Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í ÓV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. RJtstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 Frjalst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990. Laumufar- þegium borð í ísnesi Laumufarþegi fannst um borð í flutningaskipinu ísnesi en það lagði af stað frá Hafnarfirði til Lissabon á þriðja tímanum í nótt. Þegar skipið var að sigla út úr Faxaflóa, á móts við Garðskaga, urðu skipverjar varir við að laumufarþegi hafði komist um borð í Hafnarfirði. Lögreglunni í Keflavík var gert við- vart. Fóru lögregluþjónar til móts við ísnesið á Sæbjörgu, báti björgunar- sveitarinnar í Sandgerði, til að ná í laumufarþegann. Að sögn lögreglunnar er hér um íslending að ræða. Hann mun ekki hafa verið allsgáður þegar uppátæki hans uppgötvaðist. Laumufarþeginn var færður í fangageymslur lögregl- unnar og yfirheyrslur hófust í morg- un. -ÓTT Bifhjóli ekið átvogangandi vegfarendur Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Tveir gangandi vegfarendur á Kaupangsstræti á Akureyri voru fluttir á sjúkrahús seint í gærkvöldi eftir að hafa orðið fyrir bifhjóh sem ekið var á miklum harða upp götuna. Ökumaður bifhjólsins hafði farið fram úr tveimur bifreiöum og sá ekki mennina tvo sem voru á leið yfir götuna fyrr en of seint. Annar mann- anna mun m.a. vera mjaðmagrindar- brotinn en hinn slapp betur. Svo mikil var ferðin á bifhjólinu að það rann tugi metra upp götuna eftir áreksturinn. Hellisheiði: Hálka í morgun ... - víðagránaðírót Hálka var á Hehisheiði í morgun. Vegagerðin varð að ryðja snjó af heiðinni. í Hveradalabrekkunni urðu nokkur vandræði af þeim sök- um. Eitthvað var um að bílar fentu utan vegar. Ekki urðu slys á fólki. í Þrengslum var slydda en engin hálka. Samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni er hálka á flestum heiðum á Norður- og Norðausturlandi. Á Akureyri var vetrarlegt í morgun, gránað hafði í byggð. Sama er að segja frá Selfossi og víðar. Ekki var vitað um hálku á fjallveg- um á Vestfjörðum í morgun. Hjá Vegagerðinni var reiknað með að hálka væri á Breiðadalsheiði. LOKI Var grundvöllur fyrir þessum kjörum? Gjaldþrot Grundarkjörs: Kröfurnar eru næiri 300 millj ónum króna Kröfur í þrotabú Grundarkjörs hf. eru hátt í 300 milljónir króna. Ekki er búiö aö taka afstöðu til ahra krafna. Lítið er um að kröfum sé tvhýst. Forgangskröfur eru á núlh 30 og 40 mihjónir króna. Eign- ir fyrirtækisins er taldar vera álíka miklar og forgangskröfurnar.: Kostnaður vegna gjaldþrotaskipt- anna verður greiddur áöur en greitt verður upp í kröfurnar. Launakröfur, en þær eru for- gangskröfur, eru á annað hundrað. Grundarkjör hætti rekstri um miðjan maí. Laun höfðu verið greidd fyrir apríl. Launakröfurnar eru vegna launa á uppsagnarfresti og eins htihega vegna yfirvxnnu. Eignir Grundarkjörs voru fyrst og fremst lagerar, útistandandi kröfur og eina fasteign átti fyrir- tækið, kjallaraíbúð við Lindargötu í Reykjavík. íbúöin er óseld. Eftir aö Grundarkjör hætti rekstri bárust rannsóknai-lögregl- unni nokkrar kærur um meint undanskot eigna. Málin eru enn til rannsóknar. -sme Sjö ára gamall drengur hljóp á bifreið sem var ekið vestur Háteigsveg á móts við Háteigskirkju síðdegis í gær. Hann kvartaði yfir eymslum og var hann fluttur á slysadeild. Meiðsl hans voru tal- in lítilsháttar. DV-mynd S Veðriöámorgun: Slyddu- élá annesjum Á morgun veröur norðvestan- átt, ahhvöss austast á landinu en aðeins gola eöa kaldi í öðrum landshlutum. Slydduél á annesj- um norðanlands og austan og él á hálendinu. Annars staðar verð- ur úrkomulaust nema við suður- ströndina, þar verða skúrir. Bjargaðilífidrengs: Guðminn W almáttug- ■ ur-þetta 0 erbarn „Það voru tvær konur á gangi sem komu fyrst auga á drenginn. Þær sáu eitthvert fatahrúgald úti í tjörninni, húfu drengsins og svo lyfhst önnur höndin upp úr tjöminni. Þá sagði önnur við hina: „Guð minn almátt- ugur - þetta er barn.“ Þá hlupu þær hingað inn og létu vita. Dóttir mín hljóp út og sonur minn á eftir henni. Þegar hún óð út í tjömina og náði drengnum var hann hættur að anda,“ sagði Anna Björnsdóttir, sem býr við Karlsrauðatorg á Dalvík, í samtali við DV í morgun. Ekki mátti tæpara standa með björgun tveggja ára drengs á sunnu- dag. Hann hafði fallið í tjöm sem vatn hefur verið látið renna í til prýði við svæði sem meðal annars hefur verið fegrað með plöntun trjáa að undanförnu. Guðrún, dóttir Önnu, er 27 ára og sonur hennar, Snorri Snorrason, er 28 ára, skipstjóri á Drangavík. „Rétt áður höfðu þau hætt við á síðustu stundu að fara fram í Tungu- rétt,“ sagði Anna. „Þau hlupu bæði út th að bjarga barninu. Þegar Guð- rún hafði náð í drenginn kom Snorri að og byrjaði hann að blása lífi í hann. Hann hélt því áfram en síðan kom maður sem keyrði Snorra og drenginn niður á heilsugæslustöð," sagði Anna. Snorri hélt áfram að blása lífi í drenginn í bílnum. Hann lagði hann síðan á grúfu á hné sér og reyndi að hreinsa úr kokinu - stuttu síðar kom vatnsgusa út úr drengnum og hann byrjaði að skæla. Drengurinn, sem heitir Ómar Arnarson, komst svo undir læknishendur á heilsugæslu- stöðinni. Enginn sá hann detta í tjömina en á rennur í hana meðfram götunni þar sem drengurinn á heima. „Þetta var aht tilvhjunum háð en engu að síöur hálfómurlegt," sagði Anna. -ÓTT Efnisgjaldið: 4 4 4 4 4 Engin ákvörðun M í menntamálaráðuneytinu hefur V engin ákvörðun verið tekin varðandi efnisgjald af nemendum grunnskóla. Umboðsmaður Alþingis hefur álykt- að að ekki sé stoð í lögum fyrir inn- heimtu gjaldsins en menntamálaráð- herra er á öðm máh. i gmnnskólun- um er þrýst á um hreinar línur. Ráö- herra er erlendis og ekki væntanleg- ur heim fyrr en 24. september. -hlh UIÐE0mw^ Fákaleni 11, s. 687244 GÆÐI- s. 96-25400

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.