Morgunblaðið - 14.03.1997, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.03.1997, Qupperneq 31
30 FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FORNIRNAR HAFA SKILAÐ ÁRANGRI ÞJÓÐIN ÖLL bjó við kreppuástand í efnahagsmálum fyrrihluta þessa áratugar og endurspeglast það í skýrslu um þróun launa og lífskjara árin 1990-1996, sem forsætisráðherra, Davíð Oddsson, hefur lagt fram á Al- þingi. Skýrslan sýnir, að þjóðin varð fyrir verulegri kjara- rýrnun á þessum árum og skuldasöfnun heimilanna fór vaxandi. Ekkert af þessu kemur á óvart. Fyrri hluti áratugarins einkenndist af samdrætti i efna- hagslífinu og minnkandi þjóðartekjum, svo og verulegri verðbólgu, og atvinnuleysi hélt innreið sína. Þjóðarsáttar- samningarnir, þeir fyrstu í febrúar 1990, miðuðu fyrst og fremst að því, að kveða verðbólguna niður, enda var hún að leggja atvinnufyrirtækin og heimilin í rúst. Öllum var ljóst, að þjóðin yrði að færa umtalsverðar fórnir til að koma efnahagslífinu á réttan kjöl og undirbúa nýja hagvaxtarsókn. í því skyni var álögum létt af atvinnufyrir- tækjunum og færðar yfir á einstaklinga, auk þess sem ríkissjóður var rekinn ár eftir ár með miklum halla. Höfuð- markmiðið var að sjálfsögðu það, að styrkja stöðu atvinnu- lífsins og berjast þannig gegn vaxandi atvinnuleysi. Samdráttur og stöðnun í efnahagslífinu stóð yfir í sjö ár, frá 1988-1994, og óhjákvæmilega hafði það mikil áhrif á almenn lífskjör í landinu. Atvinnufyrirtækin voru knúin til endurskipulagningar og hagræðingar og kom það ljóslega fram í versnandi atvinnuástandi. Efnahagslíf- ið tók smátt og smátt að rétta úr kútnum, hagræðingin skilaði öflugri og traustari atvinnufyrirtækjum. Síðustu tvö árin hafa einkennzt af auknum hagvexti og kaupmátt- araukningu. Samkvæmt fjárlögum verður ríkissjóður rek- inn hallalaus í ár í fyrsta sinn frá árinu 1984. Þjóðhagsstofnun birti nýlega tölur um helztu hagstærð- ir á síðasta ári og sýna þær, að hagvöxtur nam 5,7%, sá mesti frá 1987, kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 4,5% of hafði þá aukizt um 8% á tveimur árum. Atvinnu- leysi minnkaði og verðbólgan var 2,3%. Þessar tölur sýna, svo ekki verður um villst, að uppsveifla er í efnahagslíf- inu. Ríkisstjórnin hefur nú boðað mestu skattalækkanir um langt árabil og fyrstu kjarasamningar hafa verið gerð- ir til allt að þriggja ára. Þetta er talið skila launþegum allt að 10% kaupmáttaraukningu fram að aldamótum. Óhætt er því að fullyrða, að þær efnahagslegu fórnir, sem þjóðin þurfti að færa á kreppuárunum, hafa skilað verulegum árangri og lagt grunninn að bættum lífskjörum í næstu framtíð. STYÐJUM HJARTVEIK BÖRN FYRSTA hjartaskurðaðgerðin hér á landi með aðstoð sérútbúinnar hjarta- og lungnavélar fyrir börn var gerð á Landspítalanum í fyrradag. Bjarni Torfason yfir- læknir segir í viðtali við blaðið í gær að með aukinni sér- þekkingu og fullkomnari tæknibúnaði verði framvegis hægt að gera 75% skurðaðgerða á börnum með hjarta- galla hér á landi í stað 25% áður. Þetta eru stórkostleg tíðindi fyrir alla, er málið varðar, og sparar verulega fjár- muni miðað við að senda hjartveik börn utan til aðgerða. Eftir sem áður þarf að senda börn með flókna hjarta- sjúkdóma til aðgerða erlendis. Það er mikil röskun á hög- um ijolskyldna, sem fara þurfa utan með hjartveik börn og dvelja vikum eða mánuðum saman við erlenda sjúkra- stofnun. Ekki bætir gífurlegur kostnaður vegna ferðar og dvalar úr skákinni, stundum samfara tekjumissi. Svip- uðu máli gegnir um landsbyggðarfólk, sem leita þarf til höfuðborgarinnar með hjartveik börn. Dæmi eru um að fjölskyldur hjartveikra barna hafa lent í hrikalegum fjár- hagserfiðleikum, ofan á annað álag, sem kringumstæðum þeirra fylgir. í dag fer fram landssöfnun til stuðnings hjartveikum börnum. Yfirskrift söfnunarinnar er: „Gefum þeim von - styrkjum hjartveik börn“. Söfnunin fer fram á Bylgjunni og Stöð 2 og sérstakur söfnunarreikningur hefur verið opnaður í SPRON. Afrakstur söfnunarinnar fer í styrktar- sjóð, sem styðja á fjölskyldur hjartveikra barna er lent hafa í fjárhagskröggum. Morgunblaðið hvetur lesendur sína og landsmenn alla til að hlaupa undir bagga. ÖRNÓLFUR Thorsson fulltrúi borgarstjóra í leikhúsráði segir erfiðleika Leikfélags Reykjavíkur fyrst og fremst þröngan fjárhag og skipulagsvanda í nýju húsi, Borgarleikhúsinu. Verður Leikfélag Reykja- víkur reist úr öskustónni? Leikfélag Reykjavíkur á undir högg að sækja. Þessi elsta menningarstofnun borgarinnar, sem í heila öld hefur veríð meginstoð í ís- lensku menningarlífi, hefur á liðnum misserum fengið hveija ágjöfína á fætur annarri, bæði vegna meintra mistaka í rekstrí og listrænni stjómun og þegar mest gekk á í fyrra munu hafa komið fram hugmyndir um að hún yrði hreinlega lögð niður, svo sem fram kemur í umfjöllun Orra Páls Ormarssonar. Nú mun hins vegar vera hafín ítarleg „naflaskoðun“ í Borgarleikhúsinu sem vonast er til að eigi eftir að leiða til betri tíðar, þó að sitt sýnist hverjum um rót vandans, eðli og dýpt. Sigurður Karlsson Hlín Agnarsdóttir Örnólfur Thorsson LEIKFÉLAG Reykjavík- ur og Reykjavíkur- borg hafa haft sam- starf um leiklist í rúma þijá áratugi, fyrst í Iðnó en síðustu árin í Borgarleikhús- inu. Samstarfinu hef- ur verið þannig háttað að borgin hef- ur lagt fjármagn til starfseminnar en Leikfélagið fagþekkingu og starfs- krafta félaga sinna og annarra starfs- manna. Framlag borgarinnar hefur lengst af staðið undir rúmlega helm- ingi rekstrarkostnaðar en Leikfélagið hefur aflað þess sem á vantaði með miðasölu og öðrum tekjum, svo að vitnað sé í greinargerð leikfélagsins frá því í apríl á liðnu ári. Frá árinu 1963 hefur verið sam- komulag um það að einn fulltrúi í fimm manna leikhúsráði Leikfélags Reykjavíkur, sem tekur allar meiri- háttar ákvarðanir sem leikfélagið þarf að taka, væri skipaður af borgarstjór- anum í Reykjavík, þrír væru kosnir af leikfélaginu og fimmti fulltrúinn væri leikhússtjórinn, sem jafnframt hefur veg og vanda af daglegum rekstri. Hvorki mun hafa verið gerður formlegur samningur um fjárframlag borgarinnar né skipan leikhúsráðs, heldur mun þetta hafa byggst á munn- legu samkomulagi milli stjórnar LR og borgaryfirvalda. Þegar Leikfélagið og Reykjavíkurborg gerðu með sér samkomulag árið 1975 um byggingu leikhúss í Reykjavík var meðal annars bundið í Stofnskrá fyrir Borgarleikhús hvernig skipan leikhúsráðs væri hátt- að en stofnskránni verður ekki breytt nema með samþykki beggja aðila. Svo sem listrænar stofnanir eiga að venjast hafa verið sveiflur í rekstr- inum — stundum hefur gengið vel, stundum ekki. Fá ár, ef nokkurt, hafa hins vegar verið LR jafn þung í skauti og hið síðasta en óhætt er að fullyrða að atburðir af félagslegum toga hafi þá vakið meiri athygli út á við en hið listræna starf í Borgarleikhúsinu. Þykir nú mörgum mál að linni, svo sem íjölmörg hlý orð sem féllu á aldar- afmæli leikfélagsins á dögunum, gefa til kynna, og svo virðist sem félags- menn hafi nú hug á að blása til sókn- ar, í það minnsta er „mikil naflaskoð- un“ hafín þar á bæ, svo sem Theodór Júlíusson leikari sagði að loknu mál- þingi um innra starf leikfélagsins sem haldið var í Borgarleikhúsinu nýverið. Gagnrýni byggð á misskilningi En fyrir hvað hefur Leikfélagi Reykjavíkur helst verið legið á hálsi? Kemur gagnrýni á uppbyggingu fé- lagsins fyrst upp í hugann, meðal annars þess efnis að hún hæfi ekki nútímalegu atvinnuleikhúsi — félags- menn ráði of miklu. Sigurður Karlsson formaður Leik- félags Reykjavíkur segir að gagnrýni af þessu tagi virðist oftar en ekki byggjast á misskilningi eða vanþekk- ingu á eðli uppbyggingar félagsins. Leikfélag Reykjavíkur byggist á full- trúalýðræði sem sé í grundvallarat- riðum sambærilegt við Alþingi íslend- inga og sveitarstjórnir landsins. „Fé- lagsmenn í leikfélaginu kjósa fulltrúa í stjórn á sama hátt og íslendingar kjósa sér Alþingi og sveitarstjórnir. Fulltrúarnir velja síðan oddvitann, leikhússtjór- ann í þessu tilfelli. Þegar kjörtímabilið er á enda er síðan kosið á ný og þá leggja fulltrúamir störf sín í dóm félagsmanna — taka afleiðingum gerða sinna.“ Að sögn Sigurðar er stjórn Leikfé- lags Reykjavíkur, sem þrír menn skipa hveiju sinni, eðli málsins samkvæmt skyldug að hlusta á félagsmenn og ráðfæra sig við þá líkt og alþingis- mönnum og sveitarstjórnarmönnum ber að taka tillit til umbjóðenda sinna. Mislíki félagsmönnum störf stjórnar- innar geti þeir einfaldlega hafnað henni á næsta aðalfundi, líkt og kjós- endur geti hafnað ríkis- og sveitar- stjórnum í næstu kosningum. „Ég get ekki skilið hvers vegna þetta lýðræðis- lega fyrirkomulag, sem við búum við í þjóðfélaginu, á allt í einu að vera orðið svona ómögulegt hjá leikfélag- inu enda hefur það virkað ágætlega frá því atvinnumennska var tekin þar upp árið 1962 — þótti meira að segja til fyrirmyndar fyrir fáeinum árum og miklu betra en fyrirkomulagið í Þjóðleikhúsinu, þar sem stjórnmála- menn skipa Þjóðleikhúsráð og starfs- fólkið hefur ekkert um gang mála að segja.“ Sigurður vísar í nærtækt dæmi úr sögu Leikfélags Reykjavíkur, brott- vikningu Viðars Eggertssonar leik- hússtjóra í mars á liðnu ári, til að lýsa fyrirkomulaginu nánar. „Brott- vikning Viðars var ákvörðun stjórnar félagsins og þar af leiðandi meirihluta leikhúsráðs [sitjandi leikhússtjóri vék vitaskuld sæti en fulltrúi borgarstjóra var brottrekstrinum andvígur] sem var sá aðili sem réði hann og eini aðilinn sem hafði heimild til að segja honum upp störfum. Áður en til þess kom hafði hins vegar verið haldinn félagsfundur þar sem fram kom skýr vilji félagsmanna í þessu máli,“ segir Sigurður en félagsfundur samþykkti með miklum meirihluta að skora á leikhúsráð að „endurskoða" ráðningu Viðars. Leikhúsráð sagði Viðari upp „Það er ekki óeðlilegt að vilji félags- manna hafi áhrif á ákvörðun stjórnar- innar, í þessu máli sem öðrum, en breytir því ekki að það var leikhúsráð en ekki félagsfundur sem sagði Við- ari upp, svo sem margir virðast halda. Hefði meirihluti leikhúsráðs verið þeirrar skoðunar að ekki væri ástæða til að víkja Viðari úr starfí hefði hann vafalaust virt vilja félagsmanna, sem fram kom á fundinum, að vettugi. Þá hefði hann hins vegar þurft að taka afleiðingum þeirrar ákvörðunar á að- alfundinum um vorið,“ segir Sigurður en hafa ber í huga að tveir af þremur fulltrúum LR í leikhúsráði sem réðu Viðar, Kjartan Ragnarsson og Sigrún Edda Björnsdóttir, voru gengnir úr skaftinu þegar hér er komið sögu og varamenn komnir í þeirra stað, Sig- urður Karlsson og Kristján Franklín Magnús, auk þess sem kjörtímabil þess þriðja, Þorsteins Gunnarssonar, var á enda. Málið stóð því þannig að kjósa þurfti nýja stjórn á aðalfundin- um um vorið. „Eins og landið lá í leikhúsinu á þessum tíma hefðu án efa verið kjörn- ir þrír menn í stjómina sem allir hefðu verið yfirlýstir stuðningsmenn stefnu félagsfundarins. Málið hefði því ein- ungis dregist í tvo mánuði sem hefði verið ennþá verra fyrir leikfélagið með tilliti til verkefnavals fyrir Ieikárið sem nú stendur yfir og undirbúning af- mælishátíðarinnar," segir Sigurður. Ólíkir hagsmunir Viðar Eggertsson var reyndar fyrsti leikhússtjóri leikfélagsins sem ráðinn var af leikhúsráði en stjórn félagins hafði annast það verk upp á eigin spýtur allar götur fram til ársins 1995 er ákveðið var með lagabreytingu að fela leikhúsráði — stjórn leikfélagsins og fulltrúa borgarstjóra — ráðning- una. Segir Sigurður leikfélagið hafa samþykkt þá breytingu á þeirri for- sendu að það hefði hreinan meirihluta í ráðinu og réði þar af leiðandi mestu um ráðningu leikhússtjóra. Þá hafi komið fram að væru félagsmenn ósáttir við ákvörðun stjórnarinnar væri hægur vandi fyrir þá að kalla saman félagsfund og grípa inn í mál- ið. Óhætt er að fullyrða að farið hafi verið nákvæmlega eftir þessari „upp- skrift" þegar Viðari var sagt upp störfum. Hlín Ágnarsdóttir, leik- stjóri og félagi í Leikfé- lagi Reykjavíkur, segir að uppsögn Viðars hafi verið gott birtingarform hinnar stóru móthverfu sem upp- bygging leikfélagsins sé. Hagsmunum félagsins hafi verið stillt upp gegn hagsmunum hinnar listrænu forystu og í þessu tiltekna máli, svo sem fleir- um, hafi þeir ekki farið saman. Reyndar hefur Morgunblaðið heim- ildir fyrir því að það sé útbreidd skoð- un innan leikfélagsins að með ráðn- ingu Viðars hafi stjórn félagsins, með Kjartan Ragnarsson, þáverandi for- mann, í broddi fylkingar, ætlað sér að stokka rekstrarfyrirkomulagið upp með því að auka völd leikhússtjórans á kostnað félagsfundar. Fór tilraunin út um þúfur, einkum og sér í lagi þar sem Viðar hugðist gera ýmsar róttæk- ar breytingar, meðal annars á leikara- hópnum, sem féllu miklum meirihluta félagsmanna ekki í geð. Fyrir vikið hafí Kjartan dregið sig í hlé, þegar honum varð andstaðan við breyting- arnar ljós. Hann dvelst nú „í útlegð“ í Mexíkó, svo sem einn viðmælenda Morgunblaðsins komst að orði, og ólíklegt er talið að hann eigi eftir að koma til starfa hjá leikfélaginu á næstunni. Hlín fullyrðir að Viðarsmálið hafi skilið eftir sig svöðusár sem muni lík- ast til seint gróa. Mikil svartsýni hafi gripið um sig í kjölfarið og jafnvel komið fram hugmyndir um að Leikfé- lag Reykjavíkur yrði lagt niður. Nú sé ástandið reyndar orðið snöggtum betra og í tengslum við málþing um innra starf LR og vinnuna sem fram hafi farið í framhaldi af henni hafi komið fram skýr vilji félagsmanna til að græða sárin og halda starfínu áfram af fullum krafti. „Þessi krufn- ing á starfínu sem er hafin hefur til þessa verið ákaflega gagnleg. Fólk er farið að viðra skoðanir sínar og tala saman. Síðan hefur verið reynt að fá unga fólkið til að verða virkara í starfínu, sem sumt hvert er ekki einu sinni félagar í leikfélaginu, og til að skilja tilfínningar eldri kynslóð- arinnar sem lagt hefur á sig ómælda vinnu, oft og tíðum endurgjaldslaust, í þágu LR, meðal annars meðan verið var að byggja Borgarleikhúsið," segir Hlín. Breyta þarf ímyndinni Hún er jafnframt þeirrar skoðunar að umræðan um innra starf Leikfé- lags Reykjavíkur þurfi að fá að fara fram í friði — ekki síst þar sem það sé ákaflega árfðandi á þessum tíma- punkti að breyta ímynd félagsins út á við. Það geti reyndar orðið þrautin þyngri þar sem leikfélagið eigi sér marga óvildarmenn, meðal annars í röðum fólks sem ekki hafí náð að festa sig í sessi þar á bæ. Þá sé stöð- ugur og óhjákvæmilegur samanburð- ur við Þjóðleikhúsið, þar sem verið hefur mikil uppsveifla hin síðari miss- eri, vitaskuld erfiður meðan leikfélag- ið sé að sleikja sárin. Hlín bindur engu að síður vonir við að starfið sem nú er í algleymingi í Borgarleikhúsinu eigi eftir að leggja grunn að betri tíð — enda sé sjálfs- gagnrýni, þegar öllu er á botninn hvolft, besta gagnrýnin. Er hún þeirr- ar skoðunar að affarabest sé að bylta stjórnskipulaginu sem Leikfélag Reykjavíkur býr við — en með skyn- samlegum hætti. „Að líkindum yrði best að skipta um stjórn — fá yngra fólk til starfa. Þegar lyfta á grettis- taki þarf fólk helst að byija með hreint borð, laust við öll tengsl inn í flækjur undangenginna ára og áratuga. í öðru lagi verður að kippa samskiptunum við borgina í liðinn og tryggja að fjár- framlög verði í samræmi við starfsem- ina sem halda á úti. Loks verður dug- mikill stjómandi að vera til staðar sem heldur utan um starfsemina og tengir starfsmenn og stjórnendur saman. Að mínu viti er hins vegar brýnt að starfsmennirnir missi ekki áhrif sín. Lýðræðið er af hinu góða, auk þess sem ég hygg að það sé einstakt í hin- um vestræna leikhúsheimi að leikarar ráði svo miklu í atvinnuleikhúsi." Erfiðleikar í rekstri Örnólfur Thorsson fulltrúi borgar- stjóra í leikhúsráði segir erfiðleika Leikfélags Reykjavíkur fyrst og fremst þröngan fjárhag og skipulags- vanda í nýju húsi. Leikfélagið sé í „fjárhagslegri spennitreyju" enda sé aðsóknin minnkandi og samkeppnin um hylli áhorfenda harðari en oftast áður þar sem leikhúslíf í Reykjavík og nágrenni sé með líflegasta móti um þessar mundir. Vísar hann í Stofnsamning um Borgarleikhús máli sínu til stuðnings en forsendur hafí breyst mikið frá því hann var gerður árið 1975. „Vissulega hækkaði styrkurinn sem leikfélagið fékk frá borginni þegar flutt var úr Iðnó í Borgarleikhúsið en staðreyndin er hins vegar sú að það hefur ekki fengið það opinbera framlag sem það þarf til að reka fulla starfsemi í Borg- arleikhúsinu. Ef til vill hefur leikfélag- ið ekki náð að laga sig að þessum þrönga fjárhag — en það er önnur saga.“ Fjárþörf LR í Borgarleikhúsi hefur verið vanmetin lengi, að mati Örnólfs, bæði í erindum félagsins til borgarinn- ar og framlagi opinberra aðila til starfseminnar í húsinu. Samkvæmt grein sem hann ritaði í Morgunblaðið 25. janúar síðastliðinn er heildarfram- lag opinberra aðila til LR 150 milljón- ir króna í ár en framreiknað var það 156 milljónir króna í fýrra, 137 millj- ónir króna 1995, 126.4 milljónir króna 1994 og 126.9 milljónir króna 1993. Árið sem leikfélagið flutti í Borgar- leikhúsið, 1989, var framreiknað heildarframlag til þess 79,1 milljón króna. í rabbi í Lesbók Morgunblaðsins 11. janúar á þessu ári segir Baldvin Tryggvason, fyrrverandi fulltrúi borg- arstjóra í Ieikhúsráði, að beint fjár- framlag borgarinnar þyrfti að vera nú að minnsta kosti 170 milljónir króna, þar með talinn rekstur og við- hald sjálfs hússins, miðað við áætlun leikfélagsins um fjölda stöðugilda. „Því miður hefur raunin hinsvegar orðið sú að fjárhagsstuðningur borg- arinnar hefur lítið vaxið á undanförn- um árum eða frá því að Davíð Odds- son lét af starfí borgarstjóra.“ Önnur rót vandans er, að sögn Örnólfs, sú að reksturinn í Borgarleik- húsinu er með allt öðru lagi en í Iðnó. „Þar leigði félagið tiltölulega lítinn sal til sinna sýninga, í Borgarleikhúsi rekur það umsvifamikla starfsemi á þúsundum fermetra, hefur tvo sali og margfalt sætaframboð frá Iðnó. „Til að skerpa þessar andstæður enn frek- ar skilst mér að Iðnó kæmist fyrir í heilu lagi á stóra sviði Borgarleikhúss- ins,“ segir Örnólfur sem efast um að leikfélagið hafi gert sér fulla grein fyrir þessum aðstæðum þegar það flutti í Borgarleikhúsið. „Það hefur að sumu leyti skapað skipulagsvanda í húsinu, að minnsta kosti er stjórn- kerfið býsna óskýrt og þungt í vöfum, boðleiðir langar." Borgarleikhúsið illa nýtt Hann nefnir einnig að salir Borgar- leikhúss hafí einatt verið illa nýttir og LR hafí haft lítinn áhuga á því að auglýsa þá, eins og því þó bar að gera tvisvar á ári, samkvæmt sam- komulaginu við Reykjavíkurborg sem féll úr gildi um síðustu áramót, og færa með þeim hætti út kvíarnar. „Reksturinn hefur jafnframt verið sérstaklega sveiflukenndur. Af tölum að dæma hefur verið mikið ósamræmi milli þeirra áætlana sem leikfélagið hefur gert og raunverulegrar af- komu.“ Að mati Ömólfs hefði verið æski- legt að LR hefði dregið lærdóm af síðasta starfsári í Borgarleikhúsinu, 1995-96, sem hafí um margt verið býsna „forvitnilegt ár“. „Þájókleikfé- lagið starfsemina í húsinu með aukn- um stuðningi frá borginni, bæði í formi aukins reglulegs framlags og sérstakrar fjárveitingar, og niðurstað- an var sú að húsið var vel nýtt og gestum fjölgaði stórlega — voru yfir 90 þúsund. Því miður var reyndar ekki nema ríflega helmingur þeirra gestir á hinar föstu sýningar leikfé- lagsins en því má ekki gleyma að öll starfsemin var á vegum þess og skipu- Iögð af því, hvort sem það var Höf- undasmiðja LR, þriðjudagstónleikar, heimsóknir grunnskólabarna eða önn- ur leikstarfsemi. Undir síðastnefnda liðinn falla sýningar á borð við Sú- perstar, Konur skelfa og BarPar sem nutu mikillar hylli. í vetur hefur höf- undasmiðjunni og tónleikaröðinni ekki verið fram haldið og er það miður.“ Hlín Agnarsdóttir er jafnframt fylgjandi aukinni starfsemi í Borgar- leikhúsinu en áður en lengra er hald- ið sé hins vegar nauðsynlegt að finna samstarfsverkefnunum farveg. Ymsir gallar hafí verið á framkvæmdinni í fyrra, til að mynda hafi starfsfólki ekki verið fjölgað og álagið á suma starfsmenn hússins hafi því verið allt- of mikið vegna þessarar auknu starf- semi. Á að hleypa öðrum inn? Enginn vafí leikur á að Leikfélag Reykjavíkur hefur forgangsrétt til Borgarleikhússins en samkvæmt stofnskrá þess á öll leiklistarstarfsemi í húsinu að vera á þess vegum — allt árið um kring. Dagskráin frá fyrra ári sem Örnólfur nefndi og velgengni sýninga á borð við Stone Free og Svaninn, sem fijálsir leikhópar, Leik- félag íslands og Annað svið hafa sett upp í samstarfí við LR á þessu leik- ári, hafa hins vegar vakið upp spum- ingar um það hvort ekki sé ástæða til að leyfa leikhópum af þeim toga að koma sér upp aðstöðu í húsinu? Þessu er Hlín fylgjandi að því gefnu að verkaskiptingin verði skýr. „Þótt leikfélagið eigi samkvæmt lögunum að ráða ferðinni hefur samstarfíð til þessa ekki verið nógu vel skilgreint. Þetta hefur ruglað fólk í ríminu, bæði innan LR og utan, enda vilja allir ráða ferðinni til að gera veg síns leik- hóps sem mestan." Að viti Sigurðar Karlssonar er sam- starf við aðra leikhópa ekki ráðlegt — návígið yrði einfaldlega of mikið. „Það er draumur leikfélags- ins að geta nýtt mögu- leikana sem Borgar- leikhúsið hefur upp á að bjóða til fulls og verði hann að veru- leika er vitaskuld ekki þörf á því að aðrir aðilar komi inn í hús- ið. Til að geta nýtt aðstöðuna sómasam- lega þurfum við hins vegar 180-190 millj- óna króna fjárveitingu á ári og þangað til það gerist eru samstarfs- verkefni á borð við Stone Free og Svaninn viss lausn. Við megum ekki gleyma því að þessar sýningar eru á vegum leikfélagsins, eins og öll önnur starf- semi í húsinu, og hluti leikaranna í báðum sýningum eru fast- ráðnir starfsmenn þess.“ Örnólfur segir að afstaða leikfélagsins þurfi ekki að koma á óvart. Markmið þess sé „að færa upp sjón- leiki í Reykjavík", svo sem segi í íögum LR, en ekki endilega að vera rekstraraðili í húsi sem sé nýtt til fjölþættrar starfsemi. Það sé hins vegar vandséð að leiksýn- ingar LR eigi eftir að duga til að „fylla hús- ið“. „Ég held þar af leiðandi að það sé vænlegri pólitík að byggja á mörgu smáu enda gerir það á end- anum eitt stórt.“ Þennan vanda, sem snýr að nýtingu þessa „dýrasta menningar- húss Reykjavíkur", verður, að dómi Örnólfs, að leysa með einhveijum hætti enda eigi borgarbúar heimtingu á því að það sé í mikilli og góðri notk- un. „Annars hljóta þeir að líta á þessa miklu menningarhöll sem slæma fjár- festingu." Sýningar illa sóttar En hvað með hina listrænu stjórn- un, hefur hún á einhvern hátt brugð- ist? „Ég ætla ekki að fella dóm um það,“ svarar Örnólfur, „en almenning- ur hefur að minnsta kosti ekki haft nógu mikinn áhuga á að sækja sýning- ar leikfélagsins undanfarin ár. Þetta er slæmt þar sem leikfélagið á að hafa allt með sér — húsið er glæsi- legt, sagan löng og viðburðarík og starfsemin vel kynnt.“ Örnólfur leggur hins vegar áherslu á að það sé ekki stefna borgarinnar að taka fram fyrir hendurnar á leikfé- laginu. í hinum listrænu efnum eða þrengja kost þess þar á nokkurn hátt. „Það hefur til að mynda verið mín afstaða, sem ég hygg að hafí einnig verið afstaða Baldvins Tryggvasonar sem sat iengi í leikhúsráði á undan mér, að hafa engin afskipti af vali á - leikritum, leikurum, leikstjórum eða öðrum slíkum listrænum málefnum. Pólitískt skipaðir fulltrúar eiga ekki að stýra ferðinni þar. Hins vegar hef- ur mér fundist full ástæða til að þessi fulltrúi skattgreiðenda í leikhúsráði hafí áhuga á að skipta sér af rek'strar- málum í húsinu, ekki síst fjármálum, meðal annars með því að setja fjár- hagsramma sem gæti dugað.“ Þetta atriði sér Hlín í öðru ljósi en að hennar mati eru borgaryfírvöld farin að skipta sér í æ ríkari mæli af hinu listræna starfí í Borgarleik- húsinu. Það sé ekki góðs viti. Telur r hún þessa áherslubreytingu eiga stór- an þátt í því að samskipti Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar „standi í járnum“ um þessar mundir. Segir Hlín samskiptin hafa versnað til muna í kjölfar brottvikningar Við- ars Eggertssonar en sú skoðun hefur verið viðruð við Morgunblaðið að borgin hafi verið fylgjandi því að dreg- ið yrði úr áhrifum félagsfundar og valdsvið leikhússtjórans aukið. Líkir Hlín samskiptum LR og borg- arinnar við samskipti Gregers Werle og Ekdalfjölskyldunnar í hinu nafn- kunna leikriti Henriks Ibsens, Villi- öndinni, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu þessa dagana. „Reykjavíkurborg (Gregers) virðist líta á V það sem skyldu sína að segja „sannleik- ann“ um leikfélagið (Ekdalfjölskylduna) til að „bjarga" því.“ Dóminó vendipunkturinn? Þrátt fyrir allt er Hlín sannfærð um að Leikfélag Reykjavíkur eigi eftir að ná sér á strik að nýju. Oft þurfi kannski ekki nema eina sýningu til að valda straumhvörfum — hugsanlega sé Dómínó sú sýning í þessu tilfelli en hún mun hafa gengið von- um framar. „Sálræni þátturinn skiptir feiki- lega miklu máli í leik- húsi enda eru leikarar yfírleitt tilfinningarík- ar og viðkvæinar manneskjur — í dag ertu vinsæll en á morgun vansæll. Það segir sig því sjálft að fari sýningar að ganga betur eykst* sjálfstraust leikfélags- ins sem ætti að auð- velda því að taka á sínum málum, auk þess sem umtalið mun minnka. Ég er til dæmis sannfærð um að fjölmiðlar hefðu ekki gert sér eins mik- inn mat úr brottvikn- ingu Viðars Eggerts- sonar ef hið listræna starf í Borgarleikhús- inu hefði gengið bet- ur.“ Örnólfur Thorsson kveðst jafnframt sannfærður um að Leikfélag Reykjavíkur eigi eftir að vinna sig út úr vandanum og fyllast nýjum þrótti — vonandi fyrr en siðar. Þá sé hann ekki í minnsta vafa um að unnt sé að leysa skipulagsvandann í Borgarleikhúsinu, gefi menn sér tíma til að setjast niður og ræða málin. „Þetta er ekki einung- is brýnt Reykvíkinga vegna, eins og ég kom inná áður, heldur og fyrir Leikfélag Reykjavíkur, svo það fái næði til að sinna sínu höfuðverkefni sem er að færa góða leiklist á svið.“ Sigurður Karlsson dregur enga duka á að undanfarin misseri hafí verið Leikfélagi Reykjavíkur erfið — hrikt hafi í stoðum og reynt á þolrifin. Nú verði blaðinu hins vegar snúið við. „Eftir þessi átök og erfiðleika sem við lentum í á liðnum vetri fundum við það vel í kringum afmælið á dög- unum að við njótum mikils stuðnings og velvilja meðal borgarbúa. Ég er.. því bjartsýnn á framhaldið." Viðarsmálið skildi eftir sig svöðusár Hvemig gerast menn fé- lagar? SAMKVÆMT 4. gr. laga fyrir Leikfélag Reykja- víkur geta félagar í leik- félaginu orðið (a) list- rænir starfsmenn sem fastráðnir eru hjá félag- inu, (b) listrænir starfs- menn sem lausráðnir hafa verið hjá félaginu í a.m.k. tvö verkefni á undangengnum þremur árum og (c) annað starfs- fólk sem hefur verið fast- ráðið þjá félaginu sam- fellt í a.m.k. eitt ár. Stjórn félagsins fjallar um inntökubeiðnir og er innganga i félagið lög- leg, ef meirihluti sljórn- arinnar samþykkir hana. Félagar sitja fyrir um öll launuð störf í þágu fé- lagsins, nema því aðeins, að leikhússtjóri telji ann- að nauðsynlegt. Þá skulu félagsmenn láta félagið hafa forgang að starfs- kröftum sínum. Þeir fé- lagsmenn, sem fastráðn- ir eru þjá félaginu, mega því aðeins taka þátt í eða starfa að leiksýningum utan félagsins, að þeir hafi fengið til þess sam- þykki leikhússtjóra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.