Þjóðviljinn - 19.11.1964, Page 1
HVASSVIDRl OLLl
VATNSLEYSI f GÆR
Milli kl. 10 og 11 £ gær-
morgun slitnaði Lögbergs-
raflínan í rokinu sem þá
var og við það fór raf-
magnið af dælunni við
Gvendarbrunna svo að
vatnslaust varð víða í borg-
inni, a.m.k. á öllum stöð-
um sem hærra liggja. Bú-
ið var að gera við bilun-
ina um kl. 3 í gær en erf-
itt var við að eiga vegna
hvassviðris.
Rokið mældist
13 stig og þá
fauk mælirinn
■^rl I gærmorgun gerði mik-
ið hvassviðri sunnan-
lands og var veðurhæð-
in víða 7—8 vindstig á
Suðurlandi og einnig
sums staðar austanlands
og vestan. Hcr í Rvík
mældust 8 vindstig.
Mest var veðurhæðin í
Vestmannaeyjum, 13
vindstig, og þá fauk
mælirinn svo að ekki
var hægt að mæla vind-
hraðann lengur. Skóla-
hald lagðist niður í Eyj-
um vegna óveðursins og
einnig varð að fresta
þar jarðarför sem fram
átti að fara í gær. Litl-
skemmdir munu þó
hafa orðið af völdum
veðursins.
★ Framan af deginum var
snjókoma hér sunnan-
lands en upp úr hádeg-
inu fór að hlýna og var
kominn 6 stiga hiti á
Rangárvöllum kl. 2 e.h.
ÍC Norðanlands var snjó-
koma i gær en hægt
veður.
Nítján
árekstrar
ígær
SAMKVÆMT upplýsingum sem
Þjóðviljinn fékk hjá lögregl-
unni í gærkvöld urðu hvorki
meira né minna en 19 bif-
reiðaárekstrar yfir daginn
ALLIR þessir árekstrar urðu á
tímabilinu frá klukkan 6 um
morguninn til klukkan 8 um
kvöldið
ENGIN slys urðu á mönnum.
370 fu/ltráar
á þingi A.S.Í.
Qll kjörbréf afgreidd
Þrjú ný k.iörbréf voru sam-
þykkt á fundi Alþýðusambands-
þings í gær. Lagði kjörbréfa-
nefnd til að tveir fulltrúanna
yrðu samþykktir til þingsetu
með málfrelsi og tillögurétti,
fulltrúar Harðar í Hvalfirði og
Verklýðsfélags Hrútfirðinga,
þar eð ekki hafði verið fylgt
reglum sambandsins við kosn-
inguna hvað tíma snerti. Fram
kom hins vegar tillaga um að
samþykkja kjörbréf þessara
fulltrúa skilyrðislaust og var
hún / samþykkt. Samþykkt var
einnig kjörbréf fyrir fulltrúa
frá Verkalýðsfélagi Breiðdæl-
inga. Það kjörbréf barst ekki
fyrr en í gær.
Lýsti kjörbréfanefnd þá yfir
að öll kjörbréf hefðu verið af-
greidd og teldi hún sig hafa
lokið störfum. Sitja 370 fulltrú-
ar þingið.
MIKLAR UMRÆÐUR UM LAGABREYTINGAR A ASI-ÞINGI
Treysta verður fjárhagsgrundvöll
heildarsamtaka íslenzkrar alþýðu
■ Meginverkefni Alþýðusambandsþings í gær var
að ræða tillögur um lagabreytingar, sem fram
eru komnar, bæði frá miðstjórn og einstökum
þingfulltrúum.
■ Eðvarð Sigurðsson og Hannibal Valdimarsson
sem töluðu um tillögur miðstjórnarinnar lögðu
þyngsta áherzlu á þá breytingu, að ákvæðið
um upphæð skatts til Alþýðusambandsins yrði
tekið úr lögunum og það lagt á vald meirihluta
Alþýðusambandsþings hverju sinni, í sambandi
við afgreiðslu fjárhagsáætlunar sambandsins,
hver skatturinn yrði.
■ í fjárhagsáætluninni, sem fyrir þinginu liggur,
er miðað við hækkun skatts á félaga úr 52 krón-
um í 95 krónur fyrir karla, 75 kr. fyrir konur.
Lagabreytingar — og sambandsstjórn!
Eggert G. Þorsteinsson, Pétur Sigurðsson og Jón H. Guðmundsson
mótmæltu hinum fyrirhuguðu lagabreytingum miðstjómarinnar í.
ýmsum greinum, en lögðu aðaláherzlu á að tengja hugsanlega sam-
þykkt lagabreytinganna því að takast mætti almennt samkomulag
um næstu stjórn Alþýðusambandsins.
Sverrir Hermannsson skoraði hins vegar fastlega á þingfulltrúa
að samþykkja fyrirætlanir stjórnar ASl um þær lagabreytingar
sem varða ákvörðun skatta og fyrirhugaða hækkun, taldi þar jafn-
vel of skammt gengið. Öllum mætti ljóst vera að til uppbyggingar
Alþýðusambandsins yrði að tryggja sambandinu fjárhagslegan
grundvöll.
Óskar Garibaldason frá Siglufirði mælti sterklega með lagabreyt-
mgunum og taldi þær nauðsyn ekki einungis Alþýðusambandinu
heldur einnig fjórðungssamböndunum, en þau fá þriðjung skatts-
ins fyrir félögin sem í þeim eru.
Fulltrúar á þingi ASÍ
Útför
Ólafs
Friðrikssonar
í gær fór bálför Ólafs Frið-
rikssonar fram frá Fossvogs-
kepellunni að viðstöddu miklu
fjölmenni. Fánar Sjómannafé-
lagsins og Dagsbrúnar voru í
kirkjunni í virðingarskyni við
hinn látna. Séra Þorsteinn
Björnsson flutti minningarræð-
una. Sjómannafélag Reykjavíkur,
Verkamannafélagið Dagsbrún og
Alþýðusamband fslands sáu um
útförina.
Kveðja
frá Ottó
Þingforseti Alþýðusambands-
þings las í gær skeyti sem þing-
inu hafði borizt, á þessa leið:
— Þing Alþýðusambands Is-
lands.
KR-húsinu, Reykjavík.
Myndin er af nokkrum Vestfirðingum og SnæfcIIingum á Alþýðu-
sambandsþingi. Til vinstri á myndinni er Guðbrandur Guðbjartsson
frá Ólafsvík, en hinumegin við borðið sitja, talið frá hægri: Jör-
undur Engilbertsson frá Súðavík, Sævar Guðmundsson frá Bol-
ungarvík, Guðmundur Friðgeir Magnússon frá Þingeyri, Elínbergur
Sveinsson frá Ólafsvík og Einar Magnússon frá Stykkishólmi.
Þakka heiður mér sýndan.
Hamingja fylgi störfum þings-
ins.
Ottó N. Þorláksson.
Var skeytinu tekið með þrótt-
miklu lófataki fulltrúanna.
Fyrirhug'uð skattahækkun
Hannibal minnti á að ekki væri farið fram á meira með fyr-
irætlunum miðstjórnar en að tryggja ASÍ röskar tvær miljónir í
árstekjur, af 35 þúsund manna sambandi. BSRB hefði nú tryggt sér
allt að tveggja miljóna króna skatttekjur, og teldi það samband þó
ekki nema 5000—6000 félaga. Til samanburðar mætti geta þess að
Alþýðusamband Noregs tæki sem svarar 180 kr. skatt af hverjum
félaga sínum, tvöfalt meira en hér væri farið fram á.
SILDARBATUR STRAND-
AR VIÐ ÖNDVERÐARNES
Félagsréttindi
Önnur veigamesta lagabreytingin sem miðstjómin leggur til er
við 11. grein sambandslaganna. Lagt er til að aftan við greinina
bætist þessi málsgrein: „Ekkert félag í sambandinu má hafa sem
aðalfélaga neinn þann sem tvö sl. ár hefur ekki unnið í einhverri
þeirra starfsgreina, sem félagið hefur samning fyrir, nema hann
hafi hætt störfum fyrir aldurs sakir eða verið kvaddur til að gegna
starfi fyrir sambandsfélag eða Alþýðusambandið."
Taldi Eðvarð í framsögu að mikill misbrestur hefði á því orðið
Framhald á 9. síðu.
ÓLAFSVÍK 18/11 — Á áttunda tímanum í morg-
un strandaði Báran KE 3 við Öndverðarnes á
Snæfellsnesi og festist báturinn á landföstum
klöppum og gat skipshöfnin gengið þurrum fót-
um í land. Blíðalogn var á þessum slóðum.
Björgunarsveitirnar frá Hell-
issandi og Ólafsvík voru samt
kallaðar á vettvang og einnig
kom Elding frá Akranesi með
kafarann Hafstein og síldarskip-
ið Akurey og var gerð tilraun
til þess að draga Báruna á flot
og varð að hætta þessum til-
14. flokksþingið hefst á morgun
□ 14. flokksþing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins verður sett í
Tjarnargötu 20 kl. 5 síðdegis á morgun, föstuclaginn 20. nóvember.
□ Pingið sitja nokkuð á annað hundrað fulltrúar frá nær öllum sósíalistafélögum
á landinu.
□ Þingfulltrúar utan af landi sem ekki hafa enn afhent kjörbréf sín eru beðnir að
hafa samband við skrifstofu miðstjórnar í Tjarnargötu 20.
raunum þar sem leki var kom-
inn að skipinu.
Upp úr kl. tvö í gærdag tók
að hvessa meira og mikið brim
var í uppsiglingu og var búist
við að báturinn myndi brotna í
spón í þeim hamagangi.
Báran var á síldveiðum á
Jökuldýpi og hafði leitað skjóls
inni á Skarðsvík undir morgun-
inn. Skipshöfnin telur tíu manns
og heitir skipstjórinn Guð-
jón Ólafsson.' öndverðarnes
er vestast á Snæfellsnesi og þar
er viti og ósetinn vitavarðarbú-
staður og reyndist strandstaður-
mn fyrir neðan túnfótinn á
gamla bænum.
Báran KE er 80 tonna eikar-
bátur, smíðaður árið 1943 í Svf-
þjóð og eign Hraðfry&tistöðvar
Keflavíkur. Einar ríki gerir bát-
inn út. — E.V.
Fyrir skömmu var vararæð-
ismaður Norðmanna á Isafirðij
Bjarni Guðbjörnsson banka-
stjóri, útnefndur riddari af
orðu heilags Ólafs fyrir ræðis-
mannsstörf, segir í fréttatil-
kynningu frá norska sendiráð-
inu.