Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1989, Page 3
FÖSTUDAGUR 6. JANUAR 1989.
3
Fréttir
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Samningar að hefjast
við Long John Silver
niðurstaðan getur haft áhrif á fiskverð á markaðnum
„Samningar við veitingahúsak-
eðjuna Long John Silver um kaup
á flski frá Coldwater eru að hefjast
í Bandaríkjunum. Niðurstaða
þeirra viðræðna og það verð, sem
þar fæst, getur haft áhrif á fískverð
á mankaðnum sökum þess hve stór
Long John Silver keðjan er,“ sagði
Bjarni Lúðvíksson, framkvæmda-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, í samtali við DV.
Bjarni sagði að engin hreyfmg
hetði orðið á fiskverði á Banda-
ríkjamarkaöi síðan verðið fór upp
í 1,40 dollara á blokkarpundið
skömmu fyrir jól. Þó sagði hann
að heyrst hefði að úrvalsblokk
hefði verið seld í htíu magni fyrir
1,50 dollara pundiö. Hins vegar
sagði Bjarni aö nú gengi á físk-
birgðir og það gæti haft eitthváð •
að segja þegar á liði.
Þá er ljóst að sá samdráttur, sem
fyrirsjáanlegur er i þorskveiðum,
bæði hér við land, í Barentshafi og
i Norðursjó, muni hafa áhrif á fisk-
verð vestra. Bjarni tók þó fram að
slíkt gerðist ekki í einu vetfangi,
það tæki alltaf nokkurn tíma. Síðan
væri oft eins og skriða færi af stað.
Alveg það sama gerðist þegar um
verðlækkun væri áð ræða eftir að
einhverjum verðtoppi væri náö.
Aðspurður um hve mikiö magn
Long John Silvers keypti afUold-
wa'tár- Ságðí- Bjarni’áð'þe'gár’sem-
mest var keypt hefði það verið um
það bil einn sjötti hluti þess sera
Coldwater selur i Bandaríkjunum
en þetta magn hefði eitthvað
minnkað á síðustu mánuðum. Og
nú ætti eftir að koma í ijós hvað
þeir samningar, sem i hönd fara,
leiða af sér, bæði um verð og magn.
-S.dór
Magnús Oddsson, stjórnarmaður i Ferðamálaráði, horfir á Ingjald Hanni-
baisson, framkvæmdastjóra Útflutningsráðs, taka í hönd Lindu Pétursdóttur
til staðfestingar á samningi um að hún vinni við landkynningu. Einar Gúst-
afsson frá Flugleiðum stendur á milli.
Linda kynnir
íslenskar vörur
Dubai-togaramlr:
„Mun betra
tilboð
en Marokkó-
togararnir“
„Það þarf engan ríkisstyrk í þessu
dæmi - það þarf bara aðstoð. Þetta
eru það stórar upphæðir að okkar
litla bankakerfi ræður ekki við þetta.
Ég er ekki í nokkrum vafa um aö
þetta er mun betra tilboð en Ma-
rokkótogararnir," sagði Júlíus Sól-
nes, stjórnarformaður Stálvíkur, en
fyrirtækið hefur undirritað samning
við útgerðarfyrirtæki í Dubai um
smíði 14 togara fyrir fyrirtækið,
hvers að verðmæti 300 milljónir.
Sagði Júlíus að það væri miðað við
teikningar að skuttogurum sömu
tegundar og Hólmadrangur.
„Það þarf að gefa ábyrgð fyrir mót-
töku á fyrirframgreiðslunni. Kaup-
andi borgar 20% af samningsupp-
hæðinni við undirritun samnings
gegn ábyrgð á móti. Það eru nær 800
milljónir." Það er sú upphæð sem
farið hefur verið fram á að ríkissjóð-
ur gangi í ábyrgð fyrir. Hefur hug-
myndin þar um þegar verið kynnt á
ríkisstjórnarfundi af iðnaðarráð-
herra.
Júhus sagði að þetta mál væri allt
annars eðlis en smíði Marokkótogar-
anna því að þar hefði verið óskað
eftir fjármögnun hér á íslandi. í
Dubai eru hins vegar til staðar mjög
ijársterkir aðilar.
Hugmyndin er að togararnir verði
smíðaðir í Egyptalandi undir umsjón
Stálvíkur. -SMJ
Linda Pétursdóttir, ungfrú heim-
ur, mun kynna íslenskar fram-
leiðsluvörur og ferðaþjónustu víða
um heim á þessu ári.
Samningur um kynningarstarf
Lindu'var undirritaður á milli eig-
enda Miss World keppninnar annars
vegar og Ferðamálaráðs íslands,
Flugleiða og Útflutningsráðs hins
vegar.
Linda mun á árinu ferðast víða um
heim og eitt að aðalverkefnum henn-
ar veröur samkvæmt samningnum
kynning á íslandi sem ferðamanna-
landi, í þeim tilgangi að vekja at-
hygli á landi, þjóð og framleiðslu.
pv
Verðfall á minka- og refaskinnum:
Líkur á miklum sam-
drætti í loðdýrarækt
„Það lítur út fyrir verulegan
samdrátt í loðdýraræktinni og
menn virðast hafa lítinn áhuga á
að fara út í þá grein. Enda er t.d.
rekstrargrundvöllur refaræktar
við óbreyttar aðstæður ekki hvetj-
andi til þess að menn haldi þeim
búskap áfram eða hefji hann,"
sagði Sveinbjörn Eyjólfsson í land-
búnaðarráðuneytinu er DV ræddi
við hann.
Talsvert verðfall hefur orðið á
minka- og refaskinnum að undan-
förnu. Á uppboði í Kaupmanna-
höfn á dögunum lækkuðu minka-
skinn um allt að 24% í verði. Refa-
skinn hafa lækkað um 25% milli
ára.
Sveinbjörn sagði að á síðasta ári
hefðu verið veitt 7-9 ieyfi fyrir
minkabúskap hér á landi. Árið áð-
ur heföu þau verið 60-70. „En nú
veit ég ekki um neina sem ætla sér
í þennan búskap," sagði hann. „Að
vísu munu einhverjir ætla að söðla
um úr ref yfir í mink en þeir munu
ekki vera margir.“
Sveinbjörn sagði að ekki væri
fyrirhugað að hið opinbera hlypi
undir bagga með loðdýrabændum
vegna verðfallsins. Stutt hefði ver-
ið að uppbyggingu í minkaræktinni
og menn styrktir til uppbyggingar
húsnæðis fyrir búskapinn þegar
þeir hófu hann. „Minkabændur
hafa fengið styrk til búháttabreyt-
inga úr Framleiðnisjóði og einnig
kemur þeim til góða sú endur-
skipulaging sem fariö hefur fram í
fóðurstöðvunum," sagði Svein-
björn. „Þá var ákveðið að greiða
bændum í loðdýrarækt upphæð
sem ákvörðuð var í tengslum við
söluskatt sem greiddur hefur verið
af rekstrargjöldum áranna 1986 og
1987. En frekari aðgerðir af hálfu
hins opinbera hafa ekki verið á
dagskránni."
-JSS
<
- ——^ - -T— , C
- y*TF*»-«-• :. . -o
WP *■. * -9-
\ S>
\ :
' • • • . ■ , v- %. j.a ■ ' jr*•••.•? c
\
,;vV; -V
Ja, hver
þrefaldur!
Þrefaldur fyrsti
vinningur á laugardag!
Láttu ekki
þrefalt happ úr hendi
sleppa!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111