Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989. MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989. 25 V >*, < « • Pólverjinn i liði Bayer Leverkusen, Marek Lesniak, sést hér á fleygiterð með knöttinn en hann skoraði I sigurmark Leverkusen gegn Bayern MUnchen um helgina. Símamynd Reuter | AcmaIp lÁlrlr HwMvll I vlili toppeinkunn - mjög óvænt úrslit í v-þýska fótboltanum Það kemur ekki oft fyrir að vestur-þýska stórliöið Bayem Miinchen tapi á heimavelli sínum. Á laugardaginn kom Bayer Leverkusen i heimsókn tU Miinchen og lagði stór- veldið aö velli á ólympíuleikvanginum, Pólski leikmaöur- inn, Marek Lesniak, skoraði sigurmark Leverkusen á 15. minútu og vissu 29 þúsund áhorfendur ekki hvaðan á þá stóö veðriö. Þetta var fyrsti ósigur Bayem Múnchen á heimavelli í tvö ár. Með sigrinum tók Leverkusen forystu í úrvalsdeildinnL Köln tapaði óvænt heima Önnur úrslit komu geysilega á óvart þegar Köln beið ósigur á heimavelli fyrir nýliöunura í Fort- una Diisseldorf. Köln náði forys- tunni með marki firá Sturm í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik léku leik- raenn Diisseldorf sem englar og skomöu þijú mörk, Walz skoraði tvívegis og Fuchs eitt. 28 þúsund áhoríendur vom á leiknum og fékk Köln svo sannarlega kaldar kveðj- ur firá þeim þegar flautað var til leiksloka. Alltgengur Stuttgart í haginn Ásgeiri Sigurvinssyni og félögum hans í Stuttgart gengur allt í hag- inn. Á laugardaginn sigraði Stuttg- art Borassia Dortmund, 3-1, á Neckar Stadium, að viðstöddum 20 Júsund áhorfendum. McLeod, öki iandsliösmaöurinn í liði Dortmund, skoraði fyrsta mark leiksins. Stuttgart náði að jafna undir lok hálfleiksins með marki frá Hoöc. Buchwald og Schmaeler Asgeir lék vel í leiknum og glödd- ust stuðningsmenn félagsins yfir því aö hann væri búinn að tryggja sér fast sasti i liðinu. „Þetta gekk vonum framar hjá okkur gegn Dortmund. Við voram fljótiega undir í leiknum en er á leikinn leið sýndum viö góða knatt- spyrau og þegar á heildina er litiö áttum við að vinna stærri sigur. Ég er mjög ánægður með framrai- stöðu mína og fékk mjög góða dóma í blöðunum í gær,“ sagöi Ásgeir Sigurvih8son í samtali við DV i gær. Asgeir sýndi oft sínar bestu hlið- ar í leiknum og flölmiðlar hrósuðu honum í hástert í gær. Ásgeir fékk tvo í einkunn sem táknar að hann hafi leikiö á landsliðsklassa. Eng- inn annar leikmaður fékk svo háa einkunn. Leverkusen hefði komið á óvart en úrslitin hleypa mikilli spennu í deildina. Leikur Bayem virkaði ekki sannfærandi um þessar mundir, meiösli hijáðu liöið en það ætti ekki að koma að sök því að bekkur liðsins' Arie Haan, þjálfari Stuttgart, stýrði liðinu ekki í leiknum gegn | Dortmund. Faðir hans lést á föstu- daginn og hélt Iiann rakleiðis til I Holiands þegar fréttin barst um lát | bans. Úrslit í úrvalsdeildinni á laugar- dag urðu þessi; Mannheim-Karlsrahe.........,0-11 Hamburg-Homburg............2-01 Köln-Dusseldorf............1-31 B. Munchen-Leverkusen......0-11 Uerdingen-Werder Bremen....0-1 Stuttgart-Borussia Dortmund ...3-11 Frankfurt-Miinchengladbach ...3-01 Bochum-Nuraberg............3-31 Kaiserslautem- St. Pauli...1-1 f Staðan í defldinni: Leverkusen....l4 7 6 1 19-8 Bayera......14 8 3 3 29-13 191 Köln........14 7 5 2 21-16 19 Frankfurt...14 7 3 4 25-16 17 Stuttgart...14 7 3 4 20-18 17 Numberg.....14 6 4 4 22-15 161 Hamburg.....14 6 3 5 19-17 151 Bremen......14 4 6 4 20-16 141 Dortmund....14 6 2 6 15-13 141 Mannheim....14 6 1 7 17-21131 Homburg.....14 4 4 6 11-17 121 Uerdingen...14 4 3 7 20-21 11 [ Dusseldorf..14 3 5 6 20-24 11 Kaiserslaut....l4 3 5 6 20-25 11 [ Múnchengl...14 3 5 6 12-18 11 Bochum......14 4 3 7 17-26 11 StPauli.....14 2 7 5 10-20 11 Karlsrahe...14 2 6 6 10-23 101 -JKS Iþróttir Islenska landsliðið í handknattleik hafnaði í neðsta sætinu á fjögurra landa mótinu í Sviss: Júmbósætið í Sviss en úrslitin lofa góðu - tap gegn Sviss 18-22, Sovétríkjunum 28-32, og gegn Austur-Þjóðverjum í gær, 25-27 t, „Þegar a heildina er htið held ég að ekki sé annað hægt en að vera ánægður með útkomuna. Að vísu endaði íslenska hðið 1 neðsta sætinu en úrshtin úr leikjun- um eru ekki slæm fyrir okkur og lofa svo sannarlega góðu um framhaldið,“ sagði Davíð Sigurðsson í fararstjórn íslenska landshðsins sem lauk í gær þátttöku á fjögurra landa móti í Sviss. íslenska hðið tapaði öllum leikjum sínum á mótinu, fyrst fyrir Sviss, 18-22, þá gegn Sovétmönnum, 28-32, og í síöasta leiknum í gær fyrir Austur- Þjóðverjum, 25-27. Menn þreyttir í leiknum gegn Sviss í fyrsta leik mótsins lék islenska liðið gegn Sviss og tapaði, 18-22, eins og áður sagði. Staðan í leikhléi var 9-12, Sviss í vil. íslenska liðið virkaði þungt og þreytt í þessum leik eftir nokkuð langt ferðalag. Mörk íslenska liðsins í leiknum skoruðu þessir leikmenn: Óskar Ármannsson 5/3, Þorgils Óttar Mathiesen 4, Héðinn Gilsson 3/1, Bjarki Sigurðsson 2, Gunnar Beinteinsson 2, Sigurður Gunnarsson 1 og Guðmundur Guðmimdsson 1. í liði Sviss var Stefan Schárer marka- hæstur með 7 mörk en Hermann Schu- macher skoraði 5 mörk. Mark á mínútu í Rússaleiknum Lokatölurnar í leik íslands og Sovét- ríkjanna á laugardag vora hreint ótrú- legar. Sovétmenn sigraðu, 28-32, eftir að hafa haft yfir í leikhléi, 12-17. Ekki var varnarleikur íslenska liðsins burð- ugur en leikmenn íslenska liðsins tóku sig þó saman í andlitinu í síðari hálf- leik og unnu hann með 16 mörkum gegn 15. Varnarleikur Sovétmanna var heldur ekki til að hrópa húrra fyrir en áhorfendur fengu að sjá skemmtileg tilþrif í sóknarleiknum hjá báðum lið- um. Er ólíklegt að íslenskt landslið skori 28 mörk hjá Sovétmönnum í bráö. Óskar Ármannsson átti sannkallaöan stjömuleik gegn Sovétmönnum og skoraði hvorki fleiri né færri en 10 mörk. Fór hann hreinlega á kostum og lék sinn langbesta landsleik. Annars skoraðu þessir leikmenn mörk ís- lenska liðsins gegn Sovétmönnum: Óskar Ármannsson 10, Siguröur Gunnarsson 3, Gunnar Beinteinsson 3, Guðmundúr Guðmundsson 2, Birgir Sigurðsson 2, Sigurður Bjarnason 2, Bjarki Sigurðsson 2, Þorgils Óttar Mat- hiesen 2, Valdimar Grímsson 1 og Héð- inn Gilsson 1. Hjá Sovétmönmnum var Alexander Tutchkin markahæstur meö 8 mörk. Naumttapgegn Austur-Þjóðverjum í gær lék íslenska liðið síðasta leik sinn á mótinu gegn Áustur-Þjóðveijum sem sigruðu, 25-27. „Leikurinn var í jámum lengst af og munaði litlu að íslenska liðinu tækist að jafna á loka- mínútunum," sagði Davíð Sigurðsson í samtali við DV eftir mótið. „Þegar 45 sekúndur voru til leiksloka urðum við að taka ákveðna áhættu en þá voram viö einu marki undir. Það gekk ekki og Frank Wahl náði að skora 27. mark Austur-Þjóðveija á síðustu sekúndun- um. Sovétmenn unnu sigur á mótinu, Austur-Þjóðveijar urðu í öðru sæti, Svisslendingar í því þriðja og íslend- ingar í íjórða sæti. Sovétmenn unnu Austur-Þjóðveija með fjórum mörkum og Svisslendinga með níu marka mun. Þá unnu Austur-Þjóðveijar nauman sigur gegn Svisslendingum eftir að hafa skorað þrjú mörk á síðustu mínú- tunni. Óskar markahæstur í hófi sem haldið var í mótslok voru afhent þrenn einstaklingsverðlaun. Óskar Araiannsson fékk sérstök verð- laun fyrir að verða markahæsti leik- maður mótsins en hann skoraði sam- tals 20 mörk á mótinu, 5 mörk gegn Svisslendingum, 10 mörk gegn Rússum og 5 mörk í gær gegn Austur-Þjóðverj- um. Er þetta glæsilegur árangur hjá Óskari sem hingað til hefur ekki fengið tækifæri til að spreyta sig að ráði með íslenska landsliðinu. Sovétmaðurinn Atavan var valinn besti alhliða leik- maðurinn og Alexander Tutschkin besti sóknarleikmaðurinn. Glæsilegt hjá yngri mönnunum Frammistaða íslenska landsliðsins á þessu móti kom á óvart. Flestir áttu von á slæmum skellum, sérstaklega gegn Sovétmönnum og Austur-Þjóð- veijum sem mættu með alla sína sterk- ustu leikmenn til mótsins eins og gest- gjafamir Svisslendingar. Þrátt fyrir að allir leikirnir þrír hafi tapast verður aö telja útkomuna góða þegar litið er á lokatölur. Þar kemur tvennt til. Ann- ars vegar lítill sem enginn undirbún- ingur landsliðsins fyrir mótið og svo hitt að margir af bestu handknattleiks- mönnum okkar léku ekki með í Sviss. Nægir þar að nefna nöfn eins og Kristj- án Arason, Alfreð Gíslason, Atla Hilm- arsson og Geir Sveinsson. Ungir leik- menn og óreyndir fengu nú aö spreyta sig og er þá sérstaklega átt viö þá Óskar Armannsson, sem blómstraöi á mót- inu, Sigurð Bjamason og Gunnar Bein- teinsson. Allir hafa þessir leikmenn litla reynslu í erfiðum landsleikjum en skiluðu sínu hlutverki sérlega vel í Sviss. Úrslitin og frammistaða ungu leikmannanna lofa því góðu um fram- haldið. -SK Tommy Coyne kom, sá og sigraði á Park- head, heimavelli Celtic í Glasgow, á laugardaginn. Coyne kom inn á sem varamaður seint í leikn- um gegn Hearts og skoraði sig- urmarkið á lokamínútunni og Celtic hirti öll stigin þijú. Ceitic er í efsta sætinu í úrvalsdeild- inni skosku. • Hearts náði forystunni á 32. rnínútu gegn Motlierwell með marki frá Scott Crabbe. Roy Aitken jaJBnaði í upphafi seinni hálfleiks. Motherwefl heldur áfram að koma á óvart og er liðið í ööru sæti. Mother- well sigraöi Dimdee United, 3-2. Doug Arnott geröi sigur- markið á 71. mínútu. • Dunfermline sigraði Dimdee, 2-1, en aöeins þrír leikir fóru fram i deildinni um helgina vegna úrslitaleiks Rangers og Aberdeen í skoska deildarbikanium í gær. Staöan í úrvalsdeildinni er þossi* Celtic.....10 5 4 1 17-10 14 Motherwell ...10 4 4 2 16-12 12 Dunfermline.io 4 3 3 17-13 11 Hibemian....9 4 2 3 13-10 10 Hearts.....10 4 2 4 15-14 10 Aberdeen....9 4 2 3 8-8 10 Rangers.....9 3 3 3 8-9 9 DundeeUtd ...10 2 4 4 14-16 8 St.Mirren...9 3 1 5 9-17 7 Dundee.....10 1 3 6 13-21 5 Franski boltinn Úrslit í frönsku 1. deildinni um helgina urðu þessi: Bordeaux-Marseille..........3-0 Brest-Toulouse............0-0 Sochaux-RacingParis.......9-0 Paris SG-Lyon..............0-1 Toulon-Nantes...............0-0 Monaco-Mulhouse...........0-0 Lille-Montpellier.........1-0 Cannes-Auxerre..............2-2 Caen-Nice...................l-i • Frank Wahl lék vel með Austur-Þjóðverjum á aiþjóðlega mótinu í Sviss og hér sést hann skora eitt marka sinna í leiknum gegn íslendingum f Sviss i gær. Til varnar eru þeir Sigurður Bjarnason, til vinstri, og Bjarki Sigurðsson. Símamynd Stefano Schröter • Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði íslenska liðsins, stóð oft í ströngu á mótinu í Sviss og hér sést hann skora eitt af mörkum islenska liðsins i leiknum gegn Austur-Þjóðverjum i gær. Austur-Þjóðverjarnir, sem eru til varnar, eru Rudiger Borchardt til vinstri og Heiko T riepel. Sfmamynd Reuter Hollenski boittnn Úrslit í hollensku l. deildinni um helgina: PSV-VitesseArnhem.........0-1 MVV Maastricht-Waalwijk ....3-0 Nijmegen-Haariem.........3-1 WiRem II-Den Bosch........í-o • Staða efstu liöa í Hollandi er þannie: RodaJC ...11 5 5 1 17-11 15 PSV......10 6 2 2 36-13 14 Utrecht .,..11 7 0 4 14-10 14 Twente...11 3 7 1 10-8 13 RKC......11 5 3 3 16-15 13 Ajax.....11 4 4 3 22-11 12 Markahæstir t Englandi Mikil barátta virðist ætla að verða um markakóngstMIinn í ensku knattspyrn- unni. Sem stendur eru fimm leikmenn efstir og hafa skorað 7 mörk hver. Þeir eru Mark Hughes, Man. Utd., Gary Lin- eker, Tottenham, Mike Newell, Everton, Michael Thomas, Arsenal, og lan Wright, Crystal Palace. Eftirtaldir leikmenn hafa ’skorað sex mörk: John Barnes, Liverpool, Peter Beardsley, Iiverpool, Robert Fleck, Norwich, Ian Rush, Liv- erpool, Dean Saunders, Derby, Teddy Sheringham, Millwall, og Roy Wegerle, Luton. • í 2. deild er Mick Quinn, Newcastle, markahæstur og hefúr skorað 14 mörk, Bemie Slaven, Middlesbrough, er næstur meö 10 mörit, Andy Ritchie, Oldham, er með 9 og átta mörk hafa skoraö Steve Bull, Wolves, Bobby Davison, Leeds, Marco Gabbiadini, Sunderland, og Paui Moulden, Bournemouth.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.