Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 6

Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Viðskiptafélagi Einars Arnar Birgissonar játar að hafa orðið honum að bana Úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 15. desember EINAR Öm Birgisson, sem leitað hefur verið að í rúma viku, fannst lát- inn í hraunsprungu vestan við Grindavíkurveg í fyrrinótt. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins var banamein Ein- ars þungt höfuðhögg. Atli Helgason, 33ja ára gamall viðskiptafélagi Ein- ars Arnar, hefur játað að hafa orðið honum að bana að morgni miðviku- dagsins 8. nóvember sl. Samkvæmt heimildum blaðsins gerðist þetta í Öskjuhlíðinni. Atli vísaði lögreglu jafnframt á staðinn þar sem Einar fannst. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði Atla í gær í gæsluvarð- hald til 15. desember nk. Einar Öm Birgisson yfirgaf heim- ili sitt skömmu fyrir klukkan 11 á miðvikudagsmorgun. Hann ætlaði þá á fund Atla Helgasonar, meðeiganda síns að versluninni „Gap Collection“ sem þeir höfðu nýverið opnað við Laugaveg. Atli Helgason, sem nú hefur játað að hafa myrt Einar þá um morguninn, sagði við fjölmiðla að fundum þeirra hefði aldrei borið saman þennan dag. Næst spurðist til Einars kl. 11.08 þegar hann hringir í verslunarstjóra Gap Collection og segist væntanlegur innan skamms. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins hittust þeir Einar í nágrenni Hótel Loftleiða um morg- uninn. Ekki er vitað hvað fór á milli þeirra en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins veitti Atli honum þar þungt höfuðhögg með e.k. áhaldi sem dró hann til dauða. Atli kom síð- ar líki Einars fyrir í hraunsprungu nokkuð hundruð metra vestan við Grindavíkurveg. í kvöldíréttum Ríkisútvarpsins í gær var sagt að Einar hefði verið fluttur þangað í far- angursgeymslu bifreiðar Atla og að blóðblettir hefðu einnig fundist í bíl hans. Morgunblaðinu hefur ekki tek- ist að fá þá frásögn staðfesta. Atli var meðeigandi Einars að nýlegri verslun Kynni tókust með Atla og Einari þegar sá síðamefndi hóf að leika með meistaraflokki Víkings en Atli var þá fyrirliði liðsins. Kunningsskapur hélst með þeim síðan og Atli var m.a. lögmaður Einars um skeið. Nýverið opnuðu þeir saman verslun á Lauga- vegi. í yfirlýsingu frá fjölskyldu og unnustu Einars, sem þau sendu frá sér í fyrradag, segir að á vormánuð- um hafi Einar Öm tryggt sér sér um- boð fyrir hin þekktu vöramerki Gap, Old Navy og Banana Republic. „I framhaldi af því fór hann að svipast um eftir fjárfestum sem gætu aðstoð- að hann við að setja á laggimar versl- un með framangreindum vöramerkj- um. Áhugi fjárfesta á þessu framtaki Einars Amar var mikill enda höfðu fjölmargir Islendingar reynt að tryggja sér söluumboð á þessum heimsþekktu vöramerkjum. Það fór svo á endanum að sá aðili, sem í dag er meðeigandi Einars Am- ar að versluninni, tók að sér að út- vega fjármagn til rekstursins. Það fjármagn hefur hins vegar ekki skil- að sér. Það varð að samkomulagi þeirra á milli að eignaskipting félags- ins yrði þannig að Einar Om ætti 80% en meðeigandinn 20%,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni. Slökkt á farsíma Einars Einn vina Einars sagði í samtali við Morgunblaðið að móðir hans hafi nokkram sinnum reynt að hringja í hann í hádeginu, daginn sem Einar hvarf. Einar svaraði engu símtal- anna. Fleiri reyndu að hringja í síma Einars eftir hádegi en kl. 13.47 virð- ist sem slökkt hafi verið á símanum. Þá reyndi unnusta Einars að hringja í hann skömmu fyrir kl. 16 án árang- urs. Þegar hún kom heim síðdegis var Einar ekki heima við og fór hún fljótlega að spyrjast fyrir um hann. Þá kom í ljós að ekki hafði heyrst í Einari frá því fyrir hádegi. Vinir Ein- ars segja það hafa verið afar óvenju- legt. Einar hafi verið vanur að eiga fjölda símtala við fjölskyldu sína og vini á dag. Um kvöldið hóf fjölskyld- an og vinir hans leit að Einari. Upp úr miðnætti hafði faðir Einars sam- band við lögregluna í Kópavogi sem lýsti þá eftir bifreið Einars, nýlegum gráum Volkswagen Golf. Blóðblettir í bifreiðinni Leit björgunarsveita hófst í dag- renningu á fimmtudaginn og um kl. 9.30 fannst bifreiðin á bílastæði norð- an við Hótel Loftleiðir. Að sögn vinar Einars höfðu ættingjar og vinir hans ekið þrisvar um bílastæðið um kvöld- ið og nóttina áður auk lögreglubíls en enginn orðið bílsins var. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgun- blaðsins fannst blóð í bifreið Einars Amar sem nú er til rannsóknar hjá lögreglunni í Kópavogi. Þegar bíllinn var fundinn var farið með sporhunda frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar að honum. Hundurinn var látinn þefa af flíkum af Einari en fann enga slóð í nágrenni bifreiðarinnar. Þorsteinn Þorkelsson hjá Slysavamafélaginu Landsbjörgu segir slíkt afar óvenju- Morgunblaðið/Jim Smart Verslun Einars Arnar og Atla við Laugaveg hafði nýverið verið opnuð þegar Einari var ráðinn bani. Einar átti súntal við verslunarstjóra hennar þá um morguninn. Lík Einars Arnar fannst í hraun- sprungu nokkur hundruð metrum vestan Grindavíkurvegar y f-.Snonoítoðo- Seltjörns: tjarnir/ .... 1 Fagradals Stapafell {jal) . Þorbjorn . . .. o . Grindavík V Reykjanestá lOkm legt. Sporhundurinn sé þrautþjálfað- ur og geti rakið spor í þéttbýli jafnvel þó slóðin sé margra daga gömul. A fimmtudaginn var jafnframt farið með víðavangsleitarhunda um Öskjuhh'ð og nágrenni Hótel Loft- leiða. Engar vísbendingar fundust og því var leit hætt að Einari síðdegis. Hvarf Einars þótti snemma grunsamlegt Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins bárast böndin snemma að Atla Helgasyni en líklegt þótti að hann hefði í raun hitt Einar að morgni miðvikudags þrátt fyrir að Atli hafi haldið hinu gagnstæða fram. Þá kom frásögn Atla af samskiptum hans og Einars þennan dag ekki heim og saman við þau gögn sem lög- reglan hafði undir höndum. Fljótlega var gengið úr skugga um að Einar hefði ekki farið úr landi. Einar sást ekki á myndbandsupp- tökum sem teknar vora með eftirlits- myndavélum í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Þá könnuðust hvorki starfs- fólk á Keflavtkurflugvelli né áhafnir flugvéla við að hafa séð Einar Öm. Möguleiki á sjálfsvígi þótti afar fjar- lægur enda er það einróma álit þeirra sem Morgunblaðið hefur rætt við að Einar hafi verið einkar lífsglaður og alls engar vísbendingar um vandræði í einkalífi. Kvöldið áður en Einar hvarf lék hann handboltaleik með B-liði Vals. Vinur Einars, sem Morg- unblaðið ræddi við, segir að engin áhyggjumerki hafi þá verið á honum, hann hafi þvert á móti haft á orði hve vel gengi. Vinum Einars og fjöl- skyldu þótti hvarf hans því afar und- arlegtfráupphafi. Ættingjar og vinir skipulögðu viðamikla leit Lögreglan í Kópavogi ræddi við fjölda manns vegna málsins og eins bárast henni fjölmargar vísbending- ar um ferðir Einars. Einn þeirra sem hringdi til lögreglu sagðist hafa séð bíl Einars á Vatnsleysuströnd að kvöldi miðvikudags eða aðfaranótt fimmtudags. Það var m.a. á grand- velli þeirrar vísbendingar sem björg- unarsveitir hófu viðamikla leit á Vatnsleysuströnd á laugardag. Vinir og ættingjar Einars Amar höfðu daginn áður leitað hans í Heiðmörk. Tölvupóstur gekk manna á milli þar sem fólk var beðið um að leggja leit- armönnum lið. Um helgina leituðu um 200 ættingjar og vinir Einars hans víðsvegar í nágrenni höfuðborg- arinnar, á Reykjanesi og á Bláfjalla- svæðinu. Leitað var á Álftanesi og björgunarsveitir gengu þar fjörur en ættingjar og vinir Einars tóku að sér leit á strandlengjunni frá Garðabæ að Kolkuósum. Þau héldu áfram leit þar til á þriðjudag. Þá hættu þau leit- inni enda orðið ljóst að um sakamál væri að ræða. Atli Helgason var einn þeirra fjölmörgu sem þátt tóku í leit- inni. Á þriðjudaginn vora björgunar- sveitarmenn sendir til leitar vestan Grindavíkur enda taldi lögreglan sig þá hafa vísbendingu um hvar Einar væri að finna. Sú leit bar þó ekki ár- angur. Þorsteinn Þorkelsson hjá svæðisstjóm Slysavamafélagsins Landsbjargar segir leitina á þriðju- daginn hafa miðast við svæði vestar en þar sem lík Einars fannst. Hann segir að gert hafi verið ráð fyrir að leita nær Grindavíkurvegi í gær hefði leit haldið áfram. Þorsteinn segir svæðið þó erfitt til leitar. Björgunar- sveitir fóra þar um sl. helgi. Þor- steinn segir að þá hafi menn talið sig vera að leita að lifandi manni og því hafi áhersla verið lögð á að komast yfir sem stærst svæði á sem skemmstum tíma enda hefði leitar- svæðið náð yfir stærstan hluta Reykjaness. Umfangsmikil rannsókn lög- reglu leiddi til handtöku Rannsókn lögreglunnar í Kópa- vogi var afar umfangsmikil. Á þriðja tug lögreglumanna kom að rann- sókninni þegar mest var. Fimmtán lögreglumenn, aðallega úr tækni- deild og efnahagsbrotadeild ríkis- lögreglustjóra, komu að rannsókn- inni auk lögreglumanna frá Reykjavík og fleiri lögregluumdæm- um. Meðal annars fylgdist lögreglan með ferðum Atla. Rannsókn lög- reglunnar leiddi til þess að Atli Helgason var handtekinn sl. þriðju- dag auk þess sem húsleit var gerð á heimili og vinnustað hans. Áreiðan- legur heimildarmaður Morgunblaðs- ins segir að við húsleit á heimili Atla hafi fundist blóðugur fatnaður. Um kvöldmatarleytið sl. þriðjudag fór lögreglan með Atla Helgason fyr- ir Héraðsdóm Hafnarfjarðar og fór fram á gæsluvarðhald yfir honum. Jónas Jóhannsson héraðsdómari tók sér frest til kl. 15 á miðvikudag til að kveða upp úrskurðinn. Atli var því fluttur aftur á lögreglustöðina. Seinna um kvöldið játaði hann við yfirheyrslu að hafa orðið Einar Erni að bana miðvikudaginn 8. nóvember sl. Hann vísaði jafnframt lögreglunni á þann stað þar sem hann hafði kom- ið Einari fyrir. Lögreglan fann lík Einars í hraunsprangu nokkuð hundrað metra vestan Grindavíkui'- vegar. Þá var liðin tæplega vika frá því síðast hafði spurst til Einars Arn- ar Birgissonar. í gær var gæsluvarðhaldsbeiðni lögreglunnar í Kópavogi yfir Einari Erni tekin fyi-ir á ný. Þinghald tók hátt í tvær klukkustundir. Jónas Jó- hannsson héraðsdómari úrskurðaði að Atli Helgason skyldi sitja í gæslu: varðhaldi til 15. desember nk. í fréttatilkynningu, sem lögreglan í Kópavogi sendi frá sér í gær, segir að enn sé óljóst um atvik og rannsókn málsins haldi áfram. Afturköllun bæjarstjórnar Austur-Héraðs á kaupsamningi vegna Eiðastaðar Bæjarráð leitar álits félagsmálaráðuneytis Egiisstöduin. Morgunblaðið. Á FUNDI bæjarráðs Austur-Hér- aðs á Egilsstöðum í fyrradag til- kynntu bæjarstjórinn, Bjöm Hafþór Guðmundsson, og forseti bæjar- stjómar, Katrín Asgrímsdóttir, að þau hefðu óskað eftir lögfræðilegu áliti félagsmálaráðuneytisins á þeirri ákvörðun meirihluta bæjarstjómar sveitarfélagsins að samþykkja ekki samning við eignarhaldsfélagið Bakka ehf. um kaup á fasteignum og jörðum á Eiðum. Bæjarráð gerði ekki athugasemd við þá ósk. Meirihlutinn í bæjarstjórn aftur- kallaði samninginn nýlega, meðal annars vegna áhuga Sigurjóns Sig- hvatssonar og Sigurðar Gísla Pálma- sonar á því að gera tilboð í Eiða. Bæjarráð samþykkti þetta vegna framkominna óska lögmanns Bakka þar sem dregið er í efa lögmæti þess að afturkalla samninginn við félagið. Óska flýtimeðferðar Björn Hafþór sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri mikilvægt að fá úrskurð ráðuneytisins áður en frekari ákvarðanir yrðu teknar. Þetta hefði verið eðlilegt skref í mál- inu. Hann sagði viðræður hafa legið niðri við áhugasama fjárfesta eftir að samþykkt var í bæjarstjóm að gera ekki samning við Bakka, sem lagði fram 25 milljóna króna tilboð í Eiða- stað. Fram hefur komið í Morgun- blaðinu að tilboð Sigurjóns og Sig- urðar Gísla hafi hljóðað upp á 35 milljónir króna. Að sögn Bjöms Hafþórs var óskað eftir flýtimeðferð á málinu hjá fé- lagsmálaráðuneytinu og er sá mögu- leiki fyrir hendi að ráðuneytið leggi inn munnlegt álit áður en bæjar- stjórn Austur-Héraðs kemur saman til fundar næstkomandi þriðjudag. Björn Hafþór sagði það einnig inni í myndinni að ríkissjóður nýtti sér forkaupsrétt sem hann hefur á eign- um á Eiðum. Ekki væri útilokað að ráðuneytið gengi inn í þá samninga sem gerðir hefðu verið. Katrín Ásgrímsdóttir sagði við Morgunblaðið að Eiðamálið væri í biðstöðu á meðan beðið væri eftir áliti félagsmálaráðuneytisins. Hún sagðist meta það svo að bæjarstjóm- in hefði staðið rétt að málum með því að hafna samningnum við Bakka á því stigi en staðan yrði metin að nýju þegar álit ráðuneytisins lægi fyrir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.