Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 12

Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Vekja athygli á baráttumálum sínum með ferð yfir hálendið Morgunblaðið/Kristján FERÐALANGARNIR og forsvarsmenn LÍV við komuna til Akureyrar i gær. F.h. Ólafur Sigurgeirs- son, Reykjavík, Sveinn G. Sveinsson frá Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi, hjónin Hallfríður Karlsdóttir og Hafsteinn Valsson úr Reykjavík og forsvarsmenn LÍVj Eiríkur Jónsson, gjaldkeri, Tómas Búi Böðvarsson, varaformaður og Vilhelm Agústsson. FJÓRIR félagar í Landssam- bandi vélsleðaeigenda komu til Akureyrar seinni partinn í gær eftir ferð á sleðum sínum þvert yfir hálendi landsins. TUgangur ferðarinnar var að vekja athygli á baráttumálum vélsleðaeigenda. Núverandi stjórn LÍV er á Akur- eyri og var forsvarsmönnum sambandsins afhent áskorun við komuna til bæjarins, um að stjórnin beiti sér fyrir baráttu- málum vélsleðafólks. Ólafur Sigurgeirsson, einn ferðalanganna, sagði við komuna til Akureyrar að ferðin sem hófst við Rauðavatn á miðvikudags- morgun hafi gengið vel en þó hafi veðrið í gær verið heldur leiðinlegt. Eitt af baráttumálum vélsleðamanna er afnám vega- gjalds á eldsneyti vélsleða. A leið Vegagjald til ríkissjóðs nam 6.700 krónum sinni utan vega yfir hálendið notuðu ferðalangarnir um 270 lítra af bensíni á sleðana fjóra. Að sögn Ólafs fékk ríkissjóður því um 6.700 krónur í sinn hlut í formi vegagjalds, sem er 25 krónur á hvern bensínlítra. Vi\ja aka innan bæjarmarka I áskoruninni er einnig óskað eftir því að stjórn LIV beiti sér fyrir afnámi eða lækkun 70% innflutningsgjalda, breytingu á umferðarlögum í þá átt að vél- sleðum verði heimilt að aka á vegum og utan vega í þéttbýli og breytingu á lögreglusam- þykktum þeirra þéttbýlisstaða sem leggja hömlur á notkun vél- sleða innan bæjarmarka. Móttökusveit Akureyringa, með Vilhelm Ágústsson í broddi fylkingar fór á móti ferðalöngun- um í gær og fylgdi þeim loka- sprettinn til bæjarins. Þeir héldu svo sömu leið til baka yfir hálend- ið snemma í morgun og var stefn- an sett á skálann Slunkaríki við Langjökul. Þar ætlar hópurinnn að slá upp veislu og griila lamba- læri en eftir næturgistingu í skál- anum verður haldið áfram til Reykjavíkur á morgun. Húsnefnd Samkomuhússins um framtíðarhúsnæði atvinnuleikhúss Mælir með að Nýja bíó verði keypt HÚSNEFND Samkomuhússins á Akureyri hefur mælt með því við bæjarráð að veitt verði heimild til að ganga til viðræðna um hugsan- leg kaup bæjarins á húsnæði Nýja bíós við Strandgötu og aðiiggjandi húsnæði á horninu við Ráðhústorg í því skyni að byggja þar upp fram- tíðaraðstöðu fyrir atvinnuleikhús á Akureyri. Bæjarráð óskaði á fundi í gær eftir upplýsingum um áætlaðan heildarkostnað við endurbætur og breytingar á húsinu, við- byggingu og nauðsynleg húsakaup. Ingvar Björnsson, sem sæti á í húsnefnd Sam- komuhússins, sagði að nefndinni hefði verið falið að finna lausn á framtíðar- húsnæði fyrir atvinnuleik- hús á Akureyri, en ljóst væri að Samkomuhúsið, sem varð 90 ára fyrr á ár- inu dygði ekki til frambúð- ar. Einkum hefði verið horft til tveggja möguleika, Sjallans og Nýja bíós og við nánari athugun þótti síðari kosturinn betri. Nýja bíó við Strandgötu var reist árið 1929 og var kvikmyndahús rekið þar allt fram á níunda áratuginn, en nokkur síð- ustu ár var þar skemmtistaðurinn 1929. Síðastliðið haust kom upp eldur í húsinu og hefur það ekki verið notað frá þeim tíma. Húsið kostar 28 milljónir króna, en inni í því verði eru áhvílandi tryggingabætur vegna brunans að upphæð 11,2 milljónir króna. Ingvar sagði Akureyrarbæ hafa forkaupsrétt að húsinu að minnsta kosti út næstu viku. Þó svo að Akureyrarbær kaupi húsið í því skyni að reka þar starfsemi Leikfé- lags Akureyrar verður lítið átt við endurbætur og lagfæringar fyrr en eftir næstu aldamót. Framkvæmda- fé bæjarins er bundið öðrum verk- efnum næstu þtjú árin. Endurbætur á Samkomuhúsi Nú í sumar verður ráðist í endur- bætur á Samkomuhúsinu og kosta þær um 20 milljónir króna. Meðal annars verður skipt um stóla og salurinn fær andlitslyftingu. Svöl- um verður breytt og einnig sviði. Ingvar sagði að þó svo að leikfélag- ið myndi í framtíðinni starfa í öðru húsi væri tímabært að ráðast í endurbætur á Samkomuhúsinu. Benti hann m.a. á að húsið hentaði einkar vel til tónleikahalds og yrði eflaust notað sem slíkt eftir að ieik- félaginu hefði verið fundið nýtt hús. Morgunblaðið/Kristján HÚSNEFND Samkomuhússins leggur til að gengið verði til samninga um hugsanleg kaup bæjarins á húsnæði Nýja bíós við Strandgötu í því skyni að byggja þar upp framtíðaraðstöðu fyrir atvinnuleikhús á Akureyri. Hagnaður Kísiliðjunnar við Mývatn 53 milljónir króna í fyrra Fjárhagsleg staða fyrirtækis- ins mjög sterk KÍSILIÐJAN VIÐ MÝVATN Úr reikningum 1996 Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyt. Rekstrartekjur 504,9 544,4 -7,3% Rekstrargjöld 434,8 426,2 +2.0% Rekstrarhagnaður án fjármunaliða 70,2 118,2 -40,6% Fjármunatekjur og {-gjöld) 11,8 8,0 +47,5% Hagnaður tyrir skatta 82,5 127,8 -35,5% Hreinn hagnaður ársins 52,8 81,8 -35,5% Efnahagsreikningur 31. des.: | Eignir: \ Veltufjármunir 461,1 492,1 -6,3% Fastaf jármunir 291,9 289,3 +0,9% Eignir samtals 753,0 781,4 -3,6% | Sku/dir og eigid fé: | Skammtímaskuldir 84,7 108,7 -22,1% Eigið fé 668,3 672,7 -0,7% Skuldir «jg eigið fé samtals 753,0 781.4 -3,6% Morgunblaðið/Kristján ÁKVEÐIÐ hefur verið að kaupa hreinsibúnað fyrir ofn Kísiliðj- unnar fyrir 30-40 milljónir króna. KÍSILIÐJAN við Mývatn skilaði tæp- lega 53 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en árið 1995 var hagn- aður fyrirtækisins tæpar 82 milljónir króna. Árið 1995 var jafnframt langbesta rekstrarárið í 30 ára sögu Kísiliðjunnar. Velta fyrirtækisins á síðasta ári nam 505 milljónum króna og er hagnaðurinn því um 10,4% af veltu. Árið áður nam velta Kísiliðj- unnar 544 milijónum króna. Bjarni Bjarnason framkvæmda- stjóri segir að minni sala í fyrra, aðeins lægra afurðaverð og aukinn tilkostnaður í öllum rekstrarþáttum, sé helsta ástæða þess að hagnaður síðasta árs er minni en árið áður. Hann er engu að síður mjög ánægð- ur með afkomuna enda er þetta þriðja besta hagnaðarhlutfall í sögu fyrirtækisins. Bjarni segir að rekst- urinn hafi gengið vel og íjárhagsleg staða fyrirtækisins sé mjög sterk. Á árinu 1996 voru framleidd um 25.600 tonn af fullunnum kísilgúr og dróst framleiðslan saman um 9% frá árinu áður. Útflutningur á árinu nam um 26.200 tonnum og dróst saman um 6,8% milli ára. Innan- landssala í fyrra varð 41 tonn sem er svipað magn og árið áður. Stjórn Kísiliðjunnar samþykkti á fundi sínum fyrir aðalfund fyrirtæk- isins í vikunni að kaupa hreinsibúnað fyrir ofn verksmiðjunnar. Að sögn Bjama mun reykháfur verksmiðj- unnar hverfa við þessa breytingu, turninn lækka um fjórðung og rör og hreinsibúnaður sem em illa útlít- andi munu hverfa. „Þetta er því vem- leg útlits- og umhverfisbót." Um er áð ræða fjárfestingu upp á 30-40 milljónir króna og vonast Bjarni til að hægt verði að koma hreinsibúnað- inum í gagnið á þessu ári. Könnun á nýrri vinnsluaðferð Könnum á nýrri vinnsluaðferð í Mývatni var fram haldið á síðasta ári. Með aðferðinni er stefnt að því að dæla gúmum undan gróðurþekju vatnsbotnsins þannig að kísilgúr- námið valdi lágmarksröskun á lífríki Mývatns. Þegar er búið að hanna meginhluta búnaðarins og benda hönnunamiðurstöður til þess að vinnsluaðferðin sé álitleg. „Þetta mál er ekki í höfn en engu að síður mjög spennandi verkefni sem við bindum miklar vonir við. Hér er alveg um nýja aðferð að ræða sem hvergi hefur verið notuð í heiminum," sagði Bjarni. Hjá Kísiliðjunni starfa 45-50 manns og er unnið á vöktum allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Heildarlaunagreiðslur síðasta árs námu rúmum 114 milljónum króna. Bjarni segir að rekstrarhorfur fyrir yfirstandandi ár séu góðar. „Við gerum ráð fyrir svipaðri sölu á kísilg- úr og svipuðu verði.“ Núverandi starfsleyfi Kísiliðjunnar gildir til ársloka 2010. Vinnslusvæði félagsins í Mývatni er afmarkað og er félaginu óheimilt að vinna hráefni utan þess. Mjög hefur gengið á birgð- ir kísilgúrs á vinnslusvæðinu. Miðað við núverandi ársframleiðslu verk- smiðjunnar má búast við að birgðir verði á þrotum innan 6-7 ára, um 7 árum áður en núverandi starfs- leyfi lýkur. A Afengis- o g vímuefna- notkun unglinga RÁÐSTEFNA um áfengis- og vímu- efnanotkun unglinga verður haldin á Hótel KEA á Akureyri í næstu viku, dagana 20. og 21. mars. Ráðstefnan er haldin að frumkvæði bæjaryfir- valda á Akureyri í samstarfi við SÁÁ og heilbrigðisráðuneytið auk fleiri, en kveikjan að ráðstefnunni er sú umræða sem varð í kjöifar útihátíða sem haldnar voru um síðustu versl- unarmannahelgi, einkum „Halló Ak- ureyri“. Framsögumenn á ráðstefnunni koma víða að, en eiga það sameigin- legt að fást við áfengis- og vímuefna- notkun unglinga. Fjallað verður um hlutverk m.a. þeirra sem vinna að beinu forvarnar- og meðferðarstarfi, íþróttahreyfíngarinnar, foreldrasam- taka, sveitarfélaga, lögreglu, féla- gamálayfírvalda og þá tekur ungt fólk einnig þátt í ráðstefnunni. Rætt verður um hlutverk og stefnu sveitar- félaga í áfengis- og vímuefnavörn- um, útihátíðir og aðrar hópsamkom- ur unglinga, umgjörð, undirbúning og framkvæmd slíkra viðburða með sérstakri hliðsjón af „Halló Akur- eyri“ frá síðasta sumri, þá verður rætt um hlutverk foreldra og for- eldrafélaga í forvarnarstarfí og hlut- verk ungs fólks í forvörnum. Sérstakir gestir ráðstefnunnar verða Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík. Fjöldi fyrirlestra verður haldinn. Skráning fer fram hjá Upplýs- ingamiðstöðinni á Akureyri og þar fást einnig nánari upplýsingar um ráðstefnuna. ( ) > > É> l

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.