Þjóðviljinn - 19.11.1964, Blaðsíða 12
\
LÝST EFTIR
HITAVEITU
Kona nokkur kom að
máli við Þjóðviljann í gær
og var hin reiðasta. Hún
kvaðst búa á Skólavörðu-
stíg og væri þar skemmzt
frá að segja, að í kuldum
undanfarinna daga hefði
vart verið líft i húsi sínu
fyrir kulda, og heitt vatn
ekki að fá fremur en gló-
andi gull. Konan kvaðst
hafa búið áður á Baldurs-
götu og væri þar svipaða
sögu að segja, og hverfið
allt umhverfis Skólavörðu-
holtið væri eitt samfellt
vandræðahverfi hvað Hita-
veitunni viðkemur.
Þessu er hér með komið
áleiðis til Hitaveitunnar,
allavega væri fróðlegt að
vita hvernig á þessu stend-
ur og hvað má gera til úr-
bóta.
Hlutavelta
á sunnudag
Eðlisfrœðíkennslustofa í MR-húsinu nýja
Þessi mynd er úr nýbyggingu Menntaskólans í Reykjavík og sýnir hún cina eðlisfræðistofuna. —
Eins og sést á myndinni er vaskur í hverju borði, Iiggja til hans þrjár Ieiðslur, flytur ein þeirra
heitt vatn, önnur kalt vatn og hin þriðja gas, — Borðin og stólar standa á upphækkuðum pöllum og
er það nýjung í skólum hérlendis. — Lýsing er mjög góð, flúrskinsljós með sérstökum skermi, — Væri
óskandi að ekki yrði þess langt að bíða að allir menntaskólarnir á Iandinu og kennarar þeirra
byggju við svo góðar aðstæður.
Frá Alþingi
Næstkomandi sunnudag held-
ur kvennadeild Slysavarnafé-
Iagsins í Reykjavík hina árlegu
hlutaveltu sína. Hlutaveltan
verður haldin í Listamannaskál-
anum og hefst kl. 2 e.h. Að
þessu sinni rennur ágóðinn af
hlutaveltunnl allur til þyrlu-
kaupa þeirra, er Slysavarnafé-
lagið ráðgerir nú, og heitir félag-
ið á Reykvíkinga að bregðast
vel við, sem endranær. Við end-
urtökum: Hlutaveltan er í Lista-
mannaskálanum á sunnudag og
hefst kl. 2.
Radarspeglar verði settir
upp til öryggis á sjónum
Frá því var skýrt í Þjóð-
viljanum 7. nóvember síðast-
liðinn, að Geir Gunnarsson
flytti á Alþingi tillögu til
Hér er Enzo Gagliardi að syngja fyrir John Steinbeck á Capri og
fór rithöfundurinn víst að gráta, er Gagliardi söng Santa Lucia. —
það segir minnsta kosti Pétur Pétursson er kynnti söngvarann fyr-
ir blaðamönnum í gær.
Étalskur söngvari
syngur í Naustinu
þingsályktunar um uppsetn-
ingu radarspegla á suður-
strönd landsins. Tillaga þessi
kom til umræðu á fundi
Sameinaðs Alþingis í gær og
verður hér birt framsögu-
ræða Geirs.
Tillagan er svohljóðandi: „AI-
þíngi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að láta nú þegar fara
fram athugun á því, hvort unnt
sé að auka öryggi sjófarenda
viö suðurströnd landsins með
því að merkja hana radarspegl-
um. þar sem hiín er lægst.
Reynist sú . athugun jákvæð.
vcrði slík radarmcrki sett upp
hið allra fyrsta”.
Ræða Geirs fer hér á eftir:
Þingsályktunartillaga þessi
skýrir sig sjálf, en eins og öli-
um er kunnugt, hefir jafnan
verið leitazt við að gera hverjar
þær ráðstafanir, sem hugsanlegt.
er að gætu orðið til þess að
koma í veg fyrir slys á sjó eða
landi. og óhætt er að fullyrða,
að um fátt eða ekkert er þjóð-
in eins samtaka og að efia
slysavarnir svo sem frekast er
unnt.
Þjóð, sem stundar fiskveiðar
norður á hjara heims, þar sem
veðrátta er hvað umhleypinga-
sömust í heiminum, og sækir
sjóinn af svo miklu ofurkappi,
sem raun ber vitni, hefir að
sjálfsögðu ekki komizt hjá að
verða fyrir því, að bessi harða
sjósókn krefst fórna, krefst
mannslífa og að af henni hlýzt
oft stórfellt eignatjón.
Það hefur löngum verið svo
við sjósókn, að slysahættan er
mest við ströndina. Þar er skip-
um og sjófarendum tíðum enn
njeiri hætta búin en úti á opnu
hafi.
Ný tækni
Til þess að forða skipum frá
grandi og til þess að ^leiðbeina
þeim á siglingu, hafa verið sett-
ir ljósvitar á ströndina umhverf-
is landið. Lengst af voru þessir
ljósvitar og önnur leiðarmerki
i landi helzta öryggistækið, sn
nú hin síðustu ár hafa verið
tekin í notkun ýmis önnur tæki,
sem staðsett eru um borð í skip-
unum, og koma að almennara
haldi en ljósvitar fyrir þau skip,
sem þessi tæki hafa, en það á
við um allan flotann nema
minnstu bátana. Er hér fyrst
og fremst um að ræða radar-
tæki, sem sýna stjórnendum
s.kipa strandlínuna og önnur
kennileiti í landi.
Ti-I þess að strandlínan komi
fram í radar sem greinilegast
og óyggjandi ljósmerki, þarf
hún að rísa nokkuð yfir sjáv-
arflöt, en þar sem fjöruborðið
er lágt, jafnvel langar leiðir upp
ftá sjónum, koma radartæki
ekki að sama haldi. Þetta á að
sjálfsögðu fyrst og fremst við
Framhald á 9. síðu.
Fimmtudagur 19. nóvember 1964 — 29. árgangur — 255. tölublað.
Bókaútgáfa Æskunnar
gefur út tíu bækur
Bókaútgáfa Æskunnar mun
á þessu ári gefa út 10 barna- og
unglingabækur. Æskan hóf út-
gáfu á unglingabókum árið 1930
og hcfur alls gefið út 113 slíkai;
bækur, og hafa þær jafnan átt
vinsældum að fagna meðal
æskulýðsins. Bókaútgáfan hefur
legið niðri um tíma cn er nú
hafin að nýju undir stjórn fram-
kvæmdastjóra blaðsins, Kristj-
áns Guðmundssonar.
Fyrslu 6 bækur ársins 1964
eru komnar út, tvær þeirra
komu út í vor, Hctjan unga eft-
ir Herbert Strang í þýðingu Sig-
urðar Skúlasonar magisters og
hið sígilda skáldverk Oliver
Twist eftir Charles Dickens.
Báðar þessar þækur hafa verið
gefnar út áður hjá Æskunni. 1
haust komu út eftirtaldar bæk-
ur: Litla lambið, eftir séra Jón
Kr. ísfeld. Saga þessi hefur ver-
ið framhaldssaga í „Æskunni"
að undanförnu. Bókin er prýdd
fjölda mynda eftir listakonuna
Þórdísi Tryggvadóttur. Þá er
fimmta útgáfa á Örkinni hans
Nóa eftir Ðisney, í þýðingu
Guðjóns Guðjónssonar, fyrrver-
andi skólastjóra. Spæjarar eftir
Gunnar Nilan, þýðingu gerði
Guðjón Guðjónsson. Fjósköttur-
inn Jáum segir frá er fyrsta
bókin sem Bókaútgáfa Æskunn-
ar gefur út eftir sænska rithöf-
undin Gustav Sandgren, en hann
hefur skrifað nokkrar barna-
bækur sem allar hafa hlotið
metsölu á Norðurlöndum. Teikn-
ingar í bókinni eru eftir Kjeld
Simonsen en þýðingu hefur Sig-
rún Guðjónsdóttir bókavörður á
Akranesi annazt. David Copper-
fiehl eftir Dickens hefur komið
sem framhaldssaga í Æskunni
að undanförnu og hlotið miklar
vinsældir. Bókin er prýdd
fjölda mynda. Þýðingu gerði
Sigurður Skúlason magister.
I tilefni af 65 ára afmæli
barnablaðsins Æskunnar gefur
útgáfan út eitt af verkum ind-
verska spekingsins Tagore. Bók-
in nefnist Móðir og barn og er
gefin út í sérstakri hátíðarút-
gáfu. Þýðingu gerði Gunnar Dal
rithöfundur.
Tvær síðustu bækurnar, sem
Bókaútgáfa Æskunnar mun gefa
út fyrir jólin eru drengjasagan
Hart á móti hörðu eftir Dag
Christensen, í þýðingu Guð-
mundar G. Hagalíns og telpna-
sagan Stína eftir Babbis Friis
Baastad, í þýðingu Sigurðar
Gunnarssonar skólastjóra. Báðar
þessar bækur hafa verið met-
sölubækur á Norðurlöndum.
Kvikmynda-
sýning MÍR
■^rl Laugardaginn 21. nóvember
kl. 2 síðdegis verður sýnd í
Stjörnubíói á vegum MlR,
sovézka kvikmyndin „9 dagar
úr cinu ári“.
★I Myndin fjallar um unga
kjarnorkufræðinga og ó-
slökkvandi þrá þeirra eftir
þekkingu á Ieyndarmálum
cðlisfræðinnar, jafnvel þótt
líf þeirra sé í hættu. Mikhail
Romm, einn kunnasti kvik-
myndastjóri Sovétríkjanna,
hefur gert myndina. 1 helztu
hlutverkum eru nokkrir
kunnustu Ieikarar Sovétríkj-
anna.
Tfci Aðgangur er ókeypis og all-
ir eru velkomnir meðan hús-
rúm Ieyfir. Þó verður börn-
um ekki leyfður aðgangur.
iförn Öíafsson
einleikari með
hliómsveitinni
I kvöld, fimmtudaginn 19. nóv.
heldur Sinfóníuhljómsveit Is-
lands hljómlcika í Háskólabíói.
Stjórnandi er Igor Buketoff og
cinlcikari Björn Ölafsson fiðlu-
leikari.
Þetta eru fjórðu hljómleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar á þessu
starfsári og þeir síðustu sem
Buketoff stjórnar að sinni.
Hann heldur utan næstu daga
en kemur að líkindum aft-
ur í janúar og stjórnar þá
hljómleikum hjá Smfóníuhljóm-
sveitinni og er í ráði að hann
stjórni þá einum barnahljóm-
leikum. Á efnisskrá hljómleik-
anna í kvöld er: Mozart: For-
leikur að Don Govanni. Beet-
hoven: Fiðlukonsert í D-dúr op.
61. Hallgrímur Helgason: Rapsó-
día fyrir hljómsveit, Chopland:
E1 salón Mexícó. Rapsódia Hall-
gríms Helgasonar er alveg nýtt
verk og verður frumflutt í kvöld.
Björn Ó'lafsson leikur einleik í
Fiðlukonsert Beethovens.
Veitxngahúsið Naust byrjar it-1
alska viku i kvöld og hefur
fengið gagngert ítalskan þjóð-
lagasöngvara frá Napolí til
Iandsins til þess að syngja fyr-
ir gesti hússins. Byrjar hann að
syngja i kvöld.
ítalski söngvarinn heitir Enzo
Gagliardi og eru söngvar heima-
borgarinnar honum hjartfólgn-
astir og héfur hann borið hróð-
ur fæðingarborgar sinnar víða
í söng, beggja vegna Atlanzhafs-
ins.
Dtnsflokkurinn
frá S-Kóreu til
Iðndsins í dag
Suður-Kóreu-ballettinn er
væntanlegur til landsins með
Loftleiðáflugvél frá Bandaríkj-
unum í dag, 46 manna flokkur,
sem sýna mun þrisvar sinnum í
Þjóðleikhúsinu. Verður fyrsta
sýningin á laugardagskvöldið.
Sala aðgöngumiða að öllum
þrem sýningunum hófst í leik-
búsinu í gær.
Á söngskrá hans getur að finna
hin nýrri lög frá mörgum lönd-
um eins og frá Frakklandi, Spáni
og Mexíkó, alþjóðleg ástarljóö
og ópei’uaríur. en hæst ber hina
funheitu Napólísöngva.
Hann hefur sungið fyrir marga
heimsfræga menn og virðast
þeir allir hafa ritað nöfn sín á
gítarinn hans eins og Clark
Gable, Charlie Chaplin, John
Steinbeck, Rock Hudson, Rosa-
lind Russel og svo m?etti lengi
telja. Spurningin er, hvort mað-
urinn er í Siðvæðingarhreyfing-
unni. Enzo Gagliardi er kvæntur
danskri stúlku frá Jóflandi og er
hún með manni sínum. Hún hé'
í Danmörku fröken Pedersen.
UMRÆÐUFUNDUR UM LEIKHÚSMÁL
■ Leiklistaráhugi er mikill í Reyk'ja-
vík, í því sambandi hafa leikhúsmálin
oft verið þar ofarlega á baugi. Mál-
fundanefnd stúdentaráðs boðar nú til
almenns umræðufundar um þessi mál,
þar sem þjóðleikhússtióri, Guðlaugur
Rósinkranz og Sveinn Einarsson munu
hafa framsögu, ásamt einum fulltrúa
stúdenta, Þorleifi Haukssyni, en hann
er einn af útgefendum tímaritsins Leik-
húsmála Fundurinn verður haldinn í
Sigtúni sunnudaginn 23. nóvember o.e
hefst kl. 13,30. Fundarstjóri verður Hali-
iór Gunnarsson stud. theol.
® Stúdentar hafa hér farið inn á þá
braut, að taka fyrir mál, sem eru ofar-
lega á baugi hverju sinni, fá um það
umræður, þar sem öllum, sem áhuga
hafa á, gefst tækifæri til að hlusta og
koma á framfæri áliti sínu. Má í þessu
sambandi minna á hinn fjöruga fund,
sem stúdentar héldu í fyrra um Kefla-
víkursjónvarpið.
B Þess má vænta, að fundur þessi
verði bæði fróðlegur og skemmtilégur,
bar sem tveir helztu áhrifamenn í leik-
list höfuðborparinnar reifa málin, en
stúdentar og aðrir áhugamenn um leik-
list munu væntanlega hafa margt til
hessara mála að leggja
v