Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Blaðsíða 26
34 MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1990. Afmæli Friede Ingibjörg Pálsdóttir Briem Friede Ingibjörg Pálsdóttir Briem, fyrrum framkvæmdastjóri, Berg- staðastræti 69 í Reykjavík, varð átt- ræð í gær. Friede er fædd á Akur- eyri og fluttist fjögra ára til Reykja- víkur með foreldrum sínum og hef- urbúiðþarsíðan. Starfsferill Friede var í námi í Kvennaskólan- um 1914-1917 og í námi í píanóleik hjá Katrínu Viðar. Hún vann hjá Eimskipafélagi íslands 1917-1922 og var í framhaldsnámi í píanóleik hjá Haraldi Sigurössyni prófessor 1922-1923. Friede vann hjá Eim- skipafélagi íslands 1923-1926 og vann á málflutningsskrifstofu Sveins Bjömssonar, Guðmundar Ólafssonar og Péturs Magnússonar frá 1926. Ásamt þessum störfum kenndi hún vélritun og píanóleik um langt árabil. Friede og Ásgeir bjuggu á Vesturgötu 16 til 1930 er þau festu kaup á húsinu Bergstaða- stræti 69 og fluttu þangað. Hún lærði fjölritun í Danmörku og setti á fót fjölritunarstofu í Tjamargötu 24 þegar eftir fráfall Ásgeirs. Friede flutti aftur á Berstaðastræti 691962 og rak Fjölritunarstofuna til átt- ræðs. Friede var í forystuliði Zonta- klúbbsins sem lengi hafði starfað að málefnum heymar- og mál- lausra. Fyrir forgöngu hennar tók klúbburinn að beijast fyrir stofnun heyrnarstöðvar í Reykjavík. Leiddi þetta til þess að heyrnardeild var stofnuð í Heilsuvemdarstöð Reykja- víkur og síðar Heymar- og tal- meinastöð íslands ásamt háls-, nef- og eymardeild Borgarspítalans. Fyrir störf sín var hún sæmd verð- launum Nordisk Audiologisk Sel- skap og fálkaorðunni auk þess sem hún var kjörin heiðursfélagi Zonta- klúbbsins. Fjölskylda Friede giftist 20. ágúst 1927 Ásgeiri Guðmundssyni, f. 31. ágúst 1899, d. 8. nóvember 1935, lögfræðingi í Rvík. Foreldrar Ásgeirs vom: Guð- mundur Einarsson, útvegsb. í Nesi á Seltjarnamesi, og kona hans, Kristín Ólafsdóttir. Synir Friede og Ásgeirs eru: Eggert, f. 6. ágúst 1929, skrifstofustjóri Sambands íslenskra rafveitna, kvæntur Sigríði Dag- bj artsdóttur, framkvæmdastj óra Tannlæknafélags íslands, böm þeirra em: Ásgeir fjölmiðlafræðing- ur, Dagur, háskólanemi í Ósló, og Auður, háskólanemi í Rvík. Dóttir Eggerts er: Ingibjörg, skrifstofu- maður í Mosfellsbæ, gift Kristjáni Júliusi Kristjánssyni; PáU Þórir f. 22. apríl 1931, yfirlæknir á bamageð- deild Landspítalans og Hringsins, kvæntur Lám Ingólfsdóttur, sölu- manni hjá Flugleiðum, börn þeirra era: Fríða og Ingólfur Verslunar- skólanemar og synir Páls frá fyrra hjónabandi em: Ámi Geir við- skiptafræðingur, sambýliskona hans er Sofiía Waag Árnadóttir, og Kári, plötusmiður og stúdent, kvæntur Guðrúnu Olafsdóttur. Systkini Friede era: Þórhildur, f. 7. desember 1896, gift Theodór Lín- dal, hrl. og prófessor; Eggert Ólafur, f. 6. júní 1898, d. 8. maí 1985, bóksali og fulltrúi í Rvík, kvæntur Sigríði Skúladóttur; Helgi, f. 18. júní 1902, d. 2. ágúst 1981, sendiherra, kvæntur Doris Parker og Þórdís, f. 1. apríl 1904 bókavörður í Rvík. Bróðir Fri- ede samfeðra er Kristinn, f. 8. októb- er 1887, d. 18. júní 1970, kaupmaður á Sauðárkróki, kvæntur Kristínu Björnsdóttur. Fóstursystir Friede er Jóna Einarsdóttir, gift Óla Vest- mann Einarssyni, yfirkennara prentiðna í Iðnskólanum í Rvík. Ætt Foreldrar Friede eru: Páll J. Briem, f. 19. október 1856, d. 17. desemb- er 1904, amtmaður á Akureyri, og kona hans, Álfheiður Helgadóttir, f. 11. nóvember 1868, d. 28. septemb- er 1962. Bróðir Páls amtmanns var Eiríkur prestaskólakennari, faðir Eggerts í Viðey, afa Eggerts stærð- fræðiprófessors. Annar bróðir Páls var Ólafur, alþingismaður á Álf- geirsvöllum, fyrsti formaður Frám- sóknarflokksins, faðir Þorsteins, prófasts og ráðherra, og Ingibjargar, konu Björns Þórðarsonar forsætis- ráðherra, fóður Þórðar ríkissak- sóknara. Systir Páls var Kristín, kona Valgarðs landsféhirðis, móðir Ingibjargar, konu Jóns Þorláksson- ar forsætisráðherra, og Maríu Kristínar, móður Gunnars Thor- oddsen forsætisráðherra og ömmu Magnúsar Thoroddsen og Helgu Kress. Páll amtmaður var sonur Eggerts Briem, sýslumanns á Reynistað, Gunnlaugssonar, sýslu- manns á Grund, Guðbrandssonar, ættfóður Briemsættarinnar, alls mn Friede Ingibjörg Pálsdóttir Briem. 2000 niðjar. Móðir Páls var Ingibjörg dóttir Eiríks, sýslumanns í Kollabæ, Sverrissonar og konu hans, Kristín- ar Ingvarsdóttur, b. á Skarði, Magn- ússonar. Móðir Kristínar var Ingi- björg Eiríksdóttur, b. í Bolholti, Jónssonar, ættfóöur Bolholtsættar- innar. Álfheiður var dóttir Helga presta- skólakennara, Hálfdánarsonar, og konu hans, Þórhildar Tómasdóttur, prófasts á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Sæmundssonar. Rögnvaldur Sverrir Möller Rögnvaldur Sverrir Möller, fyrrv. kennari, Aðalgötu 58, Ólafsfirði, varð sjötíu og fimm ára í gær. Starfsferill Rögnvaldur fæddist á Siglufirði en ólst upp hjá móðurforeldrum sínum í Óslandshlið í Skagafirði 1920-1935 en þar stundaði hann vegavinnu á sumrin síðustu árin. Rögnvaldur lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Siglufiarðar 1936 og kennaraprófi í Reykjavík 1938. Hann var farkennari í Ólafs- firði 1938-1944 og starfsmaður hjá IŒA í Ólafsfirði, síðar Kaupfélagi Ólafsfiarðar 1944-1959, lengst af deildarstjóri. Rögnvaldur starfaði hjá Útgerðarfélaginu Stíganda 1959-1967 við fiskverkun og síldar- söltun og þá oftast verkstjóri. Jafn- framt við skrifstofustörf og fiskmat. Hann var kennari í Barnaskóla Ól- afsfiaröar 1967-1980 og var þrisvar settur skólastjóri í forföllum. Hann hefur starfað við fiskvinnslu frá 1980. Rögnvaldur var félagi í Karlakór Ólafsfiarðar 1938-1967 og í stjóm kórsins um skeið. Hann var formað- ur Slysavamadeildar karla í Ólafs- firði 1951-1955 og í Björgunarskútu- ráði Norðurlands 1951-1958. Hann var fréttaritari Ríkisútvarpsins 1958-1974 og hefur verið félagi í Rot- ary-klúbb Olafsfiarðar frá 1972. Hann hefur starfað í ýmsum nefnd- um fyrir Ólafsfiarðarkaupstað, var endurskoðandi reikninga bæjarins 1958-1990, Sparisjóðs Ólafsfiarðar 1962-1990 og í Byggðasögunefnd Ól- afsfiarðarfrál983. Rögnvaldur samdi skáldsöguna Á miðum og Mýri, 1972, og framhald hennar, Fortíðin gleymist, í Heima er best, 1974. Þá hafa birst eftir hann ýmsar greinar í blöðum og tímarit- um. Fjölskylda Rögnvaldur kvæntist 15. janúar 1939 Kristjönu Helgu Bjamadóttur, f. 24. apríl 1919. Foreldrar Kristjönu vom Bjami Helgason vélstjóri og kona hans, Jakobína Anna Ingi- mundardóttir. Fósturdóttir Rögnvaldar og Krist- ínar er Lísbet Sigurðardóttir, f. 15. nóvember 1948, húsmóðir á Selfossi, gift Vilmundi Þór Kristinssyni. Systkini Rögnvaldar era Alfreð, f. 30. desember 1909, fyrrv. forstjóri á Akureyri, var kvæntur Friðnýju Siguijónu Baldursdóttur sem lést 1988; William Thomas, f. 15. mars 1914, d. 19. júlí 1965, kennari við Skógarskóla, var kvæntur Guðrúnu Siguröardóttur; Jóhann Georg, f. 27. maí 1918, verkstjóri hjá Síldarverk- smiðju ríkisins á Siglufirði, kvænt- ur Tryggvu Helenu Sigtryggsdóttur; Alvida Friðrika María, f. 10. des- ember 1919, húsmóðir í Hrísey, gift Birni Kristinssyni; Unnur Helga, f. 10. desember 1919, iðnverkakona á Siglufirði, var gift Jóni Ólafi Sig- urðssyni en þau slitu samvistum; Kristinn Tómasson, f. 8. júlí 1921, verkamaður í Kópavogi, var kvænt- ur Sigrúnu Björndóttur en þau slitu samvistum, og Jón Gunnar, f. 27. júlí 1922, verslunarmaður í Reykja- vík, kvæntur Nönnu Þuríði Þórðar- dóttur. Foreldrar Rögnvaldar voru Christian Ludvig Möller, f. 5. apríl 1887, d. 11. ágúst 1946, verslunar- maður og lögregluþjónn á Siglu- firði, og kona hans, Jóna Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir, f. 18. mrs 1885, d. 6. febrúar 1972. Christian var sonur Jóhanns Georgs Möller, kaup- manns á Blönduósi, Christiansson- Rögnvaldur Sverrir Mölier. ar Ludvigs Möllers, veitingamanns i Rvík, Olessonar Möllers, kaup- manns í Rvík, ættföður Möllersætt- arinnar á í slandi. Móðir Jóhanns kaupmanns var Sigríður Magnús- dóttir Norðfiörð, verslunarstjóra í Rvík, og konu hans, Helgu Ingi- mundardóttur. Móðir Christians lögregluþjóns var Alvilda Maria Williamsdóttir Thomsens, kaup- manns á Vatneyri, og kona hans, Ane Margrethe Lauritzdóttur Knudsens, kaupmanns í Rvík, ætt- föður Knudsensættarinnar. Jóna var dóttir Rögnvalds, b. í Miðhúsum í Óslandshlíð í Skaga- firði, Jónssonar. Móðir Rögnvalds var Gunnhildur Hallgrímsdóttir, b. á Stóru-Hámundarstöðum, Þorláks- sonar, dbrm. á Skriðu í Hörgárdal, Hallgrímssonar. Móðir Þorláks var Halldóra Þorláksdóttir, b. á Ásgeirs- brekku, Jónssonar, ættföður Ás- geirsbrekkuættarinnar. Móðir Jónu var Steinunn Jónsdóttir, b. á Þrast- arstöðum á Höföaströnd, Hallssonar og konu hans, Sigurbjargar Indriða- dóttur. Rögnvaldur er að heiman í dag. Ragnar Wiencke Ragnar Wiencke, lagerstjóri hjá Örtölvutækni, til heimihs að Vest- urbergi 94, Reykjavík, varð fertugur ígær. Ragnar fæddist í Kópavogi en ólst upp í Reykjavík. Hann er renni- smíðameistari og starfaði hjá Héðni 1970 til 1984. Þá hóf hann starf hjá bílavarahlutaversluninni Blossa sf. þar sem hann starfaði til 1990 er hann hóf störf hjá Örtölvutækni. Þáttaskil urðu í lífi Ragnars og konu hans er þau gengu Guði á hönd árið 1978 og hafa þau síðan unnið ötullega að safnaðar- og trúarstarfi. Voru þau fyrst í Seljasókn í Breið- holti en þar sat Ragnar í sóknar- nefnd, var meðhjálpariog vann fyr- ir unglinga- og barnastárf sóknar- innar. Þau hjónin gengu síðan í kristilega samfélagið Veginn sem nú er orðið fríkirkja. Ragnar situr í stjórn Vegarins en þau hjónin starfa við barnakirkju Vegarins og taka ásamt börnum sínum mjög virkan þátt í starfi safnaðarins. Ragnar kvæntist 12.4.1971 Sig- rúnu Ástu Kristinsdóttur, f. 17.6. 1951, húsmóður auk þess sem hún starfar á leikskóla KFUM og K. For- eldrar Sigrúnar Ástu: Kristinn Enok Guðmundsson, starfsmaður hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og Sig- urrós Inga Hannea Gunnarsdóttir húsmóðir sem lést 1989. Kristinn Enok og Sigurrós Inga Hannea eign- uðust átta böm en tvö þeirra dóu á unga aldri og eru því sex þeirra á lífi, gift og búsett á höfuðborgar- . svæðinu. Börn Ragnars og Sigrúnar Ástu eru Gunnar Ragnarsson, f. 10.1. 1973, nemi í Fjölbrautaskóla í Breið- holti en hann starfar á grænmetis- torginu í Kaupstað í Mjódd; Elsa Rós Ragnarsdóttir, f. 24.4.1976, nemi í Seljaskóla; Bernhard Ragnarsson, Ragnar Wiencke. f. 28.8.1981, nemi í Fellaskóla, og Inga Hanna Ragnarsdóttir, f. 3.11. 1985, í Leikskóla KFUM og K í Langagerði 1, Reykjavík. Systkini Ragnars: Karin Lena Fa- ber, f. 10.3.1938, húsmóðir í Iowa í Bandaríkjunum, gift bandarískum manni, Paul J. Faber, f. 30.9.1937 og eiga þau eina dóttur, Heidi Ann Faber, f. 23.5.1970, en hún stundar nám í menntaskóla; Pétur Wienche, f. 16.8.1941,kvænturÁstuKristins- dóttur, f. 2.10.1944 en þau eru bú- sett í Reykjavík og eiga þijú börn, Sigrúnu, f. 16.11.1964, Bernhard Kristin, f. 13.4.1966 og Þórdísi, f. 27.6.1967 sem öll eru gift en barna- börn Péturs og Ástu em fiögur. Foreldrar Ragnars: Bernhard Al- bert Fritz Wiencke, f. 28.6.1913, d. 1958, en hann starfaði m.a. hjá ferða- skrifstofunni Orlof og Bræðrunum Ormsson, og Elsa Frieda Wiencke, f. 27.4.1921, d. 1970, húsmóðir og ræstingakona. Bernhard ogElsa fluttu til íslands 1949 og áttu þar heima eftir það en þau voru bæði ættuð frá Hamborg í Þýskalandi. HansAdolfLinnet, * Svöluhrauni 2, Hafnarfirði. Steinunn B. Kristjánsdóttir, Týsgötu 4C, Reykjavík. 85 ára Hallfriður G.K. Guðjónsdóttir, Furugerði 1, Reykjavík. Ágústa Ágústsdóttir, Svinadal, Skaftárhreppi. Pálína Vigfúsdóttir, frá Flatey á Breiðafirði, Hvannborg 1, Kópavogi. Guðmundur Magnússon, Hávegi 10B, Síglufirði. ÞórðurEIíasson, Hólshúsum, Gaulverjarbæjar- hreppi. Stefán Ólafsson, Ólafsvegi, Ólafsfirði. Ólöf Sigurðardóttir, Hátúni 10, Reykjavík. LiljaJónsdóttir, Kálfstöðum, Vestur-Landeyjar- hreppi. 50ára_______________ Sigurbjörg ísaksdóttir, Flúðaseií 77, Reykjavík. Tryggvi Eymundsson, Hólavegi 9, Sauðárkróki. Guðrún Sigurjónsdóttir, Sefgöröum 4, Seltjarnamesi. Björn Hafsteinsson, ---- Brekkubraut 17, Akranesi. Guðrún Erla Aðalsteinsdóttir, Aflagranda 3, Reykjavik Pétur Snæland, Reykjafold 8, Reykjavík. Sigríður Guðmundsdóttir, Eyrarbraut7, Stokkseyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.