Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Page 27
GJÓSKULÖG OG GAMLAR RÚSTIR
31
22. mynd: Hraunþúfumúli (til vinstri) og Hólófemeshöföi fyrir botni Vesturdals.
Ljósm. Sig. Þórarinsson.
lagsins 1973. Óneitanlega býr umhverfi Hraunþúfuklausturs yfir
sérstæðum töfrum, a. m. k. í fögru veðri, svo sem var í þau tvö skipti
sem ég hefi komið þar — vísast er að dalurinn orki öðruvísi á mann
í fýluveðri — og óneitanlega kitlar þetta umhverfi og sagnir þær,
sem tengdar eru Hraunþúfuklaustri, ímyndunaraflið, ekki síst þegar
þar við bætist vitneskjan um þær eldfornu fjalir sem varðveist hafa
í dölum frammi ekki ýkja fjarri og bera óvéfengjanleg vitni um
áhrif frá grískkaþólskri kristni. Sú vitneskja rifjar það upp, að
til Islands komu á 11. öld ermskir biskupar, Petrus, Abrahamus og
Stephanus, sem sumir fræðimenn telja komna austan úr Armeníu.
Eg skal játa það, að mér varð hugsað til Hraunþúfuklausturs er ég
síðsumars 1972 var að berja augum fjölda fornra tá-bagla í höfuð-
kirkju Armena, Etschmiadzine, en forn tábagall hefur fundist á Þing-
völlum og hefur Kristján Eldjárn lýst honum í Árbók fornleifafé-
lagsins 1970. Einnig varð mér hugsað þangað er ég leit menjar munk-
lífis í armenskum afdal, þaðan sem munkar ferðuðust forðum vestur
um alla Evrópu. En varlegast myndi að láta hugmyndafluginu ekki
of lausan tauminn. Óvíst er talið að þeir ermsku menn, sem hingað
komu, hafi verið frá Armeníu. Kirkjurnar í Geghard eru fjarska
ólíkar rústunum við Hraunþúfuá, og víkur nú nánar að þeim rústum.