Þjóðviljinn - 28.01.1958, Síða 9
Þriðjudagur 28. janúar 1958 ~ ÞJÓÐVILJINN — ';(ft
Þýzkaland tapaði með 16:23
fyrir Svíþjóð í handlmattieik
Um þessar fundir eru hand- !
knattleiksmenn okkar að æfa
undir þátttöku í heimsmeistara-
keppní í handknattleik, en þar
koma fram sterkustu lið land-
anna. Er gert ráð fýrir að þar
gangi á ýmsu þegar til leik.janna
kemur, ekki. sízt fýrir það, að
enn eru mjög mismunandi túlk-
anir á han'áknattleiksreglunum,
og þar sem það rekst á má
vissulega gera ráð fyrir að eitt-
hvað óvænt komi fyrir.
Gott dæmí um það er leikur
Þjóðverja og Svía sem fór fram
í Gautaborg í byrjun þessa mán-
aðar. Verður nokkuð sagt frá
leik þessum og umræðum sem
tirðu um hann í blöðum. Þetta
er ekki sett fram til þess að
hræðá okkar ágætu handknatt-
leiksmenn og' þá sem heima
sitja og fyigjást munu með þeini
úr íjarska, þegar þar að kem-
nr, heidur til þess’ að þeir geti
undirbúið sig' betur og það sem
að höndum ber komi þeim ekki
eins á óvart.
Sænska íþróttablaðið segir
svolítið frá leik þessum, sem er
að áliti þeirra sem á horfðu ein-
stæður í sinni röð í Svíþjóð.
Leikurinn byrjaði með því að
Þjóðverjarnir misstu knöttinn
nokkuð fljótt, en hvað skeður
þcgar Svíar koma til sóknar?
Þá réðust Þjóðverjar hver á
sinn mann, og gætti hver síns
manns eins og sjáaldurs auga
síns. Urðu læti mikil og ieit
þetta þannig út, að áhorfendur
tóku að brosa að aðförum þess-
um til að byrja með. Segir blað-
ið að auga dómarans hafi þegar
séð að hverju leiklag Þjóðverja
stefndi: að rífa niður leik Sví-
anna, berja þá niður þar til
þeim blæðir, halda fast og leika
hart og slá eins fljótt og hægt,
er.
Leikaðferð þessi kom dómar-
anurn. á óvárt en hann var
Félagsð Sölutækni
gengst fyrir námskeiði fyrir
sölu- og afgreiðslufólk í smá-
söluverzlunum. Hefur Sölu-
tækni notið til þessa aðstoð-
ar Framleiðniráðs Evrópu og
Iðnaðarmálastofnunar íslands.
Hans B. Nielsen norskur mað-
ur, er starfar á vegum Fram-
leiðniráðs Evrópu, mun veita
námskeiðinu forstöðu, og er
hann kominn hingað, en auk
hans munu verða íslenzkir
kennslukraftar. Námskeiðið
hefst 1. febr. og verður í tveim
flokkum, kennsla 2 kvöld í
vi'ku, á mánudögum og mið-
vikudcgum fyrir starfsfólk í
matvöruverzlunum, en þriðju-
dögum og fimmtudögum fyrir
starfsfclk annarra verzlana.
Þátttökugjald 1600.00 kr. og
væntir Sölutækni þess að kaup-
menn greiði hluta þess gjalds.
Umsóknir þurfa að sendast
Sölutækni, pósthólf 514, í síð-
asta lagi 29. þ.m. Gísli Ein-
arsson viðskiptafræðingur gef-
ur einnig upplýsingar í síma
1409S.
Norðmaðurinn Björn Borgen
sem einnig verður dómari í
fyrsta leik íslendinga í HM í
Austur-Þýzkalandi. Hann var
íyrst ekkj viss, hvernig hann
ólti að taka þetta mál en tekur
svo þá ákvörðun að fara nokk-
urskonar millileið í túlkun
reglnanna og hélt henni vægðar-
laust til enda lciksins.
Fyrir þetta hælir blaðið Borg-
en, og fagnar því að hafa feng-
ið svo góðan dómara frá Norð-
urtöndum. Þýzku leíkmennirnir
og þýzlcu blöðin voru nú ekki
alveg á sömu skoðun og verður
vikið að þeim ummælum seinna.
Þjóðveriar byrja með því að
skora mörk, því að Svíar eru
ekki fyliiiega vissir um það,
hvernig skuli mæta ófögnuði
þessum, og um.skeið stóðu leikr
ar 7:3 fyrir Þjóðverja, en í hálf-
léik voru mörkin jöfn 9:9.
Sænska liðið fékk þá dagskip-
un í hálfleik að leika stutt og
leika tveir og tveir s'aman, ann-
ar færi á móti mótherjanum en
hinn aftur fyrir hann og fói
knöttinn þangað. ..
Þetta gekk betur í síðari hálf-
leik, þó ekki fyrr en á siðasta
stundarfjórðungi leiksins.
Sem lítið dæmi um hörkuna
í leiknum af hólfu Þjóðverjanna
má geta þess að í fyrri hálfleik
skoruðu Svíar 9 mörk úr víta-
köstum en Þjóðverjar 1. í síðari
hálfleik voru þau 8:1 eða 19
mörk skoruð úr vítaköstum!
Auk þess fengu Svíar 4 vítaköst
sem þeir misnotuðu og skoruðu
ekki úr. Þetta sænska blað held-
ur því fram að eftir leikinn við
Dan.i rétt áður hafi Þjóðverjar
lagt nýja ,,taktik“, sem var í því
fólgin að B-framlínan hafði að-
eins það verkefni að ráðast á
sænsku leikmennina eins og
flugfiskar og lama þá. Þeir áttu
að vera nokkurs konar skemmd-
arsveit, enda voru þeir að því er
virtist líklegri til að vera glímu-
menn og æfðir útkastarar, og
margir veltu þvi fyrir sér hvort
menn þessir hefðu nokkurntíma
komið við knöttinn allan leikinn.
Dómarinn sagði eftir leikinn að
hann hefði haldið að það væri
komið heimsstríð, og að svona
leikur ætti ekkert skylt við í-
þrótt eða handknattleik. Og satt
að segja hefði ég getað rekið
alla Þjóðvérjana útaf vellinum,
en þetta átti nú einu sinni að
vera leikur, sagði Borgen.
Þýzk blöð ræða leik þenhan
mjög og iiefna hann
,,skandala“.
„Sport-Magasin“ kennir dóm-
aranum um allt saman og sama
blað ásakar líka sænska dómar-
ann sem dæmdi leiklnn milli
Dana og Þjóðverja.
Blaðið Nacht-Depesches átti
viðtal við markmann Þjóð-
verja, Freddy Pankonin. Ilann
segir: Allt byrjaði vei, við vor-
um vel fyrir kallaðir, við höfð-
um 7:3, en svo komu vítaköstin
sem jöfnuðu. Niðurstöður dóm-
arans. voru ótrúlegaiy Ef Svíarn-
ir gerðu mark var allt í lagi. en
ef þeir skutu framhjá eða ég
varði benti hann samstundis á
vítapúnktinn. Þegar við höfðum
fengið 13 mörk á þennan hátt
var ég að því kominn að yfir-
géfa völlinn. Taugar mínar
þoldu ekki meir. Eg mun aldrei
taka þátt I slíkum leik aftur.
Svíarnir áttu ekki að fá fieiri
en 7-—8 mörk og við áttum að fá
álíka mörg. Þið hefðuð átt að
sjá leikmennina þegar þeir aí-
klæddu sig. Maður 1 fæ'r ekki
slíkar bólgur, skrámur og mar-
blétti af tilviijun. —
Nokkrir blaðamenn benda á
það að Svíum falli ekki sú leik-
aðferð sem Þjóðverjar noti í
innihandknattleik. Svo er lika
hitt að Norðurlandabúaniir hafa
sínar eigin reglur, og þess vegna
verða Þjóðverjar að tryggja það
að Skandinavar dæmi ekki í
leikjum Þjóðverja og þeirra.
'Þýzka handknattleiksblaðið
Handball-Woche skrifar 6 síður
um leikina í Gautaborg og
Kaupmannahöfn, og eru þar
þessir tveir dómarar hart dæmd-
ir og norrænir dómarar yfirleitt,
svo og hinir hlutdrægu áhorf-
endur. Á einum stað segir orð-
rétt: „Margar ákvarðanir sem
hinn ungi dómari tók í Kauþ-
mannahöfn eru óvenjulegar í
augum Mið-Evrópumanna.
Skilningur Svíans á þriggja
skrefa reglunni viljum við ekki
ræða frekar. í samanburði við
það sem dómarinn Borgen í
Gautaborg sýndi okkur, getum
við þess, ems og blaðamaður
einn sagði um málið, að Ahron-
ius (Svíinn í Kaupmannahöfn)
var eins og foreldralaust barn.
Dómarar á Norðurlöndum
hafa oft þann skilning á því,
hvað sé rétt eða rangt í vamar-
leik, að við í Þýzkalandi getum
ekki annað en hrist höfuðið,
þrátt fyrir góðan vilja. Oft er
það eins og maður í „Hinu háa
Norðri“ leiki eftir allt annarri
reglu en þeirri alþjóðlegu. —
Blaðið kemst smátt og smátt
að þeirri niðurstöðu að Þýzka-
land hafi ekki aðeins leikið á
móti mjög sterku sænsku liði
heldur einnig á móti 4.300 villt-
um áhorfendum. Ekkí aðeins
móti hinum slæmu skipuieg'g-
endum á stjórnarbekk'junum
heldur einuig á móti — og um-
fram allt — þeim mismun sem
er að leika með dómara frá
Norðurlöndum.
Sænska þlaðið segir um þessi
ummæli að lítið sé sannieikan-
um samkvæmt í þessum skrif-
um nema dagsetningin á leikn-
um og staðurinn sem hann fór
fram á, og vill enga tílraun gera
til að svara, en tekur fram að á-
sökunin gegn Borgen sé órétt-
mæt. Það sem hann dæmdi á
var: Alvarlegar órásir, arm-
hindranir, barsmíðar, glímutök
eða fangbrögð, flest tilkomin
vegna þess að Þjóðverjarnir
gerðu örvæntingarfullar baká-
rásir þegar aðrar aðferðh- dugðu
ekki í vonlausum tilfellum, og'
tóku þá líftak, og úti á gólfinu
mátti sjá líkt og hnefaleikaæf-
ingar.
Ilér virðist vera komið upp
nokkurskonar stríð um reglurn-
ar því í ritinu Handball-Woche
segir að lokum: — Gerir nú
þýzka handknattleikasambandið
sínar ráðstafanir? Ef það gerir
þýið og' ií framhlaldi af því
vægðarlaust afsegir dómara frá
Norðurlöndum, þá hefur að
minnsta kosti þessi vandræða
fimmti janúai-dagur markað
tímamót til hins betra.
VÖRUKYNNING
Vörukynning verður í anddyri verzlunar-
innar kl. 1 til 6 e. h. á morgun
(miðvikudag),
Kynnt verður ný tegund kjötbúðings:
Kjöt- og grænmetisbúðingur
Leiðarvísir um notkun hans verður aíhent-
ur og íólki geíinn kostur á að bragða
á honum.
SÍS — Austnrstræti
i
Handknattleikur:
nlnni loklð
Austurbær sigurvegari í karla-
ílokki, en Vesturbær í kvennaílokki
S.l. miðvikudagskvöld fóru
fram 3 síðustu leikir Hverfa-
keppni Handknattleiksráðs
Reykjavíkur.
Kvennaflokkur:
Vesturbær — Úthverfi
13:9 (5:3) (8:6)
Leikur þessj var fremur til-
þrifalítill. Hafði Vesturbær yfir-
hönd í leiknum allt frá upphafi,
féll lið þeirra vel saman og náði
allgóðum leik. Lið úthverfanna
var hinsvegar mjög í molum, að
vísu skipað sterkum einstakl-
ingum en ekki að sama skapi
sterkum í samleiknum. Beztar í
íiði Vesturbæjar voru Helga,
María og markvörðurinn. í liði
úthverfa bar mest á Ólínu og
Ingu Láru.
Mörk Vesturbæjar skoruðu
Helga 7, María 2, Ólafía 1, Bára
1, Elín 1. Mörk Úthverfa: Sigríð-
ur 4, Ólína 2, Inga Lára 1. Inga
M. 1, Þórunn 1.
Karlaflokkuv:
Úthverfi — Hlíðar
21:13 (8:5) (13:8):
Fyrri hálfleikur var fremur
jafn, þó var leikstaðan um
tíma 8:2, en Hlíðamönnum tókst
að minnka nokkuð bilið skömmu
fyrir lok hálfleiksins. 1 síðari
liálfleik var leikur Hlíða mun
lakari, enda fór. nú úthaldsleysi
að segja til sín í þeim herbúð-
um. Sýndu Úthverfin mikla yf-
irburði í þessum hálfleik og
höfðu satt að segja öll ráð and-
stæðinga sinna í hendi sér. Bezt-
ir í liði Úthverfa voru Gunnar,
Valur, og Þórir, en í liði Hlíða
þeir Helgi, Guðmundur og' Þor-
geir.
Mörk úthverfa skoruðu Þórir
6, Pétur Sigurðss. 5, Valur 3,
Guðmundur 3, Pétur Bjamason
2, Sig. Jónsson 2. Mörk Hlíða
skoi*uðu Helgi 5, Hilmar 3, Þor-
geir 3, Guðjón 1 og Stefón 1.
Austurbær — Vesturbær
13:6 (3:2) (10:4):
Leikur þessi var fremur hægt
leikinn, sérstaklega framan af,
þó voru vamir beggja liðanna
sterkar og vel þéttar og hefur
það án efa átt nokkurn þátt í
því, hversu fá mörk voru skor-
uð í þessum leik, þó að ekki
skorti skytturnar hjá báðum að-
ilum. Leikur Austurbæjar var
þó heldur betri, en samt náðu
þeir ekki örugglega yfirhöndinni
í leiknum fyrr en iíða tók á
semni hálfleik. Beztir í liði
Austurbæjar voru Karl, Guðjón
og Gunnlaugur en i liði Vesíur-
bæjar Reynir, Böðvar og Karl
Benediktsson. Markverðir beggja
liðanna stóðu sig og með prýði.
Mörk Austurbæjar skoruðu:
Karl 6, Gunnlaugur 4, Kristinn
2 og Jón G. Jónss. 1, en fyrir
Vesturbæ skoruðu Karl Ben. 2,
Reynir 2; Ólafur 2.
Þar með er þá þessari Hverfa-
kepp.ni lokið. Hefur hún verið
fremur daufleg, bæði leikirnir
og eins aðsókn áhoríenda. Er
algert vafamál, hvort æskilegt
sé, að stofna til slíkrar keppni
árlega. Úrslit þessarar keppni
urðu þau að Vesturbær sigraði
með yfirburðum í kvennaflokki,
en Austurbær í karlaflokki.
Sigrar þessara liða komu nokk-
uð á óvart, þar sem flestir
bjuggust við sigri Úthverfa i
báðum flokkum.
Að lokum er hér tafla er sýn-
ir úrslitin í báðum flokkum:
Kvennaflokkur: U Mörk St.
Vesturbær 2 26:13 a
Austurbær 1 17:23 2
Úthverfi 0 19:26 0
Karlaflokkur:
u Mörk St.
Austurbær 3 56:41 6
Úthverfi 2 59:52 4
Vesturbær 1 43:49 2
Illíðar 0 46:62 0
c. r.