Þjóðviljinn - 08.07.1962, Page 4
UNGIR LISTAMENN f SÓKN CEGN
LÁGKÚRU OG KAUPMENNSKU
® í Englandi hefur hópur af ungum lista-
mönnum myndað hreyfingu, sem nefnist
„Miðstöð 42“ og er tilgangur hennar sá að leiða
list til fjöldans og taka á þann hátt upp bar-
áttuna við menningarfyrirbrigði á borð við
dægurlagagaulið. í stefnuskr.á segir á þessa
leið:
• „Miðstöð 42“ á að vera tilboð frá nýrri
kynslóð af höfundum, leikurum, hljómlistar-
mönnum og cðrum listamönnum, sem vilja
bjarga listinni úr klóm verzlunarmanna og
fá hana aftur alþýðu manna í hendur. Þá á
hún með gagnkvæmu trausti og almennri
þátttöku að geta vaxið úr tilgangslausum
ruglingi í skapandi afl“.
í>að var upphaf hreyfingar-
innar, að 1960 kom saman lít-
ill hópur ungra listamanna,
sem óánægðir voru með stöðu
listamansins gagnvart verzl-
unarkerfinu. Þróunarmögu-
leika sína töldu þeir of fáa
og fjöldann áiitu þeir fóðrað-
an með lélegu efni. Einn
þeirra kom nú fram með hug-
myndina um fjárhagslega ó-
háða listamiðstöð í London.
Fengist fé var ætlunin að
festa kaup á gamalli verk-
smiðju sem miðstöð yrði fyr-
ir alþýðulist. Einnig var ætl-
unin að leita samstarfs við
verkalýðshreyfinguna, bæði af
fjárhagsástæðum og til þess
að ná þannig til stærri hópa
I þessum hópi voru auk
Arnolds Weskers, sem var
upphafsmaðurinn, þau Ted
Allen, Alan Owen, Sheiagh
Delaney, Ted Kotcheff, Allan
Sillitoe, Doris Lessing og Ann
Jellicoe.
I fyrstu reyndist verkalýðs-
hreyfingin tortryggin gagn-
vart þessum ungu hugsjóna-
mönnum og ófús að veita
þeim stuðning. En hópurinn
stækkaði stöðugt, frjálslynd
blöð studdu listamennina með
fréttaflutningi og þekktir
menn eins og Peter Sellers,
rithöfundurinn C. P. Snow og
leikhússgagnrýnandinn Kenn-
eth Tynan lýstu yfir stuðningi
sínum.
Svo tók skyndilega að kom-
ast skriður á málið. Verkalýðs-
félögin í Wellingborough buðu
hinum ungu listamönnum að
sjá um „listfestival” í bænum
og þótti það takast með á-
gælum. 1 byrjun árs 1962 var
hreyfingin lögskráð undii'
nafninu „Miðstöð 42, h.f.”
Þessir 42 eru dregnir af álykt-
un nr. 42, sem fulltrúaráð
verklýðsfélaganna hafði þá
fyrir skömmu gert viðvíkjandi
styrk til eflingar listum í hin-g
um einstöku félögum. Smám
saman safnaðist svo mikið fé,
að unnt reyndist að festa
kaup á gömlum, fornfálegum
hjalli á Fitzroy Square i
London, og hefur hann verið
gerður að höfuðstöðvum hreyf-
ingarinnar fyrst um sinn. Æti
unin er enn sú að finna gam-
alt verksmiðjuhús í London,
en hæfileg bygging hefur enn
ekki fundizt. Bygginguna skal
útbúa þannig, að nota megi
hana að heita má allan sólar-
hringinn til margvíslegrar
iistastarfsemi: Kvikmyndasýn-
ingar fyrir hádegi, listasýn-
ingar um miðjan dag, leikhús
að kvöldi og næturklúbbur á
eftir.
■Leikritaskáldið Arnold
Weskei' og leikstjórinn Clive
Barker stjórna fyrirtækinu, en
þeim til aðstoðar eru Charles
Parker frá BBC, jazz-píanist-
inn Tommy Watt, hið 21 árs
gamla skáld Jeremy Robson,
hljómlistarkennarinn Colin
Graham, listfræðingurinn Beba
Lavrin og sjónvarpsleikstjór-
inn Alun Owen.
Listamennirnir gera sér það
ijóst, að í fyrstu verða þeir að
inna vinnu sína ókeypis eða
ódýrt af hendi, en þegar þeir
hafa náð sambandi við stærri
hópa, er ætlunin að b®rga
hana fullu verði. Auk iþess
að vera miðstöð þar sem fólk-
ið getur séð list samtíðar
sinnar í öllum hennar mynd-
um, er ætlunin að ungir lista-
menn hvaðanæva að úr Eng-
landi komi hér saman, skiDt-
ist á skoðu.num og ræði mál-
efni sín án þess að vera háð-
ir hagsmu.num listverzlunar-
innar.
En aðalhugmyndin með
„Miðstöð 42” er að ná til
fólksins með iistina. Því hefur
verið komiö á fót umferða-
leikhúsi. Eftir hinn góða
árangur, sem náðist í Wellr
ingborough. hafa fjölmörg
verkalýðsfélög lagt drög að
því að halda sííkar listahátíð-
ir.
Þrátt fyrir stuðning verka-
iýðsfélaganna þarfnast mið-
stöðin samt mikils fjár til
starfsemi sinnar. Sem betur
fer hefur stofnunin hlotið
styrk úr Gulbenkian sjóðnum
og enda þótt fjái'hagshliðin
verði enn um sinn hið mesta
vandamál er allt útlit fyrir, að
flestallar áætlanirnar megi
framkvæma. „Miðstöð 42”
vonar, að eftir nokkur ár
standi slofnunin undir sér
sjálf, og íþut'fi ekki að vera
upp á neinn fjárhagslega
komin.
„Miðstöð 42” og hreyfinguna
í kringum hana ber að skoða
sem einn lið í þeim uppgangi
sem „hið liiandi leikhús” hef-
ur átt að fagna í Englandi síð-
ustu árin. Ungum höfundum,
leikstjórum og leikurum hefur
skotið upp í öllum landshlut-
um Englands, og á fáum árum
hafa þeir gjörbreytt hinu
enska leikhúsi og gert það að
miðstöð nútíma leiklistar.
Margir af hinum ungu lista-
mönnum eru sjálfir aldir upp
í verksmiðjuhverfum langt frá
hinum ýmsu menningarmið-
stöðvum og hafa átt í miklum
erfiðleikum með að brjóta sér
leið til frægðar og frama.
Verk þeirra bera því oft vott
um sameiginlega uppreisn
gegn ríkjandi fordómum og
Þrír foringjar
„Miðstöðvar 42“
Alan Sillitoe.
Hann ólst upp í fátækrahverf-
um Nottingham. Hlaut vcrö-
laun og frægð mcd fyrstu
skáldsögu sinni, „Laugardags-
kvöid og sunnudagsmorgunn'S
um gæjann Arthur Seaton, sem
Finney lék afbragðsvel í kvik-
mynd eftir sögunni.
Shelag Delaney
Tvítug velksmiðjustúlka í Sal-
ford samdi hún leikritið ..Hun-
angskeimur“ sem hlaut af-
bragðsviðtökur utan Bretlands
og innan. Tilkynnt hefur ver-
ið að það eigi að sýna í Þjóð-
leikhúsinu en ekki orðið af
framkvæmdum.
Arno'.d Wesker
Þessi ungi Lundúnabúi skipaði
sér í fremstu röð enskra lcik-
skálda með þríleik sírum um
enskt alþýðufólk í borg og
sveit. Leikritin lieita „Kjúkl-
ingasúpa með byggi“, „Rætur“
og „Ég er að tala um Jerú-
salem“.
venjum, og það er þeim að
þakka, að margur stéttafor-
dómurinn hefur horfið í í-
haldsríkinu Englandi. Margir
af þessum ungu uppreisnar-
mönnum reyna nú að ná til
fjöldans með góða list.
Stefnuskrá „Miðstööðvar-
innar” endar á þessum orð-
um: „Þettþer djörf tilraun,
en við köstum okkur út í æv-
intýrið fullvrssir þess, að ef
tilraunin mistekst muni ó-
vígur her af verzlunarsinnuð-
um listvaldhöfum ríkja yfir
frístundum komandi kynslóða
og skapa þannig listræna
meðalmennsku, sem aðeins
getur haít eitt í för með sér:
Þjóð, sem hvað skilning og
tilfinningu snertir er óþrosk-
uð, ekki fær um að mjóta
neins, skapa neitt eða gera
neitt. Þetta eru ekki "órðin
tóm heldur raunveruleg hætta,
sem Iþegar er tekið að gæta.
Bingó er aðeins byrjunin.”
HOSEIGENDUR - GARÐEIGENDUR
ÖíJeborgs plasthúðaS sfálgirðingarefni
| fer sigurför um allan heim
\W*M% M §f§f - ‘ v pp 3gfll
GirSingarefnið
sem setur skemmtilegan svip á umhverfið.
fgff
IÐ*iSf^ • ör,'ggt
■ ... - lliiii -M ÍMM |||| • FALLEGT
lllllPi 'm ® AUÐVELT í
UPPSETNINGU
m . ft, W • ÓDÝRT
|§§* mmmmF • VARANLEGT
vOf Nú er ekkert
föðlHraj| VHI QrQs' vandamál að
* L WMÍ!k WtOk 1 ! || girða lóðina.
J Wm ® s.
- Ss Júlíusson
hf yjjr ■ _ .J*i!sjdg?&KrT • r- Aðalstræti 6, 7. hæð sími 13864.
* . u ;
'4) — ÞJÖEVILJINN — Sunnudagur 8. júh 1962