Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1990, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1990.
Stjómmál
Spurt á Dalvík:
Hverju spáir þú um úrslit
rkosninganna á Dalvík?
Heiða Hilmarsdóttir skrifstofumað-
ur: „Úrslitin geta orðið á ýmsa vegu,
Vpg það gætu óvæntir hlutir gerst. Ég
svara ekki hverriig meirihluta ég vil
fá að loknum kosningum en mér
finnst ekki nógu gott fólk á framboðs
hstunum."
Pálmi Jóhannesson lífeyrisþegi: „Það
er búið að blanda svo mikið þessum
“í'ramboðslistum að það er ekki gott
að spá. Ætli þeir skipti þessu ekki
nokkuð jafnt á milli sín og ég held
að Framsóknarflokkurinn geti unnið
mann af sjálfstæðismönnum."
Kristinn Hauksson rafeindavirki:
„Ég hef htið velt því fyrir mér. Ætli
úrslitin verði ekki svipuö og síðast
og sami meirihluti verði áfram. Ég
er ánægður með þann meirihluta."
Ásgeir Siguijónsson, fyrrverandi
kennari: „Eg held að það verði ekki
miklar breytingar frá því síðast. Ég
tel að sami meirihluti verði áfram,
mér finnst hann hafa staðið sig vel.“
nHelga Sigurðardóttir starfsstúlka:
„Ég fylgist ekki mikið með pólitík-
inni. Annars held ég aö það verði
talsverðar breytingar í bæjarstjórn-
inni. Ég er ekki viss um hverjar þær
verða og nýr meirihluti getur tekið
við eftir kosningarnar."
Jónína Ketilsdóttir flskverkakona:
„Ég hef ekki hugsað mikið um úrslit
kosninganna og hef ekki miklar
áhyggjur af þessumm málum. Nú-
verandi meirihluti hefur staðið sig
þokkalega þótt ég hafi ekki kosið
hann síðast.“
Dalvík:
Framboðsmálin með öðrum hætti
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Framboðsmálin á Dalvík fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar 26. maí eru
með öðrum hætti en annars staðar
gerist, því þar er „meiri grautur" í
þeim málum eins og einn viðmæl-
andi DV þar orðaði það.
Þrír listar koma fram eins og síð-
ast, en þá voru bornir fram hinir
hefðbundnu B-, D- og G-listar. Nú
skiptast framboðin þannig að sjálf-
stæðismenn og óháðir bjóða fram
saman, framsóknarmenn og vinstri
menn og loks kemur framboð frá
Jafnaðarmannafélagi Dalvíkur sem
byggist fyrst og fremst á samstarfi
alþýðuflokksmanna og alþýðu-
bandalagsmanna. Listarnir hafa enn
Sjálfstæðismenn og óháðir:
Treysta atvinnulífið
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri:
„Við leggjum mesta áherslu á það
starf sem við höfum unnið að á yfir-
standandi kjörtímabili. Við höfum
beint sjónum okkar að atvinnulífi
staðarins og að treysta atvinnulífið
er höfuðmarkmiðið,“ segir Trausti
Þorsteinsson sem skipar efsta sæti
lista sjálfstæðismanna og óháðra.
„Síðan koma ýmis mál eins og að
halda áfram að byggja upp ýmsa
þjónustu. Við erum með í byggingu
skóla sem þarf að ljúka og uppbygg-
ingu íþróttavallar þarf að ljúka, svo
eitthvað sé nefnt.“
Ert þú bjartsýnn á úrslitin fyrir ykk-
ar hönd?
„Ég er ekki svartsýnn. Ef fólk skoð-
ar það sem gert hefur verið á þessu
kjörtímabili er ég óhræddur við að
leggja það undir dóm kjósenda. Fíár-
hagsstaða bæjarsjóðs er traust og
grundvöllur fyrir því að hægt sé að
halda áfram á þeirri braut sem við
höfum mótað,“ sagði Trausti.
Trausti Þorsteinsson skipar e
sæti lista sjálfstæðismanna
óháðra.
Framsókn og vinstri menn:
Áherslumunur á aðferðir
Valdimar Bragason, efsti maður á
lista framsóknar- og vinstri manna.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við gerum okkur vonir um að fólk
vilji aukna aðild okkar við stjórn
bæjarins, okkur verði treyst fyrir
því,“ segir Valdimar Bragason sem
skipar efsta sæti framsóknar- og
vinstri manna á Dalvík.
„Það sem fyrst og fremst verður
kosið um hér á Dalvík eru aðferðir
til að bæta samfélagið. Við leggjum
mikla áherslu á umhverfis- og skóla-
mál, minnug þess að atvinnumálin
eru undirstaða framfara hér sem
annars staðar.“
Er ágreiningur um þessi mál?
„Þetta er fyrst og fremst spurning
um áherslur varðandi þessi mál og
önnur. Yfirleitt finnst mér ekki mik-
ill ágreiningur í bæjarstjórn, nema
helst þá um aðild bæjarins að at-
vinnurekstri,“ sagði Valdimar og
sagðist trúa því að listi framsóknar-
og vinstri manna væri sigurvænleg-
ur listi.
Jafnaðarmenn:
Áhersla á atvinnumál
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Jafnaðarmannafélag Dalvíkur er
nýtt afl í bæjarmálunum hér á Dal-
vík. Við viljum ekki kenna okkur við
pólitíska flokka og öllum er heimilt
að starfa með okkur óháð pólitískum
línum og markmið félagsins er að
bjóða fram lista við kosningarnar hér
í bænurn," segir Jón K. Gunnarsson
sem skipar efsta sæti lista Jafnaðar-
mannafélags Dalvíkur við kosning-
amar þar.
„Við leggjum áherslu á atvinnu-
málin og munum leggja metnað okk-
ar í að áfram verði unnið við upp-
byggingu við höfnina. Ég persónu-
lega vil að óbreytt stefna verði varð-
andi bæjarsjóð, sem nú stendur vel,
og að ekki verði farið í óeðlilegar og
dýrar fjárfestingar,“ sagði Jón. Hann
sagðist bjartsýnn fyrir hönd Jafnað-
armannafélagsins og taldi að það
myndi fá þrjá menn kjörna í bæjar-
stjórn.
Jón K. Gunnarsson skipar efsta
sæti lista Jafnaóarmannafélags Dal-
víkur.
KOSNINGAR 1990
Gylfi Kristjánsson
DALVIK
Núverandi bæjarstjórn
Urslitin 1986
Á Dalvík voru þrír listar í fram-
boði 1986. Úrslitin urðu þessi:
Framsóknarflokkur (B) 271 at-
kvæði.
Sjálfstæðismenn og óháðir kjós-
endur (D) 337 atkvæöi.
Alþýðubandalag og aðrir vinstri-
menn (G) 200 atkvæði.
Þessir vom kjörnir í bæjarstjórn:
Guðlaug Björnsdóttir (B), Valdi-
mar Bragason (B), Trausti Þor-
steinsson (D), Ólafur B. Thorodds-
en (D), Ásdís Gunnarsdóttir (D),
Svanfríður Jónasdóttir (G) og Jón
Gunnarsson (G). Þóra Rósa Geirs-
dóttir (G) tók sæti Svanfríðar Jón-
asdóttur þegar sú síðarnefnda varð
aðstoðarmaður ráðherra.
ekki fengið úthlutað bókstöfum.
Þetta gerir kosninguna á Dalvík
tvísýnni en ella og mönnum á staðn-
um finnst erfitt að átta sig á hvemig
muni fara. Þá á fólkið á götunni einn-
ig erfitt með að benda á helstu mál,
sem kosið verður um, og svo lítur
út fyrir að á Dalvík kjósi menn frem-
ur um menn en málefni.
Núverandi meirihluti í bæjarstjórn
Dalvíkur er skipaður sjálfstæðis-
mönnum og alþýðubandalagsmönn-
um sem hafa fimm bæjarfulltrúa en
framsóknarmenn í bæjarstjórn eru
tveir í minnihluta. Nú hafa hin hefð-
bundnu framboð riðlast og því bíða
menn úrslitanna á Dalvík með nokk-
urri eftirvæntingu.
Listi Jafnaðarmannafélags
Dalvíkur:
1. Jón K. Gunnarsson
framleiðslusfjóri.
2. Símon J. Ellertsson
framkvæmdastjóri.
3. Þóra Rósa Geirsd. kennari.
4. Halldór Síg. Guðmundsson
forstöðumaður.
5. Ólafur Árnason
rekstrarstjóri.
6. Helga Matthíasdóttir
húsmóðir.
7. Einar Emilsson
umsjónarmaður.
8. Helga Ámadóttir
skrifstofumaður.
9. Bjarni Gunnarss. sjómaöur.
10. Grétar Kristinsson
verkamaður.
11. Ásta Einarsdóttir
leiðbeinandi.
12. Elín Rós Ragnarsdóttír
sjúkraliði.
13. Ottó Jakobsson
framk væmdastjóri.
14. Kolbrún Pálsdóttir
leiðbeinandi.
Listi sjálfstæðismanna og
óháðra:
1. Trausti Þorsteinsson
framkvæmdasfjóri.
2. Svanhildur Ámadóttir
hái-greiðslumeistari.
3. Gunnar Aðalbjömsson
frystihússtjóri.
4. Hjördís Jónsdóttir
skrifstofumaður.
5. Amar Símonarson
elliheimilisstarfsmaður.
6. Óskar Óskarss. bifreiðastj.
7. Yrsa Hörn Helgadóttir
húsmóðir.
8. Jón Þ. Baldvinsson sjómaður.
9. Albert Ágústss. verkamaður.
10. Sævaldur Gunnarsson
sjómaður.
11. Björk Ottósd. starfsstúika.
12. EiríkurÁgústssonverkstjóri.
13. Sigurður Kristjánsson
skipstjóri.
14. Baldvina Guðlaugsdóttir
húsmóðir.
Listi Framsóknarfélags
Dalvíkur og vinstri manna:
1. Valdimar Bragason
framkvæmdastjóri.
2. Guðlaug Björnsdóttir
bankastarfsmaður.
3. Rafn Arinbjörnss. frjótæknir.
4. Einar Arngrímsson
málarameistari.
5. Inga Ingimarsdóttir
snyrtifræðingur.
6. Símon Páll Steinsson
skipstjóri.
7. Helga Björk Eiríksdóttir
bankastarfsmaður.
8. Kristmann Kristmannsson
verkstjóri.
9. Guðrún Skarphéðinsdóttir
verkakona.
10. Jóhannes Hafsteinsson
vélvirki.
11. Hulda Þórðard. sjúkraliði.
12. Hilmar Guðmundsson nemi.
13. Sæmundur E. Andersen
skrifstofumaður.
14. Kristinn Jónsson
veitustarfsmaður.