Morgunblaðið - 14.03.1997, Síða 46

Morgunblaðið - 14.03.1997, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ferdinand BREF TTL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Menning 2000 Frá Pétrí Grétarssyni: REYKJAVÍK ætlar að skila hlut- verki sínu sem ein af menningar- borgum Evrópu árið 2000 með sóma, samkvæmt yfirlýsingum borgarstjóra sem nú hefur ýtt úr vör framkvæmdafleyi sem setja á kúrsinn. í stjóminni situr fólk sem í ræðu og riti hefur sýnt að því er treystandi til að taka myndarlega á málum og er því ekki ástæða til að efast um að verkefnið verði til góðs fýrir íslenska menningu hvort sem árangurinn verður mældur í fermetrum nýs tónlistarhúss eða aukinni menningarvitund þjóðar- innar. Vonandi getur þetta farið saman. Þess var ekki getið í Morgun- blaðsgreininni um þetta fyrirbæri fimmtudaginn 27. febrúar sl. hvort milljónimar tuttugu sem renna eiga til verkefnisins á þessu ári séu þær sömu og Reykjavíkurborg áætlar til menningarstarfsemi sem ekki er miðuð við menningarborgarveisl- una. Þetta á kannski eftir að skýr- ast. Það á líka eflaust eftir að skýr- ast hver hlutur ráðuneytis menning- armála verður í undirbúningi og framkvæmd menningarársins 2000. í almennri greinargerð um mark- mið verkefnisins er lögð áhersla á að menningin eflist til lengri tíma litið og segir m.a. að markaðssetja skuli íslenska menningu erlendis. Vonandi verður starfsemi stjórnar menningarárs í beinum tengslum við kynningarmiðstöðvar listgreina í landinu svo að starfið nýtist lista- mönnum til áframhaldandi kynn- ingar á verkum sínum eftir að menningarárinu lýkur. Fyrir tveimur árum lét Félag ís- lenskra hljómlistarmanna vinna þarfagreiningu vegna þjónustu og kynningarmiðstöðvar tónlistarflytj- enda í Reykjavík, en aðstaða sem í boði er fyrir tónlistarflytendur er algjörlega óviðunandi og úrbóta þörf hið snarasta. Það hlýtur að teljast réttlætismál að íslenskir tónlistarflytjendur njóti nokkurs atbeina ríkis og borgar til að byggja upp kynningarmiðstöð fyrir list sína. Tónlist verður ekki flutt nema með fulltingi hljómlistar- manna og undanfarin ár hefur hlut- deild þeirra í því sultarbrauði sem menningarmál eru farið minnkandi. Flytjendum hefur lengi sviðið það óréttlæti að þeir skuli ekki njóta sama réttar og aðrir listamenn sem hafa með styrk frá hinu opinbera getað starfrækt öflugar kynning- armiðstöðvar fyrir listgreinar sínar. Nægir hér að nefna Tónverkamið- stöð og kynningarmiðstöðvar myndlistarmanna og kvikmynda- gerðarmanna. Þrátt fyrir ójafna stöðu hefur FÍH hafið brautryðj- endastarf fyrir íslenska tónlistar- flytjendur, nú síðast með útgáfu á jazztónlist og klassískri tónlist. Þessi útgáfa er þungamiðjan í öflugri kynningu á íslenskum tón- listarflytjendum sem nú _er hafin á erlendri grundu í nafni ÍSDISKA. Menntamálaráðherra var sent erindi nýlega vegna kynningarmið- stöðvar tónlistarflytjenda, en svar hefur ekki borist við umsókn um að menntamálaráðuneytið kosti starfsmann til reynslu í eitt ár til að vinna að gagnabanka um mögu- leika íslenskra tónlistarflytjenda á erlendum mörkuðum. Hér er kjörið tækifæri fyrir menntamálaráðuneytið og Reykja- víkurborg að sameinast í öflugri kynningu á íslenskum tónlistarflytj- endum í tengslum við menningarár- ið 2000. í tengslum við starf fram- kvæmdanefndar menningarársins 2000 mætti reka þjónustumiðstöð tónlistarinnar í landinu í þágu alls tónlistarfólks. PÉTUR GRÉTARSSON hljómlistarmaður, Heiðargerði 1 B, Reykjavík. Biðlistar Smáfólk f WHAT \ * ' / ARE YOU \ (PRAcnciN6?/ THE5E ARE PERI0P5.. PERIOD5 ARE VERY lAAPORTANT.. ^ n-c sj/ -c- i FIR5T,Y0U LURITE A 5ENTENCE.. THEN,(jUHEN you 6ET TO THE ENP, IT'5... O 1996 Untted Feature Syndtcale, Inc. (periodi), \j * Hvað ertu að æfa? Þetta eru punkt- Fyrst skrifarðu PUNKTUR! ar ... punktar eru mjög setningu ... síð- mikilvægir... an, þegar kemur að endinum, er það ... Að selja vistrými á sjúkrahúsum og hverfa 50 ár aftur í tímann Frá Ólafi Ólafssyni: BIÐLISTAR eru langir á íslandi. Samkvæmt niðurstöðum Land- læknisembættisins eru nú á biðlist- um yfir 6000 manns eftir vistun á sjúkrahúsum landsins. Reikna má með að 4500 manns séu í veru- legri þörf fyrir vistun á sjúkrahús- um. Brýnt er að fækka um 2000 manns á þessum listum og til þess skortir fé. í ritstjórnargrein í blaði yðar er mælt með að fólk fái að kaupa pláss á sjúkrahúsum framhjá biðlistum. Þetta fyrirkomulag er talið réttlátt og muni auk þess stytta biðlista. Þessar staðhæfmgar kaila á aI- varlegar athugasemdir Slíkt fyrirkomulag hefði í för með sér a.m.k. tvær grundvallar- breytingar í íslenskri heilbrigðis- þjónustu. 1. Aðalsmerki íslenskrar heil- brigðisþjónustu hefur verið jafn- ræði stétta varðandi aðgengi að þjónustu (hóprannsókn Hjarta- vemdar 1967-1987). Þessi réttur var tryggður fyrir 50 árum með stofnun „almannatrygginga". Hvaðan kemur fólki sá réttur til þess að kaupa sér pláss á sjúkra- stofnunum sem reistar era, tækniv- æddar og reknar fyrir almannafé? 2. Horfið væri frá þeirri reglu að bregðast við veikindum fólks samkvæmt faglegu mati lækna. Ef fylgt væri þeirri reglu sem boð- uð er í leiðaranum réði innihald pyngjunnar meiru en einkenni sjúklinga. Þessi breyting samræmist ekki starfsreglum lækna og réttlætis- kennd fólks. Hvers vegna eigum við að hverfa 50 ár aftur í tímann til þess ástands er var áður en almannatryggingum var komið á fót? ÓLAFUR ÓLAFSSON, landlæknir. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.