Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1976, Page 81
SÁMSSTADIR f ÞJÓRSÁRDAL
83
norðan megin í grjótdreifinni; þær gætu hafa verið úr gólfi þessa
húss. Ef til vill hefur eitthvað af járngjalli verið í húsinu því að
nokkuð af því lá þarna á örfoka hússtæðinu.
Engir heillegir veggir eða veggjaundirstöður voru varðveittar af
húsinu nema hvað einn eða tveir steinar kunna að hafa lcgið í upp-
runalegri hleðslulegu norðanmegin í grjótdreifinni. Nær allt var hér
uppblásið niður á botnvikurskaflinn, og sums staðar höfðu grafist
vatnsrásir í vikurinn.
8. Fjóstóft.
Eins og sjá má af afstöðumynd var fjóstóft ásamt hlöðutóft um 80
m austur af bæjarhúsunum. Það mun vera fjósvegur í lengra lagi.
Fjóstóftin lá endilöng frá norðri til suðurs niður hallann í Sáms-
staðamúlanum. Útihúsatóftirnar voru í um það bil sömu hæð og
bæjarhúsatóftirnar enda hefði tæplega verið hentugt að þurfa að
rogast með mjólkurílát upp eða niður brekku á fjósgötunni.
Eftir því sem næst verður komist hefur fjósið verið að innanmáli
um 8.6 m að lengd og um 3.6 m að breidd. Það er því jafn stórt og
fjósið í Gröf í Öræfum, en það mældist að innanmáli 8.3—8.8 m að
lengd og 3.5—3.8 m að breidd.71
Árið 1939 rannsakaði Jouko Voionmaa húsatóftir að Lundi í
Lundareykjadal. Hann áleit að ef til vill væri ein þessara tófta undan
bæjarhúsum (tomt 3),72 en áður hafði því verið haldið fram að
tóftin væri undan hofi.73 Kristján Eldjárn hefur hins vegar kveðið
upp úr um það að hér sé um að ræða tóft af fjósi og hlöðu.74 Mun
sú skoðun vafalaust rétt enda hafa menn fallist á hana.75 Þá Jouko
Voionmaa og Kristján Eldjárn greinir á um það hve mörg húsin
hafi verið í þessum tóftum. Segir Voionmaa sem gróf þarna að
húsin séu fjögur, þrjú skipi sér gafl í gafl og út úr miðhúsinu sé
hið fjórða.70 Kristján Eldjárn telur að tóftirnar séu „fjós og hki'öa
og lítil útbygging — og ekkert annað“.77 Það sem Voionmaa telur
Gísli Gestsson (1959), bls. 36.
72 Voionmaa (1943), bls. 189—90.
72 Sigurður Vigfússon (1885). bls. 97 og áfram, sjá einnig Kristján Eldjárn
(1965), bls. 104.
7 4 Kristján Eldjárn (1965), bis. 102—110.
75 Olsen (1966), bls. 182.
7o Voionmaa (1943), bls. 183.
77 Kristján Eldjárn (1965), bls. 104.