Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986. Viðskipti Guðfinnur bílasali í útflutningi: INI^W |iS| 1 lCuíI#i kk ^UiUSII Ir llai lll fl klrlK U Blómstrandi út- flutningur Heildarútílutningur landsmanna fyrstu 9 mánuði ársins hefur au- kist um 35% miðað við sama tímabil í fyrra og hefur hann náð sömu krónutölu nú og allt árið 1985, eða rúmlega 33 milljörðum króna. Það sem hér veldur mestu um er auking á útflutningi sjávar- afurða um 7 milljarða eða 38%. 1. iðnaði varð aukingin 23% og í landbúnaði 36%. Höfuðástæðan fyrir svo mikilli aukningu í landbúnaði er tíföldun útflutnings á vörum úr loðskinn- um til V-Evrópulanda. Einnig vekur athygli tvöföldun á útflutn- ingi véla og tækja í sjávarútvegi. Samdráttur hefur orðið um 9% á útflutningi ullarvara til Banda- ríkjanna hvað verðmæti varðar, miðað við sama tíma í fyrra. Ástandið hefur batnað eftir því sem liðið hefur á árið, því að fyrstu 6 mánuði ársins nam samdráttur- inn 22%. Þess má að lokum geta að meðal-' gengi Bandaríkjadollars fyrstu 9 mánuði þessa árs er nánast það sama og það var á sama tímabili í fyrra. -S.dór Byggingarvísitalan: Mælir 16,3% verðbólgu Samkvæmt útreikningi Hagstof- unnar réyndist vísitala byggingar- kostnaðar0,94% hærri í nóvember en í október. Síðastliðna 12 mán- uði heför vísitala byggingarkostn- aðar hækkað um 15,3% og undanfarna 3 mánuði um 3,8% og jafngildir sú hækkun 16,3% verð- bólgu á heilu ári. Hækkun á steinsteypu veldur mestu um hækkunina nú en steypa hefúr hækkað um 5,2% sem þýðir 0,5% af hækkun vísitölunnar nú. -S.dór „Ég græði ekkert á þessu sjálfúr að undanskildum sölulaunum. Markmið mitt með þessum útflutningi er að losna við druslumar af götum höfuð- borgarinnar," sagði Guðfinnur Halld- órsson bílasali í samtali við DV. Guðfinnur hefur auglýst eftir ákveðn- um gerðum bifreiða til útflutnings til Afríku og býður 60 þúsund krónur fyrir stykkið. \ „Mig vantar 500 bifreiðar í útflutn- inginn en ég segi ekki neinum hvert þær fara. Eg ætla að sitja einn að þessum markaði svo lengi sem hægt er. Eina skilyrðið sem ég set er að gangverkið sé gott í bílunum, útlitið er aukaatriði." - Er þetta liður í þróunaraðstoð? „Nei, þetta eru hrein og klár við- skipti og Hjálparstofiiun kirkjunnar kemur hér hvergi nálægt. Þessir bílar komast allir til skila. Málið er einfald- lega það að ég flyt inn mikið af notuðum bílum erlendis frá en með þessum útflutningi get ég nýtt mér skipaferðimar út aftur. Notaðir bílar á meginlandi Evrópu em yfirleitt ékki eins lítið keyrðir og hér á landi,“ sagði Guðfinnur, bílasali og útflytjandi. -EIR Guðfinnur með eina „drusluna" sem er á leið til Afríku. Bankasameiningin: Geir ræðir við einkabankamenn „Þetta em ekki allt formlegir fund- ir, við ræðumst við í síma eða skrepp- um hver til annars," sagði Geir Hallgrímsson seðlabankastjóri sem sat í gær fyrsta fund sinn með fulltrúum Alþýðubanka og Samvinnubanka. Þessir bankar em nú komnir til leiks ásamt Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og sparisjóðum. Allt snýst um örlög Útvegsbankans, hvort hann verði hluti af nýjum einkabanka eða sam- einist hinum ríkisbönkunum. „Við reynum að ljúka þessu sem fyrst,“ sagði Geir. Ætlunin er að láta reyna á það hvort og þá með hvaða hætti einkabankar og sparisjóðir gangi til leiksins. Aðaltillaga Seðh bankans fjallar um það. Þar var þ ekki minnst á Alþýðubanka og San vinnubanka sem nú em komnir hópinn. Að öðrum kosti liggur fyr tillaga framsóknarmanna um að Búr aðarbankinn yfirtaki Útvegsbankanr her: Stöð 2 semur við stórfýrirtæki Jón G. Hauksscm, DV, Akureyii Stöð 2 er að gera samning við 5-6 stórfyrirtæki um styrki við einstaka þætti eða þáttagerð, að sögn Jóns Óttars Ragnarssonar stöðvarstjóra. Sambandið var fyrsta fyrirtækið til að gera slíkan samning við Stöð 2. Það styrkti beina útsendingu stöðv- arinnar frá keppninni um ungfrú heim, auk þess sem það styrkir sýn- ingar á Amason-þættinum sem sýndur er á sunnudögum. „Ég get því miður ekki sagt þér frá því núna hvaða fyrirtæki þetta em sem við erum að semja við. Það kem- ur í ljós,“ sagði Jón Óttar Ragnars- son. Helgi Pétursson, blaðafulltrúi Sambandsins, vildi ekki gefa upp hvað styrkir þessir væm háir. „Verðið er viðráðanlegt," sagði hann. Það sem fyrirtækin fa fyrir sinn snúð með því að styrkja þætti eða þáttaröð er skilti með nafiii fyrirtæk- isins sem birtist fyrir og eftir við- komandi þátt. Þetta er gert til að skapa góða ímynd fyrirtækjanna, að þau hafi séð til þess að fólk ætti kost á að sjá viðkomandi sjónvarps- efrii. Sögur hafa gengið á Akureyri og í Reykjavík að undanfömu þess efii- is að Sambandið hafi gert auglýs- ingasamning við Stöð 2 upp á 30 milljónir króna. „Þetta er alrangt," sagði Helgi Pétursson. „Við auglýs- um þar sem okkur hentar í það og það sinnið. Enginn slíkur samningur hefúr verið gerður." Hinn föngulegi hópur sem sýndi islensku hestana úti í Bandaríkj- unum í haust. Hvað gerð- ist í USA? Hvað gerðist þegar íslenski hest- urinn var sýndur í Bandaríkjunum í haust? Hvaða möguleikar em á sölu hans í kjölfar sýningarinnar? Þetta og fleira verður rætt á ftmdi, sem fræðslunefnd Fáks held- ur í kvöld, fimmtudagskvöld, 27.. nóvember. Hann hefst kl. 20.30. Auk ofangreindra atriða verða sýndar myndir frá sýningu ís- lenska hestsins í Bandaríkjunum. Þeir sem m.a. ræða málin verða Ingvar Karlsson fiá fslandssporti, Reynir Hjartarson, Brávöllum við Akureyri, Sigurbjöm Bárðarson og Sigurður Ragnarsson frá SÍS. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%> hæst Innlán óverötryggö Sparisjóðsbækur óbund. &-9 Ab.Bb, Lb.Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 9-10.5 Ab 6 mán. uppsögn 10-15 Ib 12 mán. uppsögn 11-15,75 sP Sparnaður - Lánsréttur Sparað i J-5 mán. 0-13 Ab Sp. i6mán. ogm. 9-13 Ab Ávisanareikningar 3-9 Ab Hlaupareikningar 3-7 Sb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Úb.Vb 6mán. uppsögn 2,5-4 Úb Innlán með sérkjörum 8,5-17 Inxxlán gengistryggð Bandarikjadalur 5-6,5 Sb Sterlingspund 9-10,5 Ab Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab Danskar krónur 7,5-9,5 Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 15,25-16, 25 Úb Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/19,5 Almenn skuldabréf(2) 16-17 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir H laupareikningar(yf irdr.) 16-18 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 5-6,75 Ui Til lengri tíma 6-6.75 Bb.Lb.Úb Utlán til framleiöslxx Isl. krónur 15-16,5 Vb.Sp SDR 8-6.25 Allir nema Ib Bandarikjadalir 7,5-7,75 Allir nema Bb.lb Sterlingspund 12,76-13 Allir nema Ib Vestur-þýsk mörk 6.5 Allir nema Ib Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5 Dráttarvextir 27 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala 1517 stig Byggingavísitala 281 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði9%1.okt. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 111 kr. Eimskip 228 kr. Flugleiðir 180 kr. Hampiðjan 131 kr. Iðnaðarbankinn 128 kr. Verslunarbankinn 98 kr. (1) Við kaup á viðskiptavxxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbankinn reiknar þó vexti af viðskiptavíxlum miðað við 19,5% árs- vexti. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb= Samvinnubankinn, Úb=Útvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisj óðirnir. Nánari upplýsingar ura peninga- markaðinn birtast í DV á fimmtudög- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.