Kirkjublaðið - 01.01.1893, Blaðsíða 1
lianda íslenzkri alþýðu.
III.
KYÍK, JANÚAIi 1893.
1
Á nýársdagsmorgun.
Hvert fótmál leið mig fram á lífsins vegi,
minn faðir, faðir, faðir elskulegi!
og blessa mig í ár og alla mína;
tak öll þín börn í föður-arma þína.
GUNNAR GUNNARSSON.
Við áramótin.
Utgefandi Kirkjublaðsins hafði fyrir löngu gjört sjer
von um að geta stækkað blaðið enn meir við byrjun 3.
ársins, en nú hefir Kbl., sem önnur blöð, fengið að kenna
svo á árferðinu og verzlunarástandinu síðastl. ár, að í
þetta sinn er það ógjörlegt.
Kbl. þarf þó að verða helmingi stærra, en til var
stofnað í fyrstu, til þess að geta orðið sannuppbyggilegt,
og þessi stækkun getur borið sig með óverulegri verð-
hækkun (2 kr. í stað 1 kr. 50 a.), ef kaupendur gætu
orðið 2200.
Kbl. þarf að geta flutt í viðlögum ræður vorra lielztu
presta í heilu lagi, eða því sem næst, en þess heflr enn
eigi verið kostur. Að sinni verða höfundar og lesendur
að sætta sig við »kafla« og »brot«.
Kbl. þarf að geta rætt ýms mál rækilegar, en rúmið
hefir leyft til þessa. Meðan blaðið er eigi stærra verður
reynt að bæta úr því, með því heldur að taka færra fyrir,