Morgunblaðið - 06.12.1998, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FORSETAKOSNINGAR í VENESÚELA í DAG
Pólitískur
fellibylur
í aðsigi?
Fyrrverandi uppreisnarmaður stendur vel að vígi
í forsetakosningunum sem fram fara í Venesúela í dag.
Ásgeir Sverrisson segir frá Hugo Chávez, sem
andstæðingarnir segja valdníðing og líkt er við
Gaddafí Líbýuleiðtoga.
Reuters
HUGO Chávez liefur lagl herbúningnum síðustu
dagana og dregið nokkuð úr öfgafullum
yfírlýsingum sínum.
Reuters
HENRIQUE Salas Römer kemur í hlaðið á hestinum „Smábaun"
á kosningafundi í Caracas.
REYNIST skoðanakannanir
réttar verður Hugo Chá-
vez Frías kjörinn forseti
Venesúela í kosningum
sem fram fara í dag, sunnudag. Yms-
ir hugsa til þess með hryllingi að
fyrrum valdaræningi kunni að verða
næsti forseti landsins, aðrir hafa þá
þróun til vitnis um sívaxandi örvænt-
ingu í röðum almennings vegna
þeirrar spillingar og misskiptingar
auðsins sem móti allt lífið í landinu.
Bandaríkjamenn sem eiga mikilla ol-
íuhagsmuna að gæta í Venesúela
hafa fylgst grannt með framrás at-
burða enda er Chávez á lista yfir þá
sem taldir eru óæskilegir í Banda-
ríkjunum.
„Ég mun steikja andstæðinga
mína í olíu.“ Yfirlýsingar á borð við
þessa hafa vakið áhuga heimsbyggð-
arinnar á Hugo Chávez. Maðurinn er
afskaplega herskár í framgöngu og
afdráttarlaus í yfirlýsingum sínum.
Allslaus og afskiptur múgurinn hef-
ur hins vegar tekið honum fagnandi.
Hatur hans á spilltum embættis- og
stjórnmálamönnum á víða hljóm-
grunn og gegn þeim er orðaflaumn-
um beint. Og Hugo Chávez boðar
róttækar lausnir á vanda þjóðarinn-
ar.
Margir halda því fram að í forseta-
kosningunum í dag sé veruleg hætta
á því að íbúar Venesúela kjósi yfir
sig valdníðing, sem tæpast gangi
heill til skógar. Chávez, sem er 44
ára, hefur verið borinn saman við
flest þekktustu illmenni 20. aldarinn-
ar en nú virðist einkum í tísku að
líkja honum við Muhammar Gaddafi,
leiðtoga Líbýu. Chávez hefur raunar
sagst tilheyra hópi aðdáenda
Gaddafi. Nú má lesa í suður-amer-
ískum blöðum vangaveltur um að
Bandaríkjamenn séu að eignast nýj-
an óvin, annan Gaddafi, en í þetta
skiptið í sjálfum „bakgarðinum"
fræga.
Allt virðist þetta heldur ýkt og
orðum aukið. Því verður ekki neitað
að mörg ummæli Chávez benda ekki
til þess að lýðræðisástin risti sérlega
djúpt í lífi hans. Á hitt ber og að líta
að hann hefur gerst heldur hófsam-
ari í yfirlýsingum sínum eftir því
sem kjördagur hefur færst nær.
Herská ummæli virðast frekar vera
tæki í vopnabúri hans til að ná til
þjóðarinnar og sýnist það hafa tekist
prýðilega. Pólitíska hæfileika hefur
maðurinn án nokkurs vafa og lýð-
skrumið líkist einna helst hljóðfæri í
höndum hans.
Valdaræningi
Hvers vegna skelfast svo margir
sigur Hugo Chávez Frías í forseta-
kosningunum? Fyrst er þess að geta
að hann er fyrrum valdaræningi.
Fyrir tæpum sjö árum, 4. febrúar
1992, fór Hugo Chávez fyrir hersveit-
um, sem risu upp gegn lög-
lega kjömum forseta Venesú-
ela, Carlos Andrés Peréz.
Uppreisninni lauk er Chávez
íýrirskipaði sveitum sínum að
leggja niðm- vopn þegar þær
höfðu komið sér fyrir skammt
frá Miraflores-höllinni þar
sem er aðsetur ríkisstjórnar-
innar í höfuðborginni,
Caracas. Chavéz lýsti yfir því
að hann vildi afstýra „blóð-
baði“ en fullyrt hefur verið að
hann hefði hæglega geta látið
myrða forsetann og jafnvel
tekið völdin í landinu.
Uppreisnin kostaði Chávez
fangelsisdóm en hann reynd-
ist styttri en flestir höfðu ætl-
að. Aðeins tveimur árum síð-
ar var hann frjáls maður á ný
þar eð forseti landsins, Rafael
Caldera, veitti honum uppgjöf
saka. Telja margir að á þann
hátt hafi forsetinn launað
Chávez greiðann því valda-
ránstilraunin reyndist rot-
höggið fyrir þáverandi for-
seta, Carlos Andrés Peréz,
sem hrökklaðist írá völdum.
Þetta ruddi leiðina fyrir Cald-
era, sem kjörinn var forseti í desem-
ber 1993. Skömmu eftir að refsivist-
inni lauk árið 1994 hóf Chávez þátt-
töku í stjómmálum.
Gegn „ungfrú alheimi"
Ekki kom á óvart er hann til-
kynnti að hann hygðist sækjast eftir
forsetaembættinu í desember 1998.
Fyrstu kannanir bentu til þess að
hann ætti litla möguleika á sigri. At-
hygli manna í Venesúela og raunar
víðar um heim beindist enda einkum
að Irene Sáez, ungfrú alheimi árið
1981, sem kunngjörði að hún hygðist
sækjast eftir forsetaembættinu.
Ungfrú Sáez hafði þá þegar náð
óvæntum frama á stjórnmálabraut-
inni og hafði tvívegis verið kjörin
borgarstjóri Chacao, útborgar
Caracas.
Framboð fegurðardrottningarinn-
ai' fór vel af stað. Draga tók saman
með þeim ungfrú Sáez og Chávez á
vormánuðum og vora ýmsir frétta-
skýrendur þá þeirrar hyggju að hún
ein gæti komið í veg fyrir sigur hans.
í maí mældist fylgið við fegurðar-
drottninguna um 30% og hafði upp-
reisnarforinginn gamli þá náð fjög-
urra prósentustiga forskoti.
Frá því þetta var hefur fylgið við
fegurðardrottninguna fyrrverandi
hrunið. COPEI, annar tveggja
stærstu flokka Venesúela, lýsti yfir
stuðningi við hana en flokkurinn er
trausti rúinn vegna spillingarmála.
Flokkurinn sneri síðan við henni
baki á þriðjudag en þessi stuðningur
virðist hafa lagt framboð hennar í
rúst.
í könnun, sem gerð var um miðjan
nóvember og birt var í dagblaðinu E1
Universal, mældist fylgi Chávez 45,8
prósent en næstur kom Henrique
Salas Römer, 62 ára gamall hag-
fræðingur og fyrrum ríkisstjóri í
Carabobo-ríki, með 40,7%. Fylgi
ungfrú Sáez hefur hins vegar reynst
vera á bilinu 6-11%. Aðrar kannanir
hafa einnig bent til þess að Chávez
muni sigi-a Salas með um 6 prósentu-
stiga mun og ljóst er að baráttan í
dag stendur á milli þeirra tveggja.
Gegn gamla flokkakerfínu
Hafi andstæðingar Hugo Chávez
verið teknir að ókyrast urðu þeir
fyrir réttnefndu áfalli í þing- og rík-
isstjórakosningunum, sem fram fóru
í Venesúela 8. fyrra mánaðar. Sam-
tök þau sem Chávez hafði stofnað
gamla flokkakerfinu til höfuðs
reyndust fær um að koma til skila
þeim „pólitíska landskjálfta" sem
leiðtoginn hafði boðað.
Samtök þessi, sem nefnast „Föð-
urlandsfylkingin („Polo Patriótico“ á
spænsku), samanstanda af fjölmörg-
um hreyfingum vinstrimanna og
þjóðernissinna. Fylkingin fékk þriðj-
ung sæta á þingi landsins í Caracas
og reyndist vinna sigur í átta ríkis-
stjórakosningum af 23. Á meðal
nýrra ríkisstjóra er að finna föður
Chávez, Hugo de los Reyes Chávez,
kennai-a á eftirlaunum, sem vann
sigur í Barinas-ríki í vesturhluta
landsins, syninum til ómældrar gleði.
„Þetta er upphaf grundvallarbreyt-
inga í Venesúela," sagði Chávez eftir
sigurinn í viðtali við spænska dag-
blaðið E1 Mundo. Líkti hann þessum
umskiptum við „siðferðislegan felli-
byl“ sem upprætti allt hið gamla.
Hyggst, leysa
upp þingið
Til sannindamerkis um að Chávez
sé í raun aðeins ótíndur valdníðingur
hafa andstæðingar hans það „loforð“
að þing landsins verði leyst upp
verði hann kjörinn forseti. Höfuðs-
maðurinn fyrrverandi hefur sagt að
hann hyggist boða til þjóðaratkvæðis
15. febrúai’ um að þingið verði leyst
upp. Síðan hyggst hann kalla saman
nýtt stjórnarskrárþing til að knýja
fram umbætur á stjórnmálakerfinu.
Þessi róttæka hugmynd virðist njóta
mikils fylgis og segir það sitt um
ástandið í Venesúela. Spillingin þar
þykir með þvílíkum ólíkindum að
landið er oftast borið saman við
Kenýa, Úganda, Kólumbíu og
Indónesíu í því viðfangi. Annars
kveðst Chávez stefna að því að inn-
leiða „mannlega fjánnagnshyggju“ í
Venesúela og vísar til orða Jóhann-
esar Páls II páfa um „kapítalisma
villimennskunnar“.
Önnur hugmynd sem frambjóð-
andinn hefur viðrað hefur sömuleið-
is vakið almenna skelfingu í röðum
olíumanna í landinu. Chávez hefur
sagt að olíuhreinsistöðvar í eigu
Venesúelabúa í Bandaríkjunum og
Evrópu skili ekki nægilegum fjár-
munum í ríkissjóð og því sé réttast
að selja þessi mannvirki. Olíufélagið
í Venesúela, Petroleos de Venezuela,
hefur varið milljörðum Bandaríkja-
dala á undanförnum árum til að
tryggja stöðu sína á mörkuðum
þessum. Hreinsistöðvarnar hafa
gegnt lykilhlutverki í þessu viðfangi
því hráolía í Venesúela er sérlega
„þung“ og þarf á sérstakri með-
höndlun að halda. Með þessum fjár-
festingum hefur Venesúela m.a. tek-
ist að tryggja sérstöðu sína á
Bandaríkjamarkaði en Bandaríkja-
menn flytja meira af hráolíu inn frá
Venesúela en öðrum löndum. Hér
ræðir ennfremur um gríðarlega
hagsmuni fyrir Venesúela því um
72% af útflutningstekjum þjóðarinn-
ar koma frá olíusölunni enda landið í
9. sæti yfir helstu olíuríki heims. 01-
íumenn í landinu halda því fram að
Chávez myndi leggja þennan iðnað í
rúst yrði hugmynd hans að veru-
leika.
Talinn „hryðjuverkamaður"
Embættismenn í Bandaríkjunum
hafa fylgst gi-annt með þróun mála í
Venesúela enda er landið mikilvægt
Bandaríkjamönnum sökum þein-a
miklu náttúruauðlinda, sem þar er
að finna. Chávez er á lista stjórn-
valda vestra yfir „hryðjuverkamenn“
vegna samblástursins sem hann
efndi til 1992. Þetta þýðir að Chávez
má ekki til Bandaríkjanna koma og
verði hann þjóðhöfðingi verður hann
trúlega að treysta á sérstakar árit-
anh' líkt og Yasser Arafat leiðtogi
Palestínumanna hefur fengið er
hann hefur ávarpað þing Sameinuðu
þjóðanna. Sú undarlega staða kann
jsví að koma upp að „hryðjuverka-
maður" gerist hæstráðandi í „bak-
garði“ Bandaríkjanna.
Hugo Chávez er maður sem boðar
róttækar lausnir og ýmsum kann að
þykja undarlegt að frambjóðandi
sem heldur fram svo öfgafullum
sjónai'miðum skuli eiga góða mögu-
leika á að verða næsti forseti Venes-
úela. Lýðræðið hefur vh'st standa
traustum fótum í landinu en þetta
stjórnarform var endurvakið þar
syðra fyrh' 40 árum er endi var
bundinn á einræðisstjórn Mai'cos
Pérez Jiménez í janúamiánuði 1958.
Kosningaþátttaka hefur að vísu oft
verið lítil og vaxandi óánægju með
hefðbundin stjórnmálaöfl hefur
gætt. En hvernig má það vera að
umtalsverður hluti kjósenda í Venes-
úela skuli vera tilbúinn til að greiða
fyrram valdaræningja atkvæði sitt í
lýðræðislegum kosningum?
Hrópleg misskipting auðsins
Svai'ið liggur í hróplegri misskipt-
ingu auðsins í Venesúela. Framboð
og framrás Chávez hefur staðfest
djúpstæðan klofning í samfélaginu.
Um 70-80% íbúa Venesúela teljast
vera fátækir. Þetta fólk fær ekki not-
ið olíuauðsins, þeir sem það gera búa
í lokuðum hverfum þar sem vopnaðir
öryggisverðh- eru á hverju strái.
Hinir ríku skreppa gjarnan á einka-
þotum til Bandaríkjanna til að gera
innkaupin og losna þannig við náið
samneyti við „skrílinn“. I Venesúela
nýtur ríkasti fimmtungur þjóðarinn-
ar helmings þjóðarteknanna.
Margir hinna fátæku hafa hrifist
af málflutningi frambjóðandans og
þeim róttæku lausnum sem hann
boðar til að skera upp herör gegn
spillingunni og hreinsa til í stjórn-
málum landsins.
í hinum herbúðunum er að finna
milli- og auðstéttina í landinu. Þar
eru og ráðandi menn í olíuiðnaðin-
um, stjórnmálastéttin og mikill fjöldi
embættismanna. Þetta fólk hefur
fylgst dauðskelkað með því hvernig
vinsældh- Chávez hafa vaxið dag frá
degi. Stjórnmálastéttin hefur í ör-
væntingu sinni leitað leiða til að
tryggja samstöðu gegn valdaræn-
ingjanum gamla. Þrátt fyrir ákafar
tilraunir síðustu vikurnar vai’ það
ekki fyrr en á þriðjudag sem stærstu
flokkarnir tveir ákváðu að snúa baki
við frambjóðendum sínum og styðja
Salas Römer. Þótt Salas Römer hafi
þannig treyst stöðu sína síðustu dag-
ana kann klofningurinn að tryggja
sigur Chávez.
Fai'i Chávez með sigur af hólmi í
kosningunum í dag, sunnudag, mun
hann hafa staðið við það loforð sitt
að leiða pólitískan landskjálfta yfir
þjóðfélagið í Venesúela. Óvissutímar
munu þá fara í hönd. Hugo Chávez
Frías virðist hins vegar í engum vafa
um hlutverk sitt. I viðtali við tímarit-
ið Estampas, sem er helgarútgáfa
dagblaðsins E1 Universal, var hann
spurður hvaða orð hann óskaði sér
að heyra frá Guði sínum. „Þér hefur
tekist það,“ var svarið.