Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1986, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 26. NÖVEMBER 1986. Erlendir fréttaritarar Enn deilt um þróunarkenning- una í bandaríska skólakerfinu Sanvtök kristilegra foreldra telja sig hafa ýmislegt að athuga við kennslu í grannskólum Samtök kristilegra foreldra í Bandaríkjunum fara meðal annars fram á að skólarnir hætti að efna til skemmtanahalds fyrir jól og páska þar sem jólasveinninn og páskahérinn koma fram. Segja foreldrarnir fígúrur þessar draga hættulega úr trúarinnihaldi hátíðanna og því vera skemm- andi fyrir uppeldi barnanna. HaBdór VaJdimaisscm, DV, DaBas: Deilumar um þróunarkenninguna og rétt skóla til að kenna hana sem vísindi, sem upphófust fyrir nokkr- um óratugum, standa enn í Banda- ríkjunum. Hópar kristilegra foreldra reyna enn í dag að fá kenninguna strikaða út af listanum yfir það sem kennt er sem staðreyndir eða vísindi. Krefjast þeir þess að ef fjallað er um kenninguna verði henni skipað í sess með skoðunum og skýrt tekið fram að engar sönnur séu fyrir því að hún sé réttari en sköpunarsaga Biblíunnar. Leita á náðir dómskerfisins Undanfama mánuði hefur þessi barátta þó beinst mun víðar en að þróunarkenningunni einni saman. Kristilegir foreldrar telja sig hafa ákaflega margt að athuga við það sem kennt er í almennum skólum í Bandaríkjunum og hafa undanfarið leitað á náðir dómskerfisins til að fá málum sínum framfylgt. Foreldramir beita sér nú gegn flestum þáttum skólastarfsins. Allt frá verkefrium, er eiga að kenna rök- hyggju, til skólabóka er foreldramir telja andsnúna kristilegum þanka- gangi. Meðal þeirra bóka, sem foreldram- ir vilja að gerðar séu útlægar úr lestrarsafrii skólakerfisins, em Öskubuska og leikrit Shakespeares, Macbeth. Bæði þessi verk em þymir í augum foreldranna því talað er um galdra í þeim. Að auki sýna verk þessi hug- rekki og vitsmuni sem áunna eigin- leika að einhveiju leyti en ekki sem guðsgjafir einar. Þá hafa foreldramir gert að skot- spónum lestrartexta er fela í sér hugmyndir sem andsnúnar em hefð- bundnum hlutverkaskiptum kynj- anna, texta sem gefa til kynna að foreldrar geti haft rangt fyrir sér og því sé stundum óhætt að óhlýðnast þeim og texta sem gefið getur til kynna að maðurinn ráði sjálfúr for- lögum sínum, meira en alvaldur guð. Gegn jólasveinum og páska- hérum Þá fara foreldramir fram á að skólar hætti að efna til samkomuhalds inn- an skóla fyrir jól og páska þar sem jólasveinninn og páskahérinn koma fram. Segja foreldramir fígúmr þessar draga hættulega úr trúarinnihaldi hátíðanna og því vera skemmandi fyrir uppeldi bamanna. Meðal þess sem foreldramir reyna að fá afhumið er allt það sem felur í sér einhveijar af kenningum húm- anismans. Segja þeir stefnu þá byggjast á þeirri kenningu að mað- urinn ráði forlögum sínum sjálfúr en sé ekki háður vilja guðs að því leyti til og því sé það andsnúið kristi- legum hugsanagangi. Þá vilja foreldramir láta taka úr kennslubókum allt það sem lýtur að kynlífi fyrir hjónaband, kynlífi utan hjónabands, vændi og kynhverfu. Foreldramir neita alfarið að þeir séu með þessu að fara fram á ritskoð- un kennslubóka. Segja þeir ritskoðun og val á efni í námsbækur algerlega óskyld mál. Ef til vill má búast við því að í náinni framtíð feti aðrir foreldrahóp- ar í fótspor þeirra kristilegu. Ef svo fer má búast við því að al- menningsskólakerfið í Bandaríkjun- um geti ekki í framtíðinni kennt neitt það sem brýtur í bága við trúar- vitund kristinna manna, múhameðs- trúarmanna, búddista, hindúa eða þeirra sem trúa á Óðin og Þór. Takmarkinu náð? Síðan verði eflaust afnumið allt það sem stjömufræðispekingar em mótfallnir svo og allt það sem ekki fellur að öðrum sérskoðunum. Loks fer svo, augsýnilega, að hætt verði kennslu á öllu því sem and- stætt er lífeskoðunum repúblikana og demókrata. Þá geta bandarískir foreldrar loks alið upp böm sín í heilbrigðum lífs- viðhorfum án þess að þurfa að óttast að skólakerfið brjóti niður siðferði þeirra jafnóðum. Þá læra bömin ekki af skólabók- um neitt sem orðið getur þeim andlegur fjötur um fót síðar á ævinni. Hitt er svo auðvitað aukaatriði að þá læra bömin nákvæmlega ekki neitt. Þau verða einvörðungu að- njótandi þeirrar ánægju að sitja f skólastofu nokkrar klukkustundir dag hvem, í þögulli sátt við um- hverfi sitt, og horfa á kennarann jafn þögulan við kennaraborðið. Spumingin verður þá hvort ekki ber að velja kennara með fegurðar- samkeppni þar sem þess verður auðveldlega vandlega gætt að halda eðlilegu jafnvægi á milli kynþátta því misrétti má ekki eiga sér stað. Það gæti spillt bömunum. Norski flotinn flyst úr landi Björg Eva Erlendadóoir, DV, Osló: Norðmenn em að missa stóran hluta skipastóls síns úr landi en verslunarflotinn hefur verið þjóðar- stolt þeirra um aldir. Nú sigla mörg stærstu kaupskip Norðmanna undir öðrum þjóðfánum og með erlendum áhöfnum. Norskir sjómenn missa atvinnutækifærin Það hefúr lengi verið vandamál í Noregi að útgerðarfélög leitast eftir því að skrá skip sín í öðrum löndum til þess að losna undan norskum lög- um um haffæri og sleppa við að hafa norskar áhafnir á norskum kjara- samningum. Með þeim hætti telja skipaeigendur sig lækka rekstrar- kostnað skipanna til mikilla muna. Þessi skipafélög dafria vel en mik- ill fjöldi norskra sjómanna verður með þessum hætti af atvinnutæki- færum. Kvarta undan illum aðbúnaði útgerðarinnar Stjómvöld saka útgerðarfélögin um ábyrgðarleysi gagnvart þjóðfé- laginu. Þau svara með gagnásökun- um um að svo illa sé búið að þeim að aðstæðumar eyðileggi möguleik- ana á því að skrá skipin í Noregi og láta þau sigla undir norskum fana með norskum áhöfnum. í staðinn eru skipin skráð með heimahafnir í lönd- um þar sem vinnuaflið er margfalt ódýrara en í Noregi og jafnframt losna þau undan ákvæðum norska sjómannasambandsins um aðbúnað og kjör. Missa Norðmenn flaggskipið? í síðustu viku kom ný skriða af umsóknum frá útgerðarfélögum um heimildir til þess að fá að skrá skip sín annars staðar en í Noregi. Fyrsf> ur var Knut Upsteinkloster. Hann sótti um að fá að skrá sex risastór skemmtiferðaskip erlendis. Þessi skip sigla einkum í Karíbahafinu auk þess að sigla til annarra staða. Eitt þeirra, S.s. Norge, er meðal stærstu skemmtiferðaskipa heims. Með þessu skipi missir norski kaup- skipastóllinn flaggskip sitt og stærstu skrautfjöðrina úr hatti sín- um. Klosterskipafélagið hefur á sér orð fyrir að komast vel af þótt skip þess hafi verið skráð í Noregi. En nú gefast eigendumir upp við að beija höfðinu í steininn og vilja ekki leng- ur streða við að láta skip sín sigla undir norskum fána. Það þykir ljóst að umsókn félagsins verði ekki hafii- að og viðbúið að skip þessi muni í framtíðinni sigla undir fána Líberíu. Líberíufáni er einn þeirra sem á sjómannamáli eru kallaðir „hag- kvæmnisfánar". Það eru nokkur ríki sem skipafélög sækjast eftir að skrá skip sín í af hagkvæmnisástæðum, eins og þægilegri sköttum og minni kvöðum en gilda í heimalandi þeirra. Leitað lausna Fleiri umsóknir fylgdu í kjölfarið á þessari ofannefndu, meðal annars fiá Bergefem-skipafélaginu sem er eitt af stærstu skipafélögum Noregs. Stjómvöld í Noregi reyna nú að ná samstöðu um aðgerðir sem auðveldi útgerðarfélögum Noregs samkeppni við skipafélög annarra landa þótt skip þeirra sigli undir norskum fána. Bráðliggur á því að leysa þetta vandamál áður en norski kaupskipa- flotinn verði að engu og meirihluti norsku sjómannastéttarinnar at- vinnulaus um leið. Skemmtiferöaskipiö Norge, flaggskip norska kaupskipaflotans, er meðal þeirra skipa norskra sem framvegis kunna aö sigla undir hagkvæmnisfánum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.