Morgunblaðið - 17.11.2000, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 17.11.2000, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ sinadrAttur I SINADR/(TTUR I f ÞU ÆTUR SEINT/tt) LAGAST! Hundalíf Smáfólk T0NI6HT 15 HALLOWEEM..HOU) COME YOURE NOT 5ITT1N6 OUT 1N A PUMPKlN PATCH UJAITIN6 FOK THE 6REAT PUMPKIN, ANP MAKIN6 ATOTAL, COMPLET6 ANP A05OLUTE FOOL OF Y0UR5ELF? Hrekkjavakan er í kvöld. Hvað kemur til að þú ert ekki út á akri hjá graskerunum að bíða eftir risa- graskerinu og verða þér til skammar? YOU HAVE A NICE UJAY OF UJ0RPIN6 THIN65.. Þú orðar hlutina skemmtilega. HEMffl 9í THANK YOU.. I UUORK THEM OUTON LITTLE 5LIP5 OF PAPER 6EF0REHANP.. > Þakka þér fyrir. Ég skrifa þetta niður á bréfsnepla og æfi mig fyrirfram. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Ljós við Látraröst Frá Ólafí Guðmundssyni: ÉG ÓSKA birtingar í Morgunblað- inu á meðfylgjandi athugasemdum mínum vegna rangra heimilda sem skráðar eru í endurminningabók Ásgeirs Erlendssonar, sem út kom síðastliðið haust á vegum Vest- firska forlagsins. í þessari ágætu bók endurminn- inga Ásgeirs Erlendssonar um lífs- kjör í Utvíkum Rauðasandshrepps á fyrrihluta tuttugustu aldar eru margar og greinargóðar lýsingar á atburðum, sem við eldri íbúar þessa héraðs könnumst við frá uppvaxtarárum okkar. Samt verð- ur vart brenglaðra frásagna á stöku stað, sem koma hefði mátt í veg fyrir með betri yfirvegun heimilda. Dæmi um það er á blaðs- íðu 52, en þar segir: „Margir karl- menn úr hreppnum fóru í aðra landshluta á vetrum til róðra. Þannig var það með tvo unga bændur, sem þá nýlega höfðu sest að í Breiðavík. Það mun hafa verið veturinn 1924 að þeir fóru til róðra. Sigurður Guðmundsson réð sig á mb. Valtý frá Reykjavík en Guðmundur Olafsson réðst til bróður síns Haraldar, sem var skipstjóri á mb. Goðafossi frá Vestmannaeyjum. Þessir menn urðu eins og svo margir aðrir að skilja komn- og börn eftir með búin til að sjá sér og sínum farborða. En þeir komu ekki aftur. Báðir þessir bátar fórust þennan vetur. Þá var sýslumaður í Barðastrand- arsýslu Éinar Jónasson. Ég heyrði sagt að hann hefði gert það af góð- mennsku sinni að kaupa jörðina af ekkjunum og borgað sómasamlega fyrir - og jafnvel meira en það.“ Þetta er málum blandið. Ekki voru þessir menn nýlega sestir að í Breiðavík. Sigurður hafði flust þangað unglingur með föður sín- um, Guðmundi hreppstjóra frá Vatnsdal, 1911, en samkvæmt ábúendatali var hann skráður bóndi með föður sínum frá 1916 og áttu þeir tæplega helming jarð- arinnar. Guðmundur B. Ólafsson - faðir minn - var fæddur í Breiða- vík 1889 og ól þar allan sinn aldur, tók við búi foreldra sinna þegar ekkjan móðir hans hætti búskap, og bjó hann einnig á öðrum tæp- lega helmingi jarðarinnar. Það var 28. febrúar 1920 að Sig- urður Guðmundsson drukknaði, fórst með kútter Valtý frá Reykja- vík. Jarðarhluta þeirra feðganna keypti þá Andrés Guðbjartsson, en hann flutti til Ameríku ári síðar og seldi þá jörðina Haraldi Ólafssyni í Breiðavík, sem þá var skútuskip- stjóri á skipum frá Patreksfirði, og sá því Guðmundur bróðir hans um búskap þeirra beggja. Haustið 1925 ákvað Haraldur að flytja til Vestmannaeyja og taka þar við formennsku á mb. Goðafossi. Seldi hann þá Einari Jónassyni sýslu- manni sinn helming jarðarinnar. Þau kaup voru ekki af góð- mennsku eða í gustukaskyni, því Haraldur var frekar vel stæður, heldur var það af áhuga sýslu- manns á búrekstri og auknum ræktunarmöguleikum á jörðinni Breiðavík, eins og um er getið í frásögn Ásgeirs. Það var sex árum eftir drukkn- un Sigurðar Guðmundssonar, að Guðmundur B. Ólafsson réðst í áhöfn hjá Haraldi bróður sínum, á vetrarvertíð 1926, og fórst bátur- inn með þeim bræðrum og allri áhöfn 9. janúar 1926 við Vest- mannaeyjar. Ekkjan, María Torfadóttir - móðir mín - stóð þá uppi með tvo unga syni sína og hafði ekki að- stæður eða áhuga á áframhaldandi búskap, en vitað var að sýslumað- ur vildi auka við jarðnæði sitt. Gengið var frá sölu til sýslumanns á hennar hluta jarðarinnar árið 1927 og það haust flutti María með okkur syni sína og Sigríði tengda- móður frá Breiðavík til Patreks- fjarðar. Þetta voru einu viðskipti sýslumanns við ekkjur í Breiðavík og aldrei hefur það komið fram að umsamið verð jarðarinnar hafi þá verið „sómasamlegt - og jafnvel meira en það“, heldur verður að telja það eðlilegt að miðað væri við söluverð Haraldar á jafnstórum jarðarhluta skömmu áður. Hitt er svo annað mál, að vegna sjóðþurrðar sýslumanns á sýslu- sjóði Barðastrandarsýslu var hon- um vikið frá embætti af þeim sök- um 1928 og fékk María því aldrei greiddan hluta jarðarverðsins, og vantaði þar á kr. 1.535,00, sem var töluverð fjárhæð í þá daga. Ríkis- sjóður yfirtók eignir sýslumanns, þar með jörðina Breiðavík, og þess ber að geta að tíu árum síðar, 15. mars 1937, fékk fjárhaldsmaður okkar bræðranna þessa upphæð óvænt greidda frá ríkissjóði, að móður okkar löngu látinni. ÓLAFUR GUÐMUNDSSON 16 Pitt Place Epsom, KT17 4PY, UK. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Sorgar og samúðarmerki Borið við minningaralhalhir ogjarðarfarir. Allur ágóði rennur til líknarmála. Fæst á bensúistöðvum, í Kirkjuhúsinu og í blómaverslunum. H KRABBAMEINSSJÚK BÖRN <5Cr HJÁLPARSTOFNUN V3íy KIRKJUNNAR Expresso kaffikönnur Klapparstíg 44, sími 562 3614 fyrir raf- magnshellur og gas. 6 stærðir. Verð frá kr. 995. PÓSTSENDUM 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.