Morgunblaðið - 17.11.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.11.2000, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ ^48 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 MINNINGAR EÐVALD VILBERG • MARELSSON + Eðvald Vilberg Marelsson fædd- ist í Hafnarfirði hinn 18. nóvember 1953. Hann lést af slysförum hinn 5. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Marel Eðvalds- son, f. 11.11. 1931, og Sigrún Lilja Bergþórsdóttir, f. 10.7. 1933, búsett í Hafnarfirði. Systk- ini Eðvalds eru Örn, f. 10.8. 1955; Ingibjörg, f. 25.10. 1957, bæði búsett í Hafnarfirði. Hinn 30.12. 1972 kvæntist Eð- vald Grétu Húnfjörð Sigurðar- dóttur, f. 19.12. 1951. Foreldrar hennar voru Sigurður Hún- Qörð Pálsson, f. 4.10. 1921, d. 30.9. 1964, og Margrét Frið- bjarnardóttir, f. 2.7. 1915, d. 24.4. 1986. Börn Eðvalds og Grétu eru: 1) Sigurð- ur, f. 21.5. 1971, son- ur hans er Arnar Freyr, f. 28.7. 1995. Unnusta Sigurðar er Elva Dögg Pedersen, f. 19.7. 1976, búsett í Reykjavík. 2) Sigrún, f. 5.8. 1972, sonur hennar er Snorri Birgisson, f. 27.10. 1991, búsett í Hafnarfirði. 3) Margrét, f. 30.3. 1974, sambýlismaður hennar er Árni James Collett, f. 10.6. 1974, þau eiga soninn Kristófer, f. 27.3. 1994, búsett í Hafnarfirði. Eðvald og Gréta stofnuðu sitt fyrsta heimili að Jófríðarstaða- vegi 10 í Hafnarfirði, en fluttu árið 1976 í Bröttukinn 8. Eðvald starfaði mestan hluta starfsæv- innar eða síðastliðin 29 ár hjá Oliufélaginu hf. Esso, aðallega sem bílstjóri og vaktmaður, en síðustu íjögur árin á bensínstöð- inni við Lækjargötu, Hafnarfirði. Öll þessi ár vann hann jafnframt sjálfstætt við ýmis störf. Eðvald gegndi á annan áratug ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Verka- mannafélagið Hlíf, m.a í trúnað- armannaráði 1975-1976 og í stjórn Hlffar 1977-1986. títför Eðvalds fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Kveðja frá foreldrum Hví söina rósir sumargrænna engja? Hví sogast brimið upp að hverju nausti? Til sólar beinist söngur vorra strengja, er syrtir nótt og b'ða fer að hausti. Við erum stödd á stormsins vegamótum. hann storkar jörð og skýjabólstra hleður. En eldar brenna undir hjartarótum og einhvemtíma lægir þessi veður. Að kvöldi dags er kveikt á öllum stjörnum, og kyrrðin er þeim mild, sem vin sinn tregar, og stundum skýla jöklar jarðarbömum, og jafnvel nóttin lýsir þeim til vegar. í klakabrynju getur moldin munað, að minnstu fræin urðu vaxinn gróður, og sálir dreymt um nýjan ástamnað, um ungan fugl og laufgað skógarrjóður. ► Er fagurhvelið birtist innri augum, er eins og Ijósið tengi gamla vini. Svo drögum andann djúpt og hjartað laugum í döggvum himins, söng og stjömuskini. (Davíð Stef.) Mamma og pabbi. Þó ég sé Iátinn, harmið mig ekki með támm. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Eg er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þó látinn mig haldið. . En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. ók.) Það er engin leið fyrir okkur mennina að skilja áætlanir og gjörðir æðri máttarvalda. Þegar maður í blóma lífsins skyndilega deyr, er engin svör að fá. I angist sinni spyr maður aðeins hvers vegna? Hinn 5. nóvember sl. lést ástkær faðir minn Eðvald, ávallt kallaður Valdi, langt um aldur fram. Þeir sem þekktu hann vita að þar fór ákveðinn maður sem lét verkin tala, var duglegur sem og hjálp- samur með eindæmum. Ekki síst var hann fús til að veita þeim hjálparhönd sem minna mega sín í lífinu. Það endurspeglaðist ekki síst á vinnustað hans á bensínstöð- inni við Lækjargötu í Hafnarfirði, þar sem hann var ávallt fús við að veita viðskiptavinum stöðvarinnar framúrskarandi þjónustu. Eins var hann vel liðinn og vinsæll meðal samstarfsmanna. En það var ekki allt. Hann var einstaklega sterkur persónuleiki sem ætíð virtist vita lausn á hvaða vanda sem upp kunni að koma í leik eða starfi. Við systkinin nutum leiðsagnar hans og gátum ávallt leitað til hans ef eitthvað bjátaði á. Hann var einnig glettinn og hafði gaman af því að segja okkur sögur, sem hann kryddaði hæfilega mikið, og oftar en ekki veltumst við um af hlátri, enda var frásagn- arfærni hans með eindæmum góð. Missir okkar systkinanna er vissulega mikill, en ekki nándar eins og missir móður minnar, sem nú hefur misst lífsförunaut sinn í einu vetfangi. Foreldrar mínir hafa alla tíð verið einstaklega samrýmd og umgengust ávallt hvort annað af ást og gagnkvæmri virðingu. Það er því stórt það skarð sem myndast hefur í líf móður minnar. Það koma margar ljúfar og skemmtilegar minningar upp í hugann þegar ég hugsa um föður minn. Mig langar að þakka þér pabbi minn fyrir samfylgdina, þó hún hefði mátt vera lengri. Eg mun geyma minnunguna um þig, í hjarta mér alla mína ævi. Ég vil að endingu biðja guð al- máttugan að styrkja alla þá sem syrgja. Sigurður Eðvaldsson. Sennilega geta systkini ekki orð- ið nátengdari á æskuárunum, en þegar þrjú systkini, fædd með tveggja ára millibili, alast upp saman á æskuheimilinu, þar sem við bjuggum öll þangað til við fór- um að heiman. Þannig var það með okkur. Valdi var elstur af okkur og lét sér annt um okkur, yngri systk- ini sín. Æskuárin liðu, unglingsárin tóku við, með öllu sínu fjöri, svo komu fullorðinsárin. Margs er að minnast og margs er að sakna. Eins og gefur að skilja var samgangurinn ekki eins mikill seinni árin. Við systkinin fórum í hvort í sína áttina.Valdi stofnaði heimili ungur með Grétu sinni, þau eignuðust börnin sín þrjú. Hann vann mikið, var dug- legur, ætlaði sér að búa vel i hag- inn fyrir þau, fyrir elliárin, eins og hann sagði sjálfur. Það var alltaf gaman að hitta Valda, hann var einn af þessum or- iginal spaugurum, sá alltaf bros- legu hliðarnar á mannlífinu. Þetta var eitthvað sem hann hafði í sér. Hann vann á bensínstöð síðustu árin. Valdi var sérstaklega al- mennilegur við eldra fólk og þá sem minna máttu sín, sem komu á bensínstöðina. Nú er komið að ótímabærri kveðjustund, Valdi var hrifinn í burtu langt fyrir aldur fram. Það er svo erfitt að trúa því að enn eitt hörmulegt umferðarslysið hafi átt sér stað og tekið hann með sér. En þetta slys, þar sem einn læt- ur lífið og margir slasast, sýnir hvað er skammt milli lífs og dauða. Það er okkur huggun á þessum öarðsKom ^ v/ Possvo^skipkjwgapð . \ Sími: 554 0500 UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við ú tf ararþ j ónus tu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. iÉ Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. 'jL Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa fslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. V- 7 Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja \ / UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. erfiðu tímum, þær fallegu minn- ingar sem við eigum um Valda bróður okkar. Við viljum þakka allan þann hlýhug og stuðning sem fólk úr öllum áttum hefur sýnt okkur. Elsku Gréta, Siggi, Elva, Sig- rún, Margrét, Addi og litlu dreng- irnir þrír, mamma, pabbi og aðrir vandamenn og vinir, guð gefi ykk- ur styrk í sorginni. __ Orn og Inga. Sú harmafregn kom óvænt að frændi minn, Eðvald Vilberg Mar- elsson, hefði látist af slysförum fyrsta sunnudag nóvembermánað- ar. Hugurinn leitar aftur í tímann og margt rifjast upp. Vel man ég annan nóvemberdag fyrir tæpum 47 árum. Lítill, ljóshærður dreng- ur var kominn í heiminn, fyrsta barn elsta bróður míns, Marels, og konu hans, Lilju Bergþórsdóttur. Drengurinn hlaut nafn afa síns, föður okkar systkina, en hann féll frá er við vorum á barnsaldri. Nafngiftin hefur eflaust stuðlað að því að Eðvald hafði nokkra sér- stöðu, bæði í huga okkar föður- systkina hans og ekki síst hjá móð- ur okkar. Sandkorn tímans renna hratt um greipar. Fyrr en varir eru bros og tár bernskunnar minn- ing ein. Ungur að árum fann Eðvald sinn lífsförunaut, Grétu Húnfjörð Sigurðardóttur. Þau hófu búskap og báru gæfu til að þroskast sam- an í lífsbaráttunni. Með dugnaði byggðu þau upp gott heimili og eignuðust þrjú mannvænleg börn, Sigurð, Sigrúnu og Margréti. Þau eru nú öll uppkomið fólk og sjálf farin að takast á við lífið. Og þrem- ur barnabörnum auðnaðist þeim Eðvald og Grétu að gleðjast yfir. Lífið virtist brosa við fjölskyld- unni. Hjónin voru enn svo ung en samt búin að inna af hendi upp- eldisskyldurnar. Engum datt ann- að í hug en framundan væru mörg og góð ár. Og engum blandaðist hugur um að slíkur dugnaðarmað- ur sem Eðvald var myndi áfram finna kröftum sínum farveg við margvísleg störf. Nú er viðhorfið breytt þegar fjölskyldan verður að halda áfram án hans. Við mæðgurnar sendum samúðarkveðjur til Grétu, barna hennar og barnabarna, foreldra Eðvalds, Marels og Lilju, og systk- ina hans, Arnar og Ingibjargar. Þau eiga nú öll um sárt að binda og við biðjum guð að styrkja þau í sorginni. Sigurlaug Eðvaldsdóttir. Með eftirfarandi ljóðlínum, sem segja allt sem bærist í huga okkar og hjarta, viljum við kveðja hann Valda hinstu kveðju. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast, þau bera mesta birtu en brenna iíka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi, það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta Þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik G. Þórleifsson.) Við biðjum algóðan Guð að styrkja eiginkonu hans, börn og aðra ástvini á þessari erfiðu stund. Guðrún og Torfí. Eðvald, eða Valdi eins og hann var kallaður, hóf störf hjá Olíufé- laginu hf. í ágúst árið 1971, þá að- eins 17 ára gamall, og hefur hann því eignað Olíufélaginu hf. lungann úr starfsævi sinni. Lengst af starf- aði Eðvald sem vaktmaður í Olíu- stöðinni í Hafnarfirði ásamt öðrum þeim störfum sem til féllu, t.d. að hafa umsjón með verslun Olíufé- lagsins sem þá var í Olíustöðinni. Frá árinu 1996 vann Eðvald á þjónustustöðinni við Lækjargötu í Hafnarfirði. Þegar um svo langa starfsævi er að ræða hjá sama vinnuveitanda þarf ekki aðeins starfsmaðurinn að vera ánægður heldur einnig vinnuveitandinn. Það var mikið lán fyrir Olíufélagið hf. að njóta starfskrafta Valda, jafn jákvæðs og góðs starfsmanns og hann var. Það var árið 1992 sem ég kynnt- ist Valda fyrst, ég var þá nýbyrj- aður sem starfsmannastjóri hjá 01- íufélaginu hf. Eðvald var trúnaðarmaður fyrir starfsmenn Olíustöðvarinnar í Hafnarfirði. Ég hafði kallað alla trúnaðarmenn 01- íufélagsins hf. saman á fund, í fyrsta skipti, til skrafs og ráða- gerða. Ég kveið nokkuð fyrir fund- inum þar sem ég var nýbyrjaður og óreyndur. En kvíðinn var óþarf- ur. Þarna hitti ég Eðvald, vingjarnlegan mann, sem átti auð- velt með að hrósa öðrum. Hann var starfsmaður sem gott og þægi- legt var að umgangast. Þessi fundur okkar var byrjun á góðum kynnum. Hann var eftir- sóttur í vinnu, ekki bara var hann dugnaðarforkur og hjálplegur, heldur var hann einnig góður fé- lagi sem var hægt að leita til þegar á þurfti að halda. Það er ekki langt síðan við, starfsfólk Olíufélagsins hf., fórum til þess að gera okkur dagamun suður á Keflavíkurflug- völl og stoppuðu rúturnar á Þjón- ustustöðinni við Lækjargötu og hittum við þar Valda glaðan í bragði. En skjótt skipast veður í lofti og kallið kemur fyrr en varir. Sagt er að þeir deyi ungir sem guðirnir elska. Það á við um Valda, hann fór alltof fljótt og við eigum eftir að sakna hans, en minningin um góðan mann lifir. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er Ijós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Ég votta eiginkonu hans, börn- um, barnabörnum og öðrum aðstandendum innilega samúð. Ingvar Stefánsson, starfsmannastjóri. Það er ótrúlegt hvað hlutirnir eru fljótir að breytast og daglegt líf og amstur sem því fylgir verður lítilfjörlegt í samanburði við frétt þá sem skall á okkur vinnufélögun- um sunnudagskvöldið 5. nóvember. Enn eitt hörmulegt bílslysið og ekki nóg með það, heldur var þar einn vinnufélagi okkar hann Valdi. í okkar huga var hann miklu meira en bara vinnufélagi, hann var mikill vinur sem gott var að leita til. Ef einhver kom með vandamál var Valdi kallaður til, hvort sem um var að ræða mun á olíum eða annað þá var það mottó- ið hjá honum: „Ekki málið, við reddum þessu.“ Hann var alltaf boðinn og búinn og oft þurftum við ekki nema að hugsa til hans þá var hann mættur. Það var alltaf stutt í glensið hjá Valda og oft mikill hlátur í kring- um hann og ósjaldan kapphlaup út á dælu til að fá að þjónusta við- skiptavininn og oftast stóð Valdi uppi sem sigurvegari. Það var þægilegt að hafa Valda í kringum sig og veitti manni ákveð- ið öryggi því að það var pottþétt að ef eitthvað kæmi upp væri Valdi til staðar og þar með ÉSSO í góð- um málum því hann hafði alla hluti á hreinu enda búinn að vinna hjá Olíufélaginu sem hann hafði mik- inn metnað fyrir í 28 ár. Þótt að okkar missir sé mikill vitum við að minningarnar um góðan mann eiga eftir að lifa og þakklætið fyrir að hafa fengið að kynnast Valda. Við vottum Grétu, börnum og ættingjum okkar dýpstu samúð. Starfsfólk ESSO, Lækjargötu, Hafnarfírði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.