Þjóðviljinn - 15.01.1955, Side 5
Laugardagur 15. janúar 1955 — ÞJÓÐVTLJINN — (5
Bretar skelfast samstarf Sov-
étríkjanna og Bndlands
HöfBu nesfaÖ aS reisa sfálverksmiSju
fyrir Indlandssfjórn en skipfu um skoS-
un þegar sovétsfjórnin hljóp i skarSiS
Indlandsstjórn er nú í þeirri öíundsverðu aðstöðu
að erlendir aðilar keppast við að bjóða henni stór-
lán cg aðstoð við iðnvæðingu landsins. Til skamms
tíma fengu Indverjar dauíar undirtektir hjá Vestur-
veldunum, en annað hljóð kom í strokkinn þegar
þeir tóku að semja við Sovétríkin og fengu þaðan
liagstæð tilboð.
Eitt af herskipun Sjangs sekkur
?
1 fyrra slitnaði með öllu upp
úr samningum milli Indverja
og brezkra aðila um byggingu
stáliðjuvers í Indlandi. Bret-
arnir vildu fá að eiga iðjuver-
ið sjálfir en Indlandsstjórn tók
ekki annað í mál en að það
yrði ríkiseign.
Buðu aðstoð.
Nokkru eftir þessi málalok
bentu sovézkir aðilar iðnrek-
anda í Bornbay á að Sovétrík-
in hefðu öll skilyrði til að geta
tekið að sér að reisa stáliðju-
ver fyrir Indverja. Hann skýrði
ríkisstjórn sinni frá þessu boði
Baden-Badeii
Framhald af 1. síðu.
Adenauer
ingunum og hin ólíka túlkun
þeirra í París og Bonn gefi and-
stæðingum hervæðingarinnar í
V-Þýzkalandi hættulega mikinn
byr undir vængi.
Parísarsamningarnir
í veði
Hið áhrifaríka vesturþýzka
blað Die Welt í Hamborg sagði
í fyrradag að enn væri mikið
■eftir ógert og enn þyrftu bæði
Þýzkaland og Frakkland að
gera miklar tilslakanir, ef vonir
ættu að vera um fullt sam-
komulag þeirra á milli. Viðræð-
ur þeirra Mendes-France og Ad-
enauers væru hinar mikilvæg-
ustu; þar yrðu ráðin örlög Par-
ísarsamninganna.
U. Keith látinn
Hinn kunni brezki mannfræð-
ingur, sir Arthur Berridale Keith,
er nýlátinn á heimili sínu við
London, 88 ára að aldri.
Keith varð fyrstur manna til
að efast um, að allt væri með
felldu um fund Plltdownmanns-
ins svonefnda, sem nú er sannað
að var falsaður.
og brátt hófust samningar
milli indverskra og sovézkra
aðila.
Þeir gengu svo vel að þessa
dagana er verið að leggja síð-
ustu hönd á samninga um að
Sovétríkin byggi stáliðjuver í
Indlandi. Framleiðslugeta þess
á að vera 856.000 lestir af
stáli. Verksmiðjan verður
byggð til að framleiða járn-
brautarteina, hjól, byggingar-
stál og fleiri vörur.
Stuttur byggingartími.
Sovézku samningamennirnir
hafa tekið að sér að ljúka við
stáliðjuverið á þrem árum í
stað fjögurra til fimm ára
sem vestrænir aðilar telja síg
þurfa til samsvarandi verks.
Þessi byggingarhraði kemur
sér sérstaklega vel fyrir Ind-
verja, sem hafa sett sér það
mark að auka stálframleiðslu
sína úr 1.200.000 tonnum í
4.500.000 til 6.000.000
árið 1961.
Lágir vextir af sovétiáni.
Skilyrði fyrir byggingu stál-
iðjuveranna er að Indverjar
fái byggingarkostnaðinn að
láni til langs tíma. Lánskjör-
in sem Sovétríkin bjóða eru
helmingi hagstæðari en boð
Breta hvað vaxtagreiðslur
snertir. Sovétstjórnin lætur sér
nægja 2,5% vexti af sínu láni
en Bretar segjast þurfa að fá
4 til 5% vexti.
Gagnlegar
viðræður
— segir Hammarskjöld
Dag Hammarskjöld hélt
fund með blaðamönnum í New
York í gær og skýrði þeim frá
viðræðum sínum í Peking.
Hann sagðist álíta að viðræð-
urnar hefðu verið mjög gagn-
legar, náðst hefði samband við
stjóm Kína sem æskilegt væri
að halda, og rangar hugmyndir
um stefnu og markmið hennar
hefðu verið leiðréttar.
Bandarískt afsvar.
Áður hafði Indlandsstjóm
leitað fyrir sér um lán í Banda
ríkjunum og bandaríska að-
stoð við byggingu stáliðjuvers
en fengið þvert nei. Ástæðan
til að Bandaríkjamenn neituðu
um aðstoð var að það var ó-
frávíkjanlegt skilyrði af hálfu
Indlandsstjórnar að stáliðju-
verið yrði þjóðnýtt en ekki í
| einkaeign.
Vöknuðu við vondan draum.
Hammarskjöld gaf Henry
Cabot Lodge, aðalfulltrúa
tonna Bandaríkjanna hjá SÞ, skýrslu
um för sína og ræddi Lodge
síðan við Foster Dulles í síma
til Washington. Dulles gerði
Eisenhower grein fyrir árangr-
inum af viðræðunum, sem vom
ákveðnar í þeim tilgangi að fá
leysta úr haldi 11 bandaríska
flugmenn sem í nóvember s.l.
vom dæmdir af kínverskum
dómstól í fangelsi fyrir njósn-
ir.
Eisenhower sagði, að því
væri ekki að leyna, að Banda-
ríkjastjóm hefði orðið fyrir
vonbrigðum með för Hammar-
skjölds. Hins vegar yrðu
Samningur Indlandsstjómar Bandaríkjamenn að forðast að
við Sovétríkin varð til þess að gera gagnráðstafanir eins og
Vesturveldin vöknuðu upp við- sakir stæðu, enda þótt það
Á undanförnum mánuðum hafa stöðugt verið skœrur
milli strandvarnarliðs á meginlandi Kína og hersveita
Sjangs Kajséks undan ströndunum. Nokkrum sinnum
hefur slegið í bardaga milli herskipa Sjangs og kínverskra
fallbyssubáta. Efri myndin var tekin af herskipinu Taj-
ping, pegar pað kom til Formósu frá Bandaríkjunum
sem gjöf frá Bandaxríkjastjórn. Á neðri myndinni er pað
að sökkva skammt frá Tanséneyjum eftir viðureign við
kínverska fallbyssubáta.
vondan draum. Stjómir Banda-
ríkjanna og Bretlands höfðu
gert ráð fyrir því að Indverj-
ar ættu ekki í annað hús að
venda en til sín og þvi yrði
hægt að beygja Indlandsstjóra
til þess að gefa brezkum og
bandarískum auðfélögum eign-
arhald á þungaiðnaði landsins.
En sovétstjórnin hafði ekki hið
minnsta á móti því að þunga-
iðnaður Indlands yrði ríkiseign.
Káðherra skundar á vettvang.
Brezka ríkisstjórnin brá við
skjótt og sendi aðstoðarverzl-
unarráðherra sinn A. R. Low
til Indlands núna um áramótin
með þau skilaboð, að Bretar
hefðu ekki lengur neitt á móti
því að reisa þjóðnýtt stáliðju-
ver fyrir Indverja. Brezk blöð
segja, að þessi stefnubreyting
spretti af ótta við afleiðingar
þess ef Sovétríkin ein fást til
að rétta Indverjum hjálparhönd
í baráttu þeirra fyrir iðnvæð-
ingu lands síns.
veittist erfitt.
Vilja hervæða V.Þýzkaland
ti! að draga úr samkeppni
Skýring á aístöðn brezkra ráðamanna
Danskur blaSamaður 1 Vestur-Þýzkalandi segir, aS þar
séu menn þeirrar skoSunar aS ákafur stuSningur brezkra
ráSamanna viS þýzka hervæSingu stafi af djúphugsaSri
ráSagerS um aS draga meS því móti úr samkeppni þýzkr-
ar framleiSslu viS brezka á heimsmarkaSinum.
A. Rastén, fréttaritari Kaup-
mannahafnarblaðsins Politiken
í Bonn, kemst þannig að orði:
„Fjölda Þjóðverja grunar að
eitthvað sérstakt búi undir á-
kafa Vesturveldanna og þá
einkum Bretlands að hraða því
Aðeins 100-200 vígfærir
iimrásarmenn eftir —
— segir íulltrúi stjórnar Costa Rica
Fulltrúi stjórnar Costa Rica sagSi í gær, aS eftir væru
nú aSeins 100—200 vígfærir mexm úr innrásarhernum,
hinir hefSu ýmist fallið, flúiS eSa veriS tekpir höndum.
af fulltrúum
Það var einn
við sendiráð Costa Rica í
Washington sem sagði þetta, en
í tilkynningu, sem Figueres
forseti gaf út í gær, segir að
innrásarmenn hafi enn tvo bæi
á valdi sínu við landamæri
Nicaragua. Þeir hafi verið
hraktir úr einum bæ í gær og
lið stjómarinnar stefni í átt
til landamærabæjanna.
Ráð Ameríkubandalagsins var
kvatt saman á fund í gær til
að fjalla um skýrslu sem rann-
sóknarnefnd ráðsins hefur sent
frá San José, höfuðborg Costa
Rica. 1 skýrslunni segir m.a.,
að sannað sé að innrásarliðið
hafi notað vopn af erlendum
uppmna og að erlendar flugvél-
ar hafi haldið áfram loftárás-
um á bæi í Costa Rica, eftir
að bandalagsráðið hafði lagt
bann við allri erlendri íhlutun.
sem mest að sambandslýðveldið
hefji hervæðingu, sem hlyti að
gleypa fjármagn svo milljörð-
um skipti.
Tilgangurinn er að þeirra
dómi að hefta framsókn þýzks
atvinnulífs, að knýja iðnað V-
Þýzkalands til óarðbærrar fram
leiðslu og að koma í veg fyrir
að Þjóðverjar haldi áfram að
leggja undir sig stærri og
stærri hluta af heimsmarkaðin-
um.
Þessar grunsemdir eiga sér
vafalaust stoð í veruleikanum.
Stofnun hálfrar milljónar
manna hers mun leggja Vest-
ur-Þýzkalandi á herðar byrði,
sem á margvíslegan hátt hlýt-
ur að íþyngja atvinnulífi
landsins og lífskjörum þjcðar-
innar.
Ef litið er á málið frá þessu
takmarkaða sjónarhorni mætti
taka sér þá þverstæðu í munn,
að eftir heimsstyrjöldina fyrri
hafi Vesturveldin reynt að
halda Þýzkalandi í kútnum
með því að afvopna það en
eftir heimsstyrjöldina síðari sé
verið að reyna að halda þvi í
kútnum með því að hervæða
það.“