Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1989, Síða 17
16
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989.
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989.
33
fþróttir
Frétta-
stúfar
Samningur Nike við KKÍ
Körftiknattleikssam-
band Íslands hefur
gert nýjan samning
við Nike-umboðið,
Austurbakka, sem er til tveggja
ára. Umboöiö gefur alla búninga
á karlalandsliðiö ásamt skóm og
sjúkratösku og gefur samband-
inu auk þess 50 minni-körfuholta
sem dreift verður á meðal skóla-
bama. Enn fremur mun Nike-
uraboðið veita liði ársins í karla-
og kvennaflokki vegleg verðlaun
á lokahófi KKÍ en það era leik-
menn félaga sem leika í Flug-
leiöadeildinni og 1. deild kvenna
sem kjósa þau liö.
KKÍ semur við RÚV
KKÍ hefur ennfremur gert samn-
ing við Ríkisútvarpið um sýning-
ar á landsleikjum í körfuknatt-
leik. Felur hann í sér aö Ríkisút-
varpið hefúr forgang að beinum
útsendingum frá öllum lands-
leikjum á vegum KKI keppnis-
tímabiiið 1988-89.
Griffith útnefnd
Florence Grifftth Jo-
yner, bandaríska
hlaupadrottningin,
var útnefnd „meistari
meistaranna" á árinu 1988 af al-
þjóölegri dómnefnd, skipaðri
íþróttafréttamönnum. Franska
íþróttadagblaöiö L’Equipe skýröi
frá’þessu á mánudagmn. Griffith
hlaut þrenn guliverðlaun á
ólympíuleikunum í Seoul og bar
í kjörinu sigurorð af austur-
þýsku sundkonunni Kristinu
Otto sem fékk sex guliverðlaun í
Seoul: Tenniskonan Steffi Graf
frá Vestur-Þýskalandi varð þriðja
og er þetta í fyrsta skipti sem
konur hreppa þrjú éfstu sætin í
þessu kjöri.
Aouita byrjar í mars
Said Aouita, langhlauparinn
frægi frá Marokkó, hefur vænt-
anlega keppni á ný í lok þessa
mánaöar. Hann hefur átt við
meiösli aö striöa frá því á ólymp-
íuleikunura i Seoul, þar náöi
hann sér ekki á strik en Aouita
er handhafi heimsmetanna í 1500
og 5000 metra hlaupum. Hann
stefhir aö því að verða kominn í
sitt gamla form þegar heimsleik-
arnir fara fram i Búdapest í mars.
Gascoigne ekki með?
Hastta er á að Totten-
ham veröi án hins
snjalla Paul Gasco-
igne er liöiö sækir 2.
deildar liö Bradford heim í ensku
bikarkeppninni 1 knattspymu á
morgun. Gascoigne er meiddur á
ökkla og óvíst aö hann geti leikið.
Leikurinn verður sýndur beint í
íslenska sjónvarpinu og eftir
frammistöðu sína undanfarið má
telja öruggt aö Guðni Bergsson
veröi í byijunarliöi Tottenham.
Sigurðurí bann
Brottreksturimi í leiknum við
Coventry á dögunum verður Sig-
urði Jónssyni dýrkeyptur. Hann
hefur veriö dæmdur í þriggja
leikja bann meö Sheffield Wed-
nesday í ensku knattspymunni
fyrir vikiö og tekur banniö gildi
þann 16. janúar. Hann verður því
með í bikarleik hðsins á morgun
og einnig gegn Liverpool í 1.
deildinni 14. janúar. Hann veröur
ekki með gegn Arsenal 21. janúar
og Aston Villa 4. febrúar og ef
Sheff. Wed. kemst áframí bikam-
ura missir hann af leik Uðsins í
4. umferö 28. janúar, annars af
deildaleik við Manchester United
þann 11. febrúar. Þetta gæti þó
breyst.
Elvar gerði 15
- HK vann UMFA og Þór lagði UMFN
Þór vann Njarövík 25-24 í 2. deild karla í handknattleik. Leikurinn fór fram
á Akureyri í gærkvöldi.
Heimamenn gerðu sigurmarkið á síöustu sekúndunni eftir aö Narövíkingar
höföu haft ráöin lengst af.
í Kópavogi vann HK Aftureldingu, 29-22. Atkvæöamestir í Uöi HK voru
Elfar Oskarsson meö 15 mörk, en hann fór harrífórum frá upphafi til leiks-
loka, og þeir Hilmar Sigurgíslason ogLPáll Björgvinsson sem skoruðu 4 mörk
hvor.
í liöi Mosfellinga var hins vegar Gunnar Guðjónsson iönastur við kolann
og gerði 8 mörk.
Tólf brottrekstrar voru í leiknum og læti mikil en HK-menn reyndust sterk-
ari þegar upp var staðiö.
-JÖG/GK
Evrópuleiklr í kvennahandknattleik:
Leikir Spartak Kiev
og Fram á íslandi
- báðir leikirnir í Hölliimi
„Þaö má segja aö það sé alveg ör-
uggt aö viö leikum báða leikina gegn
Spartak Kiev hér á landi. Þaö á að-
eins eftir aö semja um leikdagana,"
sagði Sigúröur Tómasson, formaður
handknattleiksdeildar Fram, í sam-
tali við DV í gær.
Framstúlkurnar uröu sem kunn-
ugt er fyrir því óláni aö dragast gegn
sovéska liðinu Spartak Kiev i Evr-
ópukeppni meistaraUöa í handknatt-
leik sem af flestum er taUð eitt besta,
ef ekki besta, félagsUð heims í dag.
Það er þó huggun harmi gegn fyrir
Framstúlkurnar, sem ekki era taldar
eiga mikla möguleika gegn þessu
sovéska liði, aö báðir leikirnir skuli
fara fram hér á landi.
Þess má geta að þjálfari Spartak
Kiev er taUnn einhver sá skrautleg-
asti í „bransanum". Fyrir nokkram
árum var hann dæmdur í eins árs
leikbann fyrir dólgslega framkomu
en hann hefur aldrei áður komiö til
íslands. Aösókn aö kvennahand-
knattleik hefur ekki verið mikil hér
á landi undanfarin ár en búast má
við að handknattleiksunnendur láti
komu þessa sterka Uös sig einhverju
varða. Sovéska liöiö er talið eiga
möguleika á sigri gegn mörgum
karlalandsUðum og sýnir það vel
styrkleika liðsins sem verið hefur í
fremstu röö í heiminum um margra
ára skeiö.
-SK
Vígsla hjá Gróttu
- nýtt íþróttahús vlgt á Nesinu
Fyrsti 1. deildar leikurinn í handknattleik í hinu nýja íþróttahúsi á Seltjarn-
amesi fer fram á sunnudagskvöldiö og hefst kl. 20. Þar eigast við Grótta og
ÍBV og er þama að sjálfsögöu um stóra stund aö ræða fyrir byggðarlagið.
Húsið verður vígt kl. 14 um daginn en kl. 18 hefst dagskrá hjá handknatt-
leiksdeild Gróttunnar. Leikurinn við ÍBV verður miðpunktur hennar en á
undan verða leikir í yngri flokkum og síöan skemmtiatriði í hálfleik og fleira
í þeim dúr.
—
Góðar rispur
okkar manna
gegn Hapoel
- íslendingar lágu fyrir gestunum, 80-98
íslenska iandsliðið í körfuknattleik átti góðar rispur gegn ísra-
elska félaginu Hapoel Galil, en þessir aöilar mættust í gærkvöldi
í Laugardalshöll.
ísraelsmennirnir, sem eru rækilega studdir af bandarískum sniU-
ingum, unnu sigur, 80-98, en sóttu þó á brattann framan af fyrri
hálfleik.
íslensku piltarnir léku þá vel í vörn og sókn, sérstaklega skilaði
Valur Ingimundarson þá sínu verki en hann hirti mörg fráköst
og geröi aö auki hverja glæsikörfuna í kjölfar annarrar, þar af
tvær þriggja stiga körfur.
Undir lok fyrri hálfleiks sýndu gestimir loks sárafáum áhorfend-
um hvers þeir eru megnugir og tóku þá forystu sem aldrei var
látin af hendi. Bestir í liði þeirra voru Brad Leaf, sem var sérdeil-
is áræöinn og hittinn, og Wayne Freeman sem var snöggur og tróð
grimmt í hraðaupphlaupum. í íslenska liðinu léku þeir allir ágæt-
lega, Valur Ingimundarson, Jón Kr. Gíslason og Magnús Guð-
finnsson. Þá átti Jóhannes Kristbjörnsson frábæran leikkafla.
Geröi átta stig á örfáum mínútum.
Stig íslands: Valur Ingimundarson 20, Jón Kr. Gíslason 19, Magn-
ús Guðfmnsson 17, Matthías Matthíasson 12, Jóhannes Kristbjöms-
son 8, Guðjón Skúlason 2 og ívar Ásgrímsson 2. Stigahæstir í liöi
Hapoel voru þeir Brad Leaf með 25 stig og Wayne Freeman meö 24.
-JÖG
r>v
Tveir af bestu mönnum vallarins í Höllinni: Valur Ingimundarson snýr þama á Brad Leaf. Þeir tveir voru einmitt stigahæstir
i liðum sínum í gær en þá áttust við íslenska landsliðið í körfubolta og Hapoel frá ísrael. Leaf gerði 25 stig en Vaiur skoraði 20.
DV-mynd Brynjar Gauti
Vestmannaeyingar enn í fallsæti í 1. deild:
5 víti í vaskinn
- er Eyjamenn lágu heima gegn Víkingum, 1&-20
Friðbjöm Valtýsson, DV, Eyjum:
Víkingar gerðu góöa ferð til Vest-
mannaeyja í gærkvöldi og sigraðu lið
ÍBV, 18-20. Leikurinn, sem var höur í
1. deildar keppni karla í handknattleik,
var býsna fjörugur en ekki vel spilaður
að sama skapi.
Víkingsliðiö viröist ekki svipur hjá
sjón miöað viö síöustu ár og Eyjamenn
eiga bersýnilega langt í land.
Þeir misnotuðu meðal annars 5 vita-
köst og má segja aö þetta sé annar leikur
liösins á tímabilinu þar sem vítaköstin
ráöa úrslitum en Eyjamenn biluöu í 7
vítum gegn FH-ingum á dögunum.
Víkingar höíðu yfirleitt frumkvæðið í
leiknum og höíðu forystu í hléi, 9^1. ÍBV
jafnaði þó strax eftir tesopann, 11-11, og
er 10 mínútur voru til leiksloka var staö-
an hins vegar aftur gestunum í vil, 16-17.
Þeir reyndust síðan menn til aö halda
fengnum hlut, voru sterkari á enda-
sprettinum og unnu örugglega, 18-20.
Yfirburöamenn í liði Eyjamanna voru
Sigmar Þröstur í markinu og Sigurður
Gunnarsson sem gerði mörg ágæt mörk.
Víkingsliðiö var mjög jafnt í þessum
leik en Sigurður Jensson var þó einna
mest áberandi en hann varöi vel.
Mörk ÍBV: Sigurður Gunnarsson 8,
Sigbjöm Óskarsson 4/1, Höröur Pálsson
2, Siguröur Friðriksson 2, Björgvin
Rúnarsson 1, Þorsteinn Viktorsson 1.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 4/1,
Árni Friðleifsson 4/2, Siggeir Magnússon
3, Karl Þráinsson 3/1, Sigurður Ragnars-
son 3/1, Guðmundur Guðmundsson 2,
Einar Jóhannesson 1.
Dómarar vom Árni Sverrisson og Egill
Markússon, voru ekki slakari en aörir á
vellinum.
Staðan
1 Valur ....10 10 0 0 266-197 20
2 KR ....10 8 0 2 256-229 16
3 Stjarnan ....10 7 0 3 229-207 14
4 FH ....10 6 0 4 265-247 12
5 Víkingur.... ....10 4 1 5 252-266 9
6 KA ....10 4 0 6 233-235 8
7 Grótta .... 9 3 1 5 187-202 7
8 Fram ....10 1 3 6 210-246 5
9 ÍBV .... 10 1 2 7 202-234 4
10 UBK .... 9 1 1 7 191-228 3
Góð ferð
Framkvenna
yf ir heiðar
- unnu Þór, 14-22
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Framstúlkur geröu góða ferð norður
yflr heiðar í gærkvöldi. Þar öttu þær
kappi við stallsystur sinar úr Þór í 1.
deild í handknattleik.
Þórsstúlkur áttu litla möguleika
gegn meisturunum sem unnu öruggan
sigur, 14-22, en í hléinu var bilið 3
mörk, 7-10. Guðríður Guðjónsdóttir
var atkvæðamest í liði Fram, eins og
oft áður, en hún gerði 8 mörk.
Inga Huld Pálsdóttir gekk vasklegast
fram í hði Þórs og gerði 6 mörk.
íþróttir
-ingar með
Skota í sigtinu
- svipast um eftir miðjuleikmanrti og vamarmaimi í Skotlandi
Eóberl Robertssan, DV, Glasgow:
Svo kann aö fara að tveir skoskir
knattspymumenn leiki með nýlið-
um FH í 1. deildinni í knattspymu
á komandi tímabili.
Hafnarftarðarliöiö, sem vann 2.
deildina í fyrra, hefur handgenginn
mann í Skotlandi sem er að svipast
um eftir leikmönnum eftir því sem
heimildir DV herma.
Hefur sá aðili nú gríðarlega leik-
reyndan knattspymumann í sigt-
inu, mann sem hefur spilað á
fimmta hundrað leiki í bresku
deildar- og bikarkeppninni, bæði í
Skotlandi og Englandi, og skoraö í
þeim á áttimda tug marka.
Getur leikið hvaða
stöðu sem er
Þessi leikmaður, sem er mjög al-
hliöa aö sögn heimildarmanns og
getur leikið nánast hvaða stöðu
sem er á vellinum, hefur verið í
röðum Dundee og Hibemian i
.Skotlandi en í liði Bristol City i
Englandi.
Þess má geta að breskur knatt-
spymumaður hélt um stjómvölinn
hjá FH í 1. deildinni 1987, Ian
Flemming að nafni, og lék hann
samhliða því sem hann þjálfaði lið-
ið.
Níu ungmenni
til Albertville
- í boði ól-neöidar Frakka og undirbúningsaðila leikanna 1992
Franska ríkisstjómin, ásamt
ólympíunefnd Frakklands og undir-
búningsaðilum vetrarleikanna í Al-
bertville, hafa ákveðiö aö bjóða 2000
ungmennum alls staðar að úr heim-
inúm í kynnisferð til keppnisstaðar-'
ins á tímabilinu frá 1988 til 1992. Vetr-
arleikamir fara einmitt fram síðast-
talda árið. Er ætlað að hópar ungl-
inga dvelji 10 daga hver í Savoie-
héraði í Albertville og er ferðakostn-
aður og uppihald greitt af Frökkum.
Markmiðiö með þessu boði er að
efla samhug og styrkja ólympíuhug-
sjónina í heiminum.
Fyrir nokkm barst ólympíunefnd
íslands boð um að senda 9 ungmenni
ásamt fararstjóra til Frakklands til
dvalar þar frá 3.-13. janúar. Ólymp-
íunefndin hefur þekkst þetta boð og
munu eftirfarandi halda utan:
Halldóra Blöndal.........Seyðisfirði
Sigurður Hreinsson...........Húsavík
María Magnúsdóttir..........Akureyri
Bjami Jóhannsson..............Dalvík
Guömundur Óskarsson.......Ólafsfirði
Valdís Arnardóttir.........Reykjavík
Margrét Rúnarsdóttir........ísaflrði
Sölvi Sölvason............Siglufiröi
Daníel Jakobsson............Isafirði
Fararstjóri verður Hreggviöur Jóns-
son.
„Það var lagt til grundvaUar að
þessi börn væm af öllum skíðasvæö-
um á landinu," sagQi Siguröur Ein-
arsson hjá skíöasqpibandinu, að-
spurður hvað heföi»ráðiö valir.u á
unglingunum nvi.
„Þau ungmenni sem vom valin oru
keppnisfólk en þó ekki úr landsliöi
þar sem þetta er ekki beinhörð
íþrótta- eða keppnisferð heldur
kynnisferð þar sem bömin munu
kynnast landi og þjoö og unglingum
frá fjölmörgum öðrum þjóðum,"
sagði Sigurður við DV.
JÖG
Þór
hættir
Þór frá Akureyri er hættur viö
þátttöku í bikarkeppni KKÍ. Sam-
kvæmt upplýsingum KKI er það
vegna kostnaðar. Þór átti aö leika
við sigurvegara úr viðureign
Vestur-Húnvetninga og Breiða-
bliks í 16 liða úrslitum. UBK vann
þar fyrri leikinn, 59-A7.
-VS
UIMFN áfram
B-Iið Njarðvíkinga vann í gær
lið Laugdæla, 91-63, í bikar-
keppni KKÍ. B-liðið er utan deilda
en liö Laugdæla er í 1. deild. Stað-
an var 40-30 í leikhléi og má segja
að Njarðvíkingar hafi fariö nokk-
uð létt með andstæðinga sína. í
liðinu em meöal annars Júlíus
Valgeirsson, Árni Lárusson, Þor-
steinn Bjamason og Stefán
Bjarkason. ÆMK
„Einvígi ársinsu í snóker hér á landi 17. janúar:
Einvígi á teppa-
lögðu dansgólfi
- tveir af þremur bestu 1 heimi leika á Hótel íslandi
Steve Davis - hafði 90 milijónir
króna i tekjur á siðasta ári.
Neal Foulds - þriðji besti atvinnu-
maðurinn í snóker.
„Þetta er gífurlega kostnaðarsamt
fyrirtæki en að sama skapi spenn-
andi. Þetta er einstakur viðburður
og við vonum að þetta einvígi verði
íþróttinni hér á landi til uppdrátt-
ar,“ sagði Kjartan Kristjánsson í
Gleraugnaverslun Keflavíkur sem
stendur fyrir komu tveggja sntilinga
í snóker hingað til lands um miðjan
þennan mánuð. Hér er um aö ræða
einvígi þeirra Steve Davis og Neal
Foulds og fer það fram á Hótel ís-
landi 17. janúar.
Steve Davis ætti að vera íþróttaá-
hugafólki að góðu kunnur en marg-
oft hefur hann sést innbyrða glæsi-
lega sigra í sjónvarpinu. Hann er
fimmfaldur heimsmeistari og enginn
breskur íþróttamaður vann sér inn
meiri peninga á síðasta ári en Steve
Davis. Samtals vann hann sér inn
um 90 mtiljónir króna. Davis er að-
eins 31 árs gamall en 31. október sl.
var hann sæmdur MBE orðunni af
Elísabetu Bretadrottningu fyrir
framlag sitt tti snókeríþróttarinnar.
Steve Davis býr hjá foreldrum sínum
og er ógiftur.
Foulds sá 3. besti
Andstæðingur Steve Davis á Hótel
íslandi verður landi hans Neal Fo-
ulds en hann er 3. besti atvinnusnó-
kerspilari í heiminum í dag. Foulds
er ungur en í mikilli sókn og ekki
eru nema nokkrir mánuðir síðan
hann vann Davis í úrslitum á mjög
sterku móti atvinnumanna. Davis
hefur því harma að hefna er að ein-
víginu kemur hér á landi.
Einvígi á teppa-
lögðu dansgólfinu
Eins og fram hefur komiö fer einvígi
snillinganna tveggja fram á Hótel
íslandi 17. janúar. Gífurlega stóru og
miklu snókerborði verður komið fyr-
ir á miðju dansgólfinu og dansgólfið
verður teppalagt. Eflaust hafa mörg
einvígi verið háð á dansgólfinu á
Hótel íslandi um dagana en gera
verður ráð fyrir því að einvígi þeirra
Steve Davis og Neal Foulds taki hin-
um fram. Þess má geta að snóker-
borðið vegur um 1,4 tonn, er þyngra
en meðalstór bifreið. Þá kemur hing-
að til lands sérfræðingur til að gera
borðið klárt fyrir átökin. Þá veröur
sérstökum áhorfendastæðum fyrir
500 manns komið fyrir á Hótel ís-
landi og er því eins gott fyrir áhuga-
sama menn um snóker að fara að fá
sér miða. Þeir em tti sölu á flestum
billiardstofum landsins og í Btiliard-
búöinni Ármúla.
-SK
v '