Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 41
41 MÁNUDAGUR 23. OKTÓEIER 1«39. DV LífsstHL Eggjabændur yilja draga úr framboði á eggjum - rætt um kaup á 120 tonna kvóta Stjórn, félags eggjaframleiöenda hefur rætt hugsanleg kaup á 120 tonna eggjakvóta til þess minnka framboð á eggjum og koma í veg fyr- ir verðlækkun. Heildarframleiðsla á ári er nú um 2.500 tonn þannig að hér er um að ræða 5% af heildinni. Rætt hefur verið við Reykjagarð hf. í Mosfellssveit um sölu á umræddu magni fyrir 30 milljónir króna. „Það er aðeins verið að ljúka við að kaupa upp kvóta samkvæmt því Neytendur sem ákveðið var 1988,“ sagði Einar Eiríksson, bóndi í Miklholtshelli og formaður Félags eggjaframleiðenda, í samtali við DV. „Þetta hefur hins vegar aðeins verið rætt innan stjórn- arinnar en ekki endanlega ákveðið." Hann sagði að eggjabændum fyndist verð á eggjum viðunandi og mætti þaö ekki vera lægra. „Þetta hefur verið orðað við mig. Ég sagði ekki nei og er að skoða málið,“ sagði Bjami Asgeir Jónsson, annar af eigendum Reykjagarðs, í samtali við DV vegna þessa máls. Offramleiðslu gætir htið enn en bændur munu hafa áhyggjur af framvindu mála. í ágúst vom 100 tonn af eggjum til á lager samkvæmt skýrslum Framleiðsluráðs. „Það er ekki mikið þegar haft er í huga að stærstu sölumánuðirnir era eftir enn,“ sagöi Eiríkur Einarsson, starfsmaður Félags eggjaframleið- enda, í samtali við DV. Heimildir DV herma að samdráttur hafi orðið í eggjasölu sem nemur 5% á þessu ári en Eiríkur kvaðst ekki hafa neinar áreiðanlegar tölur yfir það. Egg hafa hækkað langtfram yfirvísitölu Kíló af eggjum kostar nú 407 krón- ur út úr búð en það var hækkað síð- ast 1. september, um 6%. Þegar verð á eggjum er borið saman við fram- færsluvísitölu kemur í ljós að frá því í apríl á þessu ári hafa egg hækkað um 24,1% en á sama tíma hefur visi- talan hækkað um 11,5%. Frá því í júní 1984 hafa egg hækkað um 311,8% en framfærsluvísitalan á sama tíma hefur hækkað um 208%. Fóðurgjalds- sjóðurborgar Kaupin fara þannig fram að Félag eggjaframleiðenda leysir til sín kvóta og greiðir viðkomandi bónda um- samið verð fyrir. Heimildir DV herma að rætt hafi verið um 30 millj- ónir fyrir kvóta Reykjagarðs. Féð kemur úr svokölluðum Fóðurgjalds- sjóði sem allir framleiðendur greiða í. Kvótann getur Félag eggjafram- leiðenda síðan selt áfram til annarra bænda eða látið hann Uggja ónýttan eins og gert var 1988 þegar kvóti var minnkaður til að draga úr framboði. Jólastjömur hvað? Enn eru rúmir tveir mánuðir til jóla en engu að síöur eru fyrstu jóla- stjömurnar komnar í blómabúðir. Ljósmyndari DV rakst á þessa í BlómavaU við Sigtún. „Jólastjörnurnar eru að verða til- búnar hjá blómabændum svo okkur fannst alveg tilvahð aö hafa þær á boðstólum fyrst þær era til,“ sagði Kristinn Einarsson sölustjóri í sam- tali við DV. -Pá DV-mynd GVA Teg. 1388, svart, brúnt, nubuck og leður. Verð 2.380. 'örbylgjuojiiar á útsölu MW 614.3 14W Verð áður 28.195 kr. MW 622.3 22W Verð áður 40.298 kr. Verð nú 16.917 kr. stgr. Verð nú 24.178 kr. stgr. ' W ajfa-h-a. Lækjargötu 22 **Hafnarfirði Eggjabændur vilja draga úr framboði á eggjum til þess að koma i veg fyr- ir offramleiðslu og verðlækkun. Einar Eiríksson staðfesti að ef af kvótakaupunum yrði myndi kvótinn ekki verða framseldur öðrum eggja- bændum. Gangi umrædd kaup í gegn ræður Félag eggjaframleiðenda yfir ónýtt- um kvóta sem nemur alls 10% af hefidarframleiðslu og hefur þar með öll tök á aö stýra framboði á eggjum. Mótmælum harðlega, segir formaður Neyt- endasamtakanna „Ég hlýt að mótmæla þessum áformum harölega," sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna, í samtali við DV. „Þetta er bein afleiðing af því kvóta- og ein- okunarkerfi sem komið var á í eggja- framleiðslu fyrir nokkrum árum og Neytendasamtökin mótmæltu á sín- um tíma og töldu aö myndi einungis leiða til verðhækkunar. Það að bændur skuh bregðast við minni sölu með þvi að minnka fram- boðið í stað þess að lækka verð sýnir best hversu þetta kerfi er neytendum andsnúið," sagði Jóhannes. -Pá Nýkomið Teg. 39976, svartir meö stömum, góðum sóla. Verð 4.995. Krybban sem fannst í eplakassa i Breiðholtinu. DV-mynd KAE Padda í eplakassa Þaö varð uppi fótur og fit í stórri matvöruverslun í Breiðholti þegar stór og torkennileg padda birtist í eplakassa sem verið var aö pakka eplum úr. Eitthvert líf leyndist með kvikindinu fyrst eftir að það kom upp úr kassanum en það lést fljótlega. Erling Ólafsson, skordýrafræðing- ur á Náttúrufræðistofnun, bar kennsl á dýrið og sagði í samtali við DV að hér væri krybba á ferö. Krybb- ur eru algengar víða erlendis og ber- ast stöku sinnum til íslands með brettum og kössum ýmiss konar. Erling sagði að þrátt fyrir ófrýnilegt útlit væru þetta sauðmeinlaus dýr sem dræpust yfirleitt fljótlega hér uppi á klakanum. -Pá 12921, brúnir og vartir með mjög góðum Póstsendum Skóverslun Helga Völvufelli 19 Fellagörðum Sími 74566

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.