Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995
9
i>vStuttar fréttir
Hert öryggi
Bandaríkjamenn hafa hert ör-
yggi á flugleiðum yfir KjTrahafi
vegna sprengjuhótana.
Sexvegnir
Þrír lögregluþjónar og þrir upp-
reisnarmenn vinstrimanna féllu
í átökum í Chiapas í Mexíkó.
Páfahótað
Tveir menn
eru í haldi lög-
reglunnar á
Filippseyjum
vegna gruns
um að hafa
stefnt öryggi
Jóhannesar
Pals þáfa í yoða
en páfi kemur 1 heimsókn til eyj-
anna á morgun.
Bannaðaðreylqa
Borgarstjóri New York undir-
ritaði einhver ströngustu lög
gegn reykingum sem um getur.
Staða Jeltsíns veikari
Talið er að staða Jellsíns Rúss-
landsforseta sé veikari en áður
vegna ástandsins í Tsjetsjeníu.
Áferðaiagi
Priðflytjendur ætla að fara í
ferð um fyrrum Júgóslavíu til að
styrkja vopnahléið.
Ekki dregið úr
Orkumálaráðherra Noregs
sagði að ekki yrði dregið úr olíu-
framleiðslunni.
Nýsýn
Tony Blaír,
formaöur
breska Verka-
tnannaflokks-
ins. setti fram
hugmyndir sín-
ar um nýja Evr-
ópu í fyrstuferð
sinni til Brussel
í gær og sagði að Bretland yrði
að vera þar í fararbroddi.
Segistsaklaus
Rússneskur sjónvarpsfrétta-
maöur í Bretlandi segist saklaus
af ákærum um rtjósnir.
Balladuránægður
Balladur, forsætisráðherra
Frakklands, segir stjórn sína hafa
komið á meiri umbótum en nokk-
ur önnur.
Ekkertgekk
Scalfaro Ítalíuforseta tókst ekki
að leysa stjórnarkreppuna í gær.
írökum hótað
Öryggisráð S.Þ. krefst þess að
írakar skili vopnum sem þeir
stálu frá Kúveit og leyfi eftirlit
með vopnabirgðum sínum.
Christopheráfram
Warren Chri-
stopher, utan-
ríkisráðherra
Bandaríkjanna,
vísaði í gær á
bug enn einum
orðrómi um að
hann ætlaði að
segja af sér en
embættismenn sögðu í einkasam-
töium að Clinton hefði talað hann
ofan aí þvi.
Tveirmeiddust
Tveir israelskir hermenn
meiddust í sprengingu sem
skæruliðar stóðu að í Gaza í gær.
Fjórirdóu
Byssumenn drápu fjóra í kirkju
i Alsír í gær. Fimmti meiddist
alvarlega. Ueuter
Útlönd
Camilla Parker-Bowles og hennar langþjáði eiginmaður skilja:
Verður hin synduga
Camilla drottning?
Karl Bretaprins gæti innan tíðar gifst
hjákonu sinni til margra ára, Cam-
illu Parker-Bowles, ef hann ákveður
að binda formlega enda á hið mis-
heppnaða hjónaband hans og Díönu
prinsessu. Camilla og eiginmaður
hennar, hðsforinginn Andrew Par-
ker-Bowles, tilkynntu í gær að þau
hygðust skilja eftir 21 árs hjónaband.
Sérfræöingar um málefni konungs-
fjölskyldunnar voru hins vegar flest-
ir á því að Camilla gæti aldrei orðið
drottning.
Nýjasti þátturinn í sápuóperunni
um konungsfjölskylduna hófst í gær
þegar Andrew og Camilla tilkynntu
um skilnaðinn. Þegar hófust miklar
vangaveltur um að Karl myndi einn-
ig fara fram á skilnað við Díönu og
koma þannig konungsfjölskyldunni
inn í verstu kreppu sína síðan Ját-
varður áttundi afsalaði sér filkalli til
krúnunnar og giftist Wallis Simpson,
fráskilinni bandarískri konu, árið
1936.
Breska dagblaðið Daily Mirror
vitnaði í hjákonuna og-sagði hana
hafa lýst því yfir að hún hefði elskað
Karl lengur en minnið næði og einn
góðan veðurdag ætlaði hún sér að
verða eiginkona hans. Karl og Cam-
illa hafa átt í ástarsambandi af og til
í 25 ár.
Ekkert stjórnarskráratriði er til
sem getur komið í veg fyrir að Karl
giftist fráskilinni konu og verði
kóngur. Hins vegar yrði almennings-
álifið honum þungur baggi. Einn
konungssérfræðingurinn segir að
gifting komi einfaldlega ekki til
greina. Almenningur muni ekki
leyfa það. Fólk liti á Camillu sem
hina bersyndugu konu.
Talsmaður Karls sagði í gær að
ekkert hefði verið rætt um skilnað
milli Díönu og Karls. Díana hefur
alltaf verið sannfærð um það að
Camilla hafi eyðilagt hjónaband
Sérfræðingar um málefpi konungsfjölskyldunnar telja ólíklegt að Camilla
Parker-Bowles verði næsta drottning. Almenningur i Bretlandi liti á hana
sem hina bersyndugu konu. Diana kallar Camillu jafnan „Rottweilerhund-
inn“ og hún var valin verst klædda kona heims I gær. Símamynd Reuter
þeirra Karls. Hún kallar Camillu
j^fnan „Rottweilerhundinn" en
mörgum finnst sú tegund ekki sér-
lega falleg. Karl hefur hins vegar
kallað Camillu „ást lífs míns". Þær
gætu ekki verið ólíkari Camilla og
Díana. Díana er sú kona í heiminum
sem oftast er ljósmynduö. Hún þykir
afskaplega glæsileg og smekklega
klædd. Camilla var hins vegar valin
verst klædda konan af tískusérfræð-
ingumíHollywoodígær. Reuter
Allt það nýjasta á
vélsleöamarkaðinum.
Úrval af aukabúnaði.
Vélsleða- og útilífssýningin
Vetrarsport ’95
íþróttaskemmunni á Akureyri
14. og 15. janúar n.k.
- opið kl. 10-18 laugardag og
13-18 sunnudag
Glæsileg aðstaða fyrir sýnendur og gesti. Næg bíla-
stæði, góð aðkoma.
Arctic Cat, Polaris, Ski-doo og Yamaha sýna 1995
árgerðirnar af vélsleðum. Allar nýjungarnar í vél-
sleðaheiminum á einum stað.
Aukabúnaður í vélsleða af ýmsu tagi, jafnt til
keppni og ferðalaga. Kerrur, farangursgrindur, hlið-
artöskur, olíur, leiðsögutæki, öryggisútbúnaður
o.fl. o.fl.
Allt um GPS á einum stað
Mikið úrval af útivistarfatnaði, svo sem gallar, stíg-
vél, vettlingar, gönguskór og margt, margt fleira.
Allt um vélsleðakeppnir. Fremstu vélsleðaökumenn
landsins verða á staðnum.
Aukaafsláttur af helgarpakkaferðum til Akureyrar,
flug og gisting á Hótel KEA, hjá Úrvali-Útsýn
(s. 96-25000).
Einnig afsláttur á gistingu á Hótel KEA vegna
Vetrarsports '95.
Árshátíð LÍV
Hótel KEA laugardagskvöldið 14. Janúar
Nú verður árshátíðin tekin föstum tökum.
Sú besta frá upphafi.
* Fordrykkur
Þríréttaður kvöldverður
* Frábær skemmtiatriði
Hljómsveit Geirmundar sér um fjörið
fram á rauðanótt.
Svíar verða að
spara 200
milljarða króna
Göran Persson, fjármálaráðherra
Svíþjóðar, lagði fram fyrsta fiárlaga-
frumvarp sitt í gær og þar er gert ráð
fyrir niðurskurði upp á rúma tvö
hundruð milljarða íslenskra króna.
„Við verðum aö skera niður hluta
velferðarkerfisins til að bjarga
kjarna þéss,“ sagði fiármálaráðherr-
ann, en erfiðasta spurningin verður
hvort lækka eigi barnabætur.
Tillögur Perssons um sparnað, auk
skattahækkana og niðurskurðar sem
þingið hefur þegar samþykkt, miða
að því að stöðva aukningu skulda-
söfnunar ríkisins 1997 og lækka
skuldirnar 1998.
Persson vill þó ganga lengra og
hann sagöi í viötali að hann hefði
ekki lagt fram sitt síðasta fiárlaga-
frumvarp.
TT