Alþýðublaðið - 07.05.1968, Blaðsíða 6
Konur í skáldskap
miuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiniiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii*
Mikil þátttaka í sjóstangraveiðimóti. :
| 8 keppendur
I frá S-Afrsku
MENNINGAR OG FRIÐARSAM
TÖK ÍSLENZKRA KVENNA
efna til veglegrrar bókmennta-
kynningar miðvikudaginn 8.
maí kl. 8.30 í Lindarbæ. Þetta
er annað árið, sem samtökin
minnast friðardagsins méð
þessum hætti. í fyrra gengust
þau fyrir kynningu á„verkum
Jakobínu Sigurðardóttur og
buðu henni hingað suður við
það tækifærí.
Að þessu sinni verður bó_k-
menntakynningunni ætlað að
gera nokkra grein fyrir stöðu
konunnar í íslenzkum bók-
menntum. Ólafur Jónsson rit-
stjóri flytur erindi, sem hann
nefnir Konur í skáldskap. A
eftir erindinu verða kynnt
verk 6 kvenna, sem nýlega
hafa sent frá sér bók ellegar
eru með bók í smíðum. Drífa
Vjðnr mun lesa kafla úr skáld
sqgu, sem hún er að vinna að,
ert fyrir jólin ’67 kom út fyrsta
bijk hennar, skáldsagan Fjall-
daíslilja- Svava Jakobsdóttir
Ies einnig úr óprentaðri skáld
sdgu. Svava hefur til þessa
eingöiigu fengist við smásagna
gerð og hefur gefið út tvö smá
sagnasöfn (12 konur og Veizia
undir grjótvegg) frá því að
hún fyrst kvaddi sér hljóðs
með verðlaunasögu í tímarit-
inu Lífi og list 1950. Oddný
Guðmundsdóttir er þriðji prósa
höfundurinn, sem verður
kynntur. Bryndís Schram leik
kona les kafla úr skáldsögu
hennar Skuld, sem kom út fyr
ir jólin. Skuld er fimmta skóld-
saga Oddnýjar hinar heita:
Svo skal böl bæta, Veltiár,
Tveir júnídagar og Á því herr
ans ári. Auk þess hefur Oddný
skrifað smásögur og leikrit.
Oddný er farkennari og er nú
Ólafur Jónsson.
bundin við störf sín norður í
landi og getur því ekki lesið
sjálf. Þá verða kynnt þrjú ljóð
skáld. Sólveig Hauksdóttir
leikkona les úr nýútkominni
bók Halldóru B. Björnsson Við
sandá. Fyrri bækur Halldóru
eru Ljóð 1949, Eitt er það land
(skáldsaga) 1954i og Ljóðaþýð-
ingar 1959. Nína Björk Árna-
dóttir les úr ljóðabók, sem
kemur út í haust og á að heita
Undarlegt er að spyrja menn-
ina. Það verður önnur bók
Nínu Bjarkar, sú fyrri Ung
Ijóð kom út 1965. Vilborg Dag-
bjartsdóttir les úr bókum sín
um Laufið á trjánum, sem kom
út 1960 og Dvergliljur, sem
verður maíbók Helgafells.
Bríet Héðinsdóttir leikkona
verður kynnir.
Á BATAVEGI.
Bretinn Frederick Wést, sem
fékk nýtt hjarta á föstudaginn,
gat þegar í gær gengið nokkur
skref, drukkið glas af sherry og
rætt við konu sína. Kona hahs
heimsótti hann í gær og dvaldi
með honum nokkrar mínútur og
var hún fyrsta manneskjan sem
hann leit augum eftir aðgerðina.
Árlegt Meistaramót Evrópu
€
= sambands sjóstangaveiðimanna
i verður haldið hérlendis dag-
l ana 1-3 júní n.k. Nú hafa t'il
| kynnt þátttöku um 75 útlend
| ingar víðsvegar að úr heim-
| inum t.d. frá Brettandi, Fraltk
| landi, Ítalíu, Spáni, Sviss og
| Norðurlöndum. Þótt mótlð sé
| kallað Evrópumeistaramót er
1 það opið öllum þjóðum og hafa
§ t.d. 8 keppendur frá S-Afríku
| tilkynnt þátttöku svo og nokkr
| ir frá Bandaríkjunum og Kan
i ada.
| Til gamans má geta þess,
§ að undirbúningsnefnd mótsins
| hefur undanfarið staðið í bréfa
| sambandi við vel þekkta
| Hollywooo-stjörnu, Söngvarann
| og leikarann góðkunna, Bing
1 Crosby, en hann er mikill á-
| hugamaður um sjóstangaveiði.
| Hefur hann sýnt mikinn áhuga
i á því að koma hingað til
= lands og taka þátt í mótinu.
íslendingar munu að sjálf-
sögðu fjölmenna á mótið og
verða íslenzkir þátttakendur
um 75 talsins. Mikill hugur er
í „landanum” að gefa sig ekki
fyrr en í fulla linefana. ís-
lendingar hafa tekið þátt í slík
um mótum erlendis. Síðast tóku
fjórir félagar úr Reykjavíkur
félaginu þátt i móti, sem hald
ið var í Gibraltar á Spáni ár-
_ið ’66. Voru það þau Vala Bára
Guðmundsdóttir, Jónas Hall-
dórsson, Einar Ásgeirsson og
Asgeir Jónsson. Reyndist sveit
in mjög sigursæl og varð Vala
Bára Evrópumeistari, en auk
þess vann sveitin svokallaða
borga-keppni, en í þeirri
kepp-ni voru fjögurra manna
sveitir frá mörgum borgum.
Alls hlaut íslenzka sveitin 17
verðlaunagripi á mótinu.
Eggert G. Þorsteinsson sjáv
arútvegsmálaráðherra, hefur
Framhald á bls. 14.
IIIMmillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllfllllllllllllllllllllllllllMIIIMIIMIIMIIIIIIIMIIIIIIIMMIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Höfum tekið ao okkur
heildsöludreifingu á
Bíldudalsniðursuðu
frá
Bí/dudalsgrænmeti
Bíldudalsfiskmeti
Bíldudalskjötmeti
MatvælaiBjunni hf.
Bíldudal
O. Johnson & Kaaber hf.
0 7. maí 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ