Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 27
27 MÁNUD^GUft ,23. OKTÖpEjR :19gp, 9 VeiAin á sjóbirtingi þykir skemmtileg og þá sérstaklega þegar tiskur tekur oft. Sjóblrt- ingsvelðln var þokkateg i ár og þeir staerstu 13 pund. DV-mynd G.Bender Sjóbirtingsveiði: ■■L ■ Tveir þrettán punda í lokin „Geirlandsá og Vatnamótun- um var lokað fyrir veiði á fóstu- daginn. Undir það síðasta veiddust 13 punda sjóbirtingar, einn á hvorum stað,“ sagði Þór- hallur Guðjónsson, formaður Stangaveiðifélags Keflavíkur, á laugardaginn en síðustu veiði- mennimir hafa rennt fyrir sjó- birting á þessu ári þar. „Veiðin í lokin var sæmileg og það veiddist einn 12 punda fiskur í Geirlandsánni. Það kom töluvert af fiski en þeir voru smáir, sumir,“ sagði Þórhallur. Bestu hollin voru með12fiska Þórhallur Guðjónsson sagði ennfremur í samtah við DV í gær: „Hollin í Geirlandsá og Vatnamótum voru með þetta frá þremur fiskum og upp í tólf þegar mest var. Lokatölur ættu að liggja fyrir næstu daga. Veiðimennimir em að tínast heira einn af öðrum.“ G.Bender Hægt að kasta flugu innan- húss Þó að veiðitímínn sé úti þarf ekki að örvænta, kastæflngar hjá Ármönnum i íþróttahúsi Kennaraháskólans og í Laugar- dalshöll eru byrjaðar. Þar koma veiðimenn ekki að tómum kof- unum því margir snjallir kenn- arar kenna þar fiuguköst Það er hægt aö æfa sig fyrir næsta sumar og gera ennþá betur en í sumar. Eða verða kannski engir við veiöar? Jú, aö minnsta kosti í silungsveiðinni. G.Bender íþróttir • Sigurður Þráinsson, ÍS-maður, horfir einbeittur á eftir boltanum sem hann er nýbúinn að slá. Jasoni ívarssyni, Þróttara, líst hins vegar illa á þetta enda hefur hann ekki komið neinum vörnum við. ÍS-ingar sigruðu i leiknum og eru nú í fyrsta sæti á íslandsmótinu. DV-mynd GS KAí basli - Mikið var um að vera hjá blakfólki um helgina Þriðja umferð íslands- mótsins í blaki fór fram nú um helgina. Fjórir leikir voru hér í bænum og í Neskauptstað fengu Þróttarar KA-menn í heimsókn. Á fostudag léku kvennalið Breiðabliks og HK. Leikurinn var afskaplega óspennandi. HK-stúlk- umar spiluðu afspyrnu illa og Breiðablik þurfti ekkert aö hafa fyrir sigri sínum á þeim. Það eina sem gladdi augað var að sjá Sigur- borgu Gunnarsdóttur, uppspilara UBK, leika á ný. Hún lék vel og ennþá er enginn uppspilari annar sem kemst með tæmar þar sem hún hefur hælana. Leikurinn end- aði 3-0: 15-6, 15-4 og 15-11. • Leikur kvennaliða Þróttar og ÍS var einkar bragðdaufur því að Þróttarar léku án Snjólaugar Bjamadóttur, sem á við slæm meiðsl að stríða, og Lindu Jóns- dóttur. Leikur Þróttara var ÍS- stúlkum lítil ógnun og unnu þær auðveldan 3-0-sigur (15—9, 15-5 og 15-12) á 46 mínútum. Hjá ÍS-stúlk- unum áttu Friðrika Marteinsdótt- ir og Katrín Pálsdóttir ágætan leik. • Karlalið sömu félaga léku þessu næst. Fyrstu hrinu unnu Þróttarar, 15-6, enda náðu þeir strax góðri forystu (7-0). Stúdentar vom ekki sáttir við þetta og knúöu fram sigur í næstu tveimur hrin- um (15-13 og 15-10). Fjórða hrinan var mikil baráttuhrina og tókst Þróttumm naumlega að sigra í henni (15-12). í úrslitahrinunni náðu ÍS-ingar strax góðri forystu (8-2), mest vegna mistaka Þróttara og þeir gerðu út um leikinn með 15-9-sigpi eftír 83ja mínútna leik. Hjá Þrótti átti Jason ívarsson góða spretti í sókninni en hjá ÍS lék Gunnar Svanbergsson mjög vel á mikilvægum lokamínútum. • Leikur karlaiiða Fram og HK var ekki mikið fyrir augað. Fram- arar léku afskaplega illa og HK- menn tóku þá ekki alvarlega. Þess vegna varð leikurinn einni hrinu of langur. í fjórum hrinum vann HK 3-1: 15-9, 6-15, 15-0! og 15-3, þannig að Framarar fengu ekki nema þrjú stig í síðustu tveimur hrinunum! Hjá HK vom Karl Sig- urðsson og Skjöldur Vatnar Bjömsson bestir en Ólafur Ami Traustason hjá Frömumm. • í Neskaupstað fengu heima- menn KA í heimsókn og léku bæði kvenna- og karlahð félaganna. Hörkubarátta var í báðum leikj- um. Kvennaleikurinn stóð 71 mín- útu en var ekki nema þrjár hrin- ur. KA-stúlkumar unnu, 15-13, 15-10 og 15-13, en Þróttarstúlkum- ar böröust mjög vel. • í karlaleiknum var baráttan jafnvel enn meiri. Leikurinn stóð í 129 mínútur en blakleikir gerast varla lengri. Þróttarar notuðu mikið af hröðum boltum og KA- mönnum gekk illa að stilla hávöm sína á þá. Hrinumar urðu fimm, 10-15, 15-13, 15-13, 13-15 og loka- hrinan 15-13 sem lauk með sigri KA. -gje

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.