Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1989, Síða 9
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989.
9
Útlönd
Hér eru síkharnir tveir sem teknir voru af lifi í morgun fyrir morðið á Indiru Gandhi, fyrrum forsætisráðherra Ind-
lands. Til vinstri er Satwant Singh, tuttugu og fjögurra ára. Kehar Singh, fimmtíu og fjögurra ára, hefur alltaf hald-
ið fram sakleysi sínu. Símamynd Reuter
Síkharnir hengdir
í morgun
Tveir síkhár, sem dæmdir voru
fyrir morðið á Indiru Gandhi, forsæt-
isráðherra Indlands, árið 1984, voru
hengdir í morgun í Nýju Delhi.
Yfirvöld, sem óttast ofbeldisöldu
meðal aðskilnaðarsinnaðra síkha í
kjölfar aftökunnar á Satwant Singh,
tuttugu og fjögurra ára, og Kehar
Singh, fimmtíu og fjögurra ára, til-
kynntu strax að líkin yrðu ekki af-
hent fjölskyldum hinna látnu.
Líkin voru brennd strax að lokinni
aftökunni í Tihar fangelsi í Nýju
Delhi þar sem gífurlegar öryggisráð-
stafanir voru viðhafðar vegna aftök-
unnar. Enginn fékk að koma í nám-
tmda viö fangelsið, ekki einu sinni
ættingjctr þeirra sem voru teknir af
lifi
Ekki bárust fregnir af óeirðum eða
öðrum vandræðum í borginni eða í
Punjab ríki þar sem aðskilnaðar-
hreyfing síkha hefur haft sig hvað
mest í frammi. Rúmlega tvö þúsund
og fimm hundruð manns létu lífið í
átökum í ríkinu á síðasta ári.
í bænarhúsum síkha víðs vegar um
landið minntust prestar þeirra sem
teknir voru af lífi.
Ríkisstjóm Indlands skipaði svæð-
isbundnum stjómum um allt landið
að hafa öryggisviðbúnað vegna af-
tökunnar.
Herskáir hópar, sem berjast fyrir
sjálfstæðu ríki síkha í Punjab, hafa
heitið blóðugri hefnd fyrir aftökuna.
Lögregluyfirvöld telja líklegast að
herskáir síkhar láti til skarar skríða
í Nýju Delhi eða Punjab. Allt tiltækt
lögreglulið er á götum úti og herinn
er í viðbragðsstöðu.
í Amritsar, þar sem gullna hofið
er, var rafmagnað andrúmsloft og
lögregla bannaði nær allar manna-
ferðir.
Það var skipun Indim Gandhi um
árás hersins á gullna hofið í júni 1984,
til að flæma þaöan út forkólfa að-
skilnaðarsinna, sem leiddi til þess að
hún var ráðin af dögum.
Rúmlega tólf hundmð manns,
margir saklausir um aUt nema trú
sína, lokuðust inni í hofinu og biöu
bana í árásinni sem stóð yfir í fimm
daga. Síkhar litu á árásina sem hrein
helgispjöll.
Satwant Singh, sem var lífvörður
Gandhi þegar hann og annar líf-
vörður, Beant Singh, skutu hana til
bana utan við heimili hennar þann
31. október 1984, hefur aldrei neitað
aðild sinni að morðinu. Hann sagði
í síðustu yfirlýsingu sinni fyrir aftök-
una að hann væri hreykinn af verkn-
aði sínum. Hann bað hins vegar
herskáa síkha um aö hefna ekki fyr-
ir dauða sinn og drepa ekki hindúa.
Um fjögur þúsund síkhar voru
drepnir eftir morðið á Gandhi, flestir
í Nýju Delhi. Fáir þeirra sem bám
ábyrgð á þeim ódæðisverkum hafa
verið dregnir fyrir rétt. Hefur það
enn aukið á reiði síkha.
Kehar Singh hefur aila tíð haldið
fram sakleysi sinu. Hann var ekki
viðstaddur þegar Gandhi var ráðin
af dögum en hann var frændi Beant
Singh, sem var skotinn til bana á
morðstaðnum.
Alþjóðasamtök lögfræðinga báðu
honum griða og sögðu aö annars
gæti orðið hræðilegt réttarslys.
Reuter
Unnið eftir röngum
vitnisburði í
Palmemálinu
Myndin af „Skugganum“, sem
sænska lögreglan notaði við leitina
að morðingja Olofs Palme, var fol-
suð. Við gerð hennar var fariö eftir
röngum vitnisburði hstamanns sem
nú segist hafa fundið upp á öllu sam-
an, að því er segir í sænska kvöld-
blaðinu Aftonbladet.
Lengi var htið á myndina af
„Skugganum“ sem sönnun þess aö
morðið á Palme hefði verið skipu-
lagt. Þegar nýir rannsóknaraðilar í
morðmáhnu fóru í gegnum aha vitn-
isburði kom hið sanna fram í dagsljó-
sið. Listamaöurinn sagði þá að hann
hefði fundið upp á þessu vegna af-
stöðu sinnar í innflytjendamálum.
Eftir að dagblöðin birtu mynd þá sem
unnin var eftir teikniiigu lista-
mannsins héldu margir að morðing-
inn væri af útlendum ættum.
Samkvæmt fyrri frásögn lista-
mannsins kvaðst hann hafa mætt
Olof Palme daginn fyrir morðið og
að tuttugu metra fyrir aftan hann
hafi verið maður sá sem síðar var
kahaður „Skugginn". Með aðstoð
þýskra sérfræðinga var síðan gerð
mynd eftir tilsögn hstamannsins.
„Skugginn" var sagður vera há-
vaxinn og með skandinavíska and-
litsdrætti. Útht hans minnti á al-
ræmdan bankaræningja og einnig á
kunningja þess sem fyrst var hand-
tekinn vegna morðsins. Einnig mátti
sjá svip með myndinni og einum af
persónulegum lífvörðum Holmérs
lögreglustjóra. TT
Rúmlega hundrað manns slösuðust í tveimur lestarslysum i Júgóslavíu
i gaer. Sjö manns biðu bana i öðru slysinu. Simamynd Reuter
Tvö lestarslys
í Júgóslavíu
Að minnsta kosti sjö manns fór-
ust í tveimur lestarslysum í Júgó-
slavíu í gær og hundrað og þrjátíu
manns slösuðust.
Samkvæmt frásögn júgóslav-
neskrar fréttastofu biðu sjö manns
þegar bana og hundrað særðust,
þar af górir útlendingar, þegar
hraðlest frá Múnchen í Vestur-
Þýskalandi og vöruflutningabíh
rákust saman um fiörutíu kíló-
metra fyrir norðan Belgrad. Þijátiu
manns eru alvarlega slasaðir eftir
áreksturinn. Unnið var að björgun-
arstörfum langt fram á kvöld.
Þrjátíu og fjórir slösuðust í Júgó-
slavíu í gærmorgun þegar júgó-
slavnesk hraðlest lenti á langferða-
bílnálægtNovska. Reuter