Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 42
42 MÁÍýUDAGIjIR 23, OKTÓBER 1989. Afmæli Gudmundur Heiðreksson Guðmundur Heiðreksson, deild- arstjóri á hönnunnardeild Vega- gerðar ríkisins á Akureyri, til heim- ilis að Hjallalundi 18, Akureyri, er fertugurídag. Guðmundur fæddist á Akureyri og ólst þar upp í foreldrahúsum á Eyrinni. Hann stundaöi nám við Tækniskólann í Reykjavík og lauk þaðan námi í byggingatæknifræði 1972. Að námi loknu starfaði Guð- mundur á verkfræðistofu í Reykja- vík í eitt ár en flutti síðan ciftur norð- ur á Akureyri þar sem hann hefur starfað sem deildarstóri hjá Vega- gerðinnifrál973. Guðmundur hefur starfað að íþróttamálum á Akureyri. Hann sit- ur í stjórn KA og var formaður fé- lagsins 1984-89. Kona Guðmundar er Magga Alda, f. 10.3.1953, hjúkrunarfræðingur, dóttir Magnúsar Magnússonar, lengst af sjómanns í Reykjavík, og Láru Eiríksdóttur, húsmóður og starfskonu hjá SÍBS. Guðmundur og Magga Alda eiga tvö böm. Þau eru Heiðrekur Guð- mundsson, f. 5.9.1976, ogRagnheið- ur Kristrún Guðmundsdóttir, f. 5.11. 1979. Guðmundur átti þrjú systkini og eru tvö þeirra á lífi. Systkini Guð- mundar: Völundur, f. 16.4.1940, d. 1978, verslunarmaður á Akureyri; Ragnheiður, f. 2.2.1942, kennari við Kvennaskólann í Reykjavík, gift . Kristjáni Þ. Stephensen, hljómlist- armanni og óbóleikara við Sinfóníu- hljómsveit íslands, og eiga þau einn son, Þorstein, menntaskólanema; HólmgrímurKristján, f. 17.11.1955, leiðbeinandi á Dalvík, en hann á einn son, Atla. Foreldrar Guömundar: Heiðrekur Guðmundsson, f. 5.9.1910, d. 1988, skáld og verslunarmaður á Akur- eyri, og kona hans, Kristín Kristj- ánsdóttir, f. 21.6.1911. Meðal fóðurbræðra Guðmundar er Bjartmar, skáld og fyrrv. alþing- ismaður og hreppstjóri á Sandi, og Þóroddur, rithöfundur og fyrrv. skólastjóri. Heiðrekur var sonur Guðmundar Friðjónssonar, skálds og b. á Sandi í Aðaldal, og konu hans, Guðrúnar Lilju Oddsdóttur. Bróðir Guðmundar á Sandi var Siguijón, skáld, alþingismaður og oddviti að Litlu-Laugum, faðir Halldóm, fv. skólastjóra, móður Kristínar Halldórsdóttur, fyrrv. al- þingiskonu, Halldórs, yfirlæknis á Kristnesi, og Svanhildar, félags- málafulltrúaBSRB. Siguijón var einnig faðir Arnórs skólastjóra, Braga, fyrrv. alþingismanns og ráð- herra, og Unnar, móöur Inga Tryggvasonar, fyrrv. formanns Stéttarsambands bænda. Meðal annarra systkina Guð- mundar á Sandi má nefna Erling alþingsimann og Áslaugu, móður Karls ísfelds rithöfundar. Sigurjón Árdal Antonsson Sigurjón Ardal Antonsson sjó- maður, Seilugranda 2, Reykjavík, erfimmtugurídag. Siguijón fæddist að Ytri-Á í Ólafs- firði og ólst þar upp í foreldrahús- um. Hann byijaöi ungur til sjós og stundaði sjómennsku lengst af á bátum frá Ólafsfirði en var einnig á vertíð annars staðar. Siguijón keypti sér bát 1972 og gerði hann út frá Ólafsfriði í tíu ár en flutti til Reykjavíkur 1982 þar sem hann hélt útgerð sinni áfram fram á sl. vor. Kona Siguijóns er Sesselja, f. 18.3. 1939, matráðskona í Reykjavík, dótt- ir Friöriks Jónssonar, b. í Amar- firði, og Sigríðar Þórðardóttur. Böm Sesselju og stjúpböm Sigur- jóns era þrjú, öll búsett í Reykjavík. Siguijón átti niu systkini og em áttaþeirraálífi. Foreldrar Siguijóns vom Anton Bjömsson, b. og útgerðarmaður að Ytri-Á, og kona hans, Guðrún Sigur- jónsdóttir. Guðrún var dóttir Siguijóns Jóns- sonar og Helgu Jónsdóttur. Anton var sonur Björns Baldvins- sonar, b. að Ytri-Á, og konu hans, Kristínar Bjarnadóttur. Kristín var dóttir Bjarna Gíslasonar að Ytri-Á og Hreppsendaá og konu hans, Sig- ríðar Gísladóttur. Bjami var sonur Gísla, b. á Vatni, Hamri í Stíflu og síðast á Austara- Hóli í Flókadal, Finnssonar, albróð- ur Jóns Finnssonar á Vatnsenda. Kona Gísla og móðir Bjama var Kristín Rafnsdóttir, b. á Krossi í Óslandshlíð, Ólafssonar, b. á Mar- bæh, Jónssonar, b. í Brekkukoti, Kolbeinssonar.KonaRafnsogmóð- . ir Kristínar var Margrét Þorkels- dóttir, b. á Þúfum, Ólafssonar. Sigriður var dóttir Gísla, b. á Ytri-Á, Bjömssonar, b. á Ytri-Á, Jónssonar. Kona Gísla og móðir Sig- ríðar var Hólmfríöur Rögnvalds- dóttir, b. á Hálsi í Svarfaðardal, Snorrasonar, b. á Ytri-Reistará, Ein- arssonar, b. í Amarnesi, Hallgríms- sonar. Kona Björns á Ytri-Á og móðir Gísla var Sigríður Þorkelsdóttir, b. á Atlastöðum í Svarfaðardal, Jör- undssonar. Kona Rögnvalds á Hálsi og móðir Hólmfríðar var Guðlaug Finnsdóttir, hreppstjóra á Hálsi, Jónssonar, b. í Litia-Dunhaga, Jóns- sonar, b. á Finnastöðum, Jónssonar. Öm Þór Karlsson Öm Þór Karlsson skriftvéla- meistari, Sigtúni 37, Reykjavík, er sextugurídag. Öm Þór er fæddur í Reykjavík og hefur búiö þar síðan. Árið 1943 hóf hann störf hjá skrifstofuvéla- verkstæði Einars J. Skúlasonar sem þá var staðsett í Veltusundi og var þá brautryðjandi í shkri þjónustu hér á landi. Eftir starfs- þjálfun hjá Einari og árs nám í Bandaríkjunum hlaut Öm réttindi í starfínu, þegar skriftvélavirkjun varð löggild iðngrein, og er Örn með eitt af fyrstu sveinsbréfunum í iðninni. Öm hefur síðan starfað nær óshtið hjá sama fyrirtæki og er ennþá starfandi hjá Einari J. Skúlasyni hf. Kona Amar er Soffía Zóphonías- dóttir fóstra, f. 27.12.1934. Hún er dóttir Zóphoníasar Zóphoníasson- ar pípulagningameistara, f. 26.7. 1901, d. 1974, ogkonu hans, Lilju Bjarnadóttur, f. 31.10.1906, d. 1975. Böm þeirra Arnar og Soffíu eru: Karl Friöjón húsasmíðameistari, f. 12.8.1960, og Úlfar Snær háskóla- nemi. Hálfsystir Arnar var Hulda Karlsdóttir Newman, f. 10.3.1927, d.4.7.1962. Foreldrar Amar voru Karl Guð- mundsson myndskeri, f. 12.3.1903 í Þinganesi í Homafirði, d. 15.9. 1950, og kona hans, Þórunn Björg Jónsdóttir, f. 25.10.1905 á Ytri-Kleif í Breiðdal, Suður-Múlasýslu. Faðir Karls var Guðmundur, b. í Þinganesi, búfræðingur, kennari og hafnsögumaður, Jónsson, b. að Hoffelh í Nesjum, Guðmundssonar, b. að Hoffelli í Nesjum, Eiríksson- ar. Móðir Guðmundar í Þinganesi og kona Jóns var Katrín Jónsdótt- ir, b. á Lambaleiksstöðum á Mýr- um í Austur-Skaftafellssýslu, Jóns- sonar, b. þar, Bjamasonar. Móðir Karls og kona Guðmundar var Guðbjörg Sigurðardóttir, b. að Reyðará í Lóni, Sigurðssonar. Móð- ir Guðbjargar var Sigríður Jóns- dóttir. Faöir Þórunnar Bjargar var Jón, b. að Ósi í Breiðdal, Ámason, frá Núpshjáleigu, Jónssonar. Móðir örn Þór Karlsson. Jóns og kona Áma var Ingibjörg Ámadóttir frá Fáskrúðsfirði. Móð- ir Þómnnar og kona Jóns var Rósa Sighvatsdóttir, b. á Ánastööum í Breiðdal, Bessasonar. Móðir Rósu var Guðrún Jónsdóttir en móðir Guðrúnar var Guörún Sigmunds- dóttir, af Geitadalsætt. Sérfræðingar í blómaskreytingum vid öll tækifæri blómaverkstæði INNA Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaóastrætis simí 19090 SMÁAUGL-ÝSINGAR Guðmundur á Sandi var sonur Friðjóns, b. á Sílalæk, Jónssonar, b. á Hafralæk, Jónssonar, b. á Hólmavaði, Magnússonar, b. á Hólmavaði, Jónssonar, ættfoður Hólmavaðsættarinnar. Móðir Guðmundar á Sandi var Sigurbjörg Guðmundsdóttir, b. á Sílalæk, Stefánssonar, b. á Sílalæk, Indriðasonar, b. á Sílalæk, Ámason- ar, ættföður Sílalækjarættarinnar. Guðrún Lilja var dóttir Odds, b. í Hrafnsstaðaseli, Sigurðssonaþ, b. á Hálsi í Kinn, Oddssonar, og konu Odds, Sigríður Gunnlaugsdóttir, b. í Flögu í Hörgárdal, Gunnlaugsson- ar. Kristín, móðir Guðmundar, er dóttir Kristjáns, b. á Bergsstöðum, Davíðssonar, b. í Hólakoti, ísleifs- sonar, b. í Hólakoti, Magnússonar, b. í Hólakoti, Grimssonar, b. að Hafralæk, Bjömssonar. Móðir Kristjáns var Guðbjörg Jónsdóttir „króks", b. að Halldórs- Guömundur Heiðreksson. stöðum í Reykjadal, Jónssonar, b. í Miðgerði, Jónssonar, b. í Borgar- gerði, Kolbeinssonar. Móðir Kristínar var Hólmfríður Jakobsdóttir, af ætt Jóns Sigurðs- sonar frá Breiðumýri. Hl hamingju med afmælið 23. október 90 ára Á6ta V. Árnadóttir, Bergþórugötu 41, Reykjavik. Sigurður Sigmarsson, Dalsgerði 7F, Akureyri. Hann verð- uraðheiman. örn ÞórKarlsson, Sigtúni 37, Reykjavík. 75ára Guðrún Samsonardóttir, Sigtúni 49, Patreksfirði. 70ára____________ Jón Páll Ágústsson, Álfheimum 13, Reykjavík. 60ára Jón Árni Sigfusson, Víkumesi, Mývatnssveit. Ólöf Sigurðardóttir, Kársnesbraut 87, Kópavogi. 50ára Óli Bergvin Pálmason, Norðurbraut29, Hafnarfirði. Ósk Óskarsdóttir, Amarhrauni 15, Hafharfirði. 40 ára Árni H. Brynjúlfsson, fjölhstamaður, Lönguhlíð 9, Reykjavík. Bjarni Magnússon, Kviholti 12, Reykjavík. Þorsteinn Árnason, Norðurgarði 19, Hvolsvelh. Tllmæli til afmælisbama Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast 1 síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir Brúðkaups- og starfsafmæli Ákveðið hefur verið að birta á afmæbs- og ætt- fræðisíðu DV greinar um einstakhnga sem eiga merkis brúðkaups- eða starfsafmæli. Greinarnar verða með áþekku sniði og by ggj a á sambærilegum upplýsingum og fram koma í af- mælisgreinum blaðsins en eyðublöð fyrir upplýs- ingar afmælisbarna liggja frammi á afgreiðslu DV. Upplýsingar varðandi brúðkaups- eða starfsaf- mæli verða að berast ættfræðideild DV með minnst þriggja daga fyrirvara. Þaö er einkar mikilvægt að skýrar, nýlegar and- litsmyndir fylgi upplýsingunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.