Þjóðviljinn - 01.07.1962, Síða 10
„SVARTI HLÉBARÐINN”
ÓCNAR BOTVINNIK
Endanleg úrslit eru nú kunn
á skákþinginu í Curacao. Þau
eru eftirfarandi:
1. Petrosjan 17'/2 vinning
2. -3. Keres 17 vinningar
2.-3 Geller 17 vinningar
4. Fischer 14 vinningar
5. Korstnoj I3V2 vinning
6. Benkö 12 vinninga
7. -8. Tal og Filip 7 vinninga
hvor.
Við þetta er svo að athuga,
að Tal tefldi 6 skákum færra
en hver hinna.
Það verður því Tigran Pet-
rosjan, sem gengur á hólm við
Botvinnik á næsta ári og tefl-
ír við hann allt að 24 skáka
einvígi um heimsmeistaratitil-
inn. Afrekaferill Petrosjans
var rakinn hér í blaðinu 28.
júni, og mun ég því ekki rekja
hann hér. Hann er 33 ára gam-
all, armenskur að uppruna, og
hefur verið í röð fremstu skák-
meistara Sovétríkjanna um 10
ára skeið. Þetta síðasta kandi-
datamót var það fjórða, sem
hann teflir á (í röð), og hefur
hann staðið sig vel á þeim öll-
um, svo ekki er hægt að segja,
að honum skjóti óvænt upp í
toppinn.
Hverju á maður svo að spá
um einvígi þeirra Botvinniks og
Petrosjans?
1 því sambandi væri ekki úr
vegi, að bera nokkuð saman
stíl þeirra.
1 fljótu bragði gæti manni
virzt, að stíil þeirra sé ekki
svo ýkja ólíkur. Það væri
heldur ekki erfitt að skýra það,
þótt þeir hefðu líkan stíl, því
vitað er, að hinir yngri skák-
meistarar Sovétríkjanna hafa
mikið numið af Botvinnik.
Væri því engin furða, þótt
skyldleika gætti með stíl ýmsra
þeirra og stíl heimsmeistarans.
Líkt er það með stíl þeirra
Petrosjans og Botvinniks, að
tafimennska beggia er fremur
róleg á yfirborðinu og þeir
leagja sialdan í tvísýn ævin-
týri. Þeir trúa á mátt sinn og
megin og treysta ekki á að
andstæðingurinn geri vhlur er
réttlæti í framkvæmd áhættu-
sama og kannske miður rök-
rétta taflmennsku. Að því leyti
Trtilofunarhringtr, steinhrini
ir, hálsmen, 14 OK 18 karati
íþróttir og utilíf
Sýning á vegum DIA KULT-
URWAREN, Berlin Lista-
mannaskálanum opin frá kl.
2—10.
Sýningunni lýkur í kvöld.
KAUPSTEFNAN.
Sveinn
Kristinsson
eru þeir t.d. ólíkir Tal, Korts-
noj og Geller, sem leggja allir
á stundum út í vafasöm ævin-
týri, sem heppnast oft gegn
veikari mönnum — ,þó ekki
alltaf — en leiða oft til herfi-
legra ófara gegn öflugum and-
stæðingum. Er síðara einvígi
þeirra Tals og Botvinniks gott
dæmi um þetta.
En þótt stíll þeirra Botvinn-
iks og Petrosjans sé að sumu
leyti líkur, þá er einnig margt
sem greinir hann að.
Stíll Petrosjans er vélrænni,
ópersónu.legri, en líklega þar
með nokkru öruggari. Petrosjan
er „taktískari" og gerir meira
en Botvinnik að því að leysa
stöðu.leg viðfangsefni eftir
„taktiskum“ leiðum. Að nokkru
leyti stafar þetta sennilega -af
því að enda þótt líta megi. á
vissan hátt á Petrosjan sém
lærisvein Botvinntks, þá er
hann einnig fulltrúi nýs skóla,
sem myndazt hefur í Sovét-
ríkjunum jafnhliða uppvexti
hinna ungu stórmeistara.
Lögmál framvindunnar hefur
gert það að verkum, að sá
skóli hefur smátt og smátt ver-
ið að leysa af hólmi þann
skóla, sem Botvinnik og sam-
tíðarmenn hans hinir eldri
námu fræði sín í.
Botvinnik stuðlaði með for-
dæmi sínu að vissu leyti að
stofnun þessa ni'ja skóla, en
hann hefur ekki haft fullt vald
á því að móta þær fræðikenn-
ingar, sem skólinn er reistur á
eða hafa úrslitaáhrif á þróun
þeirra. Þar hefur sjálfur andi
skáklistari.nnar leikið laus-
beizlaður og brotið sér farveg
af eigin ramleik.
í hinum nýja skóla hefur
gætt mikillar tilhneigingar til
að leysa sem flest stöðuleg
viðfangsefni eftir „taktiskum“
leíðum, og þótt hinn eldri skóli
þekkti einnig vel til slíks, þá
var sú viðleitni varla eins ríkj-
andi þar.
E£ maður reynir að vega og
meta horfurnar í væntanlegu
einvígi iþeirra Botvinniks og
Petrosjans, þá mundi ég tolja
að Botvinnik yrði öllu skæð-
ari í endatafli, en Petrosjan
hinsvegar betri í byrjunum og
snemma í miðtafli. Botvinnik
ætti vegna reynslu sinnar að
vera „strategiskt" sterkari en
Petrosjan, en þar hygg ég að
sé þó mjótt á mununum. Bot-
vin.nik hættir meira til tíma-
hraks en Petrosjan, sem lendir
víst varla nokkru sinni í tíma-
hraki. Þegar maður tekur svo
ti.llit til aldurs þeirra, en
Botvinnik er 18 árum eldri, þá
mundi. ég komast að þeirri
lokaniðurstöðu, að Petrisjan
hafi allt að 65% líkur til að
vinna einvígið. Meiri hluti
skákanna verður sjálfsagt jafn-
tefli, og vinningamunur verður
ekki ýkja mikill.
Þessa spá geta lesendur gert
athugasemdir við og sent
þættinum, ef . þeir óska.
IUndanfarið höfum við skoð-
að margar skákir frá Curacao,
Tii tilbreytingar birti ég hér
skák, sem tefld var á skák-
þingi miklu í Búdapest árið
1952. Petrosjan á þar í höggi
við Keres, sem varð sigurveg-
ari á rnóti þessu, en einnig
j skæðasti keppinautur Petrosjan
í Curacao. Petrosjan var 23
ára gamall, en Keres 36, þegar
skákin var tefld.
Hvítt: Petrosjan
Svart: Keres
Niemzo-indversk vörn
1. d4, RI6; 2. e4, e6; 3. Rc3,
Bb4; 4. e3, ó-o: 5. Rf3, d5; 6.
Bd3, c5; 7. 0-0, b6;
(Algengt er 7. — Rc6)
8. dxc5, bxc5; 9. Re2
(Petrosjan viil hagnýta sér af-
káraiega aðstöðu biskupsins á
b4)
9. — Rb-d7; 10. b3
(Betra var 10. cxd5)
10. — e5!. 11. Bbl, e4;
(Betra var 11. — d4 og síðan
Bb7)
12. Rd2, Ba6; 13. Bb2, Da5;
(Nau.ðsyniegt var 13. — Bxd2
og síðan dxc4)
Svart: Keres
P O » *> O w
Hvitt; Petrosjan
14. Rxe4!
(Eftir þennan glæsilega leik,
snýst taflið hvítum í vil)
14. — dxe4; 15. a3, Bd2; 16.
b4!, cxb4;
(Ef til vill var 16. — Db6 17.
Dxd2, Bxc4 skárra)
17. Dxd2, Bxc4; 18. axb4,
Dg5;
(Þessi leikur er andvana fædd
sóknartilraun, sem leiðir aðeins
drottni.nguna á hrakhóla. 18. —
Db6 19. Bd4, Db7 hefði veitt
meira viðnám)
SKÁKIN — Sunnudagur — 3.
19. Ha5!, Dh4; 20. h3, Hf-b8;
(Betra var 20. — a6)
21. Rg3!
(Hótar 22. Rf5 og síðan Re7t
og vinnur drottninguna)
21. — Hb5; 22. Hxb5, Bxb5;
23. Hcl, Bd3
(Keres fellur ,ekki staðan, og er
það mjög að vonum. Petrosjan
hótaði honum óbærilegum
sóknarþrýstingi með Dd4 og
Hc7, og leitast stórmeistarinn
því við að létta stöðuna með
uppskiptu.m)
24. Bxd3, exd3; 25. Bd4, Re4;
26. Dxd3, Rxg3; 27. fxg3, Dxg3;
28. De4!
(Áhrifamikil „centralisering"
hefði Niemzowitsch sagt! Svart-
ur tapar mi.nnst peði (26. —
Db8 29. Ds4!).
28. — Hd8.
(Hyggst svara 29. Bxa7 með
Rf6)
29. De7. Db8: 30. Bxa7, Dxa7;
31. Dxd8t, Rf8; 32. De8, Da3;
33. Hc7, Db3; 34. De7, Dd5; 35.
Kh2, h6; 36. Ilc8
og Keres gafst upp.
Ausfflrzkar hásmæður í
orlofi að HaElormssfað
HALLORMSSTAÐ 29/6 — Milli
20 og 30 húsmæður af Austfjörö-
um hafa dvcfizt hér á Hallorms-
stað í orlofi sínu að undanförnu.
Samband austfirzkra kvenna
hefur sem fyrr haft forgöngu um
orlofsdvöl þessa og notið styi’ks
af opinberu fé.
I fyrra mánu.ði dvöldust 24
konur úr Austur-Skaftafellssýslu
í vikutíma hérna og gert er ráð
fyrir að þriðji húsmæðrahópur-
inn komi hingað seint í ágúst-
mánuði.
Þetta mu.n vera fimmta sum-
arið, sem skipulögð er orlofsdvöl
austfirzkra húsmæðra að Hall-
ormsstað. Fyrstu árin gekkst
• Að eiga géða að
Eftirfarandi texti með mynd
birtist í Vísi f gær; „Gamla
frú Marceau. Hún á enga að
í Frakklandi, nema tvo syni.
sem féllu í stríðinu og iiggja
grafnir í hermannagrafreit við
Reirns".
VIENTIANE 30/6 — Telja má
víst að nýia samsteypustjórn-
•n í Laos takf upp stjórnmála-
samiband við alþýðulýðveldið
Kina 0» Austur-Þýzkaland, hef-
ur fréttaritari Reuters eftir hátt-
settum embættismanni. Hlutieys-
isstefna stjórnarinnar felur í
sér ósk umstjórnmálasamband
við öll ríki, sagði embættismað-
urinn.
Samband austfirzkra kvenna fyr-
ir þessu máli á eigin spýtur, en
nú nýtur sambandið styrkja af
opinberu fé sem fyrr segir.
Öræfin grædd
Framh. af 7. síðu.
aukizt í afgirtu svæðunum,
miðað við ófriðuðu reitina.
Að síðustu tók Sturla fram:
Ekki er unnt að draga algijldar
ályktanir af þcssum athugunum
einum. Þær eru aðeins upphaf
þeirra rannsókna sem fram-
kvæma þarf. En þær benda
eindregið til að unnt sé að
klæða landið gróðri a.m.k. allt
upp í 600 m hæð yfir sjó,
rækta afréttarlönd, nema ný
landsvæði til ræktunar og
sumarbeitar.
Þessu.m tilraunum hefur ver-
ið haldið áfram, t.d. hafa verið
settar upp tilraunir á Holta- og
Landmannaafrétti og sýna nið-
urstöður þeirra að áðurnefndar
grastegundir gefa góða upp-
skeru á eyðisöndunu.m norðan
Tungnaár, og hafa margir ferða-
angar orðið vitni að slægjun-
um í Tungnaárbotnum, sem
liggja í 700 metra hæð uppi við
Vatnajökul.
Nú er í ráði að setja röð af
tilraunareitum þvert yfir há-
lendi.ð, frá Þykkvabæ norður
yfir Kjöl, og er tilgangurinn
með því að fylgjast með og
bera saman gróðrarskilyrði á
hálendi og láglendi.
3. B.
BÍLALÖKK
„CELLOLOSE“
,S¥NTHETISK“ Bílalökk - Bílalökk
Grunnur Grunnur
Fyllir Fyiiir
Spartl , Spartl
Þynnir Þynnir
F á s t h j á :
Volvo-búðinni, Suðurlandsbraut 16
Skoda-búðinni, Bolholti 4
Pétri Hjaltested, Snorrabraut 22
Verzl. Friðriks Bertelsen, Tryggvagötu 10
Bílanaust h.f., Höfðatúni 2
Sveini Egilssyni h.f., Laugavegi 105
Stapafelli h.f., Keflavík
Kyndli h.f., Keflavík
Verzluninni Óðni, Akranesi
Haraldi Böðvarssyni & Co., Akranesi
Litlu Bílabúðinni, Vestmannaeyjum
Kaupfélagi Árnesinga, Selfossi
Kaupfélagi Eyfirðinga, Akureyri
og hjá mörgum bílamálurum.
Einkaumboð:
ÁSGEIR ÖLAFSSON, heildverzlun.
Símar 11073 og 13849, Reykjavík.
I
@■■@1
Sendibill 1202-
StotionbiU 1202
FELICIA Sportbiil
OKTAVIA Fólksbííl
SUBOH ®
TRAUST BODYSTAL - ORKUMIKLAR OS
VIÐURKENNDAR VÉLAR-HENTUGAR
ISLENZKUM AÐSTÆÐUM - LAGT VERO
P0STSENDUM UPPLÝSiNGAR
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBODIÐ
IAUGAVEGI 176 • SÍMI 37881
\
12 Q) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 1. júlí 1962