Morgunblaðið - 01.06.1999, Page 4

Morgunblaðið - 01.06.1999, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þverárfjallsvegur milli Blönduóss og Sauðárkróks Verð á bensíni hækkar um 3,40 krónur lítrinn Olíufélögin undrast hækkun vegagjalds Styttir vegalengd- ina um 30 kflómetra SKIPULAGSSTOFNUN hefur hafíð athugun á umhverfisáhrifum lagn- ingar Þverárfjallsvegar frá Skaga- strandarvegi til Sauðárkróks. Sam- tals er um 38 kílómetra langa leið að ræða, en vegurinn styttir vegalengd- ina milli Blönduóss og Sauðárkróks um 30 kílómetra og styttist því vega- lengdin úr 76 km í 46 km. Að mestu leyti er um að ræða nýtt vegarstæði og verður vegurinn lagður bundnu slitlagi. Áætlað er að fram- kvæmdir við veginn hefjist árið 2000 og er tilgangur þeirra að bæta vega- samband milli byggðarlaga og auka umferðaröryggi, að því er fram kemur í frétt frá Skipulagsstoftiun. Vegurinn verður án blindhæða með tvíbreiðum brúm og mest með 7% bratta. Fram kemur að framkvæmdin raskar landi níu bújarða og ellefu eyðibýla og að vegurinn fer yfir tún og ósnortið gróðurlendi. Frummats- skýrslan liggur frammi til 2. júlí í ár og hefur almenningur fímm vikur til þess að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. VERÐ á bensíni hækkar um 3,40 krónur í dag og mun lítrinn af 98 oktana bensíni kosta dýrastur um 83,10 krónur eftir hækkun og lítrinn af 95 oktana bensíni um 78,50 krón- ur. Forsvarsmenn olíufélaganna segja að ein meginástæða þess að bensínið hækkar svo mikið sé hækk- un á vegagjaldi um 1,35 krónur og lýsa þeir yfir furðu vegna þess að hið opinbera velji þennan tíma til að hækka það. „Ég skil ekki að ríkið sé að leggj- ast á vegagjaldið nú, þegar við bundum vonir við að heimsmarkaðs- verð tæki að lækka. Vegagjaldið hef- ur hækkað um 12% síðan 1. ágúst 1997 og við hefðum haldið að skyn- samlegra væri fyrir fjármálaráðu- neytið að hækka þegar markaðurinn gæfi tilefni til lækkunar, en þeir kjósa að bæta ofan á toppinn,“ segir Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- lagsins hf. Vildu hækka meira Hann segir að birgðaverðið hækki hins vegar af tveimur meginástæð- um. Annars vegar séu elstu og ódýr- ustu birgðirnar búnar af skiljanleg- um ástæðum, og hins vegar hefur dollarinn hækkað í liðnum mánuði. „Við hefðum þurft að hækka aðeins meira en ákváðum að klippa aðeins ofan af hækkuninni," segir Geir. Hann segir að ekki megi greina minni bensínnotkun þrátt fyrir verð- hækkanir á bensíni, enda komi á móti mikil fjölgun á bifreiðum. Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs hf., tekur í sama streng og Geir og segir ákvörðun um hækkun vegagjalds koma á óvart. „Þessi mikla hækkun er ekki síst vegna ákvörðunar hins opinbera," segir hann en bendir þó á að hækkun hefði verið óumflýjanleg vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði. „Verðhækkunin erlendis umfram verðhækkanir hérlendis frá því um mánaðamótin nóvember-desember nemur um 4 krónum og 50 aurum. Til að ná sama verði og við vorum með í desember þyrftum við að hækka um 4,30 krónur.“ Aðspurður segir hann ekki ljóst hvort olíufélögin hefðu hækkað bens- ínverðið meira en þau gerðu, hefði vegagjald ekki hækkað. Hins vegar verði menn að gera sér grein fyiir því að ekki megi ofbjóða neytendum. Ekki náðist í forsvarsmenn Olíu- verslunar Islands, Olís, en sam- kvæmt upplýsingum frá bensín- stöðvum félagsins var gert ráð fyrir bensínhækkun á miðnætti í nótt. Morgunblaðið/Hallfríður Bjamadðttir Lagarfljótsormurinn bíður á bryggju Reyðarfirði. Morgunblaðið. FARÞEGAFERJAN Lagar- fljótsormurinn bíður þess nú á hafnarbakkanum á Reyðarfirði að verða dregin yfir Fagradal. Króatíska skipið Plitvice lagðist að bryggju á Reyðarfirði á föstu- dag með Lagarfijótsorminn inn- anborðs og tókst vel til við að hífa ferjuna frá borði. Ferjan er á þar til gerðum flutningavagni og verður hún dregin á honum til Egilsstaða þar sem hún verður notuð til far- þegaflutninga á Lagarfljóti. Hún vegur um 100 tonn með vagnin- um og mun þurfa að gera ýmsar ráðstafanir á þeirri leið sem hún verður dregin, m.a. breikka gatnamót og taka niður Ijósastaura. Fyrsta ferð verður farin á Fljótinu 17. júní en áætlunarferð- ir hefjast 18. júní. Um 130 manns rúmast í Lagarfljótsorminum. Góð aðstaða er fyrir veitingar og dans og ekki að efa að vinsælt verður að hafa þar árshátíðir, brúðkaup, afmælisveislur og ann- að það sem fólk vill gera sér til gamans. Kaupmannasamtökin vara við starf- semi svissnesks fyrirtækis Sagt stunda svik- samlegt athæfí KAUPMANNASAMTOK Islands hafa sent frá sér aðvörun vegna til- rauna svissneska fyrirtækisins IT&T AG til að hafa fé út úr íslenskum fyr- irtækjum með því að senda til þeirra reikninga fyrir skráningar í faxskrá þess þótt ekki hafi verið óskað eftir slíkri skráningu né haft samband við fyrirtæki á Islandi. Upphæð reikn- ings er tæplega eitt þúsund sviss- neskir frankar eða um 47.000 krónur. Jón H. Snorrason, saksóknari hjá embætti ríkislögreglustjóra, segir að þetta athæfi hafi ekki verið kært til embættisins, en hins vegar hafi skyld tilvik komið til kasta lögregluyfir- valda hérlendis. „Því miður er það nokkuð algengt úti í hinum stóra heimi að aðilar reyni að hafa fé út úr náunganum með þessum eða svipuð- um hætti. Okkur er t.d. kunnugt um að aðilar ytra hafi haft samband við íslensk fyrirtæki og sagst vera að gefa út ferðabæklinga um Island, símaskrár og annað þess háttar, og hafi íslenska fyrirtækið samþykkt þátttöku er því sendur reikningur, en aldrei birtist neinn bæklingur. Þarna er um að ræða viðskiptahætti til þess fallna að valda blekkingum," segir hann. Kaupmannasamtök íslands fengu nýlega reikning frá IT&T AG í Sviss og er upphæðin sú sama og í fyrri til- raunum fyrirtækisins. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Kaup- mannasamtaka Islands, segir að á síðastliðnu ári hafi mikil umfjöllun verið um samskonar fjársvikatilraun- ir þessa fyrirtækis í fjölmiðlum í Danmörku eftir að dönsku kaup- mannasamtökin, DSK, og rannsókn- arlögreglan þar höfðu vakið athygli á þessu athæfi svissneska fyrirtækis- ins. „Þar kom fram að fyrirtækið sendi þessa reikninga í sumarbyrjun, þeg- ar sumarleyfi og afleysingar eru að hefjast, ef til vill í trausti þess að þá væru meiri líkur til að reikningamir yrðu greiddir í þeirri trú að um þjón- ustuna hafi verið beðið en reikning- arnir líta út eins og reikningar í venjulegum viðskiptum," segir hann. Þegar fréttir bárust um þetta frá Danmörku gerðu Kaupmannasamtök íslands könnun meðal verslunarfyr- irtækja hér á landi á því hvort þetta svissneska fyrirtæki eða önnur hafi reynt að hafa fé út úr íslenskum fyr- irtækjum. I ljós kom að svissneska fyrirtækið hafði sent allmörgum ís- lenskum fyrirtækjum reikninga sem þau kváðust ekki hafa greitt. Kaup- mannasamtök íslands sendu á sl ári út viðvörun um þetta til fyrirtækja, til að reyna að koma í veg fyrir fjár- svik af þessu tagi. Þjónusta númer eitt! ni sölu VW Passat 1800 Comfortiine árg. 1997, ekinn 44.000 km. Sjálfskiptur, nýskráður 2. april 1997. Ásett verð kr. 1.890.000. Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu í síma 569 5500. Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-I8 laugardagar kl. 12-16 . BÍLAÞING HEKLU A/wvirr t'-ÍH f ftotvPuM bflvMl Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500 www.bilathmg.is • v/ww.bilathing.is • www.bilathing.is Mál og menning greiði bætur vegna vanefnda HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi Mál og menningu hf. í gær til að greiða eignarhaldsfélaginu Fjall- konunni rúmar tvær milljónir króna auk 400 þúsund króna í málskostnað vegna ætlaðra vanefnda Máls og menningar hf. á samningi sem bóka- útgáfan og Fjallkonan ehf. gerðu með sér um prentun bóka í árslok 1993, að því er ætla má, samkvæmt dóminum. Kvað samkomulagið á um að Fjall- konan ehf. tæki að sér prentun bóka fyrir Mál og menningu hf., þar sem prenthluturinn næmi tiltekinni lág- marksfjárhæð og skilaði af sér bókum af sömu gerðum og sambærilegar bækur sem Mál og menning hafi fengið hjá öðrum prentsmiðjum, þ.e. hvað varði pappírsgæði, prentgæði, bókband og stærð bóka. Samkvæmt samkomulaginu skyldi „prenthluti" viðskiptaaðila vera að fjárhæð 6 milljónir króna en aðila greindi á um hvað fælist í orðinu „prenthluti". í dómsniðurstöðu segir að þegar litið er tii orðalags samkomulagsins megi ráða að með orðavahnu „prent- hluti“ sé verið að vísa til þess að ein- hveijir hlutar prentunarinnar væru þar undanskildir og ekki væri þar átt við allt sem tilheyrði bókagerð. Með hliðsjón af því og yfirlýsingum ýmissa manna sem fást við viðskipti sem þessi varð samkomulag aðila túlkað svo að undanskilið hafi verið bók- band, þ.e. sá kostnaður við gerð bók- ar, sem kemur til eftir að bók hefur verið prentuð í prentsmiðju. Sam- kvæmt þeirri túlkun og framlögðum gögnum prentaði Fjallkona ehf. fyrir Mál og menningu hf. fyrir 1.965.700 krónur, þar af var pappírskostnaður 854.450 krónur. Því varð Fjallkonan ehf. af prentvinnu fyrir rúmar fjórar milljónir króna. Stykkishólmur Bæjar- stjórinn lætur af störfum ÓLAFUR Hilmar Sverrisson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, baðst á fundi bæjarstjórnarinnar, sem haldinn var í gær, lausnar frá störfum. A fundinum kom fram hjá Ólafi að hann segði upp af persónulegum ástæðum og myndu hann og fjölskylda hans hakla til Reykjavíkur í haust. Ólafur Hilmar hefur verið bæjarstjóri í Stykkishólmi í átta ár. Bæjarstjórnin samþykkti að auglýsa starf bæjarstjóra sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.