Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Blaðsíða 28
36 MÁNUDAGUK 8. ( Merming lorðastað Enn einu sinni stendur Alliance Francaise fyrir ágætri gestakomu hingaö til lands og hefur að þessu sinni fengið látbragðsleikarann Laurent Decol til þess að flytja okkur orðlausa list sína. Fyrri sýning hans var á Litla sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Þar flutti hann verkiö Timoleon Magnus, en það fjallar um lífshlaup manns í því fiókna og margbrotna umhverfl, sem við þekkjum í dag, um- hverfi, sem er í senn ógnvekjandi og hlálegt í verki Decols. Tækni hans er óaöfinnanleg og byggir að sjálfsögðu á grunni hinnar hefðbundnu látbragðshstar. Laurent Decol var nemandi sjálfs Marcel Marceau og ber túlk- un hans vitni um trausta undirstöðu. En hann leitar víöar fanga, hefur jafnvel orðið fyrir áhrifum frá meisturum þöglu myndanna og er alls ófeiminn við að koma áhorfendum til að hlæja. FeriU söguhetjunnar Timoleons er næsta broslegur. Við kynnumst honum fyrst í móðurkviði þar sem hann hefur það ósköp gott þó að plássið sé htið. Fæðingin og fyrstu kynni hans af veröldinni eru túlkuð á bráð- fyndinn hátt og áður en varir eru áhorfendur famir að taka þátt í sýningunni. Decol lætur nefnilega ó- spart í ljós ánægju sína með undirtektir þeirra, þegar honum líkar vel, en lætur þá hafa það óþvegið eila (án orða auðvitað). Hann lætur líka óviðbúna áhorfendur taka beinan þátt í nokkrum atriöum. Viö borð lá að einn lítill sýn- ingargestur „stæli senunni", í gærkvöldi, þegar hann veitti Decol aðstoö í atriði þar sem Timofeon ætlar að gerast kraftlyftingamaður en gengur brösulega að venju. Það er sama hvað þessi dæmigerða andhetja tekur sér fyrir hendur. Hann reynir fyrir sér sem fjöllista- maöur, þjónn, rokkari og jafnvel bankaræningi, en klúðrar öllu. Látbragðsleikur Laurent Decol er hárnákvæmur og vel útfærður. Verkið sem hann sýnir hér er með léttu yfirbragði og þó að ferill söguhetjunar sé grátbroslegur örlar ekki á þeim þunga undirtóni trega og sorgar sem oft má fmna í viðfangsefnum látbragðsleikara. Einhverra hluta vegna hafa íslenskir leikarar ekki lagt fyrir sig látbragðsleik að neinu ráði, þannig að Laurent Decol látbragðsleikari. Leiklist Auður Eydal helst getum við notið sýninga af þessu tagi þegar er- lenda gesti ber að garði. Heimsókn Laurent Decol er vel þegin viðbót við margar ágætar gestasýningar, sem Alliance Francaise hefur staðið fyrir á undanfórnum árum. í kvöld gefst aftur tækifæri th þess að sjá þessa skemmtilegu sýn- ingu sem óhætt er að mæla með við alla sem áhuga hafa á látbragðslist. Litla svið Þjóöleikhússins: Gestaleikur á vegum Alliance Francaise de Reykjavík: Timoleon Magnus Höfundur og flytjandi: Laurent Decol. -AE Andlát Anna Sveinsdóttir, fyrrum prestsfrú á Kirkjubæ í Hróarstungu, andaðist 4. október. Marta Clausen, Strandgötu 61, Eski- firði, lést aðfaranótt 3. október á Fjóröungssjúkrahúsinu í Neskaup- stað. Einar Vídalín Einarsson loftskeyta- maður, Vogatungu 35, Kópavogi, er látinn. EINSTAKT A ISLANDI BLAÐSIÐUR FYRIR KRONUR BÝÐUR NOKKUR BETUR? Úrval TIMARIT FYRIR ALLA Indriði Halldórsson múrari lést í Borgarspítaianum að kvöldi mið- vikudagsins 3. október. Guðfinna Á. Árnadóttir, Gnoðarvogi 20, Reykjavík, lést aðfaranótt 5. okt- óber. Ingibjörg Þórðardóttir, Hrísmóum 9, lést í Landspítalanum 4. október. Jarðarfarir Kristinn Guðjónsson, Víðimel 55, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni þriðjudaginn 9. október kl. 13.30. Kristján Jóhannsson, fyrrverandi vegaverkstjóri, Bólstaðarhlíð 6, verð- ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. október ki. 13.30. Þórður Bogason frá Flatey, Rauða- læk 18, Reykjavík, veröur jarðsung- l iulurskin á hilhurðmn e\kur örvggi-i umferðinni Fréttir inn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. október kl. 15. Ó. P. Anna Hallgrímsdóttir, Erluhól- um 5, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju þriöjudaginn 9. október kl. 13.30. Guðbjörg Runólfsdóttir frá Gröf, Hvassaleiti 56, Reykjavík, verður jarðsungin frá Akraneskirkju mið- vikudaginn 10. október kl. 11. Tilkyimingar Myndlistarsýning í Fjölbraut, Breiðholti í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti stend- ur yfir myndlistarsýning á verkum þjóð- kunnra listamanna, fyrrverandi nem- enda skólans. Sýningin stendur til 11. október og er opin mánudag 8. okt. kl. 14-20, þriðjud. 9. okt., kl. 14-18 og mið- vikud. 10. okt., kl. 14-20. Listamennirnir sem sýna eru Guðbjörg Hjartardóttir, Georg Guðni, Sara Vilbergsd., Ráöhildur S. Ingadóttir, Ólafur Sveinn Gíslason og Helgi Valgeirsson. Þá verða í kvöld kl. 21 hljómleikar með hljómsveitunum Org- ill, Innri og Afródídu. Um dáleiðslumeðferð eftir Friðrik P. Ágústsson Vegna blaðaskrifa í DV laugar- daginn 6. okt. sl. sé ég ástæðu til að svara þessari grein. í fyrrnefndri grein er sagt aö tug- ir Vestfiröinga séu óánægðir með eikatímana. Ekki get ég skihð að ein kona geti svarað fyrir hönd ahra Vestfirðinga og staðið fast á sínu. Frá því að hún kom til min og þessi grein birtist var ekki hðin vika frá því að ég var á ísafirði. Þegar fólk kemur til mín þarf það að hafa vilja og ákveðni til þess að hætta að reykja, grennast o.fl. Dá- leiðsla gerir ekki kraftaverk en hún er eitt það öflugasta hjálpartæki sem til er til þess að komast yflr langanir og freistingar í sígarettur og mat. Margt sem kom fram í greininni er mjög röng túlkun á dáleiðslunni. Til að byrja með er ég oftast frá 30 til 45 mínútur með hvem og einn, en ekki tíu mínútur eins og kom fram. 5000 krónur stendur skýrum stöfum fyrir tíu mínútur. Þarna er verið að reyna að koma óorði á tímana með því að tíminn sé mjög dýr en það er ekki rétt. Þaö er rétt að það kostar 5000 krónur að koma í tíma, en skoðum hvað þú kaupir. Tökum dæmi að hætta að reykja, ef þú, lesandi góður, ætlar að hætta aö reykja og finnur ahtaf til mikillar löngunar og vana getur svona tími komið að góðu gagni því fyrir þann pening sem þú greiðir færðu einka- tima og hljóðsnældu sem er sérs- taklega gerð fyrir þessa einkatíma og virkar sem framhald af þeim. Þessa hljóðsnældu hlustar þú á einu sinni á dag allt upp í viku- tíma, á þessum tíma flnnur fólk (í flestum tilvikum) fyrir mikilli breytingu á löngun sinni í sígarett- ur. Eins og ég hef áður tekið fram er dáleiðsla hjálpartæki en ekki kraftarverkatæki. Það er ekki hægt að láta fólk hætta að reykja ef vilj- inn er ekki fyrir hendi og það. er ekki hægt að dáleiða fólk sem streitist á móti. Viðmælandi DV, Þórdís Steinþórsdóttir í Bolungar- vík, kom til mín mánudaginn 2. október kl. þrjú, þetta var mjög minnisstæður tími hjá mér vegna neikvæðni hennar í garð dáleiðslu. Til að byija með sagði hún mér að hún tryði ekki á dáleiðslu, ég spurði þá strax hvað hún væri að gera hér því að með þessu hugar- fari gæti hún alveg eins sleppt tím- anum. Nei, svaraði hún eftir ca tíu mínútna umræðu um dáleiðsluna. Ég viðurkenni það að hún tók ekki við dáleiðslunni sem stóð yfir ca 30 mínútur nema að því leytinu til að henni fannst hún vera aðeins 10 mínútur. Eftir tímann sagði hún mér að hún væri ekki ánægð með þessa dáleiðslu og hún hefði ekki virkað á sig, þá bauð ég henni að borga ekki og hún fengi þá ekki hljóðsnælduna. Þá svaraði hún: „Nei, ég borga fyrir tímann og fæ hljóðsnælduna til að reyna þetta allavega." Ég hef í dag tekið mörg hundruð manns í dáleiðslu og unn- ið víðs vegar um land og víðs vegar um heim. Fólk er mismóttækilegt og er árangur misgóður. Hjá því fólki sem ég hef fylgst með hafa ca 80-90% hætt að reykja t.d. og hef ég mjög marga ánægða viðskipta- vini. Svona starf hefur afltaf verið umdeilt því að það þarf bara einn til að koma óorði á það og það sann- aðist sl. laugardag. Því ein kona af hundruðum ánægðra viðskipta- vina hætti ekki að reykja. Það er sorglegt ef hægt er að drepa svona góða hluti og starfsstétt persónu út frá sjónarhorni einnar mann- eskju. Ég trúi á aö fólk geti dæmt fyrir sjálft sig og hafi frjálsan ákvörðunarrétt og ef það kemur til mín er það þess ákvörðun en ekki mín og er árangur byggður upp á samvinnu okkar í að yfirvinna hlutina. Með kærri kveðju og þökk fyrir birtinguna. Söng- og skemmtifélagið Samstilling er aö hefla vetrarstarfið. Nýir félagar velkomnir. Sungið á mánudagskvöldum kl. 20.30-23 í félagsheimili Tónlistar- manna, Vitastíg 3. Fundir ITCdeildin Eik, Nes/vesturbæ, heldur fund í kvöld, 8. október, kl. 20 að Hallveigarstöðum, Tún- götu 14, Reykjavík. Fundarstef: Launin fyrir gott verk eru fólgin í því aö hafa unnið það. Upplýsingar gefur Borghildur í síma 26816. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í félagsheimilinu Baldursgötu 9 kl. 20.30 miðvikudaginn 10. október. Rætt verður um vetrarstarfið, tekið í spil. Félagskon- ur Qölmennið. ITC-Kvistur Fundur í kvöld kl. 20.00 í Holiday Inn. Gestir velkomnir. Uppl. gefur Olga í síma 35562. Námskeið Námskeið í heilun Helgamar 12.-14. og 19.-21. október verða haldin námskeið í heilun. Leiðbeinandi er Lone Svargo. Hún er dönsk og hefur unnið við nudd og heilun frá 1978. Fyrri helgina verður verður kennd aðferð til að koma á jafnvægi milli orkustöðva lik- amans, sem notuð hefúr verið í klaustr- um í Tíbet um aldaraðir (Tíbetan Heal- ing). Seinni helgina verður kennt að losa um spennu og koma á jafnvægi í vefjum umhverfis heila og mænu. Þessi aðferð losar um uppsafnaða streitu og eykur almenna vellíðan (CranioSacral Balan- cing). Verð ein helgi kr. 9.000, báðar helg- ar kr. 14.000. Nánari upplýsingar hjá Gitte s. 29936 og Önnu Maríu s. 44017. í Fjölmiðlar NYJUNG I SKILTAGERÐ Jón Jónsson F. 21. október 1800 - D. 9. maí 1900 Hvíl ífriði 1 Framleiðum skilti úr álblöndu með Ijósmyndum og skrautrituðum / texta ef óskað er. Mynd og texti afar skýr og rafhúðað yfirborð sem endist óbreytt í áraraðir utanhúss. IIiynQir íáhtí^h íimidir Skeifunni 6 • Pósthólf 8650 • 128Reykjavík • Simi 687022 • Fax 687332 Mjúkir menn og harðir Mjúkir menn þora að ganga í bleikum og rauðum skyrtum. Þeir eru góðir við konur og sýna þeim skilning og nærfærni. Samt gleyma þeir aldrei kynhlutverki sínu, jafn- vel ekki þó þeir vinni innan um konur allan guðslangan daginn. En þó þeir séu mjúkir eiga þeir samt að vera harðir því það líkar mörgum konum. Þessi djúphugsaða lífsspeki er fengin úr þættlnum Sjafnaryndi sem er á dagskrá á Aðalstöðinni kl. 22.00 á sunnudögum. Umsjónar- menn þáttarins i gærkvöldi voru Haraldur Kristjánsson og Elísabet Jónsdóttirkynfræðingur. Þátturinn er sagður vera fróðlegur þáttur um samlífkynjanna. Stjórnendur eyddu miklum tíma i þaö að reyna aö fá fólk til þess að hringja inn tii þáttarins og ræða vandamál sín eða skiptast á góðum ráðum í kynlíflnu. Það bar ekki árangur að ráði. Þó hringdu tveir miðaldra karlmenn ogrædduviðþauogein ung kona hringdi og upplýsti að margar kon- ur dreymdi um harða og hrotta- fengna karlmenn. Aðalstöðin hefur, ólíkt öðrum einkastöðvum lagt dálitla áherslu á talmálsþætti. Þessi tíltekniþáttur var því miöur afar klunnalegur og framsetningín virkaði stirð og litt undirbúin. Hvorugt unsjónar- manna er vel til starfans fallið og textinn sem þau voru með var ótta- lega ambögulegur og fálmkenndur. Þó tók steininn úr þegar Elísabet fór aö lesa upp úr bók um líkamstján- ingu. Þar hjálpaðist tvennt að. Text- inn var tyrfinn ogþokukenndur, auöheyrilega illa þýddur úr ensku og Elísabet tæplega nógu vel læs til þess að gera það í útvarp. Stór hluti þáttarins var lagöur undir tónlist af ýmsu tagi. Þegai' verið var að tala við hlustendur mallaði stöðugtlágvær píanótónlist undir. Þessi hf Ifkæföa Clayderman niðursuöa truflaði hlustendur sem flestir hafa örugglega haft heilbrigð- an áhuga á því sem fjallað var um en fæstir þolinmæði til þess að lilusta áþáttinn til enda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.