Morgunblaðið - 01.06.1999, Page 65

Morgunblaðið - 01.06.1999, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 65 FRÉTTIR Framhaldsskólanum að Laugum slitið Húsavík - Framhaldsskólanum að Laugum í S-Þingeyjarsýslu vai' slit- ið við hátíðlega athöfn hinn 22. maí sl. og lauk þar með 11. starfsári skólans. í ræðu skólameistara, Hjalta Jóns Sveinssonar, og Sverris Har- aldssonar, áfangastjóra, kom fram að veturinn hefði bæði verið við- burða- og árangursríkur. Tæplega 100 nemendur sóttu skólann og brautskráði hann 8 stúdenta. „Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með framförum nemenda frá einni önn til annarrar,“ sagði Hjalti Jón. „Sumir hafa verið að sigrast á meðfæddum eiginleikum sem við oft furðum okkur á að vandi þeirra hafi ekki verið greindur þau tíu ár sem þessir nemendur hafa verið í grunnskóla. I mörgum tilfell- um hefur þetta háð nemendum en hafi vandinn verið skilgreindur, kennarar meðvitaðir um hann og hafi nemandi vilja til þess að taka á honum, þá næst oft aðdáanlegur ár- angur. Skólameistari framhaldsskóla á Norðurlandi hefur tekið svo til orða að skóli hans sé góður fyrir góða nemendur. Ég get aftur á móti hik- láust fullyrt að skólinn okkar hér sé góður skóli fyrir alla nemendur. Hér eru góðir nemendur hvattir til þess að halda stöðu sinni og reyna að gera enn betur um leið og hlúð er sérstaklega að þeim sem lakar standa." Skólameistari þakkaði myndar- lega bókagjöf sem skólanum hefði borist frá aðstandendum Páls H. Jónssonar sem var um árabil kenn- ari við skólann og á skólaslitadegi komu hollvinir Laugaskóla, þau Sig- urður Guðmundsson, vígslubiskup, og kona hans, Aðalbjörg Halldórs- dóttir, og færðu skólanum bækur að gjöf. _ Morgunblaðið/Silli ÚTSKRIFTARNEMENDUR Framhaldsskólans á Laugum. ,,,' mm jh | * SHL HLUTI útskriftarnema stillti sér upp fyrir myndatöku við anddyri Sjómannaskóla Islands ásamt skólameistara. Vélskóla fslands slitið Ovenjumargir út- skrifaðir á árinu VÉLSKÓLA íslands var slitið í 84. sinn laugardaginn 22. maí. 41 vél- fræðingur útskrifaðist með fjórða stigs lokapróf og þarf að fara langt aftur í tímann til að finna svo stóran árgang. Að auki luku 24 nemendur fyrsta stigi, 26 luku öðru stigi og 33 luku þriðja stigi. 30 nemendur öðl- uðust réttindi til vélgæslu á smábát- um á skólaárinu. Eftirtaldir fjórða stigs nemend- ur fengu verðlaun við útskriftina: Jón Ingólfsson hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur í vélfræði- greinum, rafmagnsfræðigreinum, dönsku, íslensku og tungumálum, auk verðlauna fyrir uppsetningu heimasíðu Vélskólans, Róbert Unnþórsson fékk verðlaun fyrir góðan námsárangur í ensku, Jón Arnar Emilsson fyrir rafeinda- tækni og Elís Jónsson var verð- launaður fyi'ir störf að félagsmál- um meðal nemenda. Tíu ára útskriftarárgangur færði skólanum glæsilegt málverk eftir Bjarna Skúla Ketilsson til minning- ar um einn úr hópnum, Gunnlaug Karl Nielsen, sem lést af slysförum í Namibíu á síðasta ári. Einar Leif Nielsen, faðir Gunnlaugs, var við- staddur athöfnina, en hann var í hópi 40 ára útskriftarnema. Anægju vakti að Guðni Jón Guð- bjartsson, sem lengi var yfirvél- stjóri við Ljósafossvirkjun, var við athöfnina. 60 ár eru liðin frá því hann lauk námi við skólann. Þorkell Sjúkraflutningaskólinn Sjúkraflutningamenn útskrifast SJÚKRAFLUTNINGASKÓLINN hefur útskrifað neyðarflutninga- menn sem lokið hafa sérhæfðu nám- skeiði fyrir sjukraflutningamenn. Rauði kross íslands, Slökkvilið Reykjavíkur og fagdeild Landssam- bands sjúkraflutningamanna standa að skólanum og er námskeiðið byggt upp á bóklegri og verklegri kennslu, þar sem áhersla er lögð á líffæra- fræði, lyfjafræði, hjartasjúkdóma og almenna skoðun bráðveikra sjúk- linga. Jafnframt þurfa nemendur að sækja verklega kennslu á deildum Sjúkrahúss Reykjavíkur og hjá Slökkviliði Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.