Þjóðviljinn - 15.01.1955, Side 11
Laugardagur 15. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (tg
.....é.
Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkja
Fundur
og
kvikmyndasýning
í Stjörnubíói sunnudag kl. 2.30
rr\
Dr. Guðni Jónsson;
Ferðaþættiif frá Sovéfiríkjunum
Friunsýnd rússnesk
Kvikmynd frá ferðalagi íslenzku
memtfiamannanefnáarinnar
um Sovétríkin síðastliðið sumar
— íslenzkar skýringar við myndina —
Þorvaldur Þórarinsson
segir frá þingi fransk-sovézka menn-
ingarfélagsins í París.
FRÉTTAMYND
Stjáin HiB
Erlend fí3indi
Iþréttix
Framhald af 8. síðu.
kenning ákaflega hæpin, og
spor afturábak að hætta. að
senda út fréttir. Það er í raun-
inni að slíta sig úr tengslum
við fólkið og þó er starf stjórn-
ar Í.S.t. aðeins þjónusta við
fólkið og henni þvi lífsnauðsyn
að hafa samband við það. Þessi
viðleitni var góð og ef bætt
hefði verið um, hefði enn betur
tekizt um þetta samband. Að
loka sig inni er ekki vænlegt
til árangurs.
Frjóls
eyrisverzlun?
Á ráðherrafundi efnahagssam-
vinnustofnunar Evrópu í París
var í gær samþykkt að stefna
bæri að því að gera öll gjald-
eyrisviðskipti milli aðildarríkj-
anna frjáls. Þá var ákveðið að
láta fara fram athugun á því
hvort Greiðslubandalag Evrópu
gæti ekki starfað lengur en ráð
hefur verið gert fyrir. Starfsemi
bandalagsins á að ljúka 30. júní
Ollenhauer leilar
á náðir Nehrus
Erich Ollenhauer, leiðtogi vest-
urþýzkra sósíaldemókrata, kom
til Oslóar í gær í boði norskra
flokksbræðra. Hann skýrði
blaðamönnum frá þvi, að hann
myndi reyna að fá Nehru, for-
sætisráðherra Indlands, til að
beita áhrifum sínum við stór-
veldin til að fá þau til að fallast
á viðræður um sameiningu þýzku
landshlutanna.
Gert ráð fyrir
sýklahernaði í
Parísarsamningi
Sovétstjórnin hefur sent ríkis-
stjórnum aðildarríkja Parísar-
samninganna um hervæðingu
V-Þýzkalands orðsendingu, þar
sem hún segir, að sum ákvæði j
samninganna brjóti í bága við
Genfarsamþykktina frá 1925,
sem ieggur bann við notkun
sýklavopna og kemískra vopna. I
í samningunum er gert ráð fyr-
ir framleiðslu og birgðasöfnun
siíkra vopna.
M©regsst|€íiaM
Framhald af 1. síðu.
Einar Gerhardsen
málaráðherra, Rakel Severiin
féiagsmálaráðlierra og Ulrik
Olsen verkamálaráðherra.
Enginn vafi er á því, að
Trygve Bratteli fjármálaráð-
herra verður ekki kyrr í stjórn-
inni, en ekki er vitað hver muni
koma í hans stað.
Vantaði stuðning á
erfiðum tímum
Oscar Torp flutti ávarp í
norska útvarpið í gær og gerði
grein fyrir lausnarbeiðninni. -—
Hann neitaði því að ágreining-
ur hefði verið innan stjórnar-
innar eða milli hennar og þing-
flokks Verkamannaflokksins,
en viðurkenndi að sér hefði á
stundum fundizt skorta á að
stjórnin fengi stuðning sem
skyldi á þessum erfiðu tímum.
Misjafn afli í gær
Afli var misjafn i gær, eða
frá 3 til 9 lestir. Hæstur afli
var í Sandgérði hjá nokkrum
bátum, 9 lestir. Er þetta yfir-
leitt minni afli en í fyrra, en
þó sæmilegur, því í janúar í
fyrra var afli óvenjugóður.
Framhald af 6. síðu.
fengi til umráða flugstöðvar í
Danmörku. Ríkisstjórn sósíal-
demókrata hafnaði þeirri beiðni
— af ótta við andstöðu almenn-
ings, Rasmus Hansen land-
varnaráðherra viðurkenndi að
sú hefði verið orsökin þegar
hann sagði að ríkisstjórnin
hefði ekki verið andvig því að
láta stöðvarpar af hendi „en
samt höfnuðum , við tilboði
Bandaríkjamanna vegna þess
að við,; álitum, að hersetan
myndi kljúfa þjóðina“. Nú hef-
ur Rasmus Hansen verið í Par-
ís og samið þar við A-banda-
lagsherstjórnina um að ákveðin
tala erléndra flugmanna komi
til að fljúga dönskum herflug-
vélum. Danir kalla þetta tilraun
til að hleypa erlendum her inn
um bakdyrnar og ekki aðeins
blöð kommúnista og róttækra
heldur einnig vinstri. flokksins
hafa gagnrýnt tiltæki Hansens.
Yafalítið er að hægt er að fá
samningana um hervæð-
ingu Vestur-Þýzkalands sam-
þykkta á danska þinginu hve-
nær sem er, en ríkisstjórnin
óttast að í Ijós komi að fylgi
við A-bandalagsstefnuna fari
rýrnandi á þingi. Slíkt gæti
haft alvarlegar afleiðingar þeg-
ar til lengdar lætur, því að
þátttakan í bandalaginu og
hervæðingin sem henni fylgir
hefur frá upphafi verið mjög
óvinsæl meðal dansks almenn-
ings. Bandariskir embættis-
menn í sendiráðinu i Kaup-
mannahöfn hafa margsinnis
vítt Dani fyrir andúð þeirra á
hernaðarbrölti bandalagsins.
Fyrir mánuði hélt John O. Bell
sendiráð kveðjuræðu i Banda-
ríska klúbbnum í Kaupmanna-
höfn eftir þriggja ára dvöl þar4
Hann kvartaði sáran yfir af*
stöðu Dana og sagði m. a.;
„Mér virðist að hér í Dan*
mörku ríki andúð á öllu sem
hernaði viðkemur svo v'ir hófi
keyrir. Þetta get ég ekki skil-
ið“.
ess verður oft vart að Svíar
fylgjast vel með vandkvæð-
unum sem þátttaktm i A-banda-
laginii héfúr bakað: Nörðmönn-
um og Dönum og hrósa happi
yfir að hafa sjálfir valið hlut-»
leysisstefnuna og neitað að
ganga í bandalagið. Aðeins í
einum sænskum stjórnmála*
flokki, Folkpartiet, hefur orðið
vart þeirrar skoðunar að Svíar
hafi valið rangt. Nú segir eitt
helzta blað flokksins, Stock-
hohns-Tidningen: „Andúðin á
ævintýrastefnu í utanríkismál-
um stendur á gömlum merg
hérlendis og úr þessari andúð
hefur ekki dregið við að horfa
upp á það, hvernig Danir og
Norðmenn verða sifellt gram-
ari yfir þeirri nauðung sem
þeir eru beittir í A-bandalag-
inu . . . í þessu sambandi verð-
ur einnig að taka tillit til stefnu
Sovétríkjanna gagnvart Norð-t
urlöndum. Þessi stefna hefur
ekki hingað til borið vott um
ágengni, það má m. a. sjá á’
framkomu Sovétrikjanna g'agn-»
vart Finnlandi. Allt bendir til
þess að Sovétrikin stefni að því
að Norðurlönd séu friðarsvæðl
og það getur ekki verið Svíum'
áhugamál að gefa Rússum til-
efni til að hverfa frá þessari
stefnu, sem er ekki aðeins hag-
stæð fyrir Svíþjóð og Finn-
land heldur öll Norðurlönd'*.
M. T. Ó.
Málaskólinn
j Mímir
Sólvallagötu 3.
| NÝ NáMSKEIÐ I
ensku
þýzku
frönsku
ífiölsku
hefjast mánudaginn 17. p.m.
Innritun í dag kl. 6—8 í síma 1311. — Nemendur,
: sem þegar hafa látið innrita sig, eru vinsamlega beðnir
: að koma á morgun (sunnudag) kl. 4—7 í skólann á
j Sólvallagötu 3. Verður nemendum þá skipað í ílokka og
tekið-váð kennslugjaldi,
Halldór DungaS Einar Fálssen
•■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■*■■■■■■■*■■■■•■■■■^■■■■■■■■■■■■■■*
( Uppboð
á v.s. ATLA E.A. 744, eign þrotabús Hafna h.f.,
j fer fram í skrifstofu embættisins í Hafnarfirði
j mánudaginn 17. janúar 1955 kl. 1.30 e.h.
Bæjaríógeti
TEK AÐ MÉR
bókhald
og uppgjör
INGI B. HELG&SON. lögfræðingur
Skólavörðustíg 45, sími 82207
Ég þakka innilega gjafir, blóm, skeyti, sendi-
'bréf og aðra vináttu, sem mér hefur verið sýnd
í tilefni af 30 ára starfsafmæli mínu hjá Leik-
félagi Reykjavíkur .
Brynjólfur Jókannesson
Malbjörn Pétursson,
gullsmiður,
andaðist að sjúkrahúsi Hvítabandsins þann 13. þ.m.
Vandamenn
gjald-