Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Page 20
24
ÁRBÓK FORN LEIFAFÉLAGSINS
15. mynd: Séð af brún Suðurárhrauns norður yfir Hrauntungu. Maðurinn til
vinstri við kvíslina stendur á bsejarrústunum. Sellandafjall í baksýn. Ljósm.
Sig. Þórarinsson.
henni er geislakolsaldurinn 955 eða 980 e. Kr. ± 60 ár,1 fer það
eftir því, hvaða helmingunartíma C14 er miðað við, hvort hann er
talinn 5730 eða 5568 ár. Sú helmingunartala sem er hærri gefur 3%
hærri aldur.
1 rústunum undir Sandmúla er nú lítið að sjá nema leifar ösku-
haugs og dreifar hleðslugrjóts. Milli steinanna eru þó skeljabrot og
við fundum þar einnig brýnisbrot, nagla og fleira. Þorvaldur Thor-
oddsen fór þarna um 1884 og skrifar að í ungdæmi fylgdarmanns
hans, Jóns Þorkelssonar frá Víðikeri, sem Jónsskarð í Öskju er
kennt við, hafi fundist þarna „einkennilegir hnappar með krossi“, og
bendir það til þess, að þarna hafi verið búið fram yfir kristnitöku.
Sagt er að rústir séu sunnar, austan megin ár, en ekki veit ég
nánar um þær. Allmiklu norðar, rétt norðan við lækinn frá Grafar-
löndum vestri, fundum við greinileg garðlög og auk þess steina
i (U 2517): 970 ± 60 (5568)
(U 2517): 995 ± 60 (5730)
Absolúti aldurinn er miðaður við árið 1950, þ. e. 970 þýðir 970 árum fyrir 1950.