Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1989, Qupperneq 32
FR ÉTT AS KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989.
Thor fékk ekki
heiðurslaun
Óvænt uppákoma varö viö lok
umræðunnar um fjárlögin í nótt þeg-
,«**ar fram kom tillaga um aö bæta
tveim listamönnum, þeim Atla Heimi
Sveinssyni og Thor Vilhjálmssyni, '
inn á heiðurslaunalista listamanna.
Kom tillagan frá ráðherrum Al-
þýöubandalagsins en átti þó ekki að
flytjast í nafni ríkisstjórnarinnar.
Mun þó forsætisráðherra hafa veitt
samþykki sitt.
Var leitað til fulltrúa annarra
flokka um að flutningsmenn tillög-
unnar kæmu úr öllum flokkum en
það hefði þurft að leita afbrigða ef
tillagan hefði átt að vera samþykkt.
Fannst þeim seint komið fram með
tillöguna og neituðu að vera með
nema þeir fengju að bæta við fleiri
mönnum. Hafði einhver á orði að list-
^-jjnn hefði fljótlega verið kominn upp
í 20 manns. Ekkert varð því af flutn-
ingi tillögunnar.
Fjórir listamenn komust í heiður-
launaflokka í fyrsta sinn í nótt: Jó-
runn Viðar, Kristján Davíðsson, Þor-
steinn Ö. Stephensen og Jakobína
Sigurðardóttir. -SMJ
Menntamálaráðherra:
Þetta er hney ksli
„Það er hneyksli að Alþingi skuli
ekki fallast á að taka inn listamenn
eins og Atla Heimi og Thor Vil-
hjálmsson sem hafa fengið sérstaka
viðurkenningu allra Norðurland-
anna,“ sagði Svavar Gestsson
menntamálaráðherra er DV spurði
hann álits á því að tillaga þessa efn-
is, sem kom frá Alþýðubandalags-
ráðherrum í nótt, skyldi ekki fá
brautargengi á þingi.
„Ég tel að þetta kerfi, að Alþingi
úthluti heiðurslaunum til lista-
manna, hafi gengið sér til húðar og
að því eigi að breyta. Ég mun beita
mér fyrir því að allt launakerfi lista-
manna verði tekið til endurskoðunar
og endurmats.
Aðdragandinn aö þessu máli var
" ~sá að ekkert samkomulag hafði verið
gert um val listamannanna. Það voru
atkvæði menntamálanefndanna sem
réðu því. Ég og fjármálaráðherra,
Ólafur Ragnar Grímsson, vorum
mjög óánægðir með að gengiö væri
fram hjá þessum tveim umræddu
mönnum," sagði Svavar. -JSS
NÝJÁ
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GOÐIR BILAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
LOKI
Eru þetta heiðurslaun
eða ellilaun?
Kona vaknaði með innbrotsþjóf á rúmstokknum:
„Fitlaði við hár mitt og
VllÁtf ■ im Imlammáíi
wtfdllli IIIUb Ulll Td?lUi
Ung kona vaknaði við að inn-
brotsþjófur sat á rúmstokknum og
reyndi að taka af henni sængina.
„Ég stífnaði upp þegar ég varð
mannsins vör. Hann togaði í sæng-
ina og ósjálfrátt settist ég upp og
togaði á móti. Maðurinn sagði:
„Vertu ekki smeyk, ég ætla ekki
að meiða þig.“ Það eina sem ég gat
stunið upp var að ég bað hann að
fara,“ segir konan sem fékknætur-
heimsóknina.
Grétar Sæmundsson hjá Rann-
sóknarlögreglunni segist kannast
við málið sem geröist fyrir mánað-
armótin í Reykjavík, en enn hefði
það ekki verið upplýst. Rannsókn-
arlögreglan hefur fleiri mál af sama
toga til rannsóknar.
Konan svaf í kjallaraíbúð í húsi
foreldra sinna og átti sér einskis
ills von þegar hún vaknaði um
klukkan fimm að næturlagi.
„Maðurinn var rólegur þegar
hann vakti mig. í fyrstu hélt ég að
einhver í fjölskyldunni væri að
vekja mig. Maðurinn fltlaöi við hár
mitt og strauk mér um fæturna. .
Hann var kurteis og talaöi í sí-
fellu um að ég þyrfti ekkert að ótt-
ást, hann skyldi ekki meiða mig.
Ég sat í rúminu og kom engu öðru
út úr mér en að ég bað hann að
fara. Eiginlega bjóst ég við að hann
mundi stinga mig á hol og mis-
þyrmamér, ég var svo hrædd. Blíð-
mæli mannsins drógu ekki úr
hræðslunni."
Eftir að maðurinn hafði setið á
rúmstokknum í rúman hálftíma
féllst hann á að fara. „Hann rétti
mér meira að segja höndina þegar
hann kvaddi og baöst afsökunar á
ónæðinu,“ segir konan.
Ég gat ekki fundið neina áfengis-
lykt af manninum en lögreglan
sagði mér aö mestar líkur væru á
að hann hefði verið undir áhrifum
fíkinefna," segir konan sem vill
ekki láta nafns síns getiö.
Eftir innbrotið er konan hrædd
viö að vera á ferli eftir að skyggja
tekur en það var hún ekki áður.
Það kom á daginn að innbrotsþjóf-
urinn hafði stolið ýmsu smálegu í
íbúðinni. Að sögn Grétars Sæ-
mundssonar er töluvert um að
. fíkniefnaneytendur fremji ýmiss
konar auðgunarafbrot til að fjár-
magná neysluna. Hann taldi þó
ekki tímabært að kveða upp úr
hvort það hefði verið eiturlyfja-
neytandi sem settist á rúmstokk
ungukonunnar. -pv
Hægt er að keyra pokana út á bílastæði í innkaupakerrunum, eins og þarna
sést. Viðskiptavinurinn er þarna með stærri innkaupapokann, sem er ansi
myndariegur um sig, eins og sjá má.
DV-mynd BG
Hagkaup flytur inn sérstaka innkaupapoka:
Passa í innkaupa-
kerrur verslana
„Þessum innkaupapokum er eng-
an veginn stefnt gegn Landverndar-
pokunum. Þetta er einungis valkost-
ur sem við bjóðum viðskiptavinun-
um. Með þessu erum við líka að
stemma stigu við að fólk beri inn
alls konar töskur og ráptuðrur,"
sagði Jón Ásbjörnsson, verslunar-
stjóri í Hagkaupi, í samtali við DV.
Á næstu dögum mun verslunin
bjóða viðskiptavinum sínum upp á
nýja og óvenjulega gerð innkaupa-
poka. Þeir eru sagðir mjög sterkir,
enda úr seglaplasti. Pokarnir verða
til í tveim stærðum og munu passa
í innkaupakerrur verslunarinnar.
Hinir stærri rúma talsvert af vörum,
eða a.m.k. tvöfalt það magn sem
venjulegur plastpoki tekur. Þeir
verða seldir í versluninni og munu
kosta um 250 krónur en hinir minni
150 krónur. Einnig veröa seldir plast-
pokar sem merktir verða Landvernd.
„Pokarnir eru sterkir og það er
ætlast til að þeir séu notaðir aftur
og aftur,“ sagði Jón. „Þeir verða ekki
merktir Hagkaupi né seldar á þá
auglýsingar. Við munum selja þá á
kostnaðarverði. Með þessu reynum
við að koma til móts við þá viðskipta-
vini okkar sem ekki vilja kaupa ein-
nota plastpoka né vera á ferðinni
með fyrirferðarmiklar innkaupa-
töskur, því tómum pokunum má
rúlla saman og þá fer lítið sem ekk-
ertfyrirþeim.“ -JSS
Ráðningu Vals frestað?
Búist er við því að ráðningu Vals
Arnþórsson í stöðu bankastjóra
Landsbankans verði frestað á fundi
bankaráðs Landsbankans í dag. í
ráðningarsamningi Vals við bank-
ann stendur skýrt og skorinort að
hann sé ráðinn frá 1. janúar enda
uppfylli hann þá ákvæði bankalag-
anna um að vera laus úr öðrum störf-
um. Það er Valur ekki. Hann hefur
beðið um frí í bankanum til að ljúka
störfum sínum hjá samvinnuhreyf-
ingunni.
Pétur Sigurðsson, formaður bank-
aráðs Landsbankans, sagði í morgun
aö það væri túlkunaratriði hvort
Valur væri orðinn bankastjóri þar
sem hann hefði ekki tekið að sér
nein trúnaðarstörf ennþá og að það
hefði orðið að samkomulagj á milli
hans og bankans að hann fengi að
ljúka við störf sín hjá samvinnu-
hreyfingunni.
-JGH
Veðriö á morgun:
Rigning
og slydda
Á morgun verður norðaustan-
átt og slydda á Vestfjörðum en
annars suðvestlæg eöa breytileg
átt og rigning um mestallt landið.
Hitinn verður 1-3 stig.
„Fjármaður-
inn“ játar
tvö brot
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Akureyringur á miðjum aldri hef-
ur við yfírheyrslur hjá rannsóknar-
lögreglunni á Akureyri játað að hafa
misþyrmt kindum í fjárhúsum þar í
bænum í tvígang.
Aðfaranótt Þorláksmessu braust
maðurinn inn í íjárhús og misþyrmdi
kynferðislega tveim gimbrum og
kind með þeim afleiðingum m.a. að
aflífa varð gimbrarnar. Maðurinn
hefur einnig játað sams konar athæfi
fyrir um ári í öðru fjárhúsi þar
skammt frá.