Morgunblaðið - 14.03.1997, Síða 22

Morgunblaðið - 14.03.1997, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Spænskir nautaban- ar í verk- falli Malaga. Morgunblaðið „HVAR er glæsileikinn og hvað varð um hugrekkið?" spyija margir Spánveijar nú. Samtök spænskra nautabana og -rækt- enda hafa skellt á allsherjarverk- falli og hefðbundnar vor- og sum- arhátíðir kunna að vera í hættu með tilheyrandi tekjutapi leysist þessi sérkennilega vinnudeila ekki á næstunni. Deilan snýst um hvort rétt- lætanlegt sé að klippa horn naut- anna og sverfa þau áður en þau eru leidd inn hringinn. Stjómvöld kveða þetta bæði sviksamlegt og mddalegt athæfi og viþ'a herða eftirlit. Fjölmargir áhugamenn og sérfræðingar em sama sinnis og benda á að hora nautanna glati miklu af styrk sínum við þessa meðferð. Nautið eigi minni mögu- leika en ella gegn hinum tvífætta og skrautklædda andstæðingi sín- um. Hagsmunasamtök spænskra nautabana og ræktenda, CAPT, segja þetta alrangt. Hornin séu aðeins löguð lítillega til í því skyni að jafna út kvisti og brot i þeim og annan þann skaða sem þau kunni að hafa orðið fyrir í haga. Þetta þjóni bæði hagsmunum nautanna og mannanna sem hafa það að atvinnu sinni að drepa þau. Væna stjórnvöld um afskiptasemi CAPT-samtökin segja deiluna alls ekki snúast um horn nautanna heldur sé hér á ferðinni enn ein tilraun yfirvalda til að stjóma þjóðaríþróttinni með reglugerð- um. Nýrri reglugerð sem kvað á um hert eftirlit með þessu at- kvæði og tilheyrandi sektir mót- mæltu samtökin með því að boða til allsheijarverkfalls. Þetta hefur aldrei gerst í þau tvö hundmð ár sem nautaat hefur farið fram með skipulögðum hætti á Spáni. Verkfallið skall á 24. fyrra mánaðar og nú em menn teknir að óttast að naut verði ekki drep- in á vorhátíðinni í Sevilla í næsta mánuði. Það yrði mikill álits- hnekkir enda nýtur hátíð þessi sérstöðu á Spáni. Þá er og hugs- anlegt að ferðamenn sem leggja leið sína til Spánar í sumar verði af þessari blóðugu veislu. Þetta kann með öðrum orðum að draga úr tekjum af ferðamannaþjónustu. Nautaatið er mikilvæg atvinnu- grein á Spáni. Um 200.000 manns tengjast þessari starfsemi með einum eða öðmm hætti. í fyrra greiddu Spánveijar rúma 70 millj- arða króna í aðgangseyri að slík- um skemmtunum hvar um 37.000 naut voru felld. Ráðamenn og hagsmunaaðilar í Valencia náðu samkomulagi fyr- ir hátíðina sem fram fer þar í borg þessa dagana. Þar em þvi naut drepin með reglulegu milli- bili. Stjórnvöld í Andalúsíu lýstu hins vegar yfir því á þriðjudag að þau teldu þetta samkomulag lögleysu og kváðust ætla að leggja fram reglugerð til að tryggja nautunum fulla reisn. Hygðust yfirvöld í Madrid fallast á Valenc- ia-samkomulagið myndu stjóra- völd í Sevilla, höfuðborg Andalús- íu, grípa til viðeigandi ráðstafana. Deilan kann því að snerta sjálf- stæði einstakra héraða gagnvart miðstjórnarvaldinu í Madrid sem er eilíft þrætuepli í spænskum stjórnmálum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem deila blossar upp vegna þeirrar _ venju að klippa hora nautanna. Á fimmta áratugnum vakti það mikla hneykslan er þekktur nauta- bani skýrði frá því að þetta væri alsiða. Ymsar reglugerðir um þetta efni hafa litið dagsins ljós á síðustu ámm en svo virðist sem sú skoðun njóti nú vaxandi fylgis að þetta sé í senn ómannúðleg meðferð á dýrunum og í litlu sam- ræmi við þann glæsileika og hug- rekki sem jafnan er tengd þessari sérstöku íþrótt. Sagað og málað í sárin Þótt talað sé um að horn dýr- anna séu „rökuð“ (á spænsku er sögnin afeitar „að raka“ notuð til að lýsa þessum verknaði) liggur fyrir að þau era klippt og þar með stytt um nokkra þumlunga auk þess sem þau em sorfin, eða þynnt, og jöfnuð. Við blasir að nautabaninn er ekki í sömu hættu og hann ella væri. Dýrin em tekin inn á bása, þeim gefin róandi sprauta og hornin síðan stytt með sög. Þar næst eru þau sorfin til og algengt er að málningu sé skellt i sárin. Við þetta minnkar styrkur hornanna og margir sér- fræðingar og áhugamenn um þessa íþrótt telja það nánast helgi- spjöll að svipta dýrið reisn sinni með svo ruddalegum hætti. Spænsk dagblöð hafa almennt tekið undir málstað stjórnvalda (og nautanna) í þessari deilu og ýóst má vera að verkfallið hefur orðið nautabönum nokkur álits- hnekkir. Morðid á Ennis Cosby Meintur morðingi handtekinn Los Angeles. Reuter. LÖGREGLAN í Los Angeles hefur handtekið mann sem er grunaður um morðið á Ennis Cosby, einkasyni bandaríska leikar- ans Bills Cosbys. Willie Williams, lögreglustjóri Los Angeles, vildi ekki skýra frá nafni mannsins en kvað lögregluna sann- færða um að hann hefði orðið Ennis Cosby að bana. Hann sagði að maðurinn væri hvítur Los Angeles-búi og líktist mynd sem lögreglan lét teikna eftir lýsingu konu, sem talin er hafa séð morðingjann. Konan segist hafa ætlað að hitta Ennis Cosby en hann hafi hringt í farsíma og sagst þurfa að nema stað- ar á hraðbraut í Los Angeles til að skipta um hjólbarða. Hún kveðst hafa stansað við bíl hans en ekið á brott þegar maður hafí bankað á bílrúðuna. Þegar hún sneri aftur skömmu síðar kom hún að líki Ennis Cosbys. Talið er að morðinginn hafi ætlað að ræna hann en ákveðið að forða sér eftir að konan kom að hon- um. Williams sagði að annar maður og kona hefðu verið handtekin vegna málsins en ekki hefði verið ákveðið hvort þau yrðu ákærð. Morðmálið olli mikium óhug meðal íbúa Los Angeles og milljóna aðdá- enda Bills Cosbys, sem lék í vinsæl- um sjónvarpsþáttum, „Fyrirmyndar- föðumum". Tvö bandarísk blöð hétu samtals 300.000 dölum, eða 21 millj- ón króna, fyrir upplýsingar sem leiddu tii handtöku morðingjans. Ennis Cosby ^RISTALL. !É - j 6 manna matar eða kaffistell: "BíAa LAUFIÐ" kr. 2.950,- 'VORIÐ" kr. 3.400,- "CORTINA" kr. 4.975,- "PIANO" - sjámynd.. 6 m. matarstell kr. 7.950,- 6 m. kaffistell kr. 7.500,- Húsgögn - Hjólaborð - Speglar Lampar - Glös - Hnífapör Í’:' Margt fallégt fyrir heímilið þitt. Kringlunni og Faxafeni (Líttu við í kjailarann I Faxafeni) Fundur Clintons og Jeltsíns í Helsinki Eystrasaltsríki ótt- ast leynisamning Riga. Reuter. EYSTRASALTSRÍKIN Eistland, Lettland, og Litháen óttast að Bill Clinton Bandaríkjaforseti svíki þau á fundinum með Borís Jeltsín Rússlandsforseta í Helsinki í næstu viku með leynilegum samn- ingi um stækkun Atlantshafs- bandalagsins, að sögn stjórnarer- indreka í Riga. Meginmarkmið Clintons er að fá Jeltsín til að samþykkja stækk- un NATO í austur og fullvissa hann um að hún ógni ekki öryggi Rússlands. Nokkrir embættismenn í Eystrasaltsríkjunum hafa hins vegar látið í ljós áhyggjur af því að Clinton kunni að fallast á leyni- legan málamiðlunarsamning við Jeltsín, þar sem rússneski forset- inn féllist á að Pólveijar, Tékkar og Ungveijar fengju aðild að NATO gegn loforði frá Clinton um að Eystrasaltsríkin fengju aldrei að ganga í bandalagið. „Helsta áhyggjuefni okkar er að Eystrasaltsríkin verði svikin,“ sagði einn stjómarerindrekanna. Aðrir sögðust þó vona að Clinton yrði ekki við kröfu Rússa um að Eystrasaltsríkin yrðu útilokuð frá aðild að NATO og sögðu að slíkt myndi ganga í berhögg við fyrri yfírlýsingar Bandaríkjastjómar. „Sú hugmynd hefur komist á kreik að Eystrasaltsríkin kunni að verða svikin en við teljum að slík svik séu varla möguleg undir lok 20. aldarinnar,“ sagði lettneskur stjórnarerindreki. Þótt ráðamenn í Eystrasaltsríkj- unum telji óraunhæft að gera sér vonir um að þau verði á meðal fyrstu ríkjanna sem fá aðild að NATO eftir lok kalda stríðsins vonast þeir til að Clinton lýsi því yfír í Helsinki að til greina komi að þau gangi í bandalagið þegar fram líða stundir. Umvafínn silfri og gulli T ItMA DahIam PERÚSKIR fornleifafræðingar hafa fundið gröf foms hershöfð- ingja sem hlaðinn var silfri og gulli, að því er blaðið E1 Co- mercio skýrði frá í gær. Gröfin er talin vera frá árinu 50 og er hún aðeins nokkra metra frá grafhýsi lávarðsins af Sipan í Huaca Rajada grafhaugn- um skammt frá borginni Chicla- yo í norðurhluta Perú. Fundur- inn þykir varpa nýju þ'ósi á hið forna samfélag, Mokka-konung- dæmið, en staðsetning grafarinn- ar bendir til þess, að herinn hafi ráðið miklu um stjórn konung- dæmisins ásamt pólitískum full- trúum og prestum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.