Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986. 18 Tíðarandi Annaö sjónarhorn úr stofu ungu hjónanna sýnir einfaldleikann - hvit steingólfin eru látin njóta sín og plöntur koma í stað húsgagna. miiniiD'H'Wv; V ',l |SSS=S5 i'nílifÍilMitiH umtltmiM iWt v9í.aí- Valgerður Matthíasdóttir arkitekt: „Ungt fólk er undir það miklu álagi í dag á vinnustaðnum að heimilið er orðið í öðru sæti.“ Nútímaheimilið ■ ■ BnfaMleiklnn í fyrirrúmi Fyrir nokkrum árum spurði blaða- maður Time tískukónginn ítalska, Giorgio Armani, hvemig hann hefði innanstokks á heimili sínu á smáeynni Pantelleria suður af Sikiley. Armani gaf það fræga svar að þar hefði sára- litlu verið breytt innan veggja þessa ævagamla húss - hann hefði byrjað á því að hirða bókstaflega allt niður af veggjum og henda út öllu nærtæku smáglingri. Það sama gerðist svo inn- an veggja heimilisins Santa Marg- herita á vesturströnd Ítalíu. í Parísarborg á þessi hönnuður ein- faldleikans skoðanabróður innan stéttarinnar. Azzedine Alaiia lét ekki frægð og óteljandi verðlaunaveitingar breyta lífsmynstrinu svo nokkm næmi - hann sefur ennþá á dýnu á gólfinu í einstaklingsíbúðinni sinni og þar fyr- irfinnst ekki eitt einasta húsgagn. Breytingin á síðustu árum hefur verið mikil hvað snertir afstöðu til hönnunar á heimilinu og yngra fólkið gefúr ekki mikið fyrir smáhlutasöfh- unina sem einkenndi mjög heimili foreldranna. Stórar íbúðir eða hús fyllt húsgögnum og skrautmunum er ekki lengur keppikeflið - það þykir ekki lengur fátæklegt að hafa sem allra minnst í kringum sig. Stöðutáknin em ekki lengur postulín og kristall - og breytt þjóðfélagsgerð, sem gerir ráð fyrir mikilli útivinnu allra heimilis- manna, veldur því að fæstir hafa mikinn tíma aflögu fyrir hússtörfin. Valgerður Matthíasdóttir arkitekt segir ástæður fyrir nýju línunni í hönnun heimilanna tvískiptar. „Annars vegar er að fólk er undir það miklu álagi í dag að heimilið er orðið í öðm sæti - mestur tíminn fer í vinnu og skóla utan heimilis. Unga fólkið hefur fundið þama leið til þess að sameina þetta tvennt því ofhlaðið heimili þýðir mikið vinnuálag." Texti: Borghildur Anna DV-myndir: Brynjar Gauti Valgerður ræðir um þjóðfélagið hér á íslandi í dag og áður og bendir á að fátæktin gerði það að verkmn að heimili með fáum hlutum þótti bera vott um peningaleysi - skrautmunir vom spuming um að sýna status. Um leið og menn höfðu meiri peninga minnkaði þörfin fyrir að eyða í slíkar sýningar. „Nú er fólk farið að gefa því gaum að hlutir þurfi að hafa listgildi," held- ur Valgerður áfram. „Fáir hlutir verða um leið meira áberandi og því er hönnunin mikil- vægari en áður. Ungt fólk hefúr kannski ekki efni á því að kaupa rán- dýr málverk eða skúlptúra en getur samt keypt hluti sem em sjónrænt mjög fallegir - og þeir þurfa ekki endi- lega að vera mjög dýrir. Og viðhorfin em mjög breytt frá því að fólki fannst að hamingjan lægi í því að koma sér upp nógu miklu af veraldlegum hlut- um - ungt fólk tengir öryggiskenndina ekki eins mikið við hluti því verð- mætamatið er annað.“ Hlutasöfnun fólks á undanfömum áratugum hefur haft í för með sér hin ýmsu vandræði að vinnunni við að halda herlegheitunum við slepptum. Erlendis er þörf á rándýrum gæslu- mönnum í betri hverfúm stórborganna - til þess að koma í veg fyrir að gós- sið skipti snarlega um eigendur að næturlagi. I einu úthverfa Parísar- borgar búa til dæmis hjón á miðjum aldri sem ekki hafa farið í sumarleyfi saman síðustu fimmtán árin. Ástæðan er sú að þau hafa ekki efni á að kaupa sér varðgæslu en þora ekki að skilja búslóðina eftir eftirlitslausa dögum saman. Því fara þau til skiptis í sólar- landaferðir um sumarið - annað situr heima í hlutverki gæslumannsins. Sem áður segir eru viðhorf ákaflega breytt og tíðarandinn annar. Ungt fólk í dag hefur önnur viðhorf til hús- búnaðar. Fáir hlutir en með ótvirætt notagildi eiga greiða leið inn á yngri heimilin og einfaldleiki samfara þæg- indunum situr í fyrirrúmi. Á heimili Valgerðar er ekki allt yfirfullt húsgögnum og smáhlutum. Húsbúnaðurinn er einfald- ur og tvær stórar myndir eftir systur hennar prýða stærsta vegginn í stofunni. Úr stofu nýgiftra hjóna á Reykjavíkursvæðinu. Nokkuð dæmigert fyrir þaö sem ungt fólk í dag kýs sem innanstokksmuni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.