Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1989, Side 13
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989.
13
Lesendur
„Fátt veitir meiri ánægju en aö hæna aö sér þessa litlu vini á stuttum vetr-
ardögum,“ segir bréfritari meö mynd er. hann lætur fylgja bréfinu.
Smáfuglarnir
og skammdegið
Ingvar Agnarsson skrifar:
Nú er sá tími sem smáfuglarnir
fógru flykkjast heim að hýbýlum
manna í von um æti. Gefum þeim
gaum og gleðjumst af nærveru
þeirra. Verum hugulsöm og berum
út til þeirra það sem við vitum að
þeir sækjast eftir.
Ein er sú tegund matar sem þeim
finnst hið mesta hnossgæti. Það er
kjötsag sem oft er hægt að fá í kjöt-
verslunum en einnig í frystihúsum
og kjötvinnslustöðvum. Annars
þiggja þeir brauð og korn og verður
gott af.
Fátt er ánægjulegra en að sjá smá-
fugla flykkjast í garða umhverfis
bústaði manna og vissulega gefur
þaö skammdeginu aukið gildi að
hæna þá að sér, eyða tortryggni
þeirra og gera þá að vinum sínum.
Þessar litlu verur geta sannarlega
aukið á gleði okkar og barna okkar.
En einmitt þau hafa viðkvæmt
hjartalag og því er auðvelt að glæða
í brjóstum þeirra sanna lotningu og
kærleika til alls sem lifir.
Færum áramótin
Sigurður hringdi:
Eg hef verið að velta því fyrir mér
hvort þau áramót, sem lengi hefur
verið fagnað í lok desember ár hvert,
eigi ekki að færa fram lítið eitt. Ég
tel að heppilegasti tími til áramóta-
fagnaðar sé um vetrarsólhvörf eða
hinn 21./22. desember þegar
skemmsti sólargangur er og dag tek-
ur svo að lengja.
Þetta hlýtur að vera með sama
hætti alls staðar á hnettinum, þ.e.a.s.
að sólargangur breytist, styttist eða
léngist, eftir því hvort um norður-
eða suðurhvel er að ræða. Þess vegna
er ástæða til að mæta þessum tíma-
mótum með merkari kaflaskiptum á
almanakinu en nú er raunin.
Með þessari breytingu, að halda 21.
og 22. desember hátíðlega sem ára-
mót, yrðu svo sjálf jólin alvöruhvíld-
arhátíð eftir glaum og gleði áramót-
anna. Með þessu móti næðu þessir
tveir viðburðir, áramót og jól, næst-
um saman og fólk fengi þar með
stærri og lengri hátíð og fleiri frídaga
í einu og betri regla kæmist ef til vill
á þetta annars sundurlausa og sí-
breytilega tímabil leyfa og hátíða.
Hringið í síma
27022
milli kl. 13 og 15,
eða skrifið.
Fáfræðin um
hangikjötið
Sigurbjörg Ólöf skrifar:
Margrét Jónsdóttir skrifar 27.
des. sl. í lesendadálk DV um það
hvort taðreykt hangikjöt sé
mannamatur. Hún segir m.a.
..veit ekki nákvæmlega hvort um
er að ræða sauðatað eða hrossat-
að“. Ja, hérna!
í minni sveit var stungið út úr
fjárhúsunum á vorin, kögglarnir
klofnir í flögur sem var raðað upp
á vissan máta og látið þorna vel og
lengi. Þegar þetta var vel þurrt orð-
ið hét þetta skán. Skánin saman-
stóð af lambaspörðum og grasi, sem
féll úr jötunum á gólfið og var
'næstum helmingur af hvoru.
Hálmi man ég ekki eftir, enda ann-
að efni:
Skánin var svo notuð til að reykja
hangikjöt því að viður var ekki til
nema kannski á einstaka stöðum.
Mór var aldrei notaður svo ég vissi.
Mór er allt annað efni og ekki æski-
legur til reykinga, hann reykir upp
fljótt en heldur hins vegar glóð vel
og lengi. Hann þótti bestur til upp-
hitunar í ofnum til að spara kol.
Hrossatað er allt öðruvísi en skán
og hef ég aldrei heyrt að það væri
notað til reykingar á hangikjöti,
hvað svo sem ungir Reykvíkingar
halda. Svo segir Margrét, og þá
dámar mér nú fáviskan: ,,En auð-
vitað er allt reykt kjöt heitreykt svo
að þar er um dálitla blekkingu að
ræöa.“ - Ja, hérna!
Móðir mín, sem var bóndakona í
50 ár, var rómuð fyrir gott hangi-
kjöt og bjúgu sem hún lagaði og
reykti sjálf. Hún sagði að kjötið
skemmdist ef það hitnaði í því,
enda var hangikjötið yfirleitt kal-
dreykt. í gömlum matreiðslubók-
um er meira að segja varað við aö
láta kjötið hitna, hvað svo sem
ungir kjötiðnaðarmenn í Reykjavík
segja. Það er engin furða þótt sumt
af hangikjötinu, sem selt er hér í
borg, sé varla ætt.
Gamla fóikið, sem lagði sér ti
munns svona reykt hangikjöt, liflr
allt að hundrað árum. Það er ekki
með magakrabba því að það borð-
aði allt, gamla íslenska matinn eins
og hann var best matreiddur á
hverju heimili til sveita. - Þar lærði
hver af öðrum.
Ungir kjötiðnaðarmenn í dag
ættu að glugga dálítið í gömlu mat-
reiðslubækurnar sem gefnar voru
út eftir aldamót. Þeir myndu margt
af þeim læra. Það eru öll aukefnin,
sem látin eru í matvælin í dag, sem
eru að gera út af við fólkið.
Ánægður með dansleikinn
Toggi hringdi: inn var í Broadway nú um áramótin. skemmtun sem vel var að staöið.
Miglangartilaðlýsaánægjuminni Hann fór mjög vel fram að mínu Ég vona að á þessu verði framhald
með unglingadansleikinn sem hald- mati og þetta var í alla staði frábær og þá með sama sniði og nú var.
BALLET KLASSÍSKUR BALLET
■ WSmrn^'
Kennsla hefst mánudaginn 9. janúar.
Nemendur mæti á sömu tímum og áður,
— -. A • j
Innritun og upplýsingar í síma 72154.
Félag íslenskra listdansara.
BflLLETSHÓLI 5IGRÍÐRR flRmflfln
SKÚLAGÖTU 32-34 <><►<►