Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 8
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989. 8 > Viðskipti________________________________ dv Þrýst á að Geir Gunnarsson taki við í Búnaðarbankanum Rikisstjómarflokkamir þrýsta nú mjög á Stefán Valgeirsson, formann bankaráðs Búnaðarbankans, að mynda meirihluta í bankaráðinu með bankaráðsmönnunum Hauki Helgasyni, fulltrúa Alþýðuflokksins, og Þórunni Eiríksdóttur, fulltrúa Alþýðubandalagsins, við ráðningu bankastjóra í stað Stefáns Hilmars- sonar sem hættir um áramótin. Stef- án Valgeirsson hefur ekki tekið ákvörðun ennþá. Ríkisstjórnarflokk- amir eru enn ekki á eitt sáttir um það hver fær stöðuna. Alþýöuflokks- menn telja sig eiga hana en sam- kvæmt heimildum DV vilja alþýðu- bandalagsmenn fá stóhnn og þrýsta á um Geir Gunnarsson í þvi sam- bandi. Geir er sérfræðingur í fjárlögum ríkisins Geir Gunnarsson er þingmaöur Alþýðubandalagsins í Reykjanes- kjördæmi. Hann hefur setið á Alþingi í næstum 30 ár. Hann er sérfræðing- ur flokksins í fjárlögum og af störfum hans í fjárveitinganefnd fer mjög gott orð. Hann nýtur virðingar langt út fyrir raðir Alþýðubandalagsins sem klár maöur um fjármál ríkisins. Loks má geta þess að Geir er efsti maður á lista Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi. Varaþingmað- ur hans er Olafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins og fjármálaráðherra. Finnbogi Rútur og fleiri Alþýöubandalagsmenn eiga engan bankastjóra núna í bankakerfinu eft- ir að Guðmundur Hjartarson, banka- stjóri Seðlabankans, lét af því starfi. Áður hafa verið þekktir alþýöu- bandalagsmenn í bankastjórastólum Útvegsbankans. Þar nægir helst aö Veitingahús á íslandi eru gjald- þrota samkvæmt könnun sem Þjóð- hagsstofnun hefur gert. Eiginfjár- hiutfall þeirra er neikvætt um hvorki meira né minna en 30 prósent. Það þýðir að skuldir eru um 30 prósent meiri en eignir veitingahúsa. Könn- un Þjóðhagsstofnunar byggist á úr- taki veitingahúsa sem tekin vóru til skoðunar. Þetta er Ijót mynd sem dregin er upp af stöðu veitingahúsa. Eiginfjárhlut- fall þeirra er neikvætt um 30 pró- sent. Það þýðir að skuldir eru 30 prósent' meiri en eignir. Á ein- földu máli heltlr það gjaldþrot. Stefán Hilmarsson hefur verið bankastjóri i 28 ár. nefna Finnboga Rút Valdimarsson, Ármann Jakobsson og Ólaf Helga- son. Alþýöubandalagsmenn segja við samstarfsmenn sína í ríkisstjórn- inni, framsóknarmenn og krata, að þeir vilji bankastjórastól Stefáns Hilmarssonar vegna þess að enginn alþýðubandalagsmaður sitji núna í bankastjórastól. Þeir benda á að í íslandsbanka sitji einn krati og tveir sjálfstæðismenn sem bankastjórar, að í Landsbanka sé einn krati, einn framsóknarmaður og einn sjálfstæð- ismaður bankastjórar. Ennfremur sé enginn alþýðubandalagsmaður í Búnaðarbanka og Seðlabanka. Geir áður orðaður við bankastjórastól Geir Gunnarsson hefur áður verið orðaður við bankastjórastól Búnað- arbankans. Það var í fyrra þegar Kjartan Jóhannsson var einnig sem mest orðaður við stöðuna. Geir kvað einnig hafa verið orðaður við stöð- „Þessi könnun gefur ljóta mynd af íjárhagsstöðu veitingahúsa á íslandi. Úrtakið er aö vísu frekar litið en engu að síður tel ég að könnunin sýni glöggt að staðan er mjög slæm í þessum rekstri," segir Þórður Frið- jónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Það er athyghsvert að rekstur hót- ela og gististaða er miklu betri. Þar er staöan jákvæð og eiginfjárhlut- fallið um 14 prósent. í bréfi, sem Ema Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Veitinga- og gisti- húsaeigenda, hefur sent þingmönn- um, segir hún að fyrirtæki í ferða- þjónustu á íslandi séu almennt skatt- lögð meira en aðrar gjaldeyrisskap- andi atvinnugreinar. Hún nefnir þar sérstaklega söluskatt á veitingahús, bílaleigur og bætir við að ferðaþjón- ustan greiði hæsta þrep launaskatts, eða 3,5 prósent, á meðan aðrar gjald- eyrisskapandi atvinnugreinar sleppi við slíkan skatt. í skýrslu Þjóðhagsstofnunar um ferðaþjónustuna, sem Þórður Frið- Geir Gunnarsson þykir manna kiár- astur um fjármál ríkisins. una þegar Stefán Pálsson var ráðinn bankastjóri. Stefán Hilmarsson, sem um ára- mótin lætur af störfum bankastjóra Fréttaljós Jón G. Hauksson eftir 28 ára setu sem bankastjóri, hafði sagt munnlega við bankaráð Búnaðarbanka fyrir tveimur árum að hann ætlaði að hætta. Þegar Stef- án frétti hins vegar að sjálfstæðis- menn, framsóknarmenn og kratar sömdu um að Kjartan Jóhannsson yröi næsti bankastjóri hætti hann við að hætta. Þar með kom babb í bátinn. Stefán vill Sólon Raunar segja heimildir DV að Stef- án Hilmarsson vilji sjá Sólon Sig- urðsson, aðstoðarbankastjóra Bún- jónsson lagöi fram á aöalfundi Sam- bands veitinga- og gisthúsa nýlega, kemur fram mjög fróðlegt yfirlit yfir gjaldeyristekjur af erlendum ferða- mönnum á síðustu árum. Tekjumar hafa stórlega aukist á síðustu árum. Þetta sést vel þegar tekjumar af Olafur Ragnar Grimsson er vara- þingmaður Geirs Gunnarssonar. aðarbankans, sem eftirmann sinn. Hann hafi orðað það við Stefán Val- geirsson. Til þess að svo geti orðið þarf Stefán að mynda blokk með sjálfstæöismönnunum tveimur í bankaráðinu, þeim Friðjóni Þórðar- syni og Halldóri Blöndal. Á síðari ámm hefur komið upp mikil krafa innan bankakerfisins að í bankastjórastóla séu bankamenn ráðnir en ekki þingmenn sem em að hætta. Þetta kom glöggt í ljós þegar Sverrir Hermannsson var ráðinn í Landsbankann. Þá vildi Jónas Har- alz sjá Tryggva Pálsson sem eftir- mann sinn. Það gekk ekki eftir og Tryggvi var síðan ráðinn til Verslun- arbankans. Síöan settist framsókn- armaðurinn og fyrrverandi stjórnar- formaöur SÍS, Valur Arnþórsson, í bankastjórastól Landsbankans í stað framsóknarmannsins Helga Bergs. Sólon og Sveinn Af þeim innanhússmönnum Bún- aðarbankans sem líklegastir era til erlendum ferðamönnum eru skoðaö- ar sem hlutfall af útfluttum vöram og þjónustu. Þær voru um 4 prósent af heildarútflutningnum árið 1981 en vora komnar í 8,6 prósent á síðasta ári. Annað sem vekur athygli í skýrslu Þjóðhagsstofnunar er sú feikilega aukning á fjölda starfa við veitinga- og hótelrekstur. Sem hlutfall af heildarmannafla er aukningin einnig mikil. Hlufallið var um 1,8 prósent fyrir tíu árum en er nú aö nálgast 3 prósentin. Hin mikla aukning á starfsmanna- fiölda við veitinga- og gistihúsarekst- ur er aftur hugsanleg skýring á gjald- þrotastöðu veitingahúsanna. Að of mörg veitingahús hafi verið sett á laggimar á undanfömum áram mið- aö viö markaöinn og hin ógurlega samkeppni hafi stefnt þeim öllum í gálgann. -JGH að hreppa stólinn, verði innanhúss- maður fyrir vahnu, eru aðstoöar- bankastjórarnir Sólon Sigurðsson og Sveinn Jónsson. Aðstoðarbanka- stjórarnir Hannes Pálsson og Krist- inn Zimsen era ekki eins líklegir. Hannes er raunar senjórinn af þeim fjóram, hann hefur unnið í Búnaðar- bankanum í 50 ár. Áður hefur hann lent í slag um bankastjórastól en tap- aö. Þegar Kjartan Jóhannsson, þing- maður Alþýðuflokksins, náði ekki að verða bankastjóri Búnaðarbankans, þar sem Stefán Hilmarsson hætti við að hætta, var hann gerður að sendi- herra í Genf. Og ekki virðast sendi- herrastöður liggja á lausu núna. Spennan í kringum Búnaðarbank- ann er ekki síst mikil fyrir þær sakir að „gamli maðurinn“, Stefán Val- geirsson, hefur ekki gert upp hug sinn ennþá. Þess vegna liggur enginn öruggur meirihluti fyrir í bankaráð- inu. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 8-11 Úb,V- b,S- b,Ab,Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 8,0-13 Úb.Vb 6mán. uppsögn 9-15 Vb 12mán. uppsögn 9-13 Úb.Ab 18mán.uppsögn 25 Ib Tékkareikningar, alm. 2-5 Sp Sértókkareikningar 4-11 Vb.Sb,- Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 0,75-2 Vb 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2,5-3,5 Ib 10-21 Vb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7,25-8 Ab.Sb Sterlingspund Vestur-þýskmork 12,5-13 Sb, 5,75-6,25 Ib.Ab Danskar krónur 8-8,75 Bb.lb,- Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv) 26-29 lb,V- b.Sb.Ab Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 28-32,25 Vb Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 30-35 Sp útlán verðtryggð Skuldabréf 7,25-8,25 lb,V- b,Ab Útlántilframleiðslu Isl.krónur 25-31,75 Vb SDR 10,25 Allir Bandarikjadalir 10,5-10,75 Úb Sterlingspund 15,5 Allir Vestur-þýsk mörk 8,25-8,75 Úb.S- b.Sp Húsnæöislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 38,4 MEÐALVEXTIR överðtr. okt 89 27,5 Verðtr. okt. 89 7,4 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala okt. 2640 stig Byggingavísitala okt. 492 stig Byggingavísitala okt. 153,7 stig Húsaleiguvísitala 3,5%hækkaöi 1, okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,310 Einingabréf 2 2,382 Einingabréf 3 2,829 Skammtimabréf 1,479 Lífeyrisbréf 2,167 Gengisbréf 1,908 Kjarabréf 4,262 Markbréf 2,254 Tekjubréf 1,806 Skyndibréf 1.285 Fjölþjóöabréf 1,268 Sjóösbréf 1 2,077 Sjóðsbréf 2 1,632 Sjóðsbréf 3 1,459 Sjóðsbréf 4 1,224 Vaxtasjóðsbréf 1,4575 HLUTABREF Söluverö aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 318 kr. Eimskip 386 kr. Flugleiöir 170 kr. Hampiöjan 168 kr. Hlutabréfasjóður 156 kr. lönaöarbankinn 168 kr. Skagstrendingur hf. 228 kr. Útvegsbankinn hf. 144 kr. Verslunarbankinn 148 kr. Tollvörugeymslan hf. 110 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- Inn birlast i DV á fimmtudögum. "('lCiippgrehusíh)3 Innbyggíngarsett Ofn og keramik. hellu- borð með halogen hellu. Verð áður 111.016 kr. Verð nú 83.262 kr. stgr. Ofn og venjulegt helluborð. Verð áður 83.421 kr. Verð nú 66.737 kr. stgr. Lækjargötu 22 "Tfafnarfirði Könnun Þjóðhagsstofnunar: Veitingahúsin eru gjaldþrota Fjöldi starfa viö veitinga- og hótelrekstur 1978-87 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 Fjöldi starfsmanna í feröaþjónustunni hefur aukist ótrúlega á síðustu árum. Hvergi er aukningin jafnmikil nema hjá fjármálastofnunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.