir að fall- ist sé á það mat héraðsdóms að sannað sé að árás ákærða á konuna hafi leitt til dauða hennar. Þótt ekki sé unnt að segja til með vissu um nákvæma framvindu árásarinn- ar verði að telja ljóst af umerkjum öllum að hún hafi verið heiftúðug. Landssöfnun fyrir hjartveik börn Gefum þeim von NEISTINN, styrktarfélag hjart- veikra barna, stendur að landssöfn- uninni Gefum þeim von, til styrktar hjartveikum börnum, í samstarfi við íslenska útvarpsfélagið, SPRON, Gulu línuna og fleiri í dag. Helstu markmið söfnunarinnar eru að tryggja að foreldrar geti annast hjartveik börn sín án þess að stofna fjárhagsöryggi fjölskyld- unnar í hættu og að hjartveik börn geti lifað sem eðlilegustu lífi utan sjúkrahúsa. Aðalsímanúmer söfnunarinnar er 800 5050. Eftir kl. 18 verður einnig hægt að hringja í númer Gulu lín- unnar, 562 6262. Bankareikningur söfnunarinnar er númer 11522697 hjá SPRON. Verkföll Dagsbrúnar hjá skipafélögunum og Mjólkursamsölunni Ihuga að silja fyrir bíl- um og hella niður mjólk Lík skipverj- ans fundið SJÓREKIÐ lík fannst rekið á Hvols- Qöru í Mýrdal síðastliðinn miðviku- dag. Líkið reyndist af Elíasi Emi Kristjánssyni, bátsmanni af varð- skipinu Ægi. Landhelgisgæslan vill færa þeim mörgu er tóku þátt í leitinni að Elíasi innilegar þakkir. MJÓLK var flutt frá Selfossi og Búðardal í nokkrar verslanir á höfuðborgarsvæðinu í gær og að sögn Ólafs Ólafssonar, trúnaðar- manns Dagsbrúnar í Mjólkursam- sölunni í Reykjavík, eru mjólkur- flutningarnir frá Búðardal litnir sérstaklega alvarlegum augum þar sem mjólkursamlagið þar heyri undir Mjólkursamsöluna. Hann sagði að verkalýðsfélagið í Búðardal hefði verið beðið að koma í veg fyrir frekari flutninga frá mjólkursamlaginu til höfuð- borgarsvæðisins, en að öðru leyti var ekki gripið til aðgerða í gær. „Ég veit ekki hvað gerist en þetta er allt að harðna. Þetta end- ar með því að það verður farið að sitja fyrir þessum bílum ef þetta heldur áfram. Þeir verða þá stöðv- aðir og það má hella úr grindunum einhvers staðar. Mér sýnist stuðið vera þannig á mannskapnum að menn séu tilbúnir að láta hendur skipta ef þetta á að halda áfram,“ sagði Ólafur. Samningaviðræðum vegna Dagsbrúnarmanna hjá ísgerð Mjólkursamsölunnar var haldið áfram í gær, en viðræður vegna starfsmanna í mjólkurvinnslunni lágu þá enn niðri vegna deilna sem komu upp í fyrradag vegna upp- setningar á nýrri pökkunarvél. Morgunblaðið/Jón Svavarsson VERKFALLSVERÐIR Dagsbrúnar höfðu afskipti af Samskipum í Sundahöfn í gær er þeir töldu að starfsmaður á lager fyrirtæk- isins hefði gengið í störf Dagsbrúnarmanns. „Við buðum þeim að gefa und- anþágu á mann til þess að hægt væri að prufukeyra vélina, en þeir höfnuðu því svo við höfum ekkert rætt við þá ennþá,“ sagði Ólafur. Órói í vöruafgreiðslu Samskipa Um miðjan dag í gær komu Dagsbrúnarmenn í veg fyrir að starfsmenn á lager í vöruaf- greiðslu Samskipa gengju í starf Dagsbrúnarmanns sem þeir segja hafa afgreitt vörur út í bíla en lagermennirnir eru í Verslunar- mannafélagi Reykjavíkur. Nokkur órói varð hjá Dagbrúnarmönnum vegna þessa máls, en þeir sögðu lagermennina hafa verið beitta þrýstingi af yfirmönnum Sam- skipa til að ganga í störf Dags- brúnarmannsins. Viðræður stóðu yfir um þetta mál milli Dagsbrún- ar og Samskipa allan seinnipartinn í gær og var búist við að málið yrði til lykta leitt í síðasta lagi fyrir hádegi í dag. Allt með kyrrum kjörum hjá Eimskipi Ágúst Þorláksson, aðaltrúnað- armaður Dagsbrúnarmanna hjá Eimskipi í Sundahöfn, sagði að þar hefði allt verið með kyrrum kjörum í gær og ekki hefði komið til neinna árekstra í vöruafgreiðslu Eimskips í Sundahöfn. Áður en verkföll félagsmanna Dagsbrúnar hjá Eimskipi, Sam- skipum og Löndun og félags- manna Hlífar hjá Eimskipi í Hafn- arfirði hófust á miðnætti í fyrri- nótt höfðu öll íslensku kaupskipin haldið úr höfn. Meðal þeirra var Brúarfoss sem hélt úr höfn í fyrra- dag og sagði Ágúst að það hefði verið vegna hræðslu við að hafnar- verkamenn myndu loka skipið inni. „Hann átti ekki að sigla fyrr en í dag [fimmtudag] og var hann hérna úti á flóa. Þeir voru eitthvað hræddir við að við myndum fara að hanga í skipinu þegar þeir sendu það út en það kom auðvitað ekki til greina því við höfum ekk- ert leyfí til að banna þeim að senda skipið út. Við ætlum ekki að láta hanka okkur á einhveijum brot- um,“ sagði Ágúst. > \ i i l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.